Morgunblaðið - 06.06.2006, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 06.06.2006, Qupperneq 37
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2006 37 DAGBÓK HESTHÁLS 14 - TIL SÖLU Höfum fengið í sölu alla eignina nr. 14 við Hestháls í Reykjavík. Um er að ræða vel stað- setta eign á 32.000 fm lóð í Reykjavík í nánd við Vesturlandsveginn. Hið selda skiptist m.a. í u.þ.b. 3.300 fm skrifstofu og iðnaðarhúsnæði. Eignin skiptist m.a. í skrifstofuálmu með 15-20 herbergjum, opin vinnurými og vinnslusali, lagerpláss, vörugeymslur, búningsklefa, snyrtingar, kaffistofur og fundarsali. Búið er að endurnýja skrifstofuhluta eignarinnar ný- lega. Fimm innkeyrsludyr eru inn í húsið og er lofthæð í vinnslusölum allt að 12 metrar. Húsið er byggt úr límtré. Lóðin er 31.872 fm og er almennt nýtingarhlutfall á svæðinu 0,7. Því er ljóst að hugsanlega má byggja allt 19.010 fm til viðbótar núverandi húsbyggingu. Eignin býður upp á mikla möguleika fyrir framsækin fyrirtæki sem þurfa að tryggja sér höf- uðstöðvar eða hafa þörf fyrir mikið athafnarými á lóð. 5863 Allar nánari upplýsingar veita Sverrir og Óskar. Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali Árnaðheilla ritstjórn@mbl.is Einkaleyfastofa heldur alþjóðlega ráð-stefnu um hugverkaréttindi í Há-skólabíói á miðvikudag. Yfirskrift ráð-stefnunnar er „Hugverkaréttur: grunnur að hagvexti“ (e. „Intellectual Property: A Platform for Prosperity“). Ásta Valdimarsdóttir er forstjóri Einkaleyfastofu: „Við fáum fjölda erlendra fyrirlesara og gesta,“ segir Ásta sem reiknast til að hingað til lands komi fulltrúar yfir 20 evrópuþjóða til að taka þátt í ráðstefnunni. „Meginmarkmiðið er að efla vitund um hugverkaréttindi hér á landi og efla tengsl milli viðskiptalífs, iðnaðar og hugverkaréttinda. Íslensk fyrirtæki hafa verið ágætlega meðvituð um mikilvægi hugverkaréttinda en enn má gera betur,“ segir Ásta. „Auka verður tengsl viðskiptalífs, iðnaðar og hugverka ef byggja á upp þekkingarþjóðfélag, þar sem nýsköpun og hugvit leika lykilhlutverk. Við höfum hér á landi dæmi um árangursrík fyrirtæki sem byggja starfsemi sína á hugverkum, og má þar nefna Latabæ, Össur, DeCode, Marel, og Lyfjaþróun, svo nokkur séu nefnd,“ segir Ásta. „Við þurfum að fá fleiri slík fyrirtæki hér á landi, og veita góðum hugmyndum möguleika á að verða að veruleika. Mikilvægt er að fjárfestar og viðskiptalíf hafi trú á nýjum hugmyndum og hafi um leið þolinmæði, og skilning á því að fjárhags- legur ávinningur af hugverkum kemur ekki fyrr en að lokinni rannsóknar- og þróunarvinnu, sem oft er tímafrek.“ Margt góðra fyrirlesara verða á ráðstefnunni: „Meðal þeirra sem halda erindi er Magnús Schev- ing, forstjóri Latabæjar, sem er gott dæmi um frumkvöðul sem náð hefur góðum árangri á al- þjóðamarkaði,“ segir Ásta. „Við erum með tvo fulltrúa stórfyrirtækja: Annars vegar á sviði fjar- skipta: Craig Thompson, framkvæmdastjóra og umsjónarmann nytjaleyfissamninga hjá Nokia. Hins vegar á sviði stoðtækja: dr. Hilmar B. Janus- son framkvæmdastjóra rannsóknar- og þróunar- sviðs Össurar hf., en bæði fyrirtækin eru með þeim stærstu á sínu sviði í heiminum og hafa notað hugverkarétt á markvissan hátt í starfsemi sinni. Ron Marchant, forstjóri bresku Einkaleyfastof- unnar segir frá reynslu Breta við að efla vitund og notkun hugverkaréttinda og Erik Nooteboom yf- irmaður hugverkasviðs hjá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins fjallar um áherslur á þessu sviði innan ESB.“ Fundarstjóri er Rán Tryggvadóttir, dósent í hugverkarétti við lagadeild HR. Heiðursgestur ráðstefnunnar er Alain Pompidou, forstjóri Evrópsku einkaleyfastof- unnar. Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og við- skiptaráðherra setur ráðstefnuna. Dagskrá málþingsins er opin öllum, og má finna nánari upplýsingar um dagskrá og skráningu á www.Els.is. Ráðstefna | „Hugverkaréttur: grunnur að hagvexti“, alþjóðleg ráðstefna Einkaleyfastofu Hugverkaréttur og hagvöxtur  Ásta Valdimarsdóttir fæddist í Reykjavík 1964. Hún lauk stúd- entsprófi frá MR 1984 og embættisprófi í lög- fræði frá lagadeild HÍ 1990. Ásta hefur starf- að á sviði hugverka- réttinda frá árinu 1990, hjá Iðnaðar- og við- skiptaráðuneytinu og hjá Einkaleyfastofu. Hún var skipuð forstjóri Einkaleyfastofu árið 2002. Ásta hefur tekið þátt í alþjóða- samstarfi á sviði WTO, WIPO, EFTA og ESB og hefur verið stundakennari í einkaleyfarétti við HÍ. Maki Ástu er Kristján Gunnar Valdimars- son lögfræðingur og eiga þau tvö börn. 85 ÁRA afmæli. Í dag, 6. júní, er85 ára Elías Guðbjartarson, sjómaður frá Kroppstöðum í Skálavík, Hólshreppi, síðar búsettur í Bolung- arvík. Elías dvelur nú á Hrafnistu- heimilinu í Reykjavík. 50 ára afmæli. Í dag 6. júní erfimmtug Guðrún St. Krist- insdóttir, yfirlandvörður í þjóðgarð- inum á Þingvöllum. Af því tilefni bjóða hún og maður hennar Halldór Krist- jánsson bóndi til fagnaðar heima í Stíflisdal næstkomandi laugardag 10. júní kl. 18. Hlýlegur klæðnaður og traustar bomsur viðeigandi. Velvakandi Svarað í síma 5691100 kl. 10–12 og 13–15 | velvakandi@mbl.is Handfrjálsan búnað fyrir strætóbílstjóra ÉG var að lesa grein í Velvakanda sem hafði fyrirsögnina: „Með síma undir stýri“ og ég verð að segja að það er frekar ósanngjarnt að segja svona af því að ég veit fyrir víst að a.m.k. sumir bílstjórar hafna símtöl- um, segja eitthvað eins og: Ég er að keyra, má ég hringja á eftir? og skella svo á. En stundum þurfa þeir kannski að svara, t.d. ef barn bíl- stjórans væri læst úti og væri að hringja úr síma nágrannans þá þyrfti nú foreldrið (sem væri þá bíl- stjórinn) að segja barninu hvenær það (foreldrið/bílstjórinn) kæmi heim. Ef farþegar eru svona á móti þessu finnst mér sjálfsagt að Strætó bs. láti bílstjórana bara fá hand- frjálsan búnað, þá gætu þeir talað og keyrt og allir yrðu ánægðir. Ef Strætó bs. finnst of dýrt að gefa bíl- stjórum svona handfrjálsan búnað er það eins og fyrirtækinu sé sama um hvað farþegum finnst og það er ekki gott. Jóhanna M.S. Gjörsamlega misboðið ÉG lagði leið mína í verslun 10/11 hér í Langarima í Grafarvoginum 22. maí sl. og þegar ég var á kass- anum komu 3 ungar stúlkur inn og þá kallaði kassadaman á þær og sagði þeim að stoppa og þær mættu ekki koma inn nema ein í einu. Ég spurði hana hvers vegna hún segði þetta og hún sagði þetta vera reglur verslunarinnar og ættu við alla krakka á skólatíma. Þegar ég sagði henni að þetta gæti nú varla staðist og stúlkurnar stóðu þarna undrandi og sögðust hafa verið í prófum og því enginn skóli en kassadaman ítrekaði og bannaði þeim inngöngu og svo bættust við tveir drengir og sama sagan, út með þá. Þeir skildu ekki upp né niður í neinu og ég sagði við hana að þetta væri nú ótrúlegur dónaskapur og fyrirlitning að banna börnum að versla við þá og þá sagð- ist henni standa á sama. Hún spurði mig hvort ég myndi vilja líta eftir þessum skríl þegar hann verslaði og það þyrfti marga til að fylgjast með þeim. Mér finnst með ólíkindum svona hegðun starfsmanna fyrir framan ungmenni sem þurfa að þola það að vera stimpluð þjófar og standa í röð, þvílík framkoma! Í kringum þessa verslun er grunn- skóli og vitað er að krakkarnir eru margir góðir viðskiptavinir sem kaupa sér drykk og nesti þarna dag- lega og hafa góð áhrif á reksturinn. Það getur aldrei verið rétt að stimpla öll börn sem þjófa og skríl og mjög svo ótrúlegt fyrir börnin að þurfa að þola það að svona sé komið fram við þau því þau séu bara ótínd- ur skríll. Mjög svo fínt fordæmi út í lífið eða þannig! Sjálf á ég fjögur börn sem ég mun banna að versla við þessa verslun í framtíðinni og sjálf ætla ég ekki að gera það aftur því verslun sem hefur þetta viðhorf á unga viðskiptavini sína og kemur fram við börn með þessum hætti er stórlega ábótavant. Mér er gjörsamlega misboðið að börnin mín séu stimplaðir þjófar daglega ef þau ákveða að versla við 10/11 á skólatíma. Ef það er svona mikill þjófnaður í þessari verslun væri nær að þeir myndu koma sér upp öðru kerfi og reglum svo börn geti fengið að halda mannvirðingu sinni ef þau ákveða að versla við 10/11. Móðir í Grafarvogi. 1. e4 e5 2. Rf3 Rc6 3. Bb5 a6 4. Ba4 Rf6 5. 0-0 Be7 6. He1 b5 7. Bb3 0-0 8. h3 Bb7 9. d3 d6 10. a3 Rb8 11. Rbd2 Rbd7 12. Rf1 He8 13. Re3 h6 14. Rf5 Bf8 15. Rh2 Rc5 16. Ba2 Bc8 17. Rg4 Be6 18. Df3 Rxg4 19. hxg4 Bxa2 20. Hxa2 c6 21. Ha1 d5 22. Dg3 f6 23. Be3 Re6 24. Had1 Hc8 25. d4 exd4 26. Rxd4 Rxd4 27. Hxd4 Hxe4 28. Hxe4 dxe4 29. Bf4 Dd5 30. De3 g5 31. Bg3 He8 32. De2 Staðan kom upp í opnum flokki á Ólympíuskákmótinu í Tórínó á Ítalíu sem er nýlokið. Ofurstórmeistarinn frá Úkraínu, Vassily Ivansjúk (2.731) hafði svart gegn Niccolo Roncetti (2.419) frá Ítalíu. 32. … e3! 33. f3 svartur hefði einnig verið illa beygður eftir 33. fxe3 Hxe3!. 33. … Bc5 34. Hd1? Dxd1+! og hvítur gafst upp enda verður hann miklu liði undir eftir 35. Dxd1 e2+. SKÁK Helgi Áss Grétarsson | ritstjórn@mbl.is Svartur á leik. 50 ÁRA afmæli. Í dag, 6. júní, er J.Aðalheiður Vilhjálmsdóttir leikskólakennari, fimmtug. Hún býður vinum og vandamönnum að fagna með sér í samkomusal Orkuveitunnar við Rafveituveg föstudaginn 9. júní kl. 20.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.