Fréttablaðið - 19.03.2009, Page 18

Fréttablaðið - 19.03.2009, Page 18
18 19. mars 2009 FIMMTUDAGUR hagur heimilanna ■ Sendið umboðsmanni neytenda ábendingar eða sparnaðarráð á neytendur@ frettabladid.is DR. GUNNI neytendur@ frettabladid.is Bergur Þór hugsar sig vel og vandlega um áður en hann kemst að niðurstöðu um verstu kaup sem hann hefur gert, en hann nær þó að velja ein kaup sem honum þótti verri en flest önnur. „Verstu kaup sem ég hef gert eru að öllum lík- indum sjálfskiptur Dodge Caravan sem ég fjárfesti í fyrir þó nokkru síðan. Ég fékk því miður ekki eins mikinn tíma til að keyra hann og ég hefði viljað því eftir aðeins eina viku bilaði sjálfskipt- ingin.“ Bergur Þór segir bílakaupin hafa verið gríðarlega sár þar sem bíllinn var algjörlega ónýtur á eftir en eins og með svo marga eldri bíla hefði frekar borgað sig að kaupa annan bíl en að borga varahlutina og þjónustuna sem bílinn þarfnaðist. Hann náði þó að jafna sig á þessu áfalli seinna meir og hefur aftur fengið traust á bílum og vali sínu í bílakaupum. „Bestu kaupin eru einnig talsvert minnisstæð en þar stendur Andrésblað öðrum hlutum hærra,“ segir Bergur Þór glettinn. Þrátt fyrir að flestir hafi ekki myndað sterk tilfinningaleg tengsl við teiknimyndasögur er talsvert sérstök ástæða fyrir því að Bergi líka þessi kaup frekar en önnur, því þau voru gerð í rómantískum tilgangi. Andrés- blaðið útfærði hann eftir eigin höfði og gaf svo konunni sinni. „Andrésblaðið notaði ég sem ástarbréf til konunnar minnar. Ég náði að stroka út það sem stóð fyrir í talblöðrunum og skrifaði í þeirra stað ástarjátningar til hennar.“ Bergur bendir á að hlutir þurfi ekki að vera dýrir til að öðlast tilfinningalegt gildi og oftar en ekki er betra að nota smá frumleika til að gera gjöfina ennþá minnisstæðari. Útgjöldin > Meðalverð á fimm pylsubrauðum í febrúar. Heimild: Hagstofa Íslands Almenn hugmyndin um sænska kaup- félagið í Garðabæ, öðru nafni Ikea, er að þar sé hagstætt að versla. Sumum finnst þó annað, til dæmis Gnúpi, sem hafði samband. Hann er ósáttur við verð á blöndunartækjum. „Hjá Ikea hér kostar blöndunartækið 14.950 krón- ur,“ skrifar hann. „Mér þótti það dýrt en sæmilega sloppið miðað við BYKO eða Húsasmiðjuna. Þegar til kom var varan ekki til, en væntanleg. Þar sem ferming stendur fyrir dyrum ákvað ég að sjá hvort tækið væri til í Ikea í Sví- þjóð og fá það sent. Þegar ég sá verðið í Svíþjóð rak mig í rogastans. Þar kost- ar sama blöndunartæki 695 kr. sænsk- ar, eða 9.540 ISK á gengi gærdagsins, mismunur rúmlega 5.000 ISK! Þetta er því greinilegt okur hjá Ikea. Ef þeir vilja fela sig á bak við gengismál þá má spyrja þá út í hækkun sem þeir létu ganga yfir alla línuna hjá sér í október á seinasta ári. Enga höfum við séð lækk- unina.“ Þórarinn H. Ævarsson, framkvæmda- stjóri Ikea, svarar: „Blöndunartækin sem um ræðir voru tekin inn í október þegar hrunið átti sér stað og voru þau tollafgreidd á afar óhagstæðu gengi.“ Varðandi það hvort Ikea ætli að lækka verðið nú þegar krónan hefur styrkst segir Þórarinn: „Við erum fyrir nokkru byrjuð að lækka verð. Okkur þótti það einfaldlega það sjálfsagt að við töldum ekki ástæðu til að vera að monta okkur af því. Við höfum lækkað verð á öllum sængurfatnaði, koddum og sængum í vefnaðarvörudeild. Næst á dagskrá er mottudeild og síðan verður farið í ljósadeildina og svo koll af kolli. Haldi yfirstandandi styrking áfram mun þessi lækkun ná til allra deilda fyrirtækisins og verður það þá afgreitt á komandi vikum.“ NEYTENDUR: Blöndunartæki keypt inn í miðju hruni: Ikea vill ekki monta sig af lækkun 2005 2006 2007 2008 2009 112 96 102 113 146 Kr ón ur NEYTANDINN: BERGUR ÞÓR INGÓLFSSON LEIKARI Ástarjátningar í Andrésblaði ÚTSÖLUSTAÐIR SLOGGI TILBOÐ MAXI Vönduð nærföt á tilboðsverði Flottar, þægilegar og sniðnar að þér. SLOGGI MAXI 3 Í PAKKA 2799,- HAGKAUP SMÁRALIND HAGKAUP SKEIFUNNI HAGKAUP KRINGLUNNI HAGKAUP SPÖNGINNI HAGKAUP GARÐABÆ HAGKAUP EIÐSTORGI HAGKAUP AKUREYRI HAGKAUP BORGARNESI HAGKAUP NJARÐVÍK HAGKAUP HOLTAGARÐAR EINAR ÓLAFSS, AKRANESI NETTO AKUREYRI NETTÓ MJÓDD ÚRVAL ÓLAFSFIRÐI ÚRVAL HAFNAFIRÐI ÚRVAL EGILSSTÖÐUM ÚRVAL HÚSAVÍK ÚRVAL HRÍSALUNDI ÚRVAL ÍSAFIRÐI ÚRVAL SIGLUFIRÐI ÚRVAL BORGARNESI ÚRVAL BLÖNDUÓSI ÚRVAL SKAGASTRÖND ÚRVAL DALVÍK BJARNI EIRÍKS,BOLUNGARVÍK KAUPFÉLAG V-HÚNV. HVAMMST. KAUPFÉLAG SKAGF. SAUÐÁRKR. KAUPFÉLAGIÐ HÓLMAVÍK KAUPFÉLAGIÐ DRANGSNESI NÓATÚN SELFOSSI EFNALAUG DÓRU, HÖFN EFNALAUG VOPNAFJARÐAR LYFJA, PATRÓ ÞÍN VERSLUN SELJABRAUT STRAX FÁSKRÚÐSFIRÐI KRÓNAN REYÐARFIRÐI KRÓNAN VESTMANNAEYJUM KJARVAL HVOLSVELLI KJARVAL KLAUSTUR KJARVAL VIK FJARÐARKAUP HEIMAHORNIÐ STYKKISH. KASSINN ÓLAFSVÍK LÆKURINN NESKAUPSTAÐ VERSLUNIN RANGÁ PALOMA GRINDAVIK BLÓMSTURVELLIR HRAFNISTUBÚÐIN HAFNARFIRÐI. Blaðberinn bíður þín Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 8-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfið Blaðberinn... Eggert Skúlason almannatengill hefur sagt mörgum manninum til sem koma þarf fram fyrir alþjóð. Hann á húsráð mörg handa þingmönn- um sem standa í ströngu þessa dag- ana þegar kosningar eru í nánd. „Mitt húsráð hentar fólki úr öllum flokkum og það hljóðar svona: látið stjórnmálin alveg í friði næstu þrjú til fjögur árin þar til biturðin, sem nú er að drekkja þjóðinni, er runnin af fólki.“ Eflaust eiga margir eftir að eiga í vandræðum með að fara að þessu ráði. GÓÐ HÚSRÁÐ: ■ Láta pólitíkina á ís í nokkur ár

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.