Fréttablaðið - 19.03.2009, Síða 10

Fréttablaðið - 19.03.2009, Síða 10
10 19. mars 2009 FIMMTUDAGUR Stilling hf. • Sími 520 8000 • www.stilling.is • stilling@stilling.is Ferðabox Pacific 100139 x 90 x 39 cm370 L43.900.- SK HÖNNUN NÝI TÖLVU- OG VIÐSKIPTASKÓLINN – VIÐURKENNDUR EINKASKÓLI Á FRAMHALDSSKÓLASTIGI FYRIR HVERJA NTV hefur í meira en 10 ár verið í fararbroddi hvað varðar kenns lu á grafísk forrit. Hér er um að ræða spennandi námskei ð þar sem áherslan er á prentið. Kennt er á þau forrit sem hvað mest eru notuð við grafík o g auglýsingagerð í dag, Photosh op, Illustrator og InDesign. INNTÖKUSKILYRÐI Nemendur þurfa að hafa haldgóð a þekkingu á Windows stýrikerfi nu og reynslu af Internet notkun. Ekki er krafist þekkinga r á teikniforritum, myndvinnslu- eða umbrotsforritum. Nemendur þurfa að geta lesið en sku þar sem námsefni er að hlut a til á ensku. NÆSTU NÁMSKEIÐ E HELSTU NÁMSGREINAR (Stund ir í sviga) Adobe Illustrator (24) - Adobe Ph otoshop (24) Adobe InDesign (24) - Frágangur til prentunar (6) Letur og leturfræði (6) - Meðhön dlun lita (6) Lokaverkefni (12) ÍS LE N SK A SI A. IS M SA 4 53 50 0 3/ 09 á 1 lítra Kókómjólk Gott á brúsann! FUNHEITT TILBOÐ ÆFT Í JERÍKÓ Liðsmaður óeirðalög- reglusveitar, hollrar Fatah-hreyfingum Palestínumanna og Mahmoud Abbas heimastjórnarforseta, veður rauðan reyk á æfingu í Jeríkó á Vestubakkan- um. FRÉTTABLAÐIÐ/AP STJÓRNMÁL Nýjar reglur um skrán- ingu fjárhagslegra hagsmuna þingmanna og ráðherra, sem sam- þykktar hafa verið í forsætis- nefnd, taka gildi strax hvað varð- ar ríkisstjórnina. Allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar munu á næstu dögum birta upplýsingar um fjár- hagslega hagsmuni sína. Á Alþingi er gert ráð fyrir að þessar reglur, sem eru valkvæðar fyrir alþingis- menn, taki gildi 1. maí. Ríkisstjórnin hefur ákveðið að setja á fót starfshóp sem skipað- ur verður fulltrúum forsætisráð- herra, fjármálaráðherra og einum utanaðkomandi sérfræðingi sem hafi það hlutverk að semja drög að siðareglum fyrir embættis- menn og aðra starfsmenn innan stjórnsýslu ríkisins. Jafnframt á hópurinn að gera tillögur að sér- stökum siðareglum fyrir alla ráð- herra. Hópurinn á að vinna í sam- starfi við viðkomandi stéttarfélög og skila tillögum til forsætisráð- herra fyrir 15. september.Sam- kvæmt reglunum sem liggja fyrir Alþingi er gert ráð fyrir að skrif- stofa Alþingis haldi skrá og birti opinberlega upplýsingar um fjár- hagslega hagsmuni alþingismanna og trúnaðarstörf þeirra utan þingsins. Stefnt er að því að end- urskoða reglurnar með lagasetn- ingu fyrir 1. desember. Jóhanna segir að ráðherrarnir séu bundnir af lögum um ráðherraábyrgð og að þau verði endurskoðuð. Alþingi sé að móta eftirlitsreglur og forsætis- nefnd sé að skoða það mál - ghs Ríkisstjórnin skipar starfshóp til að vinna siðareglur í stjórnsýslunni: Fjárupplýsingar birtar strax UNDIRBÝR SIÐAREGLUR Ríkisstjórnin undirbýr siðareglur fyrir ráðherra og embættismenn. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM DÓMSMÁL Héraðsdómur Austur- lands hefur dæmt mann í tveggja mánaða fangelsi og til greiðslu 200 þúsunda króna í skaðabætur fyrir kynferðislega áreitni. Maðurnn var ákærður fyrir að hafa á káfað á konu, utan klæða og innan. Hann viðurkenndi þá háttsemi að hluta. Konan býr við andlega fötlun og segir í dómnum að þess vegna hafi hún verið sérstaklega varnarlaus gagnvart háttsemi mannsins, sem býr í sama húsi og hún. Maðurinn hafði lent í slysi og hlotið heilaskaða, en var þó sak- hæfur. Fangelsisdómurinn er skilorðsbundinn. - jss Sektaður og á skilorð: Áreitti andlega fatlaða konu LÖGREGLUMÁL Lögregla hóf að nota eftirfararbúnað löngu áður en sér- stakar verklagsreglur um notkun hans voru sett- ar árið 1999. Ríkissaksókn- ari mat það svo eftir fyrir- spurn frá lög- reglu árið 1992 að ekki þyrfti dómsúrskurð fyrir notkun slíks búnaðar. Búnaðurinn hafði þá verið notaður um nokkurt skeið. Héraðsdómur Reykjavíkur úrskurðaði nýverið að búnaðurinn hefði verið ólöglegur fram til síð- ustu áramóta, þegar notkun hans var fyrst fest í lög. Manni sem búnaðurinn var notaður gegn voru dæmdar bætur fyrir vikið. Lög- maður hans hefur krafist þess að yfirvöld geri öllum þeim viðvart sem búnaðurinn hefur verið notað- ur gegn ólöglega og bæti þeim tjón- ið. Ljóst sé af reglunum frá 1999 að búnaðurinn hafi verið notaður ólöglega síðan þá hið minnsta. „Það er alllangt síðan lögreglan hér á landi notaði miðunarbúnað til eftirfarar í fyrsta skipti en ég veit ekki nákvæmlega hvenær það var. Notkunin hefur fyrst og fremst tengst fíkniefnamálum og fóru þau að verða áberandi um 1970 eða fljótlega upp úr því,“ segir Bogi Nilsson, fyrrverandi ríkissaksókn- ari. Frekar hafi verið settar skorð- ur við notkuninni í reglunum árið 1999 heldur en að þá hafi hún fyrst verið leyfð. Í málinu togast á tvenn ólík sjónarmið. Annars vegar þeirra sem telja að notkun búnaðarins eigi að vera háð dómsúrskurði. Þeir telja að notkun búnaðarins sé innrás í einkalíf fólks og að fyrir slíkum aðgerðum þurfi allt- af úrskurð dómstóla. Á þetta sjón- armið hefur Héraðsdómur Reykja- víkur fallist. Hins vegar eru þeir sem líkja því að festa búnaðinn utan á far- artæki við það þegar lögreglu- menn fylgjast með og elta grun- aða brotamenn, svokallaða „skyggingu“. Fyrir slíkri eftirför þurfi ekki dómsúrskurð og notkun búnað- arins sé af sama meiði, nema að tækni komi í stað lögreglumann- anna. Danskir dómstólar aðhyllast síð- arnefndu skoðunina. Þannig komst Landsréttur Danmerkur að því árið 1996 að notkun eftirfararbún- aðar væri ekki þvingunarúrræði í skilningi þarlendra hegningar- laga og því þyrfti ekki dómsúr- skurð fyrir honum. Það er sama niðurstaða og nefndin sem vann íslensku reglurnar um notkun bún- aðarins árið 1999 komst að. Dómsmálaráðherra og lög- reglustjórinn á höfuðborgarsvæð- inu hafa kosið að tjá sig ekki um úrskurð héraðsdóms fyrr en ríkis- lögmaður ákveður hvort honum verður áfrýjað. stigur@frettabladid.is Eftirfararbúnaður notaður í áratugi Eftirfararbúnaður sem dómstólar hafa úrskurðað ólögmætan hefur verið notað- ur hérlendis í tugi ára. Danskir dómstólar eru ósammála íslenskum um búnað- inn og líta á hann þannig að með honum komi tækni í stað lögreglumanna. BOGI NILSSON LÖGREGLA VIÐ STÖRF Nefndin sem samdi reglur um búnaðinn árið 1999 vildi að dómsúrskurð þyrfti til að koma búnaðinum fyrir inni í farartækjum og í föggum fólks – en ekki utan á farartækjum. FRÉTTABLAÐIÐ/HARI

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.