Fréttablaðið - 19.03.2009, Qupperneq 64
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
Í dag er fimmtudagurinn 19.
mars, 78. dagur ársins.
7.32 13.35 19.41
7.16 13.20 19.26
Mér finnst lágmarkskrafa á sjálfan mig að ég vakni á
morgnana og sé í góðu skapi. Af
hverju ætti ég ekki að vera það?
Fullfrískur, hamingjusamur og
svo gengdarlaust heppinn að dútl
foreldra minna varð til þess að ég
fæddist á þessu gullfallega landi,
á þessari frábæru plánetu, í þessu
magnaða sólkerfi, í þessari mergj-
uðu vetrarbraut, o.s.frv.
ÉG er svo heppinn að efnasam-
böndin í gráu klessunni innan í
hauskúpunni á mér gera þessar
hugsanir mögulegar. En svo byrj-
ar ballið. Að halda góða skapinu út
daginn.
MAÐUR neyðist til að stilla á
fréttirnar. Annars gæti maður
verið að missa af einhverju.
Kannski er ísbjörn laus í Vestur-
bænum, hvað veit maður? Árum
saman hafa manni verið sagðar
fréttir sem virðast til þess eins
fallnar að stjórna því hvort maður
sé í góðu skapi eða ekki. Dofdjóns
upp = Veiii! Nasdag niður = Búhú!
Hagvöxturinn stendur í stað,
gvöð minn almáttugur! Um þess-
ar mundir tekur auðvitað steininn
úr í skapsveiflufréttamennskunni.
Maður er á fleka í tilfinningaleg-
um öldudal. Það er svart fram
undan, þetta verður erfitt, fólk
verður að færa fórnir, þjóðin
skuldar svo ógeðslega mikið. Eða:
Þjóðin skuldar nú ekki svo mikið
og það er ljós við enda ganganna.
SVO eru það fréttirnar af ríku
körlunum sem komu þjóðinni á
vonarvöl með svínslegri græð-
ginni. Það þarf stálvilja til að
missa ekki sjónar á góða skapinu
og fyllast stjórnlausri heift þegar
kreppt smettin á þeim birtast með
nýjustu fréttunum af sukkinu, sið-
leysinu og mannfyrirlitningunni.
JAFNVEL þó maður komist undan
á flótta með góða skapið frá frétt-
unum er lífið sjálft fullt af hætt-
um. Og þær eru lúmskar. Níu ára
stelpur geta reynst örgustu hryðju-
verkamenn. Til dæmis þessi sem
fór að spyrja mig út í dóttur mína,
tveggja ára, sem ég var með úti
í búð. Eftir að hafa spurt hvað
hún heiti og sé gömul og svoleiðis
spurði hún mig hvort ég væri afi
hennar eða pabbi.
YFIR mig helltust efasemdir um
eigið ágæti. Maðurinn með ljá-
inn birtist glottandi framan í
níu ára stelpunni, ég sá árin líða
hjá og gröfina opnast með iðandi
eftirvæntingarfullri ormakös. Svo
tók gráa klessan völdin og lét mig
hugsa: Hvað er þetta maður. Þú ert
hundgamall. Sættu þig við það.
Ekki gleyma
góða skapinu
www.markid.is Sími 553 5320 Ármúla 40
P
IP
A
R
• S
ÍA
• 9
0
4
6
1