Fréttablaðið - 19.03.2009, Side 52

Fréttablaðið - 19.03.2009, Side 52
36 19. mars 2009 FIMMTUDAGUR folk@frettabladid.is > VILL TATTÚ AF ANDLITI FREDDIE MERCURY Katy Perry vill heiðra minningu söngvarans Freddie Mercury í Queen með því að láta flúra andlit hans á bak sitt. Söngkon- an segist næstum því hafa látið setja mynd af honum á andlit sitt fyrir nokkrum árum, en er fegin að hafa ekki gert það þá. Perry lítur mikið upp til Mercury og segir hann hafa mikil áhrif á tónlistarsköpun sína. Hollywood-kynslóðin ætlar að koma saman 4. apríl og rifja upp gamla diskótakta frá velmektarárum þessa sögufræga skemmtistaðar sem var svo áberandi á 9. áratug síðustu aldar. „Þetta verður alveg geðveikt. Það logar allt á Facebook. Fullt af liði sem maður hefur ekki hitt í milljón ár ætlar að mæta,“ segir Kristjana Geirsdóttir sem allir þekkja sem Jönu. Hollywood-liðið, sem skemmti sér frá fimmtu- degi til sunnudags í Hollywood við Ármúla þannig að eftir var tekið um miðjan níunda ára- tug síðustu aldar ætlar að koma saman 4. apríl og rifja upp stemninguna – sem að sögn þeirra sem til þekkja var engu lík. Gleðin verður 1. apríl á Broadway. Jana er í undirbúningsnefnd- inni og verður móttökustjóri líkt og þegar Hollý var og hét og getur vart beðið. „Þarna verður tískusýning með Módel 79, gömlu fötin, sömu gömlu dyraverðirnir, Óli Laufdal mætir …“ þylur Jana. Margrét Kristjánsdóttir, sem stund- aði Hollywood af kappi, stofnaði Facebooksíðu og hátt í tvö þúsund manns skráðu sig nánast um leið. Jana á möppur með myndum og greinum úr tímaritum og blöðum þar sem fjallað er um Hollywood, keppnina Ungfrú Hollywood og eitt og annað sem konungarnir í Hollywood, Ólafur Laufdal, Páll Þorsteinsson og Magnús Kristjánsson, Leopold Sveinsson og fleiri létu sér detta í hug að gæti orðið þessum stóra hópi til skemmtunar. Í möppum Jönu er í aðalhlut- verki fyrrverandi ungfrú Ísland, Anna Margrét Jónsdóttir. „Á nú að fara að rifja upp gamlar syndir,“ segir Anna Margrét og vill meina að þessi tími hafi verið hallærislegur en skemmtilegur. Anna Margrét á góðar minningar frá þessum tíma. Segir fólk hafa stundað staðinn grimmt og stór hópur allt frá fimmtudegi til sunnudags. Sjálf var hún valin fulltrúi ungu kynslóðarinnar og ungfrú Hollywood auk þess sem hún starfaði með Módelsamtökunum og var í tískusýningum sem voru viss passi í Hollywood. „Já, það má ekki gleyma því að við sem vorum í tískusýn- ingunum vorum með fín mánaðarlaun, nokkrar tískusýningar og myndatökur í Álafossbækling og ég var komin meö sömu laun og mamma. Þetta var ákveðinn glamor í þessu. Þetta var vinnan mín með skóla og ég átti fullt af pening- um til að kaupa mér gloss og herðapúða. Þre- falda herðapúða, ljós í hádeginu og svo utan- landsferðir,“ segir Anna. Hún rifjar upp þegar móðurbróðir hennar, sem var með prentsmiðju þá, hringdi skelfingu lostinn í móður hennar þegar verið var að prenta Samúel en þar var að finna myndir af Önnu Margréti frá blaut- bolskeppni á Ibiza. Og þótti þetta afar djarft á sínum tíma. „Já, já, ég vann þetta. Með engin brjóst! Ég fékk 150 þúsund í pesetum fyrir og þetta reddaði alveg ferðinni. En frændi minn fékk taugaáfall,“ hlær Anna Margrét. jakob@frettabladid.is ALLIR ERU STJÖRNUR Í HOLLYWOOD FJÖRIÐ Í GÓÐU LAGI Jana og Páll Þorsteinsson sem þá var þekktur útvarpsmaður og oft kynnir á viðburðum í Hollý. KAMPAVÍN, FEGURÐARDROTTNINGAR OG ÓLAFUR LAUFDAL Lýsandi mynd, en þarna má meðal annars sjá veit- ingamanninn Ólaf Laufdal og Önnu Margréti krýnda sem fulltrúa ungu kynslóðarinnar. ANNA MARGRÉT Á FORSÍÐU VIKUNNAR Hún fékk hundrað og fimmtíu þúsund peseta borgaða fyrir sigur í blautbolskeppni á Ibiza sem bjargaði ferðinni. „Ég hef alltaf verið þeirrar skoðunar að allt eigi að smakkast eins og beikon,“ segir Bjartmar Oddur Alexandersson sem hefur fengið umboð fyrir „baconna- ise“ sem er majónes með beikonbragði. „Ég kynntist þessu í The Daily Show með John Stewart. Þar var hann að vísu að gera grín að sköpunargáfu Banda- ríkjamanna, að finna upp á því að blanda saman beikoni og majónesi sem er ekki alveg mesta hollustan. Ég sendi svo póst út til framleiðandans, fékk prufusend- ingu til landsins og var að smakka þetta í gær. Ég prufaði að setja beikonmajón- esið á grillaðan hamborgara í hádeginu í gær og á samloku með kalkún og það smakkaðist mjög vel. Ég sé alveg fyrir mér að skella þessu beint á borgarann í staðinn fyrir að bíða eftir að beikon- ið grillist,“ segir Bjartmar sem flytur einnig inn beikonvarasalva og beikonsalt frá sama framleiðanda. „Fyrirtækið úti var stofnað af miklum beikonelskendum. Þeir framleiða einnig beikonvarasalva og beikonsalt með cheddar, jalapeno og fleiri bragðtegu- dum, svo hægt er að fullkomna beikon- bragðið með þessu þrennu,“ segir Bjart- mar og brosir. „Það er í raun ekki alvöru beikon í þessu heldur bragðefni. Það er líka minni fita í þessu heldur en venju- legu majónesi og það er til létt útgáfa svo þú færð ekki hjartaáfall við fyrsta smakk,“ bætir hann við. Bjartmar starfar hjá Vodafone auk þess sem hann nemur markaðsfræði og aljóðaviðskipti við HÍ og kannar nú markaðinn fyrir beikonmajónesið. „Grill- tímabilið er að byrja svo ég sé þetta sem grillvöru sem fólk vill prófa í sumar. Við erum búnir að athuga verð á inn- fluttu majónesi og verðum með lægra kílóverð, en við sjáum bara til hvernig áhuginn verður.“ - ag Flytur inn majónes með beikonbragði BEIKONELSKANDI Bjartmar er bjartsýnn á að Íslendingar muni kunna að meta beikonvörur. REYK JAVÍ K ARTS FE STI VA L 15. – 31. M A Í LISTAHÁTÍÐ Í REYK JAVÍ K 29. maí Íslenska óperan „Djöfullegir en dásamlegir.”Evening Standard Velkomin í Klúbb Listahátíðar! sjá www.listahatid.is á www.listahatid.is www.midi.is og í síma 552 8588 „Þessi dásamlega myrki kabarett er eins og Kurt Weill meitlaður af Aleister Crowley og útkoman er gjörsamlega gallalaus. Stórfenglegt.” The Guardian TIGER LILLIES Á LISTAHÁTÍÐ Miðasala hafi n Blaðberinn bíður þín Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24 alla virka daga frá kl. 8-17. ...góðar fréttir fyrir umhverfið Blaðberinn...

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.