Morgunblaðið - 06.06.2006, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 06.06.2006, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2006 27 UMRÆÐAN Hér með hvetur undirritaður hinn þögla meirihluta til að fylkja liði og styðja málstað séra Pálma og skera upp herör gegn öllum þeim sem valta ótæpilega yfir siðferðisleg tak- mörk sem eru arfleifð forfeðra okk- ar. Hendið ekki virðingu þjóðar- innar á haugana fyrir vindinn og stundargróðann. Það er kúnst að vera sveigjanlegur í siðferðislegum efnum og ekki nema eðlilegt, að svo sé, en það er engin ástæða að líða allt og segja ,,þetta er bara grín“. Foreldrar, opnið augun fyrir þessari blótsvá sem ríður yfir landið því hún er augljóslega undirrót illra verka. Enginn vill að börnin sín né sam- landar verði fótboltabullur framtíð- arinnar eins og ýjað er að í áður- nefndri auglýsingu. Forráðamenn Landsbankans, brettið upp ermarnar, skolið svert- una af tungu ykkar og verið með í baráttunni fyrir fallegra málfari er leiðir af sér betra mannlíf – það er ykkar hagur. Takið MS Reykjavík ykkur til fyrirmyndar í þessum efn- um. Það dýrmætasta í lífinu fæst aldrei keypt fyrir peninga. ’… tekur banki allralandsmanna uppá þeim ósið að nota blótsyrði í annars vel gerðri fót- boltaauglýsingu …‘ Höfundur er vinjettuhöfundur. HEILDSTÆÐ forvarnastefna fyrir Reykjavíkurborg sem nær til barna frá fæðingu til tvítugs var ný- lega gefin út. Í forvarnastefnunni er lögð rík áhersla á heilbrigðan lífsstíl og möguleika barna og unglinga til þátttöku í íþróttum og upp- byggilegum tómstundum. Rann- sóknir hafa sýnt fram á að þau ung- menni sem eru þátttakendur í slíku starfi eru síður líkleg til að leiðast út í neyslu vímuefna eða aðrar sjálfs- eyðileggjandi athafnir. Þegar talað er um forvarnir má ekki gleyma því að mestu áhrifavaldar barna og ung- linga eru foreldrar og fjölskylda þeirra. Nú þegar sól hækkar á lofti er vert að hafa í huga að foreldrar bera ábyrgð á börnum sínum til a.m.k. 18 ára aldurs. Vorið, prófalok, Hvíta- sunnan, fyrsta útborgunin í Vinnu- skólanum, 17. júní, verslunarmanna- helgin og Menningarnótt eru þeir atburðir sem foreldrar þurfa að vera sérstaklega vakandi fyrir. Rann- sóknir hafa sýnt fram á að stór hóp- ur unglinga stígur sín fyrstu skref út í neyslu í kringum atburði sem þessa og því er mikilvægt að for- eldrar séu vakandi fyrir því að senda börnin sín ekki eftirlitslaus á útihátíðir og fylgist vel með því sem krakkarnir eru að gera. Sumarið er oft sá tími sem hve mest lausung er á hlutunum hjá krökkunum. Þá er enginn skóli, félagsmiðstöðvarnar eru lokaðar og tími krakkanna því minna skipulagður. Þá hafa rann- sóknir sýnt fram á að sumarið milli loka 10. bekkjar og fyrsta árs í framhaldsskóla sé sá tími sem stór hluti unglinga stígi sín fyrstu skref í áfengis- og vímuefnaneyslu. Með tilkomu GSM-síma hafa boð- leiðir milli barna og unglinga breyst verulega og fréttir af samkvæmum berast nú með leifturhraða, t.d. með SMS-skilaboðum. Dæmi eru um að allt að 100 unglingar hafi mætt í slík samkvæmi og gestgjafarnir misst tökin á ástandinu. Með því að leyfa eftirlitslaus partí er verið að leggja þunga ábyrgð á herðar unglinga, ábyrgð sem þau hafa sjaldnast getu til að axla. Stærsti hluti þeirra ung- linga sem neyta áfengis neytir þess heima hjá öðrum og á sú neysla sér oftast stað í eftirlitslausum partíum og fer sá hópur sem slíkt á við stækkandi. Foreldrar eru einnig hvattir til að taka þátt í foreldrarölti í hverfinu og að standa saman að því að útivistarreglur séu virtar. Margar rannsóknir hafa verið gerðar sem sýna fram á að þau ungmenni sem eru í góðum tengslum við foreldra sína og fjöl- skyldu eru mun ólík- legri til að hefja vímu- efnaneyslu, beita aðra ofbeldi eða leiðast út í annars konar frávikshegðun en þau sem eru í litlum tengslum við foreldra sína og fjölskyldu. Gæðatíminn svokallaði, sem margir foreldrar hafa í gegn- um tíðina skýlt sér á bakvið og fólst einkum í því að samverustund- irnar voru ekki svo ýkja margar en þeim mun meira gert þegar fjölskyldan var saman, er ekki að skila sama árangri, a.m.k. hvað forvarnir varðar. Hefð- bundnar og jafnvel innihaldslitlar sam- verustundir skila meiru en foreldrar halda. Einfaldir hlutir líkt og að horfa saman á sjónvarpið vega mun þyngra en „gæðatíminn“ þegar for- varnir almennt eru skoðaðar. Þá er veigamikill þáttur í samskiptum for- eldra og barna það aðhald og eftirlit sem foreldrar veita börnum sínum en rannsóknir hafa sýnt fram á að þeir unglingar sem neyta vímuefna eiga frekar foreldra sem hafa lítið eftirlit með þeim og veita þeim lítið aðhald. Því viljum við hvetja for- eldra til að eyða tíma með börn- unum sínum og veita þeim gott að- hald – það er besta forvörnin. Að lokum viljum við beina því til foreldra að kaupa hvorki áfengi né tóbak fyrir börnin sín því með því er um leið verið að samþykkja að börn- in reyki og neyti áfengis. Eins vilj- um við beina því að afgreiðslufólki verslana að fara að lögum og selja ekki börnum undir 18 ára aldri tóbak. Hera Hallbera Björnsdóttir skrifar um forvarnir fyrir börn og unglinga Hera Hallbera Björnsdóttir ’Vorið, prófalok, Hvíta-sunnan, fyrsta útborgun- in í Vinnuskólanum, 17. júní, verslunarmanna- helgin og Menningarnótt eru þeir atburðir sem for- eldrar þurfa að vera sér- staklega vakandi fyrir.‘ Höfundur er frístundaráðgjafi í Miðgarði, þjónustumiðstöð Grafarvogs og Kjalarness. Vökult auga á ungmennum á sumrin

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.