Morgunblaðið - 06.06.2006, Síða 24

Morgunblaðið - 06.06.2006, Síða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. ÁKVÖRÐUN HALLDÓRS ÁSGRÍMSSONAR Ákvörðun Halldórs Ásgrímsson-ar um að segja af sér sem for-sætisráðherra, láta af for- mennsku í Framsóknarflokknum í haust og hverfa af vettvangi stjórn- málanna, kemur óneitanlega töluvert á óvart, þótt fréttir hafi borizt af því í síðustu viku, að ráðherrann væri að hugleiða slíkt. Þegar Halldór tók við embætti forsætisráðherra haustið 2004 var frekar gert ráð fyrir að hann mundi sitja til loka kjörtímabils og undanfarna mánuði hefur hann frek- ar gefið til kynna, að hann hygðist leiða Framsóknarflokkinn fram yfir næstu þingkosningar. Ein af ástæð- unum fyrir því hefur verið sú, að frá- farandi forsætisráðherra hefur ekki talið augljóst hver gæti tekið við af honum, sem formaður Framsóknar- flokksins. Ekki fer á milli mála, að erfið staða Framsóknarflokksins í skoðanakönn- unum á undanförnum mánuðum og úrslit sveitarstjórnarkosninganna fyrir skömmu hafa gengið nærri Halldóri og hann hefur talið eðlilegt að hann tæki sjálfur afleiðingunum. Enginn getur gagnrýnt hann fyrir það. Í samræmi við fyrra samkomu- lag stjórnarflokkanna tekur Geir H. Haarde við embætti forsætisráð- herra nú á næstunni, sem vafalaust mun styrkja stöðu Sjálfstæðisflokks- ins í næstu kosningum. Þessum breytingum fylgja augljóslega aðrar mannabreytingar í ríkisstjórninni og reyndar augljóst, að hér gefst gott tækifæri fyrir báða stjórnarflokkana til að stokka upp spilin og stilla liðinu upp á nýjan leik í aðdraganda kosn- inga. En jafnframt fer ekki á milli mála, að búast má við töluverðum átökum í Framsóknarflokknum í aðdraganda flokksþings sem haldið verður snemma í haust. Í þeim átökum mun Halldór Ásgrímsson gegna lykilhlut- verki við að leiða menn saman og skapa jarðveg fyrir kjör nýrrar for- ystu á flokksþingi Framsóknar- manna í haust. TILLÖGUR HAFRÓ Hafrannsóknastofnun hefur lagttil að hámarksafli á þorski á næsta fiskveiðiári verði 187 þúsund tonn en tillögur stofnunarinnar fyrir ári námu 198 þúsund tonnum. Til- lögur Hafró nálgast nú óðum það lág- mark, sem var í tillögugerð stofnun- arinnar snemma á tíunda áratugnum. Í samtali við Morgunblaðið í fyrra- dag sagði Jóhann Sigurjónsson m.a.: „Ef veiðiheimildir eiga að aukast verður uppbygging að hefjast, draga þarf úr afla og stjórnvöld að móta uppbyggingarstefnu. Það þarf að grípa til aðgerða ef menn vilja auka líkurnar á að ná meiri afla en verið hefur undanfarið. Það helgast af því, að nýliðunin er töluvert fyrir neðan langtímameðaltal undanfarin ár. Á meðan meðalfjöldinn er ekki í meiri hæðum, sem við teljum fyrst og síð- ast tengjast stærð hrygningarstofns- ins og samsetningu hans, eigum við ekki von á því, að þetta breytist á næstu árum.“ Í skýrslu Hafrannsóknastofnunar kemur fram að rannsóknir bendi til þess, að verði veiðihlutfallið lækkað tímabundið niður í 16% séu yfirgnæf- andi líkur á að hrygningarstofninn stækki. Þá eru tillögur nefndar sjáv- arútvegsráðherra frá árinu 2004 rifj- aðar upp en þar kemur fram að hag- kvæmasta veiðihlutfall þorsksins sé á bilinu 18–23% og ef framleiðsla hrygningarstofnsins verði með sama hætti og verið hefur á undanförnum áratugum sé hagkvæmara að veiði- álagið sé í neðri mörkum þessa bils. Í samtali við Ríkisútvarpið sl. sunnudag sagði Einar K. Guðfinns- son, sjávarútvegsráðherra, að ekki komi til greina að verða við tilmælum Hafró um að þorskkvótinn verði 16% af veiðistofni í stað 25%. Skýrsla Hafró hafi komið á óvart í ljósi góðra aflabragða að undanförnu. Hafrannsóknastofnun lagði til 155 þúsund tonna þorskkvóta um miðjan tíunda áratuginn. Frá þeim tíma hef- ur veiðin smátt og smátt verið að aukast en minnka aftur allra síðustu árin. Það varð ljóst í ræðu Árna M. Mathiesen, þáverandi sjávarútvegs- ráðherra, í ræðu á sjómannadegi á síðasta ári, að traust á ráðgjöf Haf- rannsóknastofnunar fór þverrandi í sjávarútvegsráðuneytinu. Stofnunin hefur hins vegar staðið fast á sínu og telur, að ástæðan fyrir því, að stofn- inn hafi ekki náð sér á strik sé sú, að sjávarútvegsráðherrar, hverju nafni, sem þeir nefnast, hafi ekki fylgt ráð- gjöf hennar. Hafrannsóknastofnun hefur líka legið undir gagnrýni frá öðrum sér- fræðingum, sem hafa haft uppi allt önnur sjónarmið og telja, að stefna Hafró leiði til glötunar. Ummæli Ein- ars K. Guðfinnssonar benda til þess að traustið hafi ekki aukizt til stofn- unarinnar í sjávarútvegsráðuneyt- inu. Yfirleitt þurfa sjávarútvegsráð- herrar að gæta pólitískra hagsmuna í þessum ákvörðunum. Einar K. Guð- finnsson sækir fylgi sitt í kjördæmi, þar sem sjávarútvegshagsmunir eru miklir. Það átti líka við um Árna M. Mathiesen og það átti líka við um Þorstein Pálsson á sínum tíma. Að hve miklu leyti hafa þröngir kjör- dæmahagsmunir ráðherra áhrif á ákvarðanir þeirra í þessum málum, sem varða grundvallarhagsmuni ís- lenzku þjóðarinnar? Það er erfitt fyrir leikmenn að gera upp á milli ólíkra skoðana í þessum efnum. En það er líka erfitt að sjá að meiri þekking sé til annars staðar á stöðu þorskstofnsins en hjá Hafrannsóknastofnun. Hvaða áhættu er verið að taka með því að hunsa ráðgjöf stofnunarinnar ár eftir ár? Það liggur við að það sé ekki hægt að finna svar við þessari spurningu. En það er óhugnanlegt að ráðgjöf Hafró skuli stöðugt færast nær þeim punkti, sem lægstur var á síðasta áratug. Þetta var góður dagur, frábært veður ogvið vorum með gríðarlega stóran enjafnframt einstaklega góðan hóp,“ seg-ir Haraldur Örn Ólafsson sem fór ásamt um 130 einstaklingum upp á Hvannadalshnúk um hvítasunnuhelgina. „Þetta gekk raunar vonum framar. Fólk var vel undirbúið þannig að gangan gekk alveg vandræðalaust og hefði vart getað verið betra.“ Metþátttaka var í gönguna en alls lagði 121 einstaklingur af stað með ellefu fararstjórum og segir Haraldur að líklega hafi aldrei fleiri gengið á hnúkinn á einum degi. Fyrsti hluti hópsins náði toppnum eftir átta klukkutíma og tíu mínútna göngu en sá síðasti á um níu klukkutímum – þannig að hópurinn í heild var nokkuð þéttur. Spurður um hvort búist hafi verið við slíkum fjölda segir Haraldur að allt hafi stefnt í það. „Við vorum búnir að sjá gríðarlega aukningu í vor og það var nokkurn veginn ljóst að það yrði sett met þessa helgi ef veður yrði gott, sem varð svo raunin.“ Haraldur segir að smágjóla og kuldi hafi verið á toppnum en ekki sé hægt að tala um að hafi verið kalt. Mestan hluta göngunnar hafi verið nánast logn og glampandi sól þann- ig að það hafi í raun verið mjög hlýtt. Auðveldara núna en fyrir átján árum Fjallgöngur eru ekki á allra færi en í göngunni um helgina v tveir karlmenn á áttræðisa sá yngsti sem gekk var tólf Haraldur segir menn samt að gera sér grein fyrir því a an er löng og ströng. „Allir æfa sig og eru vel á sig kom geta farið í þessa ferð, en það þarf að undirbúa sig og það er mikilvægt að undirstrika það. Í göngunni núna var undantekningalítið fólk í góðri æfingu, fólk sem búið var að ganga oft á Esjuna og þjálfa sig vel.“ Árni Sigurbergsson er einn þeirra sem gekk á hnúkinn en hann er 74 ára. Hann bjó sig vel und- ir gönguna með því að hjóla og ganga á Esjuna. Hann segir gönguna hafa gengið vel. „Þetta var eiginlega alveg frábært. Ég var búinn að hugsa lengi um þetta og ætlaði í fyrra en varð frá að h f o e e þ d t m á þ Líklega aldrei fleiri gengið á hnúkinn á einum degi Göngumönnum var skipt niður í hópa áður en haldið var af stað á hnúkinn og var fararstjóri með hverj Á annað hundrað manns gekk á Hvannadalshnúk um h

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.