Morgunblaðið - 06.03.2006, Qupperneq 60

Morgunblaðið - 06.03.2006, Qupperneq 60
60 F MÁNUDAGUR 6. MARS 2006 MORGUNBLAÐIÐ eign.is - Austurströnd 3 - Seltj.- sími 533 4030 - fax 533 4031 - www.eign.is - eign@eign.is Esjugrund - Kjalar- nesi Virkilega skemmtilegt og glæsilegt samtals 306 fm einbýli sem skiptist í 247,5 fm íbúðarrými á tveimur hæðum og 58,6 fm tvö- faldan bílskúr. Úr húsinu er gríðalegt útsýni yfir höfuðborgina. Alls eru 5 svefnherbergi og 3 stofur auk alrýmis. 2 baðherbergi. Húsið er laust. 2756 Langahlíð - 3ja - 4ra 3ja herb. 102 fm íbúð á efstu hæð, auk her- bergis í risi sem er með aðgangi að salerni. Íbúðin skiptist í tvær samliggjandi stofur (auð- velt að loka á milli) með hreint óviðjafnanlegu út- sýni yfir borgina, eldhús sem er upprunalegt, svefnherb. og baðherb. með kari. Hús endurnýj- að að utan. Virkilega skemmtileg og opin íbúð. Laus við kaupsamning. Verð 19,2 m. 2761 Vantar allar tegundir eigna á söluskrá okkar. 1,5% sölulaun og enginn aukakostnaður. Skoðum og verðmetum samdægurs. 120 - 200 fm skrifstofuhús- næði óskast Vantar fyrir traustan aðila skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu með góðu aðgengi. Vinsamlegast hafið samband við Andres Pétur í síma 898-8738. 2773 Hátún - 3ja herb. mikið áhvílandi Vorum að fá í einkasölu 3ja herb., 73 fm íbúð á 1. hæð á frábærum stað. Íbúðin skiptist í hol með parketi, stofu með parketi og útg. á svalir, baðher- bergi með sturtuklefa, stórt svefnherb. sem var áður tvö, auðvelt að breyta aftur. Verð 17,4 m. áhv. KB lán kr. 14 m. 2776 Stórholt- hæð með bílskúr Skemmtileg ca 100 fm íbúð á tveimur hæðum. 2- 3 svefnherbergi og 1-2 stofur, mikið endurnýjuð eign, m.a. eld- hús og bað. Eign sem er vert að skoða. Nánari uppl. gefur Andrés Pétur á eign.is fasteignasölu í síma 533- 4030. Verð 24,9 m. 2747 Sigurður Gizurarson hrl. lögg. fasteignasali Andres Pétur Rúnarsson sölustjóri Sími: 533 40 30 Seljavegur - Glæsiíbúð Einkar glæsileg 3ja-4ra herb. íbúð á 3. hæð. Íbúðin skiptist í tvær stofur og tvö góð svefnher- bergi, baðherbergi með flísum og sturtu, eldhús með nýrri eikarinnréttingu og nýjum tækjum. Eignin hefur nánast öll verið endurnýjuð, m.a. ný gólfefni (parket og flísar), nýir ofnar og lagnir, nýtt eldhús. Þak var endurnýjað fyrir ca 2 árum. Verð 20,9 m. 2700 Hlynsalir - Kóp. - 3ja með bílskýli Virkilega góð 3ja herb. 102,5 fm íbúð á jarðhæð í góðu fjöleigna- húsi ásamt stæði í bílageymslu. Íbúðin er með sérinngangi af svölum og hellulagða afgirta ver- önd. Íbúðin skiptist í 2 svefnherbergi, eldhús með fallegri innréttingu, baðherbergi með flís- um, stofu og sérgeymslu í kjallara. Góð eign á eftirsóttum stað. Íbúðin getur verið laus við samning. 2748 Garðhús - 2ja með bíl- skúr Vorum að fá virkilega skemmtilega 2ja herb. 66 fm íbúð á 2. hæð í góðu fjöleigna- húsi ásamt 20 fm innbyggðum skúr. Eldhúsið er með parketi og er opið í stofu sem er með parketi og útgangi á stórar suðursvalir, svefn- herbergi með góðum skápum og rúmgott bað- herbergi með sturtuklefa. Flott í búð á góðum stað. Áhv. 6,0 m. 2743 hverfisgata - efsta hæð Í einkasölu vel skipulögð 4ra herbergja 72 fm íbúð á efstu hæð í þessu hús við Hverfis- götu, gott útsýni yfir sundin. Íbúðin skiptist í 3 svefnherbergi og góða stofu með útgangi á sval- ir, lítið eldhús, baðherbergi, sérgeymslu í risi og sam. þvottahús í kjallara. Öll sameign hefur ver- ið endurnýjuð. Verð 16,4 m. 2775 Grettisgata - 3ja - ósamþykkt Rúmgóð 90 fm, 3ja her- bergja íbúð í kjallara í miðbæ Reykjavíkur. Íbúðin skiptist í herbergi, stofu og eldhús auk þess sem eitt herbergi er frammi á gangi. Íbúðin er laus. Verð 15,5 m. 2774 Það má kalla það þráhyggjuað skrifa pistil eftir pistilum gólfhita, en er ekki nægástæða til að hafa gólfhita sem pistil dagsins aftur og aftur þó ekki sé úr hefðbundnum predik- unarstóli talað, enda ekki vígður maður sem hér predikar, eða hvað? Tvær stað- reyndir eru aug- ljósar; sú fyrri að gólfhiti er orðið vinsælasta hita- kerfi í húsum landsmanna og sú seinni að illa getur farið ef ekki er vandað til verka við lögn þessa hitakerfis. Því miður virð- ist það sjónarmið skjóta upp koll- inum, hjá húsbyggjendum, hönn- uðum og pípulagnamönnum að þetta sé ákaflega einfalt hitakerfi og einfalt í lögn vegna þess hve allt lagnaefni er létt og meðfærilegt. Ekki síst virðast margir húsbyggjendur halda að þeir sjálfir geti „fleygt niður slöngum“. Þessi frasi er því miður á kreiki og býður svo sannarlega hættunni heim; að mistök verði gerð sem koma síðan húseiganda og íbúum hússins í koll. Eftir þetta svartagallsraus er rétt að taka upp jákvæðara tal og byrja á því að fullyrða að það er allsendis óþarfi að klúðra gólfhitalögn. Mjög margir evrópskir framleiðendur plaströra og annars lagnaefnis hafa varið hundruðum milljóna í að þróa og prófa lagnaefni og gólfhitakerfi. Fyrir liggja þykkir doðrantar sem í er hægt að sækja alla þá þekkingu sem hönnuðir og pípulagnamenn þurfa á að halda. Leyfum okkur að kíkja í einn slíkan. Hann er frá þeim þekkta þýska framleiðanda Rehau. Lagnaefni frá honum hefur verið á ís- lenskum markaði í fjöldamörg ár, en umbjóðandi hans á Íslandi er Fjöl- tækni í Reykjavík. Eins og í góðri kennslustund er ekki úr vegi að rifja upp hvað um var fjallað í síðasta tíma eða réttara sagt síðasta pistli. Þá var þemað það hve mikilvægt er í fjölbýlishúsum að slíta steypulagið, sem umlykur rörin, frá meginsteypuplötunni. Ofan á steypu- plötuna verður að koma einangrandi lag, annaðhvort mjög einangrandi dúkur eða takkamottur úr plasti. Til að vera svolítið tæknilegur í málfari er rétt að nefna orðið „varmarýmd“ en það er það steypulag sem tekur beint til sín hita frá gólfhitarörunum. Ef engin einangrun skilur steypulag- ið um rörin frá steypuplötunni, eða ef svo fráleitlega er unnið að setja gólf- hitarörin inn í steypuplötuna, er „varmarýmdin“ orðin allt of mikil eða allt að 20 cm þykk steinsteypt plata. Það gengur ekki, kerfið verður seint að hitna og seint að kólna, viðbrögðin verða allt of langdregin. En eftir að hafa gluggað nokkuð í tæknilegu gögnin frá Rehau rifjast upp nokkuð sem er jafnvel ekki minna virði en halda varmanum of- arlega í plötunni og það er að koma í veg fyrir hljómburð. Í fjölbýlishúsi er það stórmál að koma í veg fyrir hljómburð á milli íbúða. Það er hvim- leitt að geta fylgst með því á hversu mjóum hælum frúin á efri hæðinni er þennan daginn eða með hvað leikföng börnin eru að leika sér. Auðvitað er hljómburður nokkuð sem taka verður tillit til, hvort sem hitakerfið er gólf- hiti eða eitthvað annað. En ef það er gólfhiti gefst gott tækifæri til að hefta hljómburð um leið og komið er í veg fyrir varmaleiðni í alla plötuna. Takkamotturnar fyrrnefndu, sem hér sjást einnig á mynd, eru úr plasti og það sem athygli vekur við takkamott- urnar frá Rehau er að plastið er ekki það sama þvert í gegn. Neðri hlutinn er ekki eins þéttur og sá efri, þess vegna dempar plastið hljómburð meira en ella. En það er fleira sem þarf að taka tillit til við lögn gólfhita og þessi at- riði, sem hér á er bent á eftir, eiga við um gólfhita burtséð frá því í hvers konar húsnæði hann er. Áður nefnt steypulag um gólfhitarörin, „varma- rýmdin“, það lag þarf ætíð að slíta frá útvegg. Ekki láta það steypulag tengjast útvegg, þetta er algild regla. Skiptir ekki máli hvort húsið er ein- angrað að utan eða innan. Þá er það mjög jákvætt að slíta varmarýmdina í sundur undir veggjum, þá er ekkert varmaflæði á milli herbergja því að í gólfhitakerfum er ætíð höfð sérstök varmastýring í hverju herbergi, ná- kvæmlega eins og gert er þegar um ofnkerfi er að ræða. Munið þetta; við alla lagnavinnu, ekki síst við lögn gólfhitakerfa, skipta smáatriðin miklu máli. Smáatriðin, sem virðast smá við fyrstu sýn eru það ekki, þau eru stór og mjög mik- ilvæg. Upplagt tækifæri til að koma í veg fyrir hljómburð milli íbúða Lagnafréttir eftir Sigurð Grétar Guðmundsson pípulagningameistara/ sigg@simnet.is Sigurður Grétar Guðmundsson Hér er verið að leggja gólfhitarör í takkamottur úr plasti sem ekki aðeins varna hitanum að streyma niður, heldur koma einnig í veg fyrir hvimleiðan hljómburð. Þar sem léttir veggir koma ofan á hitaða steypu- flötinn, varmarýmdina, er til bóta að koma fyrir slíkum borða til að varna varma- og hljóðleiðni. Þetta er borði sem leggja á við út- veggi og aðra steypta veggi sem tengjast gólfplötunni til að koma í veg fyrir að varmi og hljóð berist frá varmarýmdinni.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.