Fréttablaðið - 19.03.2009, Side 41
FIMMTUDAGUR 19. mars 2009
25 mín.
GATWICK EXPRESS
með ánægju
Gatwick
Bandaríkin
Ísland
Mið-Ameríka
Karíbahafið Afríka
Asía
Evrópa
London
www.gatwickairport.com
Bókaðu
tengiflug!
Frá
1. maí
2009
Frá og með 1. maí flytjum við okkur frá Stansted yfir á Gatwick flugvöll (South terminal).
Gatwick er þægilega staðsettur suður af London og þaðan fljúga þekkt erlend flugfélög til
allra heimshorna. Möguleikar á ódýru og fjölbreyttu tengiflugi verða þá enn fleiri!
Kynntu þér Gatwick og bókaðu flug á frábæru verði á www.icelandexpress.is
Það tekur aðeins 25 mín.
að skutlast niður í bæ
Blaðberinn
bíður þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
óðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...
UMRÆÐAN
Einar K. Guðfinnsson
skrifar um hvalveiðar
Hvalveiðar munu geta skipt miklu máli
fyrir atvinnulíf okkar,
ekki síst á Vesturlandi.
Þegar þær hefjast nú með
vorinu er áætlað að 200 til
250 manns hafi atvinnu af
veiðum og vinnslu á langreyði og
hrefnuveiðar og -vinnsla þurfa á
allt að 50 manns að halda. Við erum
hér að tala um 300 manna atvinnu-
sköpun og það tafarlaust. Fá dæmi
eru um slíka skjóta atvinnusköpun
nú þegar mest ríður á. Það munar
um minna í þessu hallæri, þegar
til dæmis atvinnuleysi á Vestur-
landi er komið yfir 400 manns.
Það er því ábyrgðarhluti af hálfu
þeirra sem hafa lagst gegn hval-
veiðum, enda hefur því verið mætt
af fullri hörku af heimamönnum,
svo sem sveitarstjórnarmönnum
og verkalýðshreyfingunni. Órofa
samstaða þeirra með okkur, sem
staðið höfum fyrir ákvörðunum
um hvalveiðar til frambúðar, er því
lofsverð og þakkarverð. Fundurinn
á dögunum í Bíóhöllinni á Akra-
nesi, þar sem var fullur salur af
fólki, sannaði þetta og undirstrik-
aði hvað þetta er mikið alvöru- og
framfaramál í hugum fólks.
Óvissu aflétt
Um nokkurra daga skeið virtist
ríkja óvissa um hvort hvalveiðar
gætu haldið áfram núna í sumar.
Ég gaf út reglugerð um áframhald-
andi hvalveiðar, bæði á hrefnu og
langreyði nú í janúar. Nýr sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðherra,
Steingrímur J. Sigfússon, brást
illa við þessari ákvörðun minni
eins og flestir muna og hafði í lítt
dulbúnum hótunum vegna málsins.
Niðurstaða hans var hins vegar sú
að staðfesta ákvörðun mína. Nokk-
uð sem var borðleggjandi í raun-
inni, enda hafði hann engin rök til
annars.
Þetta er mikið ánægjuefni. Nú
er ljóst að hvalamálin eru í höfn.
Margra ára barátta okkar margra
hefur skilað þessum árangri.
Augljós rök
Það þarf varla að tíunda mjög
röksemdirnar sem liggja að baki
þeirri ákvörðun minni að tryggja
að hvalveiðar geti haldið áfram. Ég
hafði tekið sams konar ákvörðun
árið 2006, um það bil ári eftir að
ég varð sjávarútvegsráðherra. Þá
eins og nú var uppi mikill hávaði
og læti og látið í veðri vaka að hún
myndi valda okkur skaða. Reynsl-
an – sem jafnan er ólygnust – leiddi
annað í ljós. Nú er heldur ekkert að
óttast. Hvalveiðarnar verða okkur
mikill efnahagslegur búhnykkur
og munu ekki skaða aðrar atvinnu-
greinar. Það sannar reynslan.
Gleymum því heldur
ekki að við höfum veitt á
þriðja hundrað hvali frá
árinu 2003. Það er því
komin margföld reynsla
af þessum veiðum.
Nauðsyn þess að halda
áfram hvalveiðum er
núna brýnni en nokkru
sinni. Það er búið að sýna
fram á að hvalurinn étur
óhemju magn af fiski og
er í beinni samkeppni við nytja-
stofna okkar um fæðu. Það hefur
verið reiknað út af færustu sér-
fræðingum að ef við stunduðum
hvalveiðar væri hægt að auka
þorskveiðar. Svo einfalt er það.
Þarf nokkuð frekari vitnanna við.
Þetta er þess vegna einn liður í því
að auka veiðar hér við land á nytja-
stofnum eins og þorski. Það er því
ekki lítið ábyrgðarmál ef menn
leggjast gegn slíku.
Við erum líka núna að verða
vitni að atvinnuleysi af stærðar-
gráðu sem við höfum ekki séð ára-
tugum saman. Nú verðum við að
leggjast á árarnar við að nýta þau
tækifæri sem við höfum. Hvalveið-
ar eru sannarlega hluti af því.
Þegar allt leggst saman
Þegar allt leggst saman, nauðsyn
þess að veiða hval, að veiðarnar
eru í samræmi við lög og reglur og
fyrir liggur markaður fyrir vör-
una, þá er í raun ekki eftir neinu
að bíða. Enda gerir Hvalur hf. og
hrefnuveiðimennirnir sig nú klára
til að hefja nýja vertíð nú á haust-
mánuðum. Því miður var ekki
mikið fyrr hægt að taka ákvörðun
um útgáfu á kvótum í þeim mæli
sem gert hefur verið núna. Því olli
óvissa um sölu afurða sem ekki
var aflétt fyrr en í lok síðasta árs.
Óvissa í stjórnmálum tafði síðan
málið, uns ég tók af skarið í jan-
úar sl. Þar var rétt að öllu staðið,
eins og sést af því að núverandi
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra treysti sér ekki til að aftur-
kalla leyfið, þrátt fyrir að hann
virtist hafa til þess löngun.
Aðalmálið er þá þetta: Stefn-
an hefur verið mörkuð, eins og ég
lagði upp með. Hvalveiðar munu
hefjast og skapa fjölda nýrra
starfa, auka atvinnusköpun og
verða hluti af þeirri sjálfsögðu
stefnu að nýta auðlindir hafsins
til hagsbóta fyrir þjóðina.
Höfundur er alþingismaður og
fyrrverandi sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra.
Hvalveiðar gegn
atvinnuleysi
EINAR K.
GUÐFINNSSON
Þegar allt leggst saman, nauð-
syn þess að veiða hval, að veið-
arnar eru í samræmi við lög og
reglur og fyrir liggur markaður
fyrir vöruna, þá er í raun ekki
eftir neinu að bíða.