Fréttablaðið - 19.03.2009, Síða 41

Fréttablaðið - 19.03.2009, Síða 41
FIMMTUDAGUR 19. mars 2009 25 mín. GATWICK EXPRESS með ánægju Gatwick Bandaríkin Ísland Mið-Ameríka Karíbahafið Afríka Asía Evrópa London www.gatwickairport.com Bókaðu tengiflug! Frá 1. maí 2009 Frá og með 1. maí flytjum við okkur frá Stansted yfir á Gatwick flugvöll (South terminal). Gatwick er þægilega staðsettur suður af London og þaðan fljúga þekkt erlend flugfélög til allra heimshorna. Möguleikar á ódýru og fjölbreyttu tengiflugi verða þá enn fleiri! Kynntu þér Gatwick og bókaðu flug á frábæru verði á www.icelandexpress.is Það tekur aðeins 25 mín. að skutlast niður í bæ Blaðberinn bíður þín Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 8-17. óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... UMRÆÐAN Einar K. Guðfinnsson skrifar um hvalveiðar Hvalveiðar munu geta skipt miklu máli fyrir atvinnulíf okkar, ekki síst á Vesturlandi. Þegar þær hefjast nú með vorinu er áætlað að 200 til 250 manns hafi atvinnu af veiðum og vinnslu á langreyði og hrefnuveiðar og -vinnsla þurfa á allt að 50 manns að halda. Við erum hér að tala um 300 manna atvinnu- sköpun og það tafarlaust. Fá dæmi eru um slíka skjóta atvinnusköpun nú þegar mest ríður á. Það munar um minna í þessu hallæri, þegar til dæmis atvinnuleysi á Vestur- landi er komið yfir 400 manns. Það er því ábyrgðarhluti af hálfu þeirra sem hafa lagst gegn hval- veiðum, enda hefur því verið mætt af fullri hörku af heimamönnum, svo sem sveitarstjórnarmönnum og verkalýðshreyfingunni. Órofa samstaða þeirra með okkur, sem staðið höfum fyrir ákvörðunum um hvalveiðar til frambúðar, er því lofsverð og þakkarverð. Fundurinn á dögunum í Bíóhöllinni á Akra- nesi, þar sem var fullur salur af fólki, sannaði þetta og undirstrik- aði hvað þetta er mikið alvöru- og framfaramál í hugum fólks. Óvissu aflétt Um nokkurra daga skeið virtist ríkja óvissa um hvort hvalveiðar gætu haldið áfram núna í sumar. Ég gaf út reglugerð um áframhald- andi hvalveiðar, bæði á hrefnu og langreyði nú í janúar. Nýr sjávar- útvegs- og landbúnaðarráðherra, Steingrímur J. Sigfússon, brást illa við þessari ákvörðun minni eins og flestir muna og hafði í lítt dulbúnum hótunum vegna málsins. Niðurstaða hans var hins vegar sú að staðfesta ákvörðun mína. Nokk- uð sem var borðleggjandi í raun- inni, enda hafði hann engin rök til annars. Þetta er mikið ánægjuefni. Nú er ljóst að hvalamálin eru í höfn. Margra ára barátta okkar margra hefur skilað þessum árangri. Augljós rök Það þarf varla að tíunda mjög röksemdirnar sem liggja að baki þeirri ákvörðun minni að tryggja að hvalveiðar geti haldið áfram. Ég hafði tekið sams konar ákvörðun árið 2006, um það bil ári eftir að ég varð sjávarútvegsráðherra. Þá eins og nú var uppi mikill hávaði og læti og látið í veðri vaka að hún myndi valda okkur skaða. Reynsl- an – sem jafnan er ólygnust – leiddi annað í ljós. Nú er heldur ekkert að óttast. Hvalveiðarnar verða okkur mikill efnahagslegur búhnykkur og munu ekki skaða aðrar atvinnu- greinar. Það sannar reynslan. Gleymum því heldur ekki að við höfum veitt á þriðja hundrað hvali frá árinu 2003. Það er því komin margföld reynsla af þessum veiðum. Nauðsyn þess að halda áfram hvalveiðum er núna brýnni en nokkru sinni. Það er búið að sýna fram á að hvalurinn étur óhemju magn af fiski og er í beinni samkeppni við nytja- stofna okkar um fæðu. Það hefur verið reiknað út af færustu sér- fræðingum að ef við stunduðum hvalveiðar væri hægt að auka þorskveiðar. Svo einfalt er það. Þarf nokkuð frekari vitnanna við. Þetta er þess vegna einn liður í því að auka veiðar hér við land á nytja- stofnum eins og þorski. Það er því ekki lítið ábyrgðarmál ef menn leggjast gegn slíku. Við erum líka núna að verða vitni að atvinnuleysi af stærðar- gráðu sem við höfum ekki séð ára- tugum saman. Nú verðum við að leggjast á árarnar við að nýta þau tækifæri sem við höfum. Hvalveið- ar eru sannarlega hluti af því. Þegar allt leggst saman Þegar allt leggst saman, nauðsyn þess að veiða hval, að veiðarnar eru í samræmi við lög og reglur og fyrir liggur markaður fyrir vör- una, þá er í raun ekki eftir neinu að bíða. Enda gerir Hvalur hf. og hrefnuveiðimennirnir sig nú klára til að hefja nýja vertíð nú á haust- mánuðum. Því miður var ekki mikið fyrr hægt að taka ákvörðun um útgáfu á kvótum í þeim mæli sem gert hefur verið núna. Því olli óvissa um sölu afurða sem ekki var aflétt fyrr en í lok síðasta árs. Óvissa í stjórnmálum tafði síðan málið, uns ég tók af skarið í jan- úar sl. Þar var rétt að öllu staðið, eins og sést af því að núverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráð- herra treysti sér ekki til að aftur- kalla leyfið, þrátt fyrir að hann virtist hafa til þess löngun. Aðalmálið er þá þetta: Stefn- an hefur verið mörkuð, eins og ég lagði upp með. Hvalveiðar munu hefjast og skapa fjölda nýrra starfa, auka atvinnusköpun og verða hluti af þeirri sjálfsögðu stefnu að nýta auðlindir hafsins til hagsbóta fyrir þjóðina. Höfundur er alþingismaður og fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. Hvalveiðar gegn atvinnuleysi EINAR K. GUÐFINNSSON Þegar allt leggst saman, nauð- syn þess að veiða hval, að veið- arnar eru í samræmi við lög og reglur og fyrir liggur markaður fyrir vöruna, þá er í raun ekki eftir neinu að bíða.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.