Fréttablaðið - 19.03.2009, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 19.03.2009, Blaðsíða 48
32 19. mars 2009 FIMMTUDAGUR tonlist@frettabladid.is TÓNNINN GEFINN Trausti Júlíusson Kvikmyndin Slumdog Millionaire er ein af þessum myndum sem allur heimurinn elskar. Sagan sjálf er auðvitað lykillinn að velgengni henn- ar, en til þess að kvikmynd nái svona miklum vinsældum þarf allt að ganga upp. Þar á meðal tónlistin. Og hún er ekkert að klikka í Slumdog Millionaire, enda voru tvenn af þeim átta Óskarsverðlaunum sem mynd- in fékk fyrir tónlistina; myndin fékk verðlaun fyrir bestu frumsömdu kvikmyndatónlistina og lagið Jai Ho var valið besta lagið. Það er greinilegt að framleið- endur Slumdog veðjuðu á réttan hest þegar þeir völdu listamenn til að gera tónlist fyrir myndina. Í aðalhlutverki er kvikmynda- tónskáldið A. R. Rahman, en til að ná til breiðari hóps var sjálf M.I.A. fengin til að syngja eitt laganna í myndinni, auk þess sem smellurinn hennar, Paper Planes, er þar í tveimur útgáfum: upprunalegu útgáfunni og í endurgerð hinna eitursvölu DFA-manna í New York. Allah Rakha Rahman er eng- inn nýgræðingur. Hann er fædd- ur 1967 og er af miklum tónlista- rættum. Hann byrjaði ferilinn í nokkrum hljómsveitum, var meðal annars stofnandi og hljómborðs leikari Nemesis Avenue, en fór svo að semja kvikmyndatónlist í byrjun tíunda áratugarins. Hann vakti fyrst athygli fyrir tónlistina í kvikmyndinni Roja (1992) en hefur síðan gert tónlist fyrir yfir hundrað kvikmyndir. Þar á meðal má nefna Rangeela og Zubeidaa: Story of a Princess. Tónlistin í Slumdog Millionaire ber þess merki að henni er ætlað að ná til breiðs hóps hlustenda. Í henni blandast indversk tónlist og vest- ræn og útkoman er oft mjög skemmtileg. Velgengni myndarinnar á eflaust eftir að auka áhuga fólks úti um allan heim á A. R. Rahman sérstaklega og indverskri tónlist almennt. Yfirvofandi heimsyfirráð A. R. RAHMAN Kvikmyndin Slumdog Million- aire á eftir að auka áhugann á indverskri tónlist út um allan heim. Það hefur farið frekar lítið fyrir Helga Hrafni Jónssyni í íslensku tónlistarlífi. Hann hefur samt náð umtalsverðum árangri á tónlistar- sviðinu. Árið 2005 kom fyrsta platan hans, Glóandi, út hjá austurríska plötufyrirtækinu Material Records, en Helgi var þar við nám í básúnu- leik. Hann hefur spilað mikið á tón- leikum erlendis og er meðal annars þessa dagana á mikilli tónleikaferð um Bandaríkin og Evrópu með Tinu Dico og nýlega kom önnur platan hans í verslanir. Hún heitir For The Rest Of My Childhood og er gefin út af Playground Music sem er eitt öflugasta óháða plötufyrirtækið á Norðurlöndunum. Helgi er greinilega mjög hæfi- leikaríkur. Hann er ekki bara góður hljóðfæraleikari heldur líka vaxandi lagasmiður og söngvari. Það voru nokkur sterk lög á Gló- andi, meðal annars titillagið og Make Me Fall, en For The Rest Of My Childhood er mun betri plata. Hljómurinn er betri, hljóð- heimurinn þróaðri, lagasmíðarnar sterkari og Helga hefur líka farið mikið fram í söngnum. Það er ekki ofsagt að hann sé orðinn frábær söngvari. For The Rest Of My Childhood byrjar á fjórum mögnuðum lögum og þau sex sem taka við af þeim gefa þeim lítið eftir. Fyrsta lagið er hið rólega og stemningsfulla Ashes Away, þá kemur September, magnað lag sem minnir mig helst á einhverja ómótstæðilega blöndu af Radiohead og Sigur Rós. Í þriðja laginu Digging Up A Tree sýnir Helgi á sér nýjar hliðar. Þetta er poppsmellur sem Helgi syng- ur mjög skemmtilega. Söngurinn minnir mig svolítið á David Bowie snemma á áttunda áratugnum. Það kæmi mér ekki á óvart að þetta yrði eitt af lögum ársins 2009. Fjórða lagið, Waltz, er svo ólíkt hinum þremur. Rólegt og mínímalískt. Og það eru fleiri frábær lög, til dæmis Dry Run og AM Radio Signal. Eins og áður segir hefur Helgi Hrafn Jónsson spilað heilmik- ið erlendis. Þess verður vonandi ekki langt að bíða að hann haldi tónleika hér á landi. For The Rest Of My Childhood er frábær plata frá vaxandi tónlistarmanni. Hann var efnilegur á fyrstu plötunni og nú rúmum þremur árum seinna er hann orðinn góður. Sígandi lukka er best. Trausti Júlíusson Leynivopn í íslenskri tónlist TÓNLIST For the Rest of My Childhood Helgi Hrafn Jónsson ★★★★ Helgi Hrafn Jónsson er leynivopnið í íslenskum tónlistarheimi. Hann er hér mættur með plötu númer tvö. Frábær plata frá vaxandi söngvara og lagasmið. Indísveitin The December- ists frá Oregon í Bandaríkj- unum gefur á þriðjudaginn út sína fimmtu plötu, The Hazards of Love. Um nokkurs konar rokkóperu er að ræða sem fjallar um viðburðaríka ævi konu að nafni Margaret. Fyrir kynslóð sem er alin upp við iTunes og MTV, þar sem litið er á hraðar skiptingar á milli laga og sjónvarpsstöðva sem sjálfsagðan hlut, kemur þessi plata The Dec- emberists vafalítið eins og skratt- inn úr sauðarleggnum. The Hazards of Love á rætur sínar að rekja til áhuga forsprakka The Decemberists, Colin Meloy, á EP-plötu bresku þjóðlagasöngkon- unnar Anne Briggs frá árinu 1966. Platan heitir einmitt The Hazards of Love og þegar Meloy komst að því að ekkert lag á plötunni héti þessu nafni ákvað hann að semja eitt slíkt. Hugmyndin vatt smám saman upp á sig og stór sautján laga plata varð til um viðburða- ríka ævi konu að nafni Marg- aret sem er uppi fyrr á öldum. Fyrirbæri sem er blanda af dýri og manni ræðst á hana, henni er haldið fanginni af þorpara sem kallast The Rake, hún verður ást- fangin af manni að nafni William og kemst í kynni við afbrýðisama skógardrottningu. Sannarlega margslungin saga og til að koma öllum persónunum til skila voru ýmsir gestasöngvarar kallaðir til, þar á meðal Jim James úr hljóm- sveitinni My Morning Jacket, breski tónlistarmaðurinn Robyn Hitchcock og Shara Worden úr My Brightest Diamond. Margir tónlistarspekingar eru á þeirri skoðun að plötur á borð við The Hazards of Love tilheyri fortíðinni því enginn hafi lengur áhuga á að leggja við hlustir og kafa ofan í „flóknar“ þemaplöt- ur sem krefjast mikillar athygli og samfelldrar hlustunar frá upp- hafi til enda. Meðlimir The Decem- berists eru greinilega ekki á sama máli og láta markaðinn ekki segja sér fyrir verkum. Áhættan er að sama skapi nokkur því sveitin fékk mjög góða dóma fyrir síðustu plötu sína, The Crane Wife, sem kom út árið 2006. Hún þótti aðgengilegri en fyrri verk sveitarinnar og opnaði augu margra fyrir henni. Þemaplötur búa oftast yfir fjöl- breyttum tónlistarstefnum og The Hazards of Love er engin undan- tekning. Blandað er saman rólegu þjóðlagapoppi, rokki, ballöðum og í raun öllu á milli himins og jarð- ar með áhugaverðri útkomu. Plat- an hefur fengið fína dóma, þar á meðal fjórar stjörnur hjá The Observer og All Music, 8 af 10 hjá Drowned in Sound og 9 af 10 hjá Contactmusic.com, sem segir að þar sé á ferðinni snilldarverk. Tímaritið Spin er ekki eins hrifið, gefur henni tvær og hálfa stjörnu og segir The Decemberists hafa gengið of langt með prog-pæl- ingum sínum og að plötuna skorti grípandi viðlög. Hvað sem öllum dómum líður er The Hazards of Love merki- leg plata sem segir nútíma mark- aðslögmálum stríð á hendur hvað varðar uppbyggingu og efnistök. freyr@frettabladid.is ROKKÓPERA ÚR FORTÍÐINNI THE DECEMBERISTS Hljómsveitin The Decemberists gefur út sína fimmtu plötu, The Hazards of Love, á þriðjudaginn. NORDICPHOTOS/GETTY Meðlimir hljómsveitarinnar Bag of Joys, sem hætti störfum fyrir rúmum áratug, verða gest- ir á þriðja Sýna og sjá-kvöldi Nýlistasafnsins sem verður hald- ið í kvöld klukkan 20. Á þessum kvöldum koma óháðir tónlistar- menn og þekktir spekúlantar saman og fara yfir sjálfstæða tónlistarsköpun á Íslandi við upp- haf tíunda áratugarins. Meðlimir Bag of Joys, sem var stofnuð í Breiðholti 1992, munu ræða feril sinn í máli og mynd- um, gefa tóndæmi, sýna heima- gert prentefni og skella ómetan- legum myndbandsupptökum af bílskúrsæfingum í tækið. Bag of Joys snýr afturNágrannar Bobs Dylan í Malibu í Kaliforníu hugsa honum þegjandi þörfina vegna ferða- salernis á landareign hans sem starfsfólk hans notar. Mikill fnykur berst frá salerninu yfir til nágrannanna, sem vilja það í burtu hið snarasta svo þeir geti notið ómengaðs sjávarloftsins. Cindy Emminger á hús beint fyrir aftan klósettið. Hún segir að bæði hún og átta ára sonur hennar hafi veikst af völdum óþefsins vegna þess að þau séu bæði viðkvæm fyrir eiturefnum í loftinu vegna ofnæmis. Í viðtali við LA Times segist hún hafa brugðist við með því að koma fyrir fimm risastórum viftum til að blása óþefnum aftur til Dylans, en það hafi ekki borið árangur. „Þetta er hneyksli,“ sagði hún. „Hr. Mann- réttindi traðkar á okkar mannréttindum.“ Dylan sótti um leyfi fyrir klósettinu árið 1989. Þá var gerð athugasemd við það að ekkert aðgengi væri þar fyrir fatlaða. Svar- aði Dylan því að hann ætlaði ekki að ráða til sín fatlað fólk. Yfirvöld í Malibu eru nú með málið til rannsóknar, sem þarf greinilega að leysa hið snarasta. Á meðan undirbýr Dylan útgáfu nýrrar plötu með hinu hugljúfa nafni Together Through Life. Hún kemur í versl- anir 28. apríl. Kvartað undan klósettfnyk BOB DYLAN Goðsögnin hefur verið gagnrýnd fyrir ferðasalerni sitt. > Í SPILARANUM Eberg - Antidote Peter, Björn & John - Living Thing Lily Allen - It´s Not Me, It´s You Jason Mraz - We Sing. We Dance. We Steal Things. PETER, BJÖRN & JOHNEINAR TÖNSBERG
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.