Morgunblaðið - 21.05.2006, Qupperneq 24
24 | 21.5.2006
Það er til mikið af góðum ítölskum veitingastöðum í heiminum en þeir eruekki margir sem jafnast á við Era Ora í Kaupmannahöfn. Era Ora – nafniðþýðir „það er kominn tími til“ – lætur ekki mikið yfir sér að utan. Hann er
við litla götu við síkin í Kristjánshöfn og að utan eru engin merki þess að þarna
leynist stórkostlegur veitingastaður. Engin skilti
eða annað sem gefur til kynna hvar Era Ora er að
finna. Þegar inn er komið blasir hins vegar við
glæsilegur og hlýlegur matsalurinn er minnir
meira á ítalskt palazzo en danska matstofu.
Staðurinn á sér langa hefð í Kaupmannahöfn.
Það eru 22 ár liðin frá því dyrnar á Era Ora voru
fyrst opnaðar á Torvegade 62. Eigendurnir eru
Elvio Milleri og Edelvito Santos sem eiga ættir að
rekja til Toskana. Maturinn á hinum upphaflega
Era Ora var hágæða ítalskur heimilismatur en sú
stemning var endurvakin í fyrra er eigendur Era
Ora opnuðu staðinn L’Altro á Torvegade 62
(pöntunarsími 0045 32545406).
Ítalskar veislur | Á Era Ora er hins vegar boðið
upp á stórkostlegar ítalskar veislur sem eiga fáan
sinn líka. Það þarf ekki einu sinni að panta mat-
inn, hann er fyrirfram ákveðinn og einungis einn
matseðill í boði, sérvalinn á hverjum degi eftir
því hvaða hráefni eru tiltæk. Maður sest bara við
borðið og nokkrum mínútum síðar er búið að
hella freyðivíni í glas og bera fram fyrsta smakk-
ið, sem í okkar tilviki var Bocconcino-polenta
með lúðubita og steinseljusósu.
Einu ákvarðanirnar sem maður þarf sjálfur að
taka er hvort maður hyggist panta vín af vínseðl-
inum eða fá þau sérvöldu vín sem vínþjónn Era
Ora hefur valið með hverjum rétti. Ég mæli
sterklega með því en þar eru einnig tveir kostir í
boði, annars vegar yngri og léttari vín og hins
vegar þroskaðri þungavigtarvín.
Alls verða réttirnir sextán, ef maður tekur allan pakkann og fær sér ostana á
undan eftirréttunum. Maður stendur hins vegar ekki á blístri að lokinni máltíð –
þótt óneitanlega standi maður heldur ekki upp svangur – þar sem stærð réttanna er
löguð að fjölda þeirra og í mörgum tilvikum einungis um einn munnbita að ræða.
Sextán réttir sem bragð er að | Þeir eru allt frá því að vera ágætir í að vera frábær-
ir. Fyrst koma átta antipasti, litlir smáréttir, flestir bornir fram á
fötum með bita á mann. Til dæmis skötuselur vafinn í eggaldin með vorlauk og
strengjabúnasúpa (zuppa di fagiolini) með köldu þorsksalati. Einnig fékk ég hóst-
arkirtil (sweetbread), steiktan í raspi á gúrkubeði með gulrótarsósu. Unaðslegur
réttur, rétt eins og akurhænubitarnir sem höfðu verið eldaðir í acacia-hunangshjúp
og komu með klettasalati eða þá andarbringurn-
ar með gufusoðnu epli og jerúsalem-ætiþistlum.
Vínin heldur ekki af verra taginu eða Friuli-vínið
Capo Martino 1997 frá Jermann og Granato
Teroldego 1995, Trentino-vín frá Foradori.
Einn besti rétturinn að mínu mati var annar
Primi Piatti-rétturinn, Orecchiette-pasta (sem
eru lítil pasta-eyru algeng á Suður-Ítalíu) með
graskerssósu og Guanciale en það er mjög eft-
irsótt tegund af ítölsku beikoni, sem unnið er úr
kjötinu úr kjálkum eða kinnum svína. Ekki spillti
fyrir að fá Barolo Bricco Rocche 1989 frá Ceretto
með.
Guanciale kom aftur við sögu í öðrum af Sec-
ondi Piatti-réttunum en þá langtímasoðið með
sveppum og villtum kryddjurtum ásamt glasi af
Casenuove delle Cerbaie Brunello di Montalcino
1990.
Ostarnir voru fimm bitar hver og einn fram-
reiddur ásamt sætu meðlæti, hunangi eða ávaxta-
mauki, stórkostlegar samsetningar og í eftirrétt
var fyrst boðið upp á Sorbettino úr ástaraldini og
þá Bavarese úr mangó með balsamico-frauði.
Einstök matarupplifun | Era Ora er ekki ódýr
staður. Ef tekinn er stærsti matseðillinn og betri
vínseðillinn með er reikningurinn kominn í
2.100 danskar krónur á haus og er þá kaffi ekki
innifalið. Það svíður í budduna en er samt þess
virði. Þetta er einstök matarupplifun. Seðlarnir
eru svo minni og verðið þar af leiðandi lægra í
hádeginu og á góðum dögum má sitja úti í garði
staðarins.
Það er engin tilviljun að Era Ora er eini ítalski veitingastaðurinn í norðurhluta
Evópu sem Michelin veitir stjörnu. Stórkostlegur matur, góð þjónusta og fallegt
umhverfi.
Restaurant Era Ora | www.eraora.dk | Overgaden neden Vandet 33B | Borðapantanir: 0045 32 54 06 93
MATUR OG VÍN | STEINGRÍMUR SIGURGEIRSSON
KOMINN TÍMI TIL!
Réttirnir á Era Ora í Kaupmannahöfn eru allt frá því að vera ágætir í að vera frábærir
L
jó
sm
yn
d:
S
te
en
V
ed
el
Era Ora er eini ítalski veitinga-
staðurinn í norðurhluta Evrópu
sem Michelin veitir stjörnu.
Marcel Guigal, sem á sínum tíma tók við
rekstri fjölskyldufyrirtækisins E. Guigal
sautján ára gamall, hefur unnið sér sess sem einn af helstu
áhrifamönnum vínheimsins og er í huga margra samnefn-
ari fyrir svæðið Cote Rotie, eitt magnaðasta vínrækt-
arsvæði veraldar. Hefur hann m.a. verið valinn „maður
ársins“ af tímaritinu Decanter, áhrifamesta víntímariti
Evrópu.
En Guigal framleiðir ekki einungis risavaxin rauð-
vín á rosalegu verði. Úr smiðju hans koma mörg vín frá
flestum helstu svæðum Rhone, meðal annars Cotes-
du-Rhone. Þetta er í magni talið eitt helsta rauðvíns-
svæði Frakklands og Cotes-du-Rhone-vínin eru eins
misjöfn og þau eru mörg. Þegar best lætur og í hönd-
um manna á borð við Guigal geta þau verið einföld en
yndisleg borðvín sem heilla mann upp úr skónum.
E. Guigal Cotes-du-Rhone 2003 er skólabókardæmi um hvernig gott vín
frá þessu svæði á að vera. Það hefur sjarma, fínleika, er margslungið en jafnframt að-
gengilegt og ódýrt. Þykkur rauður berjaávöxtur með þroskuðum kirsuberjum, hind-
berjum og sólberjum. Þarna er líka vottur af kryddi, við og reyk. Gott jafnvægi og
lengd í munni. Vín sem hentar íslenskum sumarkvöldum þegar hlýtt er í veðri með
grilluðum kjúklingi, lamba- eða svínakjöti. Frábær kaup á 1.390 krónur. 18/20
Annað vín af sama meiði er Peter Lehmann GSM en sú skammstöfun stendur fyr-
ir þrúgurnar Grenache, Syrah og Mourvédre sem einmitt eru
meginþrúgur Rhone-dalsins í Frakklandi. Stíllinn er samt gjör-
ólíkur hinum franska. Hér er liturinn dekkri og berjaanganin
feit og sultuð. Kraftabolti upp á 14,5% með mikilli þyngd og
hita í munni. Ætti að henta ögn svalari sumarkvöldum á
pallinum en Rhone-vínið og smella betur ef t.d. BBQ-sósa
er notuð á kjötið. 1.390 krónur. 17/20
Ovidio Crianza 2002 er spænskt rauðvín, það kemur af
sléttum La Mancha austur af Madrid og þrúgan er Cencibel
eins og hún er kölluð á þeim slóðum þótt flestir kannist lík-
lega við hana undir nafninu Tempranillo.
Ovidio er úr smiðju framleiðandans Bernal García-Chic-
ote. Þetta er lítill framleiðandi er hóf framleiðslu á 19 hekt-
urum árið 1989 en hefur hlotið mikla og verðskuldaða at-
hygli.
Fersk angan af rauðum berjum og hindberjahlaupi, mild-
ur viðarkeimur. Vínið er 14% að styrkleika en það truflar ekki fínleika
þess. 1.990 krónur. 17/20
Eitt hvítt og suðurafrískt að lokum, Stellenzicht Sauvignon Blanc 2005. Þetta er
vel gerður, óeikaður og heillandi suðurafrískur Sauvignon Blanc þar sem grænir og
grösugir tónar með votti af nýslegnu grasi og grænum aspas og papriku spila saman
við sætan ávöxt, niðursoðnar perur og jafnvel ferskjur. Þykkt og öflugt í munni. 1.290
krónur. 17/20
VÍN