Morgunblaðið - 06.06.2006, Qupperneq 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2006 41
MENNING
VORUM BEÐNIR AÐ AUGLÝSA
EFTIR EFTIRFARANDI
ATVINNUHÚSNÆÐI
Sverrir Kristinsson löggiltur fasteignasali
● Fyrir ákveðinn aðila óskum við eftir 300-400 fm verslunarhúsnæði til kaups á svæði 108.
Óska staðsetning er í Síðumúla, Ármúla eða Skeifunni. Staðgreiðsla í boði fyrir réttu eignina.
Afhending samkomulag. Nánari uppl. veita Óskar eða Sverrir.
● Óskum eftir 800-1.000 fm iðnaðarhúsnæði á svæði 104 og 108 til kaups. Staðgreiðsla í boði fyrir
réttu eignina. Afhending samkomulag. Nánari uppl. veita Óskar og Sverrir.
● Óskum eftir 2.000 fm skrifstofuhúsnæði. Eignin má vera á tveimur hæðum. Staðgreiðsla eins og
venjulega. Nánari upplýsingar veitir Sverrir.
● Óskum eftir 1.200 fm skrifstofuhúsnæði, gjarnan á einni hæð. Nánari upplýsingar veitir Sverrir.
● Leitum eftir 500-800 fm vönduðu skrifstofuhúsnæði til kaups eða leigu. Eingöngu fyrsta flokks
húsnæði kemur til greina. Nánari uppl. veitir Óskar.
● Óskum eftir 300 fm húsnæði á götuhæð (jarðhæð). Þessi svæði koma til greina: Árbær, Mjódd,
Múlar, Borgartún og nágrenni og fleiri staðir. Nánari upplýsingar veitir Sverrir.
● Vantar 1,5-2,0 hektara lóð undir iðnaðarstarfsemi í Reykjavík eða nágrenni. Fjársterkur aðili.
Nánari upplýsingar veitir Óskar.
● Höfum fjölmarga kaupendur á skrá að 100-200 fm iðnaðarkeyrslubilum.
Nú er rétti tíminn til að selja.
● Þarftu að leigja atvinnuhúsnæði þitt? Hafðu þá samband og við aðstoðum þig við að finna rétta
leigutakann.
● Óskum eftir atvinnuhúsnæði af öllum stærðum og gerðum á skrá til kaups á verðbilinu 25 milljónir
til 2.500.000 milljónir. Mikil sala. Nánari upplýsingar veita Óskar og Sverrir.
ÞAÐ VAR svolítið undarlegt að sjá
viðbrögð áhorfenda að lokinni sýn-
ingu á dansverkinu Hélium. Dans-
ararnir voru búnir að hneigja sig eft-
ir nokkuð hógvært lófatak
áhorfenda, ljósin voru komin upp í
salnum en flestir sátu kyrrir. Það var
eins og fólk væri eitthvað eftir sig
eftir sýninguna eða að menn tryðu
því ekki að henni væri lokið. Þetta
var annað verkið sem sýnt var á
Danshátíð á Listahátíð og nú var það
Compagnie Mossoux-Bronté frá
Brussel sem sýndi verk höfundanna
sem flokkurinn er kenndur við.
Þetta verk er mjög sérstakt, það
ögrar áhorfendum og hreyfir við
þeim. Það var geysivel unnið og flutt
af mikilli fagmennsku. Leikmyndin
samanstendur af þremur stórum
gluggum sem hægt er að draga lokur
fyrir, innan þeirra fer allt verkið
fram. Hélium er í fjórum köflum,
fyrst kemur 0 sem er kynning eða
forleikur og er nafnið tilkynnt (á
ensku) með stórum stöfum á lok-
urnar fyrir gluggunum. Þegar sá í
miðjunni opnast sjáum við konu sitj-
andi á píanói, klædda í glamúrkjól,
hún hlýtur að eiga að vera eins konar
kyntákn, enda hreyfir hún sig hægt
og seiðandi sitjandi á lokinu yfir
hljómborðinu. Í hinum gluggunum
koma í ljós tvær konur annars vegar
og tveir karlmenn hins vegar. Öll
klædd í einstaklega kauðskan fatnað.
Karlarnir upphefja einhvern fárán-
leikadans sem er skrýtinn og myndi
vera hlægilegur ef dansararnir og
andrúmsloftið í verkinu héldu honum
ekki í skefjum. Konurnar nota aftur
á móti snöggar og harðar hreyfingar
og snúast hvor um aðra á háu hæl-
unum sínum. Það er innangengt á
milli glugga og dansararnir fara á
milli og hafa samskipti sitt á hvað.
Næsti kafli heiti 1. Kynlíf er gott
fyrir þig. Þá er fólkið orðið heldur
léttklæddara og hreyfingar sam-
anstanda af rykkjum og skrykkjum.
Þetta er þó engan veginn erótískt
eða „sexí“, því síður klám, bara
skrýtið. Því næst kemur 2. Guð er
góður fyrir þig. Þar birtist maður í
biskupsskrúða, síðan sest hann á
móti manni í íslömskum klerkaklæð-
um en kona í búrka
stendur á stól yfir
þeim. Eitt atriði, um
gyðinga, er flutt með
hálfdregnar lokur fyr-
ir glugganum svo við
sjáum aðeins höfuð,
hatta og hárlokka
ásamt höndum. Eig-
inlega kemur guð
ekki málinu við, en
eitthvað er hér verið
að fjalla um trúar-
brögð. Síðasti kaflinn
heitir 3. Skemmtun er
góð fyrir þig. Þá eru
konurnar komnar í
samkvæmiskjóla frá
einhverju óræðu
tímabili og karlarnir
eru hvítklæddir með mikið grátt hár
og berja bumbur. Hvers konar
skemmtun það er sem er góð fyrir
okkur er ekki auðvelt að sjá, en stóru
trommurnar og auð blöðin í bókum
sem dansararnir hafa í höndum segja
kannski sögu um innihaldsleysi
margs þess sem ætlað er sem
skemmtun.
Í leikskrá segir frá súrrealísku
andrúmslofti með kröftugu mynd-
máli verksins, sem er vissulega rétt
og tjáningarformið er sambland lík-
amstjáningar og leikrænnar tján-
ingar, sem flytjendur fara mjög vel
með. Bæði leikmynd og lýsing eru
vel unnin verk. Þetta er dans/
leikverk sem heldur áhorfendum
föngnum, í það minnsta vel framan af
því myndmálið er svo sterkt, en um
innihald og boðskap er best að fara
sem fæstum orðum. Kannski mætti
leiða hugann að nafni verksins,
Hélium, sem mun vera loftkennt
frumefni og hver veit nema í því fel-
ist einmitt boðskapur höfunda þess.
Gægst
á glugga
DANS
Borgarleikhúsið
La Compagnie Mossoux-Bonté
sýndi verkið Hélium. Danshöf-
undur: Patrick Bronté í sam-
vinnu við Nicole Mossoux.
Dansarar: Sébastien Jacobs,
Maxence Rey, Candy Saulnier,
Jordi L. Vidal og Erika Zueneli.
Borgarleikhúsið, Stóra sviðið,
laugardaginn 27. maí kl. 20.
Listahátíð í Reykjavík
Trans Danse Europe 2006
„Þetta er dans/leikverk sem heldur áhorfendum föngnum.“
Ingibjörg Björnsdóttir