Fréttablaðið - 19.03.2009, Page 8

Fréttablaðið - 19.03.2009, Page 8
8 19. mars 2009 FIMMTUDAGUR 1 Stjórn hvaða Vestur-Evrópu- ríkis stóð af sér vantrauststil- lögu á þingi á þriðjudag? 2 Ljóðabálk hvaða þýska skálds hefur Einar Thoroddsen læknir þýtt? 3 Hver mun klippa næstu mynd leikstjóra Festen, Thom- asar Vinterberg? SVÖRIN ERU Á SÍÐU 46 AUSTURRÍKI, AP Josef Fritzl, Austur- ríkismaðurinn sem sakaður er um að hafa haldið dóttur sinni fang- inni í kjallara í 24 ár, beitt hana kynferðisofbeldi og átt með henni sjö börn, breytti í gær málsvörn sinni fyrir rétti. Fritzl játaði á sig sekt í öllum ákæruliðum, þar á meðal að hafa af gáleysi drepið eitt barnanna skömmu eftir fæð- ingu þess, og þrælahald, en áður hafði hann lýst sig saklausan af þessum ákæruliðum. Hinn 73 ára gamli Fritzl breytti málsvörn sinni á þriðja degi rétt- arhaldanna, sem fram fara í Sankt Pölten í Austurríki. Hin 42 ára Elisabeth Fritzl, dóttir Josefs, gaf vitnisburð sinn yfir föðurnum á myndbandsupptöku sem spiluð var fyrir þá sem voru viðstadd- ir réttarhöldin, þar á meðal kvið- dóm og Josef sjálfan, á þriðjudag. Þegar dómarinn innti Fritzl eftir hvers vegna hann hefði breytt málsvörninni sagði hann mynd- bandsupptökuna hafa orðið til þess. Auk þess baðst Fritzl afsök- unar á „sjúklegri hegðun sinni“. Fritzl á yfir höfði sér lífs- tíðarfangelsi fyrir manndráp af gáleysi, frelsissviptingu, að hneppa manneskju í þrældóm, sifjaspell og nauðgun. Fritzl er ákærður fyrir að hafa orðið nýfæddum dreng, sem átti erfitt með andardrátt, að bana í apríl árið 1996 með því að neita að koma honum undir læknishend- ur þrátt fyrir bænarorð dóttur sinnar. Á þriðjudag neitaði Fritzl þeim ásökunum og sagði barnið hafa fæðst andvana. Í réttarsaln- um í gær breytti hann framburði sínum og sagðist sjá eftir því að hafa ekki komið barninu til hjálp- ar. „Ég veit ekki hvers vegna ég hjálpaði ekki til. Ég leit bara fram hjá þessu. Ég hélt að barnið myndi lifa af,“ sagði Fritzl. Geðlæknirinn Adelheid Kast- ner sagði í vitnisburði sínum í gær að Fritzl glímdi við alvarleg- ar persónuleikaraskanir og þörf fyrir að ráða yfir fólki. Fritzl hafi vitað fullvel að það sem hann gerði Elisabeth og börnunum væri rangt. Kastner sagði að þrátt fyrir háan aldur væri Fritzl enn hættu- legur umhverfi sínu og mælti með að hann tæki út dóm sinn á geð- deild fangelsis. kjartan@frettabladid.is Josef Fritzl hefur játað á sig alla sök Austurríkismaðurinn Josef Fritzl hefur játað á sig sekt í öllum ákæruatriðum og beðist afsökunar á sjúklegri hegðun sinni. Geðlæknir segir Fritzl enn hættulegan umhverfi sínu þrátt fyrir háan aldur. RÉTTARHÖLD Skorti á nægu öryggi fyrir börn hefur verið mótmælt fyrir framan dómshúsið í Sankt Pölten í Austurríki, þar sem réttarhöld yfir hinum 73 ára Josef Fritzl eru haldin. NORDICPHOTOS/AFP Síminn, Tal, Nova og Vodafone gefa allan kostnað við innhringingar svo 100 kallinn rennur óskiptur til góðra verka. Spron, Landsbankinn, Íslandsbanki og Kaupþing styrkja birtingar auglýsinga. Þeim sem vilja leggja fram hærri upphæð er bent á söfnunarreikninginn: 1151-26-3500 - kt. 530269-2649 Hvert símtal kostar 100 krónur sem renna óskiptar til aðstoðar innanlands. Landssöfnun Rauða kross Íslands og Hjálparstarfs kirkjunnar lýkur um helgina. Gefðu fyrir þig og þína! Ef þú vilt gefa meira eða fyrir fleiri þá hringir þú í síma 904 1000 og þá renna 1000 krónur af símreikningi þínum. Hringdu í síma ef blaðið berst ekki EVRÓPUMÁL Eva Joly, sem íslensk stjórnvöld hafa ráðið sem ráðgjafa við rannsókn á bankahruninu, býður sig fram til Evrópuþings- ins fyrir græningja í Frakklandi. Þetta hefur meðframbjóðandi hennar í Parísarumdæmi, Daniel Cohn-Bendit, tilkynnt. „Hvort ég verð fyrstur eða í öðru sæti skiptir ekki máli, með Evu Joly er öruggt að við fáum fleiri en tvo fulltrúa í umdæminu,“ segir Cohn-Bendit. Joly, sem er norsk-frönsk og var rannsóknardómari í þekkt- um réttarhöldum í Frakklandi, er umhverfissinnuð, auk þess að hafa sterkar skoðanir á skattamálum og ekki síst skattaparadísum. Þetta telur Cohn-Bendit að muni hjálpa græningjum að ná í atkvæði út fyrir raðir umhverfissinna. Frakkar eiga 78 fulltrúa af 785 á Evrópuþinginu, þar af eru fjórtán úr Parísarumdæmi. Græningjar náðu sínum besta árangri í kosningum til þingsins árið 1999, þegar þeir hlutu 9,72 prósent atkvæða. Þá leiddi Cohn- Bendit baráttuna. Kosið verður í Frakklandi 7. júní. Daniel Cohn-Bendit er fransk- þýskur leiðtogi samtaka græningja á Evrópuþinginu. Hann var einn af leiðtogum stúdenta í uppreisn þeirra í Frakklandi vorið 1968 og er gjarnan kallaður Dany le Rouge, eða Rauði-Danni, vegna stjórn- málaskoðana sinna og hárlitar. - sh Græningjar í Frakklandi vonast til að auka fylgi sitt í kosningum: Eva Joly í framboði til Evrópuþings DANIEL COHN- BENDIT EVA JOLY ALÞINGI „Eigendum er boðið að bankinn greiði kostnað vegna gjaldþrotameðferðar, ef eigendur eru tilbúnir til að lýsa yfir gjald- þroti,“ sagði Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsóknar, á þingi í gær. Af því tilefni vildi hún spyrja fjármálaráðherra nánar út í meðferð fyrirtækja hjá ríkis- bönkunum. Í svari ráðherra kom fram að þrjú félög hjá Íslandsbanka hafi lagt fram gjaldþrotabeiðni frá 14. október og eitt hjá Kaupþingi. Engin lán hafi verið afskrifuð hjá bönkunum tveimur en miðað við áramót hafi 1,7 milljarður verið afskrifaður hjá Landsbanka. - ss Fyrirtæki og bankarnir: Þrýst á að lýsa yfir gjaldþroti VEISTU SVARIÐ?

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.