Morgunblaðið - 21.05.2006, Blaðsíða 20
Kjóllinn ræður lögum og lofum í sumartískunni umþessar mundir. Hann ber fyrir augu í alls kyns mynd-um, allt frá sléttu skyrtusniði út í hlýralaus túlípana-
form og fínlegan undirkjólasvip. Litirnir eru jafn margir og
tónar regnbogans; okkurgult, blákvars, kóboltblátt og fag-
urrautt, svo dæmi séu nefnd. Reyndar flóðu tískusýning-
arpallarnir líka í fleiri blæbrigðum af hvítu en sést hafa um
langt skeið; frá heimskautahvítu út í rjómalitað, mjólkurstein
og fölasta tóninn af drapplitu. Stemmningin er létt og loft-
kennd og mótvægi við drunga vetrarins, þótt sumir hönnuðir
noti reyndar líka svart og grátt í sumar.
Blúndur, þráðaraugu og bómullarefni með gatasaumi eru
algeng sjón og líka satínáferð, silkiorgansa og gljáð hör. Efni
af þessu tagi gefur hönnuðinum meira svigrúm til þess að
skapa ákveðnari og stífari form og halda áfram að gera til-
raunir með rými og vídd.
Kjólar sem byrja að víkka út við brjóstið og ná niður á hné
eru mjög áberandi í seinni tíð, sem og klumpaskór og fylltir
hælar. Sixtís áhrifin eru yfirgnæfandi hjá mörgum hönnuð-
um, en í stað „mini“ og „midi“ síddar er faldurinn nú rétt fyr-
ir ofan hné og ermarnar rétt fyrir ofan úlnliðinn, svokallaðar
armbandaermar.
TÍSKA | HELGA KRISTÍN EINARSDÓTTIR
KJÓLASUMAR
OG SÓL
Stemmningin er létt og loftkennd og
mótvægi við drunga vetrarins
Sævar Karl
MIU MIU
Kjóll, 49.700
Skór, 29.500
L
jó
sm
yn
di
r:
Þ
Ö
K
Sævar Karl
MIU MIU
Kjóll, 45.400
Taska, 49.800
Skór, 31.600
Sævar Karl
MIU MIU
Kápa, 52.900
Taska, stærri, 45.700
Taska, minni 45.700
Belti, 15.400
Spútnik
Kimono-kjóll, 4.700
Korselett, 3.500
Skór, 6.500
Sokkar, 900
L
jó
sm
yn
di
r:
B
ry
nj
ar
G
au
ti
20 | 21.5.2006