Fréttablaðið - 19.03.2009, Page 27
FIMMTUDAGUR 19. mars 2009 3
Þýski tískuhönnuðurinn Jil
Sander hefur samið við japanskt
stórfyrirtæki og hannar nú fyrir
fjöldann.
Þýski tískuhönnuðurinn og ein-
farinn Jil Sander er komin aftur á
sjónarsvið tískuheimsins. Sander
hefur gert samning við japanska
fyrirtækið Uniqlo sem mun fjölda-
framleiða og markaðssetja hönn-
un hennar á karl- og kvenfatnaði.
Uniqlo rekur yfir 765 verslanir um
allan heim.
Fyrsta línan kemur í verslanir
næsta haust eða vetur og verður
seld á aðeins broti af því verði sem
Jil Sander tæki venju-
lega fyrir að hanna
klæðnað.
Sander stofnaði
tískumerkið Jil
Sander árið 1973.
Árið 1999 var
það tekið yfir af
Prada en Sander
sjálf yfirgaf fyr-
irtækið aðeins
sex mánuðum
eftir yfirtökuna
vegna ágrein-
ings við yfir-
mann Prada.
Hún sneri reynd-
ar aftur nokkru
síðar en entist
eingöngu í tvö
ár og hætti þá á
ný, nú fyrir fullt
og allt.
Ji l Sander
merkið var árið
2008 selt til
samsteypunnar
Onward Holdings
fyrir 244 millj-
ónir dollara. Frá
árinu 2005 hefur
Jil Sander tískulín-
an verið hönnuð af
Raf Simons. - sg
Jil Sander
snýr aftur
Tíska er siður eða venja, breytileg eftir breytilegum
smekk, ríkjandi um skemmri eða lengri tíma, einkum
í klæðaburði og snyrtingu.
Íslensk orðabók
Þá er tískuviku lokið í París og ró að færast yfir verslanir hér í landi en tískuvikunni fylgir
almennt nokkuð kaupæði meðal
tískufræðinga. Sumir segjast þó
lítið hafa orðið varir við gestina
að þessu sinni.
Óvæntir gestir buðu sér á
sumar tískusýningarnar eins og
til dæmis hjá Jean-Paul Gaultier
þar sem félagar úr dýravernd-
unarsamtökunum PETA, sem
berjast gegn notkun loðskinna
í tískuframleiðslu, gauluðu
„Gaultier morðingi“ en hann
er þekktur fyrir að nota mikið
loðfeldi í sinni framleiðslu sem
voru reyndar áberandi á sýning-
unum. Gaultier eru allir vegir
færir þegar peningar eru annars
vegar og sýningin var undir
yfirskriftinni Sex sells, eða kyn-
líf selur. Fyrirsæturnar voru í
„eighties“-stílnum með breiðar
herðar og hátt mitti, skreyttar
og grímuklæddar í anda sadó/
masókisma.
Hjá Alexander McQueen var
meiri húmor í sýningunni og
ekki eins gróf vísun í kynlíf en
„Drag-queen“ var yfirskriftin á
sýningunni. Hann hefur reyndar
aldrei beygt sig undir þá reglu
að fötin eigi að vera nothæf.
Mikið um dragtir með dálítið
ýktum línum í stíl „New look“
Diors á gullárum Christians en
varir málaðar í fáránlegri yfir-
stærð á fyrirsætunum og þykk-
botna skórnir við hæfi bestu
draggdrottninga. Tískuritstjór-
arnir áttu í mestu erfiðleikum
með að mynda sér skoðun á
þessum furðufyrirbærum með
greiðslum sem líktust brenndum
lampaskermum og ruslapokum,
allar línur í ýktum yfirstærðum,
með fellingum og plíseringum.
Einkennileg afskræming á tísku-
sýningum með næturklúbba-
stemningu líkt og tónlistin gaf
til kynna. Spurning hvort að
fiðruðu englarnir, annar svartur
og hinn hvítur, sem enduðu sýn-
inguna eigi eftir að seljast mikið
næsta vetur. Hins vegar er áber-
andi munur á húmor McQueens
og grófleika Gaultiers að þessu
sinni.
Nýir hönnuðir tískuhúss Val-
entino, Maria Garzia Chiuri
og Pier Paulo Piccioli, sýndu í
fyrsta skipti kventísku sína ef
frá er talin hátískusýning þeirra
í janúar. Eftir allan þann skaða
sem róttækar breytingar Ales-
söndru Faccinetti gerðu á síð-
asta ári eftir að gamli Valentino
dró sig í hlé og stórskaðaði
ímynd tískuhússins eru nýju
hönnuðirnir neyddir til að undir-
strika arfleið Valentinos og því
fannst tískupressunni sýningin
lítið spennandi og alltof mikið
vísað í verk meistarans. Þau
eiga því langan veg fram undan
við að rétta flaggskipið við.
Indland er í tísku bæði á
Óskarshátíðinni sem á tísku-
vikunni. Manish Arora bauð
upp á gríðarlega sýningu með
blöndu milli hins dýrs- og
mannlega, til dæmis rauður
kjóll með dýrshöfði á miðj-
unni og klæðnaður líkari
leikbúningum en fatnaði til
daglegra nota. bergb75@free.fr
Fiðraðir klæðskiptingar McQueens
og grímuklæddar gleðikonur Gaultiers
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Augnháralitur og augnbrúnalitur
Tana® Cosmetics
SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR
NÝTT!!
Plokkari með ljósi
Í Tösku- og hanskabúðinni finnur þú
mikið úrval af handtöskum, tölvu- og
skjalatöskum, seðla-og leðurveskjum,
ferðatöskum, leðurhönskum og vönduðum
göngustöfum svo fátt eitt sé nefnt.
Þú getur litið við í verslun okkar eða farið á
slóðina www.th.is þar sem hægt er
að skoða úrvalið og gera góð kaup!
Tösku og hanskabúðin • Skólavörðustíg 7 • 101 Reykjavík • Sími 551 5814 • www.th.is
SÚKKULAÐIVAX
HAFRAVAX
SÚKKULAÐISTRIMLAR
F. ANDLIT OG LÍKAMA
ATH. Súkkulaðivax hentar vel fyrir viðkvæma líkamshluta
ÚTSÖLUSTAÐIR: Apótek og snyrtivöruverslanir
Háreyðingavax sem hægt er að hita í örbylgjuofni
og einnig vaxstrimlar
Gallabuxur &
gallakvartbuxur
háar í mittið,
áður 6990
Nú 4.990
Stærðir 36-46
Ný sending. Póstsendum.
Laugaveg 54,
sími: 552 5201