Morgunblaðið - 06.06.2006, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. JÚNÍ 2006 45
NÝ GAMANMYND FRÁ LEIKSTJÓRA „AMERCAN PIE“ & „ABOUT A BOY“
FRÁ FRAMLEIÐENDUM „BRIDGET JONE’S DIARY“ OG „LOVE ACTUALLY“
FRÁ J.J. ABRAMS, HÖFUNDI LOST OG ALIAS
eeee
VJV, Topp5.is
eee
JÞP blaðið S.U.S. XFM
eee
H.J. mbl
M
EÐ
HI
NU
M E
INA SANNA HUGH GRANT
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
POSEIDON ADVENTURE kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10 B.i. 16.ára.
POSEIDON... VIP kl. 3:40 - 5:50 - 8 - 10:10
X-MEN 3 kl. 3:30 - 5:45 - 8 - 10:20 B.I. 12 ára
AMERICAN DREAMZ kl. 3:30 - 5:45 - 10:20
SHAGGY DOG kl. 3:40 - 5:50
MI : 3 kl.3:40 - 6 - 8 - 10:30 B.I. 14 ára
FAILURE TO LAUNCH kl. 8
SCARY MOVIE 4 kl.8:15 - 10:10 B.I. 10 ára
SIGURVEGARINN RÆÐUR ÖRLÖGUM MANNKYNS.
MEÐ HVERJUM HELDUR ÞÚ?
eee
L.I.B.Topp5.is
Sumum
karlmönnum
þarf að ýta út
úr hreiðrinu
VERÐUR HANN
HUNDHEPPINN
EÐA HVAÐ!
eee
V.J.V.Topp5.is
eee
S.V. MBL.
ÆNA / DIGITAL BÍÓIÐ Á ÍSLANDI
DIGITAL
Bíó
SAMBÍÓIN KRINGLUNNI
eee
B.J. BLAÐIÐ
POSEIDON ADVENTURE kl. 6 - 8 - 10:10 B.I. 14 ára
MI : 3 kl. 8 - 10:30 B.I. 14 ára
AMERICAN DREAMZ kl. 8 - 10:10
SHAGGY DOG kl. 6
SCARY MOVIE 4 kl. 6 B.I. 10 ára
SÝNDAR Í
STAFRÆNNI
ÚTGÁFU,
MYND OG HLJÓÐ
BÍÓDIGITAL
MIKIÐ hefur verið rætt um að
hljómleikamarkaðurinn íslenski sé á
niðurleið. Illa gengur að selja miða á
tónleika sem alla jafna hefðu selst
upp á nokkrum dögum og tónleikar
sem áttu upphaflega að fara fram í
stórum íþróttamannvirkjum, enda æ
oftar í meðalstórum samkomuhúsum
niðri í miðbæ. Sumir hafa varpað
þeirri hugmynd fram að slæmt gengi
tónleika sé einfaldlega vegna þess að
Íslendingar (eða ætti maður að segja
Reykvíkingar) séu hættir að láta
bjóða sér hvað sem er og því sé
markaðurinn loksins orðinn eðlilegur
– þar sem gæði (eða vinsældir) þeirra
erlendu listamanna sem hingað koma
séu farin að skipta meira máli en sú
staðreynd að þeir séu erlendir.
Margir hafa í þessu sambandi bent á
afmælistónleika Bubba Morthens
sem fara fram í kvöld og er fyrir
löngu uppselt á. Þar hljóta vinsældir
og gæði að vega þjóðerninu þyngra.
Hvað sem þessum vangaveltum
líður, fór tónlistarhátíðin Reykjavík
Trópík fram nú um hvítasunnuhelg-
ina. Mér er ekki kunnugt um það
hvorum megin tónleikahaldarar eru
nú við núllið en af því sem sjá mátti í
Kastljósi og Íslandi í dag á föstudag-
inn, var aðsóknin undir væntingum.
Undirritaður mætti laust fyrir hálf-
tíu þegar Jeff Who? steig á svið.
Sveitin hefur vaxið mikið á und-
anförnum tveimur árum og spila-
gleðin sem er einkennismerki hennar
virðist aukast með hverjum tón-
leikum. Leaves tróð upp þar á eftir
og sýndi að þar er á ferð hljómsveit á
heimsklassa þó hún mætti kannski
taka sér skapgerð Jeff Who? og
Supergrass til fyrirmyndar – maður
varð fyrirvaralaust svolítið dapur við
flutninginn.
Ég hef verið aðdáandi Supergrass
í mörg ár en hafði aldrei séð þá á tón-
leikum áður. Því var eftirvæntingin
töluverð fyrir tónleikum þeirrra,
ekki síst í ljósi þess að af henni fer
mikið og gott hljómleikorðspor. Og
sveitin brást þeim væntingum ekki á
Reykjavík Trópík. Þeir Gaz, Danny,
Mick og Rob eru eins og hugur hver
annars – sveitin er afburðaþétt og vel
leikandi og kaflaskiptingar voru
áreynslulausar. Lög á borð við
„Caught by the Fuzz“, „Richard III“,
„Strange Ones“ og „Pumping on
your Stereo“ hljómuðu frábærlega
og í þeim var að finna sama ungæð-
islega kraftinn og einkennir breið-
skífur sveitarinnar. Gaz Coombes er
afburðagóður gítarleikari og jafnvel
enn betri söngvari og það er sama
hvort um er að ræða rokklög eins og
„Sitting up Straigt“ eða róleg lög á
borð við „Moving“; hann skilar þeim
frá sér fullkomlega. Bassaleikarinn
Mick plokkaði bassann af mikilli ein-
beitingu svo að unun var að fylgjast
með honum en auk þess söng hann
bakraddir af miklum myndugleik.
Hljómborðsleikarinn Rob Coombes
lék að mestu gallalaust og sama verð-
ur sagt um trommarann Danny Goff-
ey sem knúði sveitina áfram. Tón-
leikagestir voru vel með á nótunum á
tónleikunum, sungu með, dönsuðu og
hoppuðu þegar svo bar undir en eins
og ég voru þeir svolítið skúffaðir yfir
því að Supergrass léki ekki fleiri
uppklappslög. Ef til vill var þó ekki
við þá að sakast þar sem hátíðinni
var gert að enda kl. 01. Aðstand-
endur Reykjavíkur Trópík eiga hrós
skilið fyrir frábæra hátíð og það er
vonandi að hún verði að árlegum við-
burði – tilbreytingin frá tónleikum í
Laugardalshöll og Egilshöll er nauð-
synleg og tónleikagestir sýndu fram
á að svona hátíð getur vel farið fram
áfallalaust.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Gagnrýnandi lætur vel af frammistöðu Supergrass á Reykjavík Trópík.
TÓNLIST
Reykjavík Trópík
Tónleikar bresku hljómsveitarinnar
Supergrass á tónlistarhátíðinni Reykja-
vík Trópík í Vatnsmýrinni, laugardaginn
3. júní.
Supergrass Höskuldur Ólafsson
Gallalaust
Faxafen 10
108 Reykjavík
Sími: 517-5040
Fax: 517-5041
Netfang: postur@hradbraut.is
Veffang: www.hradbraut.is
T V E I M U R Á R U M
Á U N D A N
Opið hús!
Opið hús verður í dag á milli kl. 14:00 og 16:00.
Allir sem vilja kynna sér skólann eru velkomnir.