Fréttablaðið - 19.03.2009, Side 4

Fréttablaðið - 19.03.2009, Side 4
4 19. mars 2009 FIMMTUDAGUR Sæktu um ÓB-lykilinn á www.ob.is -5kr. við fyrstu no tkun TB W A \R EY K JA VÍ K \ SÍ A og síðan alltaf 2 kr. ásamt Vildarpunktum með ÓB-lyklinum VIÐSKIPTI Rannsókn á offjárfest- ingum fimm lífeyrissjóða kemur stjórnarmönnum sem Fréttablað- ið ræddi við í gær á óvart. Allir segja að um mannleg mistök hafi verið að ræða. Offjárfestingarnar voru mestar í Kaupþingi. „Mér sýnist þetta vera ansi harkalegar aðgerðir,“ segir Örn- ólfur Jónsson, stjórnarformaður Eftirlaunasjóðs FÍA. Hann segir sjóðinn hafa óskað eftir rökstuðn- ingi frá fjármálaeftirlitinu vegna þeirrar ákvörðunar ráðuneytisins að skipa sjóðnum umsjónaraðila fram í júlí. Fjármálaeftirlitið vísaði málum fimm lífeyrissjóða til sérstaks saksóknara. Grunur leikur á að stjórnir sjóðanna hafi fjárfest umfram heimildir á fyrri hluta árs 2008. Sjóðirnir eru Íslenski lífeyris- sjóðurinn, Lífeyrissjóður Eim- skipafélags Íslands, Lífeyris- sjóður Tannlæknafélags Íslands, Eftirlaunasjóður FÍA og Kjölur líf- eyrissjóður. Ingólfur Guðmundsson, stjórnar- formaður Íslenska lífeyrissjóðs- ins, segist ekki hafa upplýsing- ar um hversu háar upphæðir hafi verið um að ræða, en offjárfest- ingin hafi aðallega verið í Kaup- þingi. Einnig hafi verið offjárfest í Samson, Baugi Group og Atorku, en í minna mæli. Mest var farið yfir leyfileg mörk í einni af fjórum deildum sjóðsins í mars í fyrra, þegar um 16 prósent af fjárfestingum sjóðs- ins voru í Kaupþingi, en hámarkið var 10 prósent, segir Ingólfur. Lárus segir að offjárfesting sjóðsins hafi eingöngu verið í skuldabréfum Kaupþings. Offjár- festingin hafi verið um hálft pró- sent yfir 10 prósenta mörkunum í júní í fyrra. Það sé gróft áætlað um 80 milljónir króna. „Þetta er hið furðulegasta mál,“ segir Björn R. Ragnarsson, stjórnar formaður Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands. Hann segir sjóðina fimm hafa haft mjög líka fjárfestingarstefnu, og það sem eigi við einn sjóð eigi líklega við þá alla. Í tilkynningu frá stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins segir að stjórnin taki ákvarðanir um fjárfesting- arstefnu, en ákveði ekki einstaka fjárfestingar. Allir sjóðirnir eru með rekstrarsamning við Lands- bankann, sem sér um daglegan rekstur þeirra. Um mannleg mistök var að ræða, og stjórn sjóðsins er ekki kunnugt um nein önnur atriði sem gætu gefið tilefni til aðgerða stjórnvalda, segir í tilkynning- unni. Aðgerðirnar hafi engin áhrif á eignastöðu sjóðsins, eða réttindi sjóðsfélaga. brjann@frettabladid.is Offjárfesting sjóða mest í Kaupþingi Stjórnir tveggja lífeyrissjóða, sem teknir hafa verið til rannsóknar vegna offjár- festinga, segja um mistök að ræða og undrast aðgerðir stjórnvalda. Mest var fjárfest umfram heimildir í Kaupþingi, en einnig í Samson, Baugi og Atorku. Fjármálaeftirlitið (FME) fór yfir fjár- festingar fleiri sjóða en þeirra fimm sem eftirlitið telur að hafi offjárfest í ákveðnum fyrirtækjum. Upphaf málsins má rekja til áhættugreiningar FME á öllum lífeyrissjóðum í landinu vegna bankahrunsins, samkvæmt upplýs- ingum frá FME. Áhættugreiningin sýndi þörf á að skoða sérstaklega eignasamsetningu nokkurra sjóða. Athugunin náði meðal annars til fjöl- margra lífeyrissjóða sem eru í vörslu og eignastýringu viðskiptabankanna. Í yfirlýsingum frá Almenna lífeyris- sjóðnum og Frjálsa lífeyrissjóðnum kemur fram að FME hafi farið yfir eignir og fjárfestingar sjóðanna á árinu 2008. Ekkert óeðlilegt hafi komið í ljós, enda hafi sjóðirnir fjárfest í samræmi við fjárfestingar- stefnu og lagaheimildir. EKKERT FANNST HJÁ ÖÐRUM SJÓÐUM SJÓÐUR TANNLÆKNA Lífeyrissjóðirnir sem eru til rannsóknar voru með afar svipaða fjárfestingarstefnu, segir stjórnar formaður Lífeyrissjóðs Tannlæknafélags Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI VEÐURSPÁ HEIMURINN Vindhraði er í m/s. Hitastig eru í °C. Gildistími korta er um hádegi. Alicante Amsterdam Basel Berlín Billund Eindhoven Frankfurt Friedrichshafen Gautaborg Kaupmannahöfn Las Palmas London New York Orlando Osló París Róm Stokkhólmur 19° 12° 14° 7° 8° 12° 12° 12° 7° 7° 25° 16° 11° 26° 2° 14° 15° 1° 6 5 3 3 5 5 5 8 8 10 6 Á MORGUN 5-15 m/s, hvassast vestan til. LAUGARDAGUR 5-10 m/s 5 10 12 14 14 8 10 8 9 7 5 5 6 6 88 4 5 6 56 HELGARHORFUR Á laugardag eru horfur á fremur hægri suðvestlægri átt, 5-10 m/s. Skúrir verða á landinu sunnan- og vestanverðu en lengst af verður úrkomulaust á Norðaustur- og Austurlandi. Hitinn verður á bilinu 3-9 stig. Á sunnudag verður fremur hvöss vestanátt, einkum sunnan til. Éljagangur verður mjög víða, síst á Austurlandi. Hægt kólnandi veður. Sigurður Þ. Ragnarsson veður- fræðingur SVEITARSTJÓRNIR Sjálfstæðis- menn í bæjarstjórn Áborgar segja að miðað við nýsamþykkta þriggja ára fjárhagsáætlun sveitarfélagsins muni það tapa einni milljón króna á hverjum degi næstu árin. Eyþór Arnalds, oddviti minn- hluta sjálfstæðismanna í bæjar- stjórn, segir að miðað við fjárhags- áætlun meirihluta bæjarstjórnar verði 1.433 milljóna króna halli árin 2009 til 2012. „Þannig verður eigið fé sveitarfélagsins uppurið að óbreyttu árið 2015. Þá væri svo komið að Árborg yrði tæknilega gjaldþrota. Því þykir okkur að við þetta verði engan veginn unað og hér sé í raun um uppgjöf núver- andi bæjarstjórnarmeirihluta að ræða,“ segir Eyþór. Þorvaldur Guðmundsson, odd- viti framsóknarmanna og forseti bæjarstjórnar, segir fullyrðing- ar sjálfstæðismanna miðaðar við verstu aðstæður. „Það er mjög mikil óvissa og það er hægt að búa til alls konar missvört dæmi en við höfum ekk- ert viljað vera að mála skrattann á vegginn,“ segir Þorvaldur sem kveður óvissuna fram undan svo mikla að í raun sé öll gerð fjár- hagsáætlana nánast út í loftið. „Það verður að segjast eins og er að þessar þriggja ára áætl- anir sem sveitarstjórnir eru að gera í dag eru bara eins og hókus pókus – einhver spádómur út í loftið.“ - gar Minnihlutinn í Árborg gagnrýnir hallarekstur en meirihlutinn segir óvissuna mikla: Fjárhagsáætlunin bara hókus pókus VIÐSKIPTI „Sveiflur sem þessar geta orðið tíðar þegar engin viðskipta- vakt er með hlutabréf félagsins,“ segir Gunnlaugur M. Sigmunds- son, stjórnarformaður Icelandair Group, en gengi bréfanna féll um 40 prósent í gær og endaði í sjö krónum á hlut. Það hefur aldrei verið lægra. Verð á bréfum Icelandair Group í útboði fyrir skráningu í desem- ber 2006 var 27 krónur á hlut. Miðað við þetta horfðu tuttugu stærstu hluthafar Icelandair Group, sem eiga 96 prósent hluta- fjár, á 4,6 milljarða króna gufa upp á einum degi. Markaðsverð- mæti Icelandair Group er nú um sjö milljarðar króna. Hálfur mánuður er síðan Ice- landair Group sleit samningum um viðskiptavakt við Saga Capital, þeirri síðustu með bréf félagsins. - jab Icelandair Group tekur dýfu: Fimm milljarð- ar gufuðu upp ATVINNUMÁL Miðstjórn ASÍ telur tillögu stjórnar HB-Granda um arðgreiðslur til eigenda siðlausa við núverandi aðstæður. Hana skuli draga til baka ella greiða starfsfólki áður umsamdar launahækkanir án tafar. Samn- ingur við SA um frestum hækk- ananna sé nú í uppnámi. „Það vekur ugg að í ársreikn- ingum HB-Granda er beitt sömu aðferðum við að blása út eignir og beitt var í fjölmörgum fyrir- tækjum og fjármálastofnunum sem hrunið hafa á síðustu mánuð- um,“ segir í tilkynningu frá ASÍ. Bókhaldið sé fegrað með því að gera óefnislegum eignum of hátt undir höfði. - sh Segir arðgreiðslur siðlausar: ASÍ sakar HB Granda um bókhaldsbrellur GYLFI ARN- BJÖRNSSON UMHVERFISMÁL Verndarsjóður villtra laxa, NASF, vill fá fund sem fyrst með Hönnu Birnu Kristjánsdóttur borgarstjóra vegna fyrirhugaðrar hesthúsa- byggðar í næsta nágrenni við Ell- iðaár í Víðidal. Verndarsjóður- inn segir hesthúsabyggð með öllu óásættanlega og hafa í för með sér óafturkræfar afleiðingar. Borgin er hvött til að endurskoða málið. Borgaryfirvöldum hafi ítrekað verið bent á margvíslegar hættur sem steðji að laxastofnum ánna. „Laxinn er óaðskiljanleg- ur hluti af vistkerfi Elliðaánna en hesturinn er aðeins gestur í daln- um!“ segir í ályktun NASF. - gar Verndarsjóður villtra laxa: Hesthúsabyggð er óásættanleg EFNAHAGSMÁL „Mér líst ekki vel á þetta,“ segir Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssam- bands lífeyrissjóða, um fram- komnar hugmyndir um að færa niður skuldir um tuttugu prósent. „Niðurfærsla á eignum hefur í för með sér niðurfærslu á rétt- indum, að öllu óbreyttu.“ Sjóðsfélagalán lífeyrissjóð- anna til félaga sinna nema nú um 165 milljörðum. Yrðu skuldir lífeyrissjóðanna færðar niður um 20 prósent myndu eignirnar skerðast um 33 milljarða. Hrafn segir lítið hlutfall sjóðsfélaga- lána í vanskilum. „Það er sáralít- ið enn þá.“ Því sé ekki fyrirséð að lífeyrissjóðirnir þurfi að afskrifa háar upphæðir vegna þeirra. - ss Niðurfelling skulda heimila: Lífeyrisréttindi þyrfti að skerða SKÓLAMÁL Menntamálaráðuneytið hefur ógilt brottrekstur ellefu ára drengs úr grunnskóla þar sem drengurinn og foreldrar hans nutu ekki réttar til andmæla. Drengnum var vikið tímabund- ið úr skóla sínum þegar vika var til jóla í fyrra. Ástæðan var hegð- unarvandi sem rakin er til þess að drengurinn er með svokallaða ADHD-röskun. Um þverbak keyrði þegar hann lagði hend- ur á samnemendur í fótboltaleik. Foreldrarnir segja að samkvæmt áætlun sem skólinn hafi sam- þykkt hafi hann einmitt ekki átt að spila fótbolta enda vitað að það sé mjög erfiður leikur fyrir drenginn vegna röskunar hans. Umrætt atvik varð þegar for- fallakennari hafði umsjón með bekknum. - gar Ellefu ára skóladrengur: Rekinn án andmælaréttar GENGIÐ 18.03.2009 GJALDMIÐLAR KAUP SALA HEIMILD: Seðlabanki Íslands 183,0258 GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR 114,69 115,23 159,25 160,03 149,70 150,54 20,085 20,203 17,042 17,142 13,663 13,743 1,1629 1,1697 169,57 170,59 Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.