Morgunblaðið - 21.05.2006, Síða 30
30 | 21.5.2006
Heimsósómi er bókmenntastefna frá síðmiðöldumþegar skáld ortu löng kvæði eins og Skaufhalabálkog Heimsósóma. Skarpar þjóðfélagsádeilur sem
hvöttu villuráfandi lýðinn til að snúa frá villu síns vegar í
heimi sem vó salt á barmi helvítis.
Enn er stundum sagt að eitthvað sé óttalegur heimsósómi
og reynist það þá vera eitthvert svartagallsraus vonsvikins
róttæklings sem hefur mistekist ætlunarverk sitt að bjarga
heiminum.
Heimsósómi er ekki vinsæll. Sennilega á hann inni gott
„comeback“ en það er ekki komið enn því í góðum heimi á
uppleið vilja fáir leika lastarann sem finnur laufblað fölnað
eitt og afskrifar skóginn og hrópar niðurstöður sínar á torg-
um.
En það ætla ég samt að gera.
Ég ætla að fordæma þá sóun og bruðl sem mér finnst
stundum vera beinlínis hvatt til. Ég vil taka tvö dæmi um það
hvernig forhertir kaupahéðnar í sam-
vinnu við útsmogna auglýsingarefi
læða þeirri hugmynd inn hjá okkur að
það sé allt í lagi að henda hlutum eftir
notkun og það sé beinlínis synd að
spara.
Annað dæmið eru auglýsingarnar
sem sýna aumingja manninn sem er svo
djúpt sokkinn í vesaldóm og nísku að
hann fær lánað grill hjá nágranna sín-
um.
„Af hverju að fá lánað“ spyr ísmeygi-
leg rödd sem ýtir undir þá hugmynd sem við höfum þegar
séð á skjánum að það eru bara aumingjar sem leggjast svo
lágt í hagstæðu lánaumhverfi að betla grill hjá nágrönnum
sínum.
En hvað er athugavert við þá hugmynd að gasgrill úr ryð-
fríu títaníumstáli, sem bíða á öllum sólpöllum og svölum
landsins, þoli meiri notkun en eina kvöldstund í mánuði tvo
mánuði ársins?
Ég veit að það vinnur gegn hagsmunum íslenska hagkerf-
isins að fá lánað þegar maður getur steypt sér í skuldir eins og
almennilegt fólk og „eignast“. Ég sé ekkert athugavert við að
fleiri en eitt heimili deili með sér afnotum af tækjum sem
kosta meira en mánaðarlaun sjúkraliða. Gott gasgrill getur
annað heilli raðhúsalengju þó þeim sem selur grillin þyki það
líklega afleit hugmynd.
„Af hverju ekki að fá lánað“ – Þannig ætti slagorðið að
hljóma.
Hitt dæmið er um kvikmyndirnar sem maður getur keypt í
Hagkaup og hjá Esso og horft á myndina og svo eftir 48 tíma
eyðist hún af diskinum og maður getur hent honum.
Verðið er um það bil það sama og kostar að leigja kvik-
mynd á diski úti á horni en það þarf að skila henni og þar get-
ur einn diskur þjónað fjölda manns.
Í samfélagi sem vill leggja áherslu á endurvinnslu og end-
urnýtingu hljómar þetta frekar falskt. Samkvæmt Vísinda-
vefnum eru geisladiskar gerðir úr þunnu áli með plasthúð ut-
an um. Bæði plast og ál er hægt að endurnýta en starfsmaður
Sorpu sagði mér að hulstrið utan um diskinn færi í endur-
vinnslu en diskurinn sjálfur í ruslið í bókstaflegri merkingu.
Mér finnst engin frágangssök þótt þeir sem reka stórversl-
anir eins og Hagkaup og Esso hefðu eitthvað sem mætti kalla
stefnu í umhverfismálum þar sem væri lögð áhersla á að ýta
ekki undir bruðl af þessu tagi.
Starfsmaður þeirra sem ég ræddi við kannaðist ekki við
stefnumótun á því sviði en sagðist eiga 17 titla af kvikmynd-
um á diskum sem eyðast eftir áhorf og þeim myndi fjölga því
markaðurinn tæki þessu ágætlega.
Sem sagt:
Af hverju að skila þegar maður getur hent í ruslið eftir
notkun? | lysandi@internet.is
Hendið eftir notkun
Pistill
Páll Ásgeir
Ásgeirsson
Gott gasgrill getur ann-
að heilli raðhúsalengju
þó þeim sem selur grill-
in þyki það líklega af-
leit hugmynd.
Hrukkur og fita fyrir bí
Hrukkur og slöpp húð teljast víst seint til kosta í vest-
rænu tískusamfélagi nútímans. Samt er það nú svo að
hvorutveggja er erfitt að komast undan, eftir því sem
aldur og þroski færist yfir. Ýmsir luma þó á undra-
meðölum til að tefja fyrir þessari þróun og nú hefur
Biotherm sett á markað krem í þeim tilgangi. Bio-
firm lift kremið er fyrir andlit og háls og ku að
sögn framleiðenda styrkja
húðina, þétta og fylla upp í
hrukkur og ójöfnur auk
þess sem það viðheldur
teygjanleika húðarinnar.
Kremið er í 50 ml krukkum.
Celluli Intense Peel líkams-
kreminu er hins vegar ætlað
að vinna á appelsínuhúð,
„slípa húðina“ og endurnýja
og – trúið því eður ei – hafa
grennandi áhrif. Kannski
maður geti bara hætt í megr-
un? Kraftaverkakremið at-
arna kemur í 200 ml. túbum.
SMÁMUNIR…
Hefðbundin ilmvatnsglös hafa oftast þann ókost
að fara illa í litlum handveskjum kvenna, sem
gjarnan vilja þó fríska upp á ilminn í vinnunni yf-
ir daginn eða í samkvæmum á kvöldin. Thierry
Mugler hefur nú sett á markað þrjár af vinsæl-
ustu ilmvatnstegundum fyrirtækisins í litlum
glösum, sem taka ekki mikið pláss í handtösk-
unni. Tegundirnar eru Angel, Innocent og Alien
og eru þær nú fáanlegar í 15 ml glösum.
Ilmur í tösku