Morgunblaðið - 06.06.2006, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.06.2006, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR 10,3% Nafnávöxtun síðustu 3 ár, 10,3% á ári.* SJÓÐUR 11 – GÓÐIR ÁVÖXTUNARMÖGULEIKAR Hentar þeim vel sem vilja fjárfesta eða spara til langs tíma og eiga öruggan sparnað fyrir. Þú getur fjárfest í áskrift eða keypt fyrir staka upphæð. Farðu á www.glitnir.is og kláraðu málið. Sjóður 11 er verðbréfasjóður skv. lögum nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði. Rekstrarfélag sjóðsins er Glitnir Sjóðir hf. Útboðslýsingu og útdrátt úr útboðslýsingum má nálgast í útibúum Glitnis eða á www.glitnir.is/sjodir. *Ávöxtun í fortíð er ekki ávísun á ávöxtun í framtíð. H V ÍT A H Ú S IÐ / S ÍA - 6 20 8 Eftir Önnu Pálu Sverrisdóttur aps@mbl.is „ÉG tel ekki rétt að fara þá leið að setja lög um skyldu fyrirtækja til að hafa hvort kyn í a.m.k. 40% hlutfalli í stjórnum,“ segir Valgerður Sverris- dóttir viðskiptaráðherra um efni ályktunar ráðstefnunnar Tengslanet kvenna 2006 sem lauk á föstudag. Hún segist hins vegar hafa beitt sér varðandi hlut kynja í stjórnum. Nefnd sem hún skipaði um hlut kynja í stjórnum fyrirtækja og Árni Sigfús- son leiddi, hafi ekki mælt með laga- setningarleið heldur haft aðrar hug- myndir varðandi ástandið sem sé vissulega mjög slæmt hérlendis. „Í framhaldinu fór ráðuneytið í samstarf við Viðskiptaháskólann á Bifröst, Samtök atvinnulífsins og Jafnréttis- stofu um gerð svk. jafnréttiskennitölu og fyrsta útspilið kom frá skólanum núna nýlega.“ Um lagasetningu segir Valgerður: „Það er eitthvað sem Norðmenn hafa gert en eru satt að segja í hálfgerðu basli með. Atvinnulífið þar efast um að ákvæði í lögum standist ákvæði stjórnarskrár. Ég hef viljað fara mýkri leið að þessu og vona enn að það geti skilað árangri og ekki síst hef ég mikla trú á þessu starfi sem nú er nýhafið þótt ekki sé hægt að fullyrða fyrir alla framtíð,“ segir Valgerður. Sif Konráðsdóttir hæstaréttarlög- maður, flutti erindi á Tengslaneti 2006 um hlut kvenna í stjórnum fyr- irtækja. Hún segir það sérstakan hugsunarhátt að það séu íþyngjandi álögur á fyrirtæki að hafa tvö kyn í stjórnum. „Jöfn kynjahlutföll leiða til heilbrigðari stjórnunarhátta og í Bretlandi hefur verið sýnt fram á að þau auka á hagnað. Kerfið sem þessi hlutafélög hrærast í er hins vegar þannig uppbyggt að það viðheldur einhvern veginn alltaf sjálfu sér og allt er þetta í gegnum tengsl. Viðleitn- in hingað til hefur engu skilað,“ segir Sif og bendir á að umræða og þrýst- ingur hafi verið mikill. „Þessi skoðun myndast hjá mér þegar ég horfi á staðreyndirnar. Við erum búin að tala mikið í mörg ár og það gerist ná- kvæmlega ekkert. Þau vopn sem hef- ur verið beitt hafa ekki virkað,“ segir Sif og bendir á að við stjórnum flestu í okkar samfélagi með lögum og af hverju þá ekki þessu mikilvæga at- riði. „Stjórnvöld þurfa að sýna skýra afstöðu.“ Hundruð kvenna báðu um aðgerðir vegna hlutfalls kynja í stjórnum fyrirtækja Ráðherra vill ekki setja lög um hlutfall kynja Mikil eindrægni ríkti á ráðstefnunni Tengslanet kvenna á Bifröst. Myndin er tekin þegar konur voru að hita upp áður en þær lögðu á Grábrók. Morgunblaðið/Guðrún Vala DANSPARIÐ Ásta Sigvaldadóttir og Stephen McCann höfnuðu í þriðja sæti á alþjóðlegri dans- keppni sem haldin var í Blackpool í Eng- landi í lok maí. Parið sem keppir fyrir hönd Englands tók þátt í tveim- ur flokkum áhugamanna, í suður-amer- ískum dönsum og flokki upp- rennandi stjarna (e. rising star) í sömu dönsum. Náðu þau þriðja sæti í flokki upprennandi stjarna af 479 pörum sem hófu keppni og komust í 24 para úrslit af 315 í suður-amerískum dönsum. Átta íslensk pör tóku þátt í keppninni, sex í flokki 16 ára og eldri áhugamanna og tvö í flokki 35 ára og eldri. Baldur Kári Eyjólfsson og Anna Kristín Vilbergsdóttir náðu bestum árangri yngri par- anna, komust í aðra umferð í flokki upprennandi stjarna í suður- amerískum dönsum. Hlutu brons- verðlaun í Blackpool Ásta Sigvaldadóttir og Stephen McCann. „ÞETTA hefur náttúrlega slæm áhrif og framlengir það óvissuástand sem er búið að vera um rekstrarfor- sendur RÚV í langan tíma,“ segir Páll Magnússon útvarpsstjóri um þá staðreynd að afgreiðslu frumvarps menntamálaráðherra um hluta- félagavæðingu RÚV var frestað til haustþingsins. Páll rifjar upp að annað frumvarp um RÚV var lagt fram á síðasta þingi en hlaut heldur ekki afgreiðslu. „Misserum og jafnvel árum saman er Ríkisútvarpið búið að vera í þeirri stöðu að vita ekki hvað við tekur en vita þó að það eigi að breyta. Það er auðvitað mjög vont fyrir stofnunina að vera svona í óvissu.“ Hann segir að þetta geri það að verkum að grundvallarákvörðunum varðandi Ríkisútvarpið hafi verið frestað. „Alls konar ákvarðanir smáar og stórar hafa verið settar á klaka vegna þess að þær gætu verið teknar með mis- munandi hætti eftir því hvort um væri að ræða stofnun eða hlutafélag.“ Páll bendir þó á að stjórnar- flokkarnir hafi lofað því að frumvarpið verði afgreitt strax í byrjun þings. „Þetta óvissu- ástand framlengist þá enn um fimm til sex mánuði. Þá verður bara að bíta á jaxlinn og bíða enn“ Kosið sterkari fjárhagsstöðu Hann segist í öllum aðalatriðum hafa verið sáttur við frumvarpið eins og það lá orðið fyrir. „Það hefði skýrt stöðu Ríkisútvarpsins og gert að verkum að hægt verður að reka það með skilvirkari og markvissari hætti.“ Aðspurður um pólitísk af- skipti af rekstrinum segir hann: „Ég held að meðan Ríkið á Ríkisútvarpið, verði ekki undan pólitískri stjórn vikist. Stjórnin hlýtur alltaf að enda hjá eigandanum, sem er almenning- ur og Alþingi og ríkisstjórnin fyrir hans hönd. En gert var ráð fyrir að útvarpsráð í núverandi mynd yrði lagt niður og fyrir hið nýja hluta- félag yrði kosin stjórn með áþekkt hlutverk og stjórn í hlutafélögum hefur.“ Um önnur atriði frumvarpsins segir Páll liggja fyrir að Ríkisút- varpið hafi átt að verða betur sett fjárhagslega eftir samþykkt nýrra laga. „Ég hefði auðvitað kosið að hið nýja hlutafélag hefði haft sterkari upphafsstöðu fjárhagslega en gert var ráð í frumvarpinu fyrir en þetta er niðurstaðan.“ Óvissuástandið hefur slæm áhrif á RÚV Útvarpsstjóri í aðalatriðum sáttur við frumvarp um RÚV Páll Magnússon NÍU manns voru fluttir á slysadeild Landspítala – háskólasjúkrahúss eftir fjögurra bíla árekstur í Hval- fjarðargöngunum á fimmta tím- anum á sunnudag. Fór betur en á horfðist og voru meiðsli í öllum til- vikum minniháttar. Áreksturinn var nokkuð harður en samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni í Reykjavík er talið að ökumaður jeppabifreiðar hafi sofn- að undir stýri, við það lent á öfug- um vegarhelmingi og hafnað fram- an á fólksbíl sem kom á móti. Göngunum varð að loka á meðan bílarnir, sem voru mikið skemmdir, voru fjarlægðir og hreinsað var til eftir áreksturinn. Morgunblaðið/Kristinn Harður árekstur í Hvalfjarðargöngunum MAGNÚS Ingvason, forstöðumaður Sumarskólans í FB, segir tímabært að fram fari umræða um samræmd próf í grunnskólum og fyrirkomulag þeirra, sem hann telur að sé nánast hættulegt ungu fólki. „Í starfi mínu sé ég svo marga ör- væntingarfulla nemendur og for- eldra sem hringja í mig nánast allan sólarhringinn að það er eiginlega allt í fári. Þetta eru 15 ára gömul börn. Ég hef talað við námsráðgjafa og kennara og fylgst sjálfur með þessu. Sú pressa sem er lögð á krakkana er ósanngjörn og mörg þeirra eru það ung að þau standa ekki undir þessu,“ segir Magnús sem hefur starfað við Sumarskólann í 5–6 ár en skólann sækja nemendur úr 10. bekk sem náðu ekki samræmdu prófunum. Magnús kennir stærðfræði og sem dæmi um áhrif pressunnar af sam- ræmdu prófunum nefnir hann að nemendur hans taki próf sem er jafnerfitt og samræmda prófið og fái oft allt aðrar og betri einkunnir en úr samræmdu prófunum. Þarna spili inn í aðstæður og álag vegna próf- anna. Telja framtíðina í húfi „Það er þessi hugsun hjá þeim að þau eigi sér enga framtíð ef þau nái ekki þessum prófum,“ segir Magnús. Þá hafi einnig áhrif að einkunnir úr samræmdu prófunum séu lykillinn að inngöngu í framhaldsskóla og oft komi það upp að vinahópar skiptist upp þannig að t.d. allir nema einn úr hópnum fari í sama skólann, þar sem þessi eini náði ekki tilskildum ein- kunnum. „Vissulega þarf að prófa á einhvern hátt en það má benda á að í framhaldsskólunum stóð til að taka upp samræmd próf, en öllum leist illa á þá hugmynd og vildu hætta við hana,“ segir Magnús. Hann segist ekki hafa lausnir á reiðum höndum en telur að náms- einkunnir krakkanna úr grunnskól- um ættu að hafa meira vægi. Eins þurfi að skoða hvort sumir grunn- skólanna einblíni um of á það náms- efni sem lagt er upp með fyrir sam- ræmdu prófin og þar kunni að spila inn í hræðsla við að koma illa út úr prófunum í samanburði við aðra skóla. Fyrst og fremst telur Magnús þó mikilvægt að fram fari umræða um samræmdu prófin. Hættulegt álag vegna samræmdra prófa Forstöðumaður Sumarskólans í FB hefur fengið mörg símtöl frá örvæntingarfullum nemendum og foreldrum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.