Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.2006, Blaðsíða 16

Lesbók Morgunblaðsins - 18.11.2006, Blaðsíða 16
16 LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ lesbók bækur Mörkinni 1 • Sími 588 24 00 Skoðum náttúruna Heimur dýranna í máli og myndum Í bókunum er fjallað um lífshætti og atferli dýranna og þær prýða einstæðar myndir eftir færustu náttúruljósmyndara heims. Ungir lesendur ásamt hinum eldri hafa bæði gagn og gaman af því að kynnast furðum náttúrunnar. Umsjón með íslensku útgáfunni hefur Örnólfur Thorlacius. Væntanleg í verslanir fyrir jól Eftir Freystein Jóhannsson freysteinn@mbl.is Þ eir félagar hafa leitað skjóls í bak- herbergi Litla ljóta andarungans í Lækjargötu og sitja þar kæru- leysið uppmálað þegar ég kem. Enda er ekki eins og þetta sé þeirra fyrsta blaðavital um nýút- komna bók; þeir hafa áður skrifað bók saman og fleiri í sundur. Þetta er hins vegar í fyrsta skipti sem ég tala við þá báða, saman. Ég hefði náttúrlega átt að koma í leigubíl, segi ég og legg snjóugan jakkann á næsta stól. Þetta segi ég bara af því að bók þeirra félaga heitir Farþeginn og aðalsöguhetjan er leigubíl- stjóri. Sá sem ekur einn er bæði bílstjóri og far- þegi, segja þeir spekingslega. Hvernig fara þeir að því að skrifa bók saman? Sitja báðir undir stýri, eða er annar bílstjóri og hinn farþegi? Eða öfugt? Eða bæði? Þeir byrja túrinn á því að lýsa fyrir mér hvernig þeir plotti söguna saman og búi til efnisútdrátt fyrir hvern kafla og per- sónulýsingar. Þeir verði báðir að vita út á hvað sagan gengur og hvers konar fólk er á ferðinni. Það gengur ekki að persóna sé rauðkollur hjá mér en ljóshærð hjá Palla, segir Árni og tottar smávindilinn. Það kemur sér vel að ég er örvhentur en Árni rétthentur, segir Páll. Vinstri höndin veit því hvað sú hægri skrifar! Þessi bók er sem sé skrifuð með báðum hönd- um, bætir Árni við. En þeir skrifa ekki saman, heldur í sundur. Þegar beinagrindin er klár vinna þeir hvor í sínu lagi við að setja kjöt á beinin, eru hvor í sín- um kaflanum sem þeir senda svo á milli sín. Þegar því lýkur tekur þriðji hlutinn við; að saumfara setningar og söguna og samræma stílinn. Þeir segja rosalega mikla vinnu að sam- ræma stílinn svo bókin verði samfelld eins og frá sömu hendi.. Það eru ýmsar gildrur í því að skrifa svona saman og sundur. Hvað ef annar fær bráð- snjalla hugmynd, þegar þeir eru í sundur? Þá lætur hann hinn strax vita og saman bræða þeir með sér hvort hugmyndin verður sett á eða ekki. Margt lifir slíkan sambræðing ekki af en það hefur líka komið fyrir að svona hugdetta hefur öðlast líf og gjörbreytt framvindu sög- unnar. Þá er eins gott að báðir séu með á nót- unum. Eftirvinnan fór fram í Barcelona, eins og var með fyrri bókina. Þar voru þeir einir á báti og gerðu ekkert annað en að pæla í sögunni. Það er varla að maður komist á nautaat, segir Páll. Árni segir það svolítið skrýtið að taka íslenzkt skammdegi með sér í 40 stiga hita á Spáni. Það er sérstakt að sitja löðursveittur og skrifa um flögr snjókorna. Menn halda kannski að það sé auðveldara að skrifa þegar höfundarnir eru tveir segir Árni. Menn séu þá helmingi fljótari með hlutina. En það er öðru nær. Það er extra vinna að skrifa með öðrum. Og alveg eins og persónur taka völdin af einum höfundi þá gengur tveimur höf- undum ekkert betur að hafa stjórn á sínum per- sónum. Þegar þú ert að skrifa bók einn getur þú geymt svo margt í höfðinu, segir Páll. Þú veizt þetta allt og getur gripið til þess þegar á þarf að halda. Þegar annar höfundur er með í spilinu dugar ekki að geyma hlutina bak við eyrað, þeir verða að vera á blaði svo báðir viti af þeim. En hvers vegna þá að eyða tíma í að skrifa bók saman þegar báðum gengur ágætlega með sinn rithöfundarferil, að ekki sé nú talað um eins ólíkir stílistar og þeir eru? Rithöfundastarfið getur verið dálítið ein- manalegt, segir Árni. Það er gott að brjótast út öðru hvoru í samstarf við góðan félaga. Þetta er fyrst og síðast mikið gaman, segir Páll. Aðrir karlar spila saman bridds og golf, við plottum sögur. Þetta er mjög intens hjá okkur, þegar við hittumst, segir Árni. Það er svona hæ, fjögurra tíma vinna og bæ. Við erum ekkert að spyrja að því hvernig krakkarnir hafi það. Það er svo gefandi, þegar við förum á flug, segir Páll. Það gerist svo margt, þegar tveir kasta boltanum á milli sín. En við beitum eng- um þvingunum. Við látum þetta bara flæða og sjáum hvert það leiðir okkur. Þegar við hitt- umst svona á kaffihúsi fæðast alltaf hug- myndir … … sem við getum auðvitað ekki verið að stela í okkar prívat verk, segir Árni. Reyndar höfum við gefið hvor öðrum hug- myndir í prívatverk, segir Páll. Þá er það gjöf en ekki stuldur, er Árni fljótur að botna. En leiðin getur líka legið í hina áttina. Úr krimmum Árna er Einar blaðamaður mættur til sögunnar í Farþeganum. Hann skaut líka upp kollinum í fyrri bók þeirra félaga; Í upphafi var morðið, var svo kominn á Akureyri í síðustu bók Árna; Tími nornarinnar, til að efla Síðdeg- isblaðið á landsbyggðinni, en er nú aftur kom- inn suður. Það var Palla hugmynd að fá Einar inn í okkar sögu, segir Árni. Og ég gat auðvitað ekki verið á móti mínum eigin karakter! Ekki frekar en Hauki Karlssyni rannsóknarlögreglu- manni sem líka kemur við sögu Farþegans. Morð eru þannig mál að Einar hefði hvort eð er fengið þau inn á sitt borð, segir Páll til skýr- ingar. Og Haukur vill láta kristilegu kærleiksblómin spretta, segir Árni upphafinn, eins og kærleik- urinn drjúpi af hverju morði. En þeir blekkja mig ekkert! Bak við þessa vinalegu, eilítið bó- hemsku náunga búa harðsvíraðir fantar sem sýna sögupersónum sínum enga miskunn! Ég læt þá heyra það en kasta því fram um leið að bækur þeirra beri með sér að morðin standi Árna nær og rómantíkin Páli. Árni dreg- ur við sig að svara en jánkar svo hugsi. Það er oftast þannig að Páll veltir upp einhverri hvers- dagslegri hugmynd og áður en ég veit af er ég farinn að hugsa; aha, þarna getum við drepið einhvern! Ég læt Árna alltaf leiða mig út í þennan ósóma, segir Páll sakleysislega og eins og eilítið hissa á þessu ístöðuleysi sínu, eiginlega saklaust fórnarlamb félaga síns. En Árni valtar yfir þessa tilburði og segir glottandi: Palli skrifar bara krimma með mér. En hann er allur að koma til! Það var sakamál í síðasta smásagna- safni hans. Páll flýtir sér að benda á að sú hug- mynd hafi reyndar fæðzt á fundi þeirra Árna. En hann veit að rómantískt sakleysi hans er dottið í gólfið. En morð er ekki bara morð og krimmi er ekki bara krimmi. Hvað býr í Farþeganum? Þeir horfa hvor á annan. Þetta er saga um fjölskylduleyndar- mál … harmleiki … aðapersónan er að leita eft- ir tengslum við sitt fólk … eins og reyndar hin- ar persónurnar líka. Svo setja þeir sig í stellingar: Það má eiginlega segja að undirtónninn sé ótti og öryggisleysi aðalpersónunnar, óttinn við svik og höfnun. Þess vegna er Chuck Berry í bókinni: Þú veizt að ég þoli ekki tvenns konar fólk; lygnar konur og svikula menn … Já. Þetta er leiðarstef sögunnar; leyndarmál og lygar. Það tengist rökkurkrimmanum, segir Árni. Mér líkar vel að tengja saman klassískt rokk og krimma. Chuck Berry er minn maður. Mitt ædol, Paul McCartney hefur ekki kynnzt rökkureðlinu, fyrr en þá núna upp á síð- kastið, segir Páll. Kannski það eigi eftir að dúkka upp í tónlistinni hans. Dægurlögin eru reyfarar tónlistarinnar, heldur Árni áfram. Reyfarar og rokk passa vel saman. Þetta eru sálufélagar. Þeir setja sig aftur í stellingar: Við speglum samtímann í sittúasjón aðal- persónunnar. Hann er svona lúser, sem finnst hann missa af öllu og hittir mann, sem honum finnst hafa allt. Þetta er saga um efnishyggju og dauðasynd númer þrjú. Er ágirndin ekki örugg- lega númer þrjú? Og þið brjótið fimmta boðorðið án þess að blikna! Þeir hlaupa strax í vörn: Þetta er ekki alvöru. Þetta eru forvarnarmorð á pappír, segir annar. Göfguð drápshvöt, eins og Hitchcock orðaði það, bætir hinn við. Hvað sem það heitir þá eiga bækurnar ykkar það sameiginlegt. Þær eru báðar krimmar. En við gerðum ýmislegt til þess að Farþeginn yrði ólíkur fyrri bókinni. Í upphafi var morðið er sálfræðilegur krimmi en þessi er nær rökkurkrimmanum. Í upphafi tók sinn tíma en Farþeginn er sneggri; gerist á sex dögum, hefst síðdegis á ný- ársdag og endar á miðnætti á þrettándanum, rammaður reyndar inn af tvennum áramótum. Það var skemmtilegt að glíma við þennan stutta sögutíma, segir Páll. Reyndar vorum við í miðjum klíðum þegar við skiptum um gír, segir Árni. Okkur fannst við ná meiri hraða í söguna með því að þjappa henni saman í tíma. Þess vegna sefur hann ekki mikið blessaður, segir Páll um aðalsögupersónuna. Hann er meira tens og veröldin martraðarkenndari. Komstu lesinn? spyr Árni. Og þegar ég kinka kolli. Hvernig fannst þér bókin? Ég dreg svarið við mig. Blaðamaður spyr. Viðmælandinn svar- ar. Það kemur mér í koll að Árni er kollega. Svo ég segi: Fantagóður krimmi! Þeir ljóma báðir. Getur þú ekki komið því að í viðtalinu? Það væri náttúrlega fín fyrirsögn! „Ég hélt ég væri bílstjóri. En ég er farþegi.“ Fantagóður krimmi Morgunblaðið/Sverrir Bílstjórar eða farþegar? Farþeginn er önnur spennusagan sem Árni Þórarinsson og Páll Kristinn Pálsson skrifa saman. Sú fyrri var Í upphafi var morðið sem hlaut frábærar viðtökur. Síðasta spennusaga Árna Þórarinssonar Tími nornarinnar kom út í fyrra og náði metsölu og var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna. Hún kemur út víða um heim á næsta ári. Ég fer sömu slóð og aðalsöguhetjan í nýrri bók Árna Þórarinssonar og Páls Kristins Pálssonar ekur inn í atburðarás sögunnar. „Ekki hafði veðrið skánað. Þær fáu hræður sem voru á ferli um Laugaveginn virtust krepptar og hoknar af kulda og skeiðuðu eins og þær ættu lífið að leysa gegnum snjófjúkið í átt að skjóli.“

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.