Morgunblaðið - 06.06.2006, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2006 29
UMRÆÐAN
Su›urlandsbraut 8 • 108 Reykjavík • Sími 540 7000 • www.falkinn.is
LEGUR í bíla og tæki
• Kúlulegur
• Keflalegur
• Keilulegur
• Nála- og línulegur
• Flans- og
búkkalegur
E
in
n
t
v
e
ir
o
g
þ
r
ír
31
.2
94
Kristinn Pétursson: „Endur-
vinna gagnagrunn ICES og
Hafró“
Þorsteinn Gestsson fjallar
um vímuefni.
Aðsendar greinar á mbl.is
www.mbl.is/greinar
BRÉF TIL BLAÐSINS
Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík Bréf til blaðsins | mbl.is
MIG langar að segja litla sögu af syni
mínum sem er öryrki og þau kjör sem
hann lifir við frá TR. Hann fæddist
með svokallað „vascular syndromes
of brain in cerebrovascular diseases“
sem mun vera væg helftarlömun
hægra megin. Á unglingsárum leidd-
ist hann út í óreglu efna sem eitur-
lyfjasalar halda gjarnan að óhörðn-
uðum unglingum. Eftir nokkurra ára
neyslu fór að bera á geðsjúkdómi sem
hann ber nú í ofanálag við þá fötlun
sem fyrir er. Hann er í dag 22 ára,
óreglan að baki en búinn að vera á
stofnunum frá 18 ára aldri. Hann
dvaldi um tveggja ára skeið á Klepp-
spítala og var þar í stöðugu pró-
grammi og fór einnig í sjúkraþjálfun,
sem hann virkilega þurfti á að halda.
Það er engum hollt að vera inni á
sjúkrastofnun til lengdar, sem sýnir
einhverjar framfarir og að lokum
fékk hann inni á hlýlegu og vel reknu
sambýli í vesturbænum þar sem
starfa yndislegustu „ömmur“ í heimi
sem sýna skjólstæðingum sínum mik-
inn skilning og vilja allt gera til að
honum líði sem best. Alltaf hafa þær
von um að hann komist út í lífið aftur.
Syni mínum hefur farið aðeins
fram hvað félagsfærni varðar en hef-
ur staðnað í þroska eða er á við 12–13
ára pilt í dag. Hann hefur lítið sem
ekkert fyrir stafni á þessu góða sam-
býli, engin sjúkraþjálfun engin iðju-
þjálfun, ekkert! Hann hefur þyngst
mikið af lyfjum og aðgerðaleysi og
þyrfti þess meira á að halda einhvers
konar iðjuþjálfun eða einhverju öðru
en aðgerðaleysi. Hann heimsækir
ömmu sína á hverjum degi, sem er
dágóður göngutúr. Ég, móðir hans
tek hann um hverja helgi og hef alltaf
gert til að létta honum lífið. Það sem
vefst einnig fyrir mér er hversu litla
dagpeninga drengnum er ætlað til af-
nota. Óskertar örorkubætur eru fyrir
skatt um 140.000, af þeim fara um
120.000 í dvalarkostnað á sambýlinu
og eftir eru 22.000 kr. til eigin nota.
Hann fékk „endurreiknaðan“ skatt
uppá 32.000 kr. í fyrra frá TR eins og
fjölmargir aðrir öryrkjar og greiðir
því af dagpeningunum 3.800 kr. á
mánuði til að standa skil af því og eft-
ir standa rúmar 18.000 kr. til eigin
nota. Þetta er ungur maður, sem þarf
að fata sig upp reglulega eins og aðr-
ir, finnst gaman að hlusta á tónlist og
horfa á bíómyndir, fá sér pítsu tvisvar
í mánuði o.sv.frv. enda lítið við að
vera eins og staðan er í dag. Þetta
hljómar kannski eins og lúxuslíf mið-
að við marga aðra en pilturinn
gagnast því miður ekki hinum al-
menna vinnumarkaði eins og ástatt
er. Tryggingastofnun reiknar því
meira en 80% örorkubótanna til sam-
býlisins. Ég fór með hann í sumarleyfi
til útlanda í fyrra eins og ég reyni að
gera á hverju sumri til að hann fái ein-
hverja tilbreytingu og sótti því um
dagpeninga utan stofnunar til ferðar-
innar. TR reiknaði honum rúmar
13.000 kr. fyrir 10 daga utan stofnun-
ar. Ekki veit ég hvaða „hag“fræðing-
ar reikna þessa formúlu út.
Ellilífeyrisþegarnir sem byggðu
upp landið hörðum höndum virðast
sitja við sama stall, bæði þeir sem enn
geta búið í eigin húsnæði og hafa ekki
feita sjóði. Þeim hefur verið reiknuð
ofangreind „hag“fræðiformúla til að
lifa af.
HARPA KARLSDÓTTIR,
Hrauntungu 71, Kópavogi.
Öreigar á vegum „Velferðar-
stofnunar“ ríkisins
Frá Hörpu Karlsdóttur
Norræn hönnunun • www.bergis.is
COPENHAGEN