Fréttablaðið - 19.03.2009, Side 33
FIMMTUDAGUR 19. MARS 2009 5nýsköpun ● fréttablaðið ●
dagsins
Anna María Pétursdóttir, starfs-
mannastjóri hjá Vífilfelli, telur mörg
tækifæri felast í opinni nýsköpun.
FR
ÉT
TA
BL
A
Ð
IÐ
/V
A
LL
I
„Því betur sem fyrirtæki
mennta fólkið sitt, verður meiri
framgangur. Heimurinn er alltaf
að minnka og fólk sækir þangað
sem tækifærin eru. Flæði þekk-
ingar flyst því með fólki sem flyst
milli fyrirtækja og ef við ætlum
ekki að halda áfram að laða að
okkur vel menntað fólk munum
við staðna.
Því er nauðsynlegt að nýsköp-
un fái að fljóta inn í menntun sem
kallar á fremur óhefðbundnar að-
ferðir í menntun einstaklinga,
því við þurfum að kenna þeim að
hlusta á markaðinn, skoða í kring-
um sig hvað aðrir eru að gera og
ekki gera, og hvað notandinn vill,
því vara verður alltaf að uppfylla
þarfir notenda og hver kann betur
að leysa þau vandamál en neyt-
andinn sjálfur? Aðferðir opinn-
ar nýsköpunar og Living Lab eru
því réttu tækin til að hitta með
rétta vöru á markaðinn og stund-
um þarf að kyssa marga froska
áður en prinsinn sem leitað er að
finnst.“ -þlg
um vörum
um heim. Smiðjunni hefur að sögn
Frosta verið einstaklega vel tekið
af Vestmannaeyingum og eru
líkur á því að fleiri Fab Lab smiðj-
um verði komið á fót víðar á land-
inu en mikill áhugi er fyrir þeim
í Reykjavík, á Höfn og Sauðár-
króki.
„Við erum að kenna námskeið
fyrir nemendur á grunn- og fram-
haldsskólastigi auk þess sem ein-
staklingar og fyrirtæki hafa sótt
okkur heim. Hingað komu til
dæmis húsgagnaframleiðendur
sem hönnuðu Íslandslaga fatahengi
með þeim möguleika að hengja af
sér á ólíkum landshlutum. Þá er
verið að búa til vélmenni, fjar-
stýrða bíla, tölvur frá grunni og
margt fleira enda eru ímyndunar-
aflinu engar skorður settar.“ - ve
Gulleggið 2009, frumkvöðlakeppni
Innovit, stendur nú sem hæst og
lýkur í Ráðhúsinu næstkomandi
laugardag þegar tíu efstu viðskipta-
áætlanirnar verða kynntar fyrir
dómnefnd. Að sögn Andra Heiðars
Kristinssonar, framkvæmdastjóra
Innovit, eru metnaður, gæði og fjöl-
breytni áberandi en alls bárust 122
viðskiptahugmyndir í keppnina,
sem hefur það markmið að skapa
vettvang fyrir frumkvöðla og há-
skólafólk til að koma hugmyndum
sínum á framfæri, ásamt því að
mynda tengsl við fjárfesta og aðila
í atvinnulífinu.
„Fjölbreytni verkefna er ótrúleg;
samfélagsþjónusta með áherslu á
heilsu, ferðaþjónusta og hátækni-
lausnir svo fátt eitt sé nefnt. Þau
eru líka fleiri sem standa framar-
lega en í fyrra þegar keppnin var
fyrst haldin og mikil aukning hefur
orðið, sem er athyglisvert þar sem
yfirleitt dettur þátttaka niður milli
ára í svona keppnum erlendis,“
bendir Andri á og útilokar
ekki að þjóðfélagsástandið
ýti undir þátttöku. „Hugsan-
lega verður það til þess að fólk
framkvæmir frekar hugmynd-
ir. Enda tilgangurinn með að
skapa fyrirtæki fram-
tíðar og ýta undir og
efla verðmætasköp-
un í þjóðfélaginu.
Það er alltaf betra
að eiga mörg egg í
körfunni.“ - rve
Gæði og fjölbreytni í fyrirrúmi
Andri er ánægð-
ur með þátt töku
í Gullegginu
2009, sem hófst
í janúar og lýkur
í Ráðhúsinu á
laugardag.
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Hlutverk Rannís er að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og framkvæmd
vísinda- og tæknistefnu Vísinda- og tækniráðs. Rannís er miðstöð stuðningskerfis
vísinda- og tæknisamfélagsins. Í vörslu Rannís eru opinberir samkeppnissjóðir s.s.
Rannsóknasjóður og Tækniþróunarsjóður. Rannís sér um greiningu á rannsóknum og
nýsköpun á Íslandi og gerir áhrif rannsókna og nýsköpunar á þjóðarhag og hagvöxt
sýnilegan. Rannís er miðstöð upplýsinga og miðlunar alþjóðasamstarfs vísinda- og
tæknisamfélagsins.
Í tilefni af nýrri úthlutun Rannsóknasjóðs fyrir styrkárið 2009
verður dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur föstudaginn 20. mars
frá kl. 15 - 18. Kynntar verða áherslur í starfsemi sjóðsins auk
þess sem haldin verður sýning á nokkrum verkefnum sem
hlotið hafa styrk úr sjóðnum.
Ný úthlutun 2009
Kynning í Ráðhúsi Reykjavíkur 20. mars
Dagskrá
15:00 Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra setur dagskrána
15:10 Guðrún Nordal, prófessor og formaður stjórnar Rannsóknasjóðs, kynnir nýja
úthlutun fyrir styrkárið 2009 og áherslur í starfsemi sjóðsins
15:30 Hannes Jónsson, prófessor, Reiknisetur fyrir hönnun efna og íhluta
(nýtt öndvegisverkefni 2009)
15:45 Vilmundur Guðnason, prófessor, Breytingar í stærð og samsetningu skella
í hálsæðavegg og tengsl orsakaþátta - Langsniðsrannsókn
(nýtt öndvegisverkefni 2009)
16:00 Sýning á nokkrum verkefnum sem njóta stuðning Rannsóknasjóðs
(opin til kl. 18:00)
Almenningur er hvattur til að kynna sér starfsemi Rannsóknasjóðs og opinberan
stuðning við rannsóknir.
Rannsóknasjóður