Morgunblaðið - 29.05.2006, Síða 36

Morgunblaðið - 29.05.2006, Síða 36
36 F MÁNUDAGUR 29. MAÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Nýjar íbúðir til sölu Íslenskir aðalverktakar hf. Höfðabakka 9, 110 Reykjavík, sími 530 4200 Sóltún eru frábærlega staðsett og nútímalega hönnuð fjöl- býlishús. Húsin eru á 4–7 hæðum. Tvær íbúðir á hæð í hverjum stigagangi og innangengt er úr sameiginlegu bíla- geymsluhúsi beint í stigagang og lyftu. Íbúðirnar eru bjartar, með stórum gluggum sem sums staðar ná niður í gólf. Lofthæð er meiri en almennt er og flestar íbúðirnar hafa tvennar svalir. Sérstök áhersla er lögð á þægindi. Hljóð- einangrun er eins og best verður á kosið og gólfhiti er í íbúðunum. Íbúðirnar eru afhentar fullbúnar án gólfefna nema á baðherbergjum og þvottahúsgólfum sem verða flísalögð. Innréttingar eru mjög vandaðar og hægt er að velja á milli þriggja viðartegunda í innréttingum og innihurðum. Íbúðirnar eru 2ja–3ja herbergja, 97–130 fm. Verð frá 34,8 millj. með sérstæði í bílageymslu. SÓLTÚN – REYKJAVÍK 2–3ja herbergja Í Norðurtúni og Bakkahverfi eru til sölu stórskemmtileg einbýlishús. Húsin eru sérbýli á einni hæð með bíl- skúr. Útveggir eru einangraðir og klæddir að utan með litaðri bárumálmklæðningu og að hluta með litaðri viðarklæðningu. Þakið er klætt með krossvið og bárumálmklæðningu. Húsunum er skilað frágengnum að utan og milli þess að vera fokheld og tilbúin til innréttinga að innan. Lokið er við gangstíg að anddyrum íbúða og framan við bílskúr er jarðvegsskiptum lokið. Húsin eru af stærðinni 172–194 fm. Afhending er skv. samkomulagi. Verð frá 22,4 millj. Nýr og heilsusamlegur lífsstíll Þjónustuhús við Lækjarbrún í Hveragerði veitir þér tækifæri til að njóta lífsins í faðmi einstakrar náttúru og hafa jafn- framt aðgang að margvíslegri þjónustu Heilsustofnunar Náttúrulækningafélags Íslands. Kaupendur gerast sjálfkrafa aðilar að samningi við HNLFÍ sem veitir aðgang að viðamikilli þjónustu Heilsustofnunarinnar gegn greiðslu mánaðarlegs grunngjalds. Rómuð náttúrufegurð, friðsæld og nálægð við hvers kyns þjónustu og heilsurækt eru nokkrir af þeim kostum til að njóta lífsins sem bjóðast í Hveragerði. Fallegar göngu- leiðir allt í kring, golfvöllur, hesthús og margvísleg afþreying á svæðinu. Íbúðum er skilað fullbúnum með parketi á gólfum og flísalögðum baðherbergis- og þvottahúsgólfum. Íbúðirnar eru 2ja og 3ja herbergja frá stærðinni 86–111 fm. Verð frá 22 millj. ÞJÓNUSTUHÚS – HVERAGERÐI 2ja–3ja herbergja Í Norðurtúni eru til sölu glæsilega hönnuð 96–128 fm rað- og parhús á einni hæð. Húsunum fylgir leik- og úti- vistarsvæði og því eru þau tilvalin fyrir fjölskyldufólk. Bílskúrsréttur fylgir hverri íbúð. Útveggir eru einangraðir og klæddir að utan með litaðri bárumálmklæðningu og að hluta með litaðri viðarklæðningu. Þakið er klætt með krossvið og bárumálmklæðningu. Íbúðunum er skilað frágengnum að utan og milli þess að vera fokheld og tilbúin til innréttinga að innan. Afhending er skv. samkomulagi. Verð frá 13,5 millj. NORÐURTÚN – EGILSSTÖÐUM Einbýlishús BAKKAHVERFI – REYÐARFIRÐI 4ra herbergja Ítarlegar upplýsingar um eignirnar á vefsíðu okkar www.iav.is NORÐURTÚN – EGILSSTÖÐUM Raðhús, 3ja–4ra herbergja

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.