Fréttablaðið - 19.03.2009, Page 12

Fréttablaðið - 19.03.2009, Page 12
12 19. mars 2009 FIMMTUDAGUR nær og fjær „ORÐRÉTT“ „Ég missti vinnuna þann 1. febrúar, ég var ritstjóri tímaritsins hann/hún. Ég hef verið að skipuleggja þemagönguferðir fyrir ferðamenn og vinn núna að því að markaðssetja þær. Gönguferðirnar eru bæði innan og utan höfuðborgarsvæðisins,“ segir Stein- gerður Steinarsdóttir ritstjóri og blaðamaður hress í bragði. Lögð er áhersla á mismunandi þætti í gönguferðunum, til dæmis sagn- fræði, þjóðsögur, náttúrufræði eða grasafræði. Áherslurnar fara eftir óskum göngugarpanna. Steingerður segir mjög mikilvægt fyrir atvinnulausa að hafa nóg fyrir stafni, annars sé hætta á að festast í neikvæðu mynstri. „Það skiptir mig öllu máli að hafa nóg að gera, að vita að það er eitthvað á dagskránni þegar ég vakna á morgnana,“ segir Steingerður, sem er býsna ötul við að sækja námskeið í atvinnuleysinu. „É g er á tveimur námskeiðum, annað heitir „Nýttu kraftinn“ þar sem unnið er til dæmis með hvernig á að skipuleggja hvern dag eins og um vinnudag væri að ræða. Hitt námskeiðið heitir Master Mind og þar kemur saman góður hópur kvenna og vinnur að markmiðasetningu. Í upphafi settum við okkur markmið og við hittumst mánaðarlega og förum yfir það hvernig okkur gengur að ná þeim og hvaða leiðir við notum til þess. Svo fer ég reglulega í jóga og í kraftgöngu í Öskjuhlíð.“ HVAÐ ER AÐ FRÉTTA? STEINGERÐUR STEINARSDÓTTIR, RITSTJÓRI OG BLAÐAMAÐUR Skiptir öllu að hafa nóg að gera „Ég er alfarið á móti kynjakvóta. Ég held að vandamálið liggi ekki í því af hvaða kyni einstaklingar eru, heldur hvernig einstaklingurinn metur sjálfan sig,” segir Jóhannes Hauk- ur Jóhannesson, leikari við Borgarleikhúsið. Hann bendir á að það þurfi að eiga sér stað hugar- farsbreyting meðal kvenna, því yfirleitt sé kynjakvóti settur á til að styrkja stöðu kvenna. „Konur verðleggja sig of lágt. Þær hafa allt fram að færa sem þörf er á til að komast áfram á eigin verðleikum en virðast stundum þurfa löggjöf til að geta sannfært sig um að þær komist í þær stöður sem þær eiga skilið. Það þarf að efla trú einstaklinga á sjálfum sér,“ segir Jóhannes Haukur. „Ég er sammála því að það er vandamál til staðar sem full þörf er á að taka á, en ég held samt sem áður að með kynjakvóta séum við því miður að leysa vandamálið frá vitlausum enda.“ SJÓNARHÓLL KYNJAKVÓTI Fólk vanmet- ur sjálft sig JÓHANNES HAUKUR JÓHANNSSON Síðustu daga hefur rúta keyrt á milli grunnskóla Reykjavíkur til eflingar franskri tungu. Svokölluð frönskurúta ekur á milli grunnskóla Reykjavíkur og með kennara sem kenna ungum grunnskólakrökkum grundvallar- atriði í franskri tungu. Tilefnið er vika franskrar tungu sem haldin er víða um heim. „Við náum því miður ekki að fara í alla skólana, en við förum í fimm til sex skóla sem flestir bjóða upp á frönsku í eldri bekkjum,“ segir Friðrik Rafnsson forseti Alliance Française, sem stendur fyrir uppá- tækinu. „Alliance Française á að gegna hlutverki franskrar menn- ingarmiðstöðvar hér á Íslandi og yfirleitt bjóðum við fólki á öllum aldri upp á frönskukennslu en þetta er smá tilraunaverkefni hjá okkur og er til þess ætlað að koma frönskunni út til krakkanna og vonandi vekja forvitni þeirra um franska tungu.“ Rútunni hefur verið vel tekið þar sem leið hennar hefur legið hingað til. „Rútan stoppaði hér í dágóðan tíma og krökkunum voru kennd orð og farið með þau í leiki. Þetta er mjög frísklegt fram- tak og tókst eftir því sem ég best veit vel í alla staði,“ segir Ásta Karen Rafnsdóttir deildarstjóri í Víkurskóla. „Þessi hugmynd er eilítið óvenjuleg en samt alveg meiri háttar og yngri krakkarn- ir höfðu mjög gaman af því að fá smá tilbreytingu frá hefðbundnu skólastarfi.“ Frönskurútan er aðeins einn liður af mörgum í því að kynna franska menningu og tungu, en einnig er ætlun Alliance Fran- çaise að halda ljósmyndasýningu, sem ber heitið „Morgundagurinn í myndum“, og ljóðasamkeppni með frönsku ívafi sem ætluð er öllum framhaldsskólanemum landsins. - ams Franska á faraldsfæti FRÖNSKURÚTA Vika franskrar tungu er haldin hátíðleg víða um heim. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM ■ Perú er eitt örfárra landa veraldar þar sem Coca-Cola er ekki vinsælasti gosdrykkurinn. Perúbúar drekka meira af svokölluðu Inca Kola en nokkru öðru gosi. Fyrsta Inca Kola-verksmiðjan var sett á laggirnar árið 1928 og hefur notið fádæma vinsælda í Perú frá 1940. Inca Kola er gult á lit, bragðast eins og tyggigúmmí og hefur 31 prósents markaðshlut- deild. Eftir að hafa reynt að bola því af markaði í áratugi gafst Coca-Cola loks upp fyrir tíu árum og keypti meiri- hluta í Inca Kola. INCA KOLA VINSÆLLA EN COCA-COLA SAMFÉLAGSMÁL Laganemar í Háskólanum í Reykjavík bjóða öllum sem vilja aðstoð við skatt- framtalið næsta laugardag. Að sögn Elínborgar Jónsdóttur, sem er einn laganemanna sem býður aðstoð sína, verða um tíu til fimmt- án kollegar hennar í húsakynnum háskólans ásamt endurskoðendum og skattalögfræðingum frá endur- skoðunar- og ráðgjafarfyrirtæk- inu Deloitte. „Í fyrra höfðum við sérstakan skattadag fyrir innflytjendur,“ útskýrir Elínborg. „Það kom alveg gríðarlegur fjöldi, ég held að það hafi aldrei verið skilað jafn mörg- um skattframtölum inn á einum degi. En nú viljum við bjóða öllum upp á þessa aðstoð frítt, það er okkar innlegg í að létta undir með fólki í ástandinu.“ Laganemarnir munu, margir hverjir, standa tólf tíma vakt en hægt er að leita til þeirra með skattframtalið og meðfylgjandi gögn frá klukkan níu að morgni til klukkan níu um kvöldið. „Þetta er kannski ekki sú hugmynd sem fólk hefur um það hvernig megi eyða góðum laugardegi en þetta verður skemmtilegt og auðvit- að gríðarlega lærdómsríkt fyrir okkur,“ segir hún. - jse Laganemar bjóða ókeypis aðstoð við skattframtalið: Talið fram í tólf tíma ELÍNBORG JÓNSDÓTTIR OG ÞÓRA BJÖRK GÍSLADÓTTIR LÖGFRÆÐINEMAR Það er ekki allra hugmynd um laugardagsfjör að sitja yfir skattframtölum en Elínborg og Þóra Björk gera það með glöðu geði næstkomandi laugardag. FRÉTTABLAÐIÐ/RÓSA ELÍSABET SEGIR MIKILVÆGT AÐ FÓLK HAFI MEÐ SÉR: ■ Launamiða síðasta árs. ■ Lykilorð og auðkennislykil til að komast í heimabanka. ■ Veflykil inn á www.rsk.is. ■ Gögn ef kaup og/eða sala á fasteign hafa átt sér stað á liðnu ári. ■ Gögn er varða kaup og/eða sölu og stöðu á verðbréfum í árslok. Tali hver fyrir sig „Nú erum við kannski frjáls í fyrsta sinn í langan tíma.“ EIRÍKUR JÓNSSON RITSTJÓRI FJALL- AR UM KREPPUNA Séð og heyrt 18. mars Af hverju sagðir þú það ekki strax? „Mér þykir þetta leitt.“ JOSEF FRITZL JÁTAÐI SAKIR Í GÆR Reuters 20. mars Ísland og Evrópusambandið Opinn fundur um Evrópusambandið á vegum BSRB föstudaginn 20. mars kl. 14 – 16 í BSRB – húsinu Grettisgötu 89 Á fundinum verður fjallað um stefnu ESB í sjávarútvegi og iðnaði Framsögu hafa Aðalsteinn Leifsson lektor við Háskólann í Reykjavík Bjarni Már Gylfason hagfræðingur Samtaka iðnaðarins Fundarstjóri Helga Jónsdóttir framkvæmdastjóri BSRB Að loknum framsöguerindum verður opnað fyrir spurningar úr sal

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.