Morgunblaðið - 06.06.2006, Side 13

Morgunblaðið - 06.06.2006, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2006 13 MINNSTAÐUR Borgarnes | Torfi Lárus Karlsson er ungur Borgnesingur sem í dag legg- ur af stað til Boston ásamt foreldrum sínum Karli Torfasyni og Sigur- björgu Ólafsdóttur. Þar á að fram- kvæma stóra aðgerð á hægri hendi, en Torfi fæddist með afar sjaldgæfan sjúkdóm sem veldur ofvexti í sog- æðakerfi. Torfi hefur áður farið í að- gerðir vegna sjúkdómsins og er orð- inn ýmsu vanur. Þegar fréttaritari heimsótti Torfa, sagðist hann vera þreyttur og var ekkert á því að taka þátt í blaðaviðtali. Höndin í forgangi Sigurbjörg staðfestir að Torfi sé þreyttur, höndin er afar íþyngjandi og hann finnur fyrir andþrengslum vegna ofvaxtar innvortis í brjóst- kassa. ,,Það er mikill munur á honum núna, hann fer nánast ekkert út fyrir dyr án þess að vera í hjólastól, ef hann gengur bara hér á milli húsa þarf hann að stoppa og hvíla sig. Þrýstingurinn að innan er að aukast en ekkert er hægt að gera við því. Sem betur fer hefur hann verið nokk- uð frískur í vetur, og ekki þurft að fara á spítala nema tvisvar, þrisvar sinnum.“ Torfi hefur fengið göngu- grind til að létta sér þyngslin, og er með rafknúinn stól í skólanum. Torfi fer á spítalann í Boston þann 7. júní í viðtöl og rannsóknir en leggst inn að morgni 9. júní og þá á að framkvæma aðgerðina. Sigurbjörg segir að taka eigi framan af hendinni við úlnlið eða olnboga, hreinsa hönd- ina að innan og létta. Ennfremur eigi að setja nýtt járn í bakið á honum, en það verður þó ekki gert fyrr en eftir aðgerðina á hendinni. ,,Hann getur ekki komið heim með brotið járn í bakinu, það er hallærislegt,“ segir Sigurbjörg ,,en hann fór út í nóv- ember sl. í bakaðgerð þar sem bakið var spengt, en járnið brotnaði strax, dugði ekki í mánuð út af þyngslunum. Höndin er í forgangi, það þýðir ekk- ert að setja nýtt járn í bakið á meðan hún er svona þung.“ Hundar á spítalanum Í þessum töluðum orðum er Torfi tilbúinn að taka þátt í viðtalinu. Hann segist spenntur að fljúga því það sé skemmtilegt. ,,Flugið tekur fimm tíma, en seinast þegar ég fór út var flugstjórinn svo fljótur að ferðin tók fjóra tíma.“ Í flugvélinni segist Torfi leika sér, borða og stríða mömmu sinni ,,hún er nefnilega svo lofthrædd þegar flugvélin hefur sig á loft.“ Í fyrra í maí fóru Torfi og fjöl- skylda til Flórída í 10 daga ferð á vegum Vildarbarna. ,,Næst þegar við förum, þá ætlum við í fjóra skemmti- garða, og ég ætla að setja mömmu í rússibana,“ segir Torfi og horfir stríðnislega til mömmu sinnar. ,,Ann- ars er ég að hugsa um að verða eftir hjá honum Hauki, sem við gistum hjá í Boston, ég get hjálpað honum.“ Foreldrarnir eru eitthvað efins, en Torfi bætir við að hann sé ,,enginn mömmustrákur“ og er enn að stríða mömmu sinni. Torfi Lárus segist hvorki kvíða ferðinni né eiga eftir að sakna hand- arinnar. Frekar hlakkar hann til ferðarinnar. ,,Ég ætla að glápa á sjónvarpið, borða litlu morgunverð- arpylsurnar og grilluð svínarif sem eru í uppáhaldi. Því miður eru sjúkrahúsfötin stelpuföt svo ég er eins og stelpa þegar ég er kominn í þau. En eitt er mjög merkilegt á spít- alanum, að þar eru leyfðir hundar. Það eru sérþjálfaðir sjúkrahundar og haldin er sýning einu sinni í mánuði þar sem hundarnir dansa og sýna listir sínar. Ég fékk kort með nöfn- unum á öllum hundunum.“ Hlustar á Góða dátann Sveik Eina vandamálið sem Torfi sér fyr- ir sér er að geta ekki hlustað á Góða dátann Svejk. ,,Ég var búin að segja mömmu að rafmagnið í Ameríku væri öfugt við okkar og ég gæti ekki sett segulbandstækið í samband þar.“ Torfi hefur hlustað á þessa sögu á segulbandsspólum undanfarin tvö ár á hverju kvöldi og hefur lært heil- mikið af óvenjulegum orðum. Torfi tekur undir þetta ,,stundum koma út úr mér orð sem enginn skilur og ég þarf að útskýra fyrir fólki.“ Sigurbjörg segist binda vonir við að Torfi fari að vaxa meira þegar bakið réttist og höndin hættir að toga í. ,,Eins höfum við skoðað gervihönd, en við vitum auðvitað ekki hvernig stúfurinn verður, hvort hann verður viðkvæmur fyrir núningi eða hversu mikið verður tekið. Torfi kemur ekki til með að geta notað rafknúna hönd vegna þyngsla, en við höfum séð gervihönd sem er mjög eðlileg og hann gæti fengið ef allt gengur vel.“ Torfi Lárus Karlsson er á leið til Boston í stóra aðgerð á hægri hendi Á ekki eftir að sakna handarinnar Eftir Guðrúnu Völu Elísdóttur Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir Liðugur drengur Torfi Lárus er býsna liðugur og getur léttilega klórað sér í höfðinu með tánum. Hér er hann í smáútilegu úti í garði. BÆNDAMARKAÐUR Bún- aðarsamtaka Vesturlands á Hvanneyri verður haldinn nk. sunnudag, 11. júní, milli kl. 13 og 17. Þetta er fyrsti markað- urinn af þremur sem haldnir verða í sumar. Stefnt er að því að halda hina markaðina 8. júlí og 12. ágúst. Bændamarkaðurinn á Hvanneyri verður settur upp þannig að þeir sem ala, rækta, tína, baka eða á einhvern hátt framleiða gæðavörur heima á býli eiga möguleika á því að koma á markaðinn og selja sína vöru. Markaður sem þessi gerir framleiðendum á starfssvæði samtakanna tækifæri á að koma framleiðsluvöru sinni milliliðalaust til neytenda. Þarna gefst neytendum færi á að kynnast því sem framleitt er í sveitum á Vesturlandi og um leið þeirri matarmenningu sem Vestlendingar búa yfir. Boðið verður upp á fjölbreytt vöruúr- val og má þar nefna vörur eins og sauðaost, geitaost, plöntur, grænmeti, fiskmeti. Unnið er að þessu í samstarfi við heilbrigðisyfirvöld á Vest- urlandi. Dagana 9.–11. júní stendur yfir Borgfirðingahátíð. Auk bændamarkaðs verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá á Hvanneyri þennan dag. Bænda- markaður á Hvanneyri um helgina VESTURLAND

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.