Morgunblaðið - 06.06.2006, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Stökktu til
Mallorka
8. eða 15. júní
frá kr. 29.990
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr.29.990
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11
ára, í íbúð í viku. Flug, skattar, gisting og ís-
lensk fararstjórn. Aukavika kr. 10.000.
Verð kr.34.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi/stúdíó/
íbúð í viku. Flug, skattar, gisting og íslensk
fararstjórn. Aukavika kr. 10.000.
Síðustu sætin
Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð á síðustu
sætunum til Mallorka í júní. Þú bókar og
tryggir þér sæti og 4 dögum fyrir brottför
færðu að vita hvar þú gistir. Gríptu tækifærið
og tryggðu þér sumarfrí á frábærum kjörum á
vinsælasta sumarleyfisstað Íslendinga.
„ÞETTA eru mjög alvarleg brot
sem við verðum að stöðva og það
var mjög sláandi að sjá hvernig
þarna hafði verið staðið að verki,“
segir Sigríður Anna Þórðardóttir,
umhverfisráðherra, sem skoðaði
gróðurskemmdir af völdum utan-
vegaaksturs við Djúpavatn í gær-
dag. Hún segir nauðsyn að taka á
þessum málum af fullri hörku enda
um að ræða ótrúlegt virðingarleysi
vélhjólamanna.
Aðspurð um hvaða úrræði um-
hverfisráðherra hafi í slíkum mál-
um segist Sigríður Anna m.a. vera í
góðu sambandi við Björn Bjarna-
son, dómsmálaráðherra, um akstur
utan vega. „Þetta mál snýr að
mörgum ráðuneytum og við höfum
rætt þetta sérstaklega við dóms-
málaráðherra,
m.a. að nota þyrl-
urnar meira,“
segir Sigríður en
um helgina voru
átta menn stöðv-
aðir við akstur
utan vega með
hjálp stærri
þyrlu Landhelg-
isgæslunnar.
Fleira kemur
til greina að mati Sigríðar Önnu og
finnst henni t.d. kominn tími til að
herða viðurlög og skoða það af
fullri alvöru að gera ökutæki upp-
tæk sem notuð eru með þessum
hætti. „Við verðum að ná tökum á
þessu máli einhvern veginn og svo
virðist vera að það verði ekki gert á
annan hátt en að taka þetta mjög
föstum tökum. Við getum ekki ætl-
ast til þess að ferðamenn og aðrir
sem hingað koma gangi almenni-
lega um landið ef þeir sjá að Íslend-
ingar sjálfir haga sér á þennan
hátt.“
Með umhverfisráðherra í för við
Djúpavatn í gær voru m.a. Andrés
Arnalds frá Landgræðslunni og
Árni Bragason, forstöðumaður
náttúruverndarsviðs Umhverf-
isstofnunar. Skoðuðu þau bæði
skemmdir eftir vélhjól og fjórhjól
og segir Sigríður Anna skemmd-
irnar sláandi. „Þetta er ótrúlegt
virðingarleysi og skeytingarleysi
um náttúruna, þarna er um að ræða
óskaplega ljót sár sem sum hver ná
að gróa aftur, en önnur ekki.“
Taka þarf mun harðar á utanvegaakstri að mati ráðherra
„Verðum að ná
tökum á þessu máli“
Sigríður Anna
Þórðardóttir
KARLMANNI á fimmtugs-
aldri, sem grunaður er um ölv-
un við akstur, tókst aðfaranótt
sunnudags að stinga lögregl-
una á Hvolsvelli af eftir æsilega
eftirför.
Maðurinn var að koma frá
Hellu á dráttarvél sinni þegar
hann mætti lögreglubifreið á
Oddavegi. Eftir að hafa verið
beðinn um að nema staðar tók
maðurinn á rás undan lögreglu
yfir mýrar og móa. Þegar hann
kom að Ytri-Rangá, til móts við
bæinn Bjólu, óð hann út í og
synti niður eftir ánni en lög-
regluþjónarnir, sem óðu á eftir,
misstu sjónar á honum. Var
kallað eftir björgunarsveit til
að leita að manninum, en hún
bar engan árangur. Hann gaf
sig svo fram á sveitabæ um
einn kílómetra frá ánni síðar
um nóttina og var í kjölfarið
tekin úr honum blóðprufa.
Komst und-
an lögreglu
á sundi
STJÓRNIR Félags ungra framsóknarmanna
í Skagafirði og Árnessýslu auk framsóknar-
félaganna í Árborg og Rangárvallasýslu sam-
þykktu í gær samhljóðandi ályktun þar sem
skorað var á Guðna Ágústsson landbúnaðar-
ráðherra að taka við formennsku Framsókn-
arflokksins. Yfirlýsingin var send áður en
Halldór Ásgrímsson tilkynnti um afsögn sína.
Ályktunin er svohljóðandi, frá Framsókn-
arfélaginu í Árborg:
„Stjórn Framsóknarfélags Árborgar álykt-
ar að mikilvægt sé að forysta Framsókn-
arflokksins njóti trausts almennra flokks-
manna. Stjórnin áréttar að samkvæmt
flokkslögum skal varaformaður taka við ef
formaður hverfur frá störfum áður en kjör-
tímabili lýkur.
Stjórnin skorar á Guðna Ágústsson að taka
að sér forystu Framsóknarflokksins fram að
flokksþingi og bjóða sig þar fram til for-
mennsku flokksins. Hann hefur sýnt það með
störfum sínum og framkomu að honum er
treystandi fyrir því mikilvæga starfi sem for-
mennska flokksins er.“
Í ályktun félags framsóknarmanna í Rang-
árvallasýslu var því hnýtt við í lokin að öðru
myndu Rangæingar ekki una.
Mikilvægt að farið
verði að flokkslögum
Stjórn Framsóknarfélags Dalasýslu sendi
einnig frá sér ályktun þar sem skorað er á
Guðna Ágústsson að taka við forystu Fram-
sóknarflokksins fram að næsta flokksþingi.
„Stjórnin telur mikilvægt að farið verði að
flokkslögum en samkvæmt þeim ber varafor-
manni að taka við formanni, hverfi hann frá
störfum áður en kjörtímabili lýkur. Stjórnin
áréttar þann skýlausa rétt flokksmanna að
velja eigin forystu og krefst þess að sá réttur
verði virtur í hvívetna með því að kjör nýrrar
forystu flokksins fari fram á flokksþingi en
ekki miðstjórnarfundi,“ segir í ályktun stjórn-
ar félagsins.
Þá sendi stjórn Félags ungra framsókn-
armanna í Reykjavíkurkjördæmi suður frá
sér yfirlýsingu í gærdag þar sem lýst var yfir
fullum stuðningi við forystu flokksins og skor-
ar á hana að sitja í embættum sínum til næsta
flokksþings.
Lýsa yfir stuðningi við Guðna Ágústsson
Morgunblaðið/ÞÖK
Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra tilkynnti afsögn sína. Við hlið hans er Guðni Ágústsson
varaformaður, Kristinn H. Gunnarsson og Siv Friðleifsdóttir heilbrigðis- og tryggingaráðherra.
TÖKUM á Mýrinni, nýrri íslenskri
kvikmynd eftir samnefndri skáld-
sögu Arnalds Indriðasonar, lauk á
laugardaginn þegar Lögreglukór-
inn kom saman og söng í Alþingis-
garðinum.
Með kórnum var að þessu sinni
nýr félagi, Erlendur, sem er að-
alpersónan í kvikmyndinni, en
Ingvar E. Sigurðsson fer með hlut-
verk hans.
Ekki bar á öðru en að Erlendur
félli vel í hópinn, en kórinn söng tvö
lög.
Stefnt er að því að frumsýna
Mýrina í haust, en Baltasar Kor-
mákur leikstýrir myndinni.
Mýrin hefur verið gefin út víða
erlendis og notið vinsælda. Bókin
hefur meðal annars komið út bæði í
Bandaríkjunum og Bretlandi og
víst að margir dyggir lesendur
Arnalds bíða spenntir eftir því að
sjá ævintýri Erlends og félaga á
hvíta tjaldinu.
Auk Ingvars fara þau Björn
Hlynur Haraldsson, Ágústa Eva Er-
lendsdóttir og Elva Ósk Ólafsdóttir
með stór hlutverk í myndinni.
Lögreglukórinn á hvíta tjaldið
Morgunblaðið/Kristinn
Ingvar E. Sigurðsson leikari í gervi Erlends, aðalsöguhetjunnar í Mýrinni, tók lagið með Lögreglukórnum.
MORGUNBLAÐINU barst í gærkvöldi eft-
irfarandi yfirlýsing frá Guðna Ágústssyni
landbúnaðarráðherra og varaformanni
Framsóknarflokksins.
„Vegna orða Halldórs Ásgrímssonar for-
sætisráðherra fyrr í kvöld vil ég taka eftir-
farandi fram.
Ég hafði á fundi með forsætisráðherra og
hans nánustu samstarfsmönnum fallist á
ákveðnar tillögur sem miðuðu að því að ný
forysta tæki við flokknum strax í sumar, sem
alger samstaða væri um meðal miðstjórnar,
landsstjórnar og þingflokks. Þá var gert ráð
fyrir að við Halldór segðum báðir af okkur
sem formaður og varaformaður.
Í dag, annan dag hvítasunnu, var ljóst að
ekkert yrði af þessum fyrirætlunum og ekki
sú samstaða í flokknum sem áður var talið.
Þess vegna vil ég taka fram að ekkert ligg-
ur fyrir um afsögn mína sem varaformaður
enda ekkert samkomulag miðað við þessa
niðurstöðu.
Ég vil á þessum tímamótum þakka Halldóri
Ásgrímssyni langt samstarf um leið og ég
virði þá ákvörðun hans að standa upp nú.
Guðni Ágústsson“
Yfirlýsing frá vara-
formanni Fram-
sóknarflokksins