Morgunblaðið - 01.07.2006, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 01.07.2006, Blaðsíða 46
46 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK  Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Morgunstjörnurnar munu hjálpa þér að muna það sem þú gleymdir í gær. Átti einhver afmæli kannski? Gleymd- ir þú að greiða reikning? Hvað svo sem það var er best að afgreiða málið fyrir hádegi og þá mun skaðinn verða sem minnstur. Naut (20. apríl - 20. maí)  Ástvinir munu vilja hjálpa þér og leysa öll þín vandamál – í flestum til- fellum á rangan hátt. Mundu bara að það er hugurinn sem gildir. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Félagslegir hæfileikar þínir gefa orð- inu „heillandi“ nýja merkingu. Jafnvel feimnustu veggjalús mun líða sem stórstjörnu í samkvæmi sem þú ferð í. Þetta gæti leitt til ævilangrar vináttu. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Skel þín lítur ekki alltaf út fyrir að vera hörð þótt þú sért krabbi. Stund- um virðist sem þú brynjir þig með fágaðri framkomu til að halda öðrum frá þér. Þetta mun hins vegar ekki virka á ljón eða hrút sem vill kynnast þér. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Í hvað ættir þú að eyða tíma, orku og töluverðri hugsun í í dag? Ást og aftur ást að sjálfsögðu! Heilsteypt og nær- andi ástarsamband mun lækna öll sál- armein frá æsku þinni. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Allir vilja vera hluti af heildinni, en þú þráir það svo stíft að þú gætir teygt þig of langt. Það er nóg að bjóða fram hjálp, liðsinni þitt er nóg og því ekki þörf á að gera nokkuð annað. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Það er ýmislegt gert í nafni málamiðl- unar. Þú ert meistari á þessu sviði. Annaðhvort lætur þú sem þú vitir ekkert um það sem er á allra orði eða þú gætir beitt athygli þinni að því sem engin annar sér. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Sannfæringarkraftur þinn getur feng- ið hlédrægasta fólk til að taka áhættu. Notaðu þennan hæfileika þinn til að draga lífsförunaut þinn út á dansgólf lífsins. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú ert sérlega viðkvæmur. Það sem öðrum finnst um þig myndi ekki einu sinni skipta máli, nema vegna þess hve mikil áhrif það hefur á hvað þér sjálfum finnst um þig. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Staðreyndin er að fjármálin þín eru ekki eins og þú vilt hafa þau. Hnett- irnir raða sér upp og það mun hjálpa þér að sjá hvar þú gerðir mistök og hvernig best sé að leiðrétta þau. Hjálp frá nauti eða meyju er ómetanleg. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Vel tímasett skjall mun opna þér dyr. Allir munu njóta hóls þíns í dag og heillandi persónuleiki þinn mun sýna hve einlægur þú ert. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Stjörnurnar munu auka þína of- urskörpu athyglisgáfu. Þú munt sjá í gegnum og lesa fyrirætlanir annarra án nokkurra vandræða. Heppni mun fylgja ókunnugum sem mun nefna nafn þitt, og sá er ekki sölumaður. Stjörnuspá Holiday Mathis Athygli alheimsins mun verða á Úranusi næstu daga á meðan hann kem- ur sér í stöðu með sólinni og Venus. Ófyr- irsjáanlegt og uppreisnargjarnt eðli hans verður áberandi. Sambönd geta verið viðkvæm og vinna gæti orðið stór- furðuleg. Mitt í óvæntri stefnubreytingu geta falist tækifæri. Gríptu rétta tækifær- ið ef það gefst. Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða Tónlist Hallgrímskirkja | Sænski organistinn Per Ahlman, organisti Kirkju heilagrar þrenn- ingar í Gävle, leikur á hádegistónleikum kl. 12. Á efnisskránni eru tvær fúgur eftir H. P. Johnsen, Adagio eftir Mozart, Kórall eftir Sixten og Prelúdía og fúga í C-dúr eftir Bach. Höllin, Vestmannaeyjum | Land og synir spila á laugardagskvöld. Norræna húsið | Þremenningasambandið sunnudaginn 2. júlí kl. 16. Tríóið er skipað Arngunni Árnadóttur (klarínetta), Ástu Maríu Kjartansdóttur (selló) og Höllu Oddnýju Magnúsdóttur (píanó). Á efnis- skránni eru verk eftir Bach, Beethoven og Brahms. Reykjahlíðarkirkja | Sumartónleikar við Mývatn kl. 21. Svava K. Ingólfsdóttir mezzósópran, Jóhanna Valsdóttir alt, Magnús Ragnarsson tenór og Bjartur Logi Guðnason bassi flytja íslensk þjóð- lög, einsönglög og kórlög fyrir söngraddir og orgel. Aðgangur ókeypis. Veitingahúsið Lindin | Reggíhljómsveitin Hjálmar spilar á tónleikum á veitinga- hússinu Lindinni á Laugarvatni 1. júlí. Hús- ið opnað kl. 22. Miðaverð er 2500 kr. Myndlist 101 gallery | Steinunn Þórarinsdóttir sýn- ir til 22. júlí. Opið fimmtudaga, föstudaga og laugadaga frá kl. 14–17. Anima gallerí | Sumarsýning: Opið fim., fös. og lau. kl. 12–17. Til 15. júlí. Aurum | Petra og Hanna Lind leitast við að skapa heim innan ákveðins rýmis með eins litlu efni og mögulegt er. Til 7. júlí. Bananananas | Magnús Árnason setur upp tímabundna skúlptúrinn Gland laug- ardaginn 1. júlí kl. 18–20. Aðeins einn sýn- ingardagur. Café Mílanó | Reynir Þorgrímsson – Rey- nomatic myndir, nærmyndir af náttúrunni, einstakar ljósmyndir unnar á striga. Skartgripir fjallkonunnar sem vakið hafa mikla athygli. Opið frá kl. 9–23.30 alla daga út júlímánuð. DaLí gallerí | Sigurður Árni Sigurðsson myndlistarmaður sýnir til 9. júlí. Deiglan | Sýning á frummyndum Rúnu K. Tetzschner við ævintýri hennar um Óféta- börnin. Sérlega fíngerðar og litríkar penna- og vatnstússlitamyndir af ófét- unum örsmáu. Listakonan verður á staðn- um kl. 16–17 og áritar bók sína með skrautskrift. Gallerí Sævars Karls | Reiter sýnir um 20 myndverk sem hann hefur málað und- ir hughrifum frá Íslandsferð fyrir einu og hálfu ári. Til 5. júlí. Grafíksafn Íslands | Bretinn Paul Hac- kett, myndlistarmaður og umhverfissál- fræðingur, sýnir verk sem hann hefur að mestu unnið hérlendis. Áhugasvið hans hefur einkum verið tengsl mannsins við umhverfið, bæði náttúrulegt og mann- gert. Sýningin stendur til 2. júlí, frá kl. 14– 18. Hafnarborg | Sýning á ljósmyndum og málverkum norska listmálarans og ljós- myndarans Patrik Huse til 3. júlí. Sólveig Baldursdóttir sýnir í anddyri eitt skúlptúr- verk unnið í Marmara Rosso Verona. Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina- félags Hallgrímskirkju. Ásgerður Búadótt- ir sýnir í forkirkju Hallgrímskirkju. Sýn- ingin er í samvinnu við Listasafn Háskóla Íslands. Til 26. ágúst. Sýning á íkonum frá Balkanskaga er í Hallgrímskirkju á vegum Mótettukórs Hallgrímskirkju. Verkin eru gerð á síðustu 7 árum og sýna þróun í gerð íkona innan Austurkirkjunnar. Sýn- ingin, sem er sölusýning, er opin kl. 9–20 alla daga. Til 9. júlí. Hrafnista í Hafnarfirði | Ósk Guðmunds- dóttir sýnir handverk og málun í Menn- ingarsal til 15. ágúst. Húsið á Eyrarbakka | Sýningin Einfarar í borðstofu Hússins á Eyrarbakka. Á sýn- ingunni er einstakt úrval næfistaverka í eigu hjónanna Áslaugar G. Harðardóttur og Jóns Hákonar Magnússonar. Til 31. júlí. Kaffi Kjós | Ólafur Jónsson (iló), Berja- landi í Kjós, er með málverkasýningu. Op- ið í sumar alla daga kl. 12–20. Kirkjuhvoll Akranesi | Sossa Björnsdóttir sýnir olíumálverk í Listasetrinu Kirkjuhvoli á Akranesi. Verkin sem Sossa sýnir nú eru unnin síðastliðið ár og flestöll á vinnustofu hennar í Kaupmannahöfn. Op- ið alla daga nema mán. kl. 15–18. Til 2. júlí. Listasafn Einars Jónssonar | Opið dag- lega nema mánudaga kl. 14–17. Högg- myndagarðurinn við Freyjugötu er alltaf opinn. Listasafn Kópavogs, Gerðarsafn | Yf- irlitssýning á verkum Guðmundar Ein- arssonar frá Miðdal. Í samvinnu við Nátt- úrufræðistofu Kópavogs. Til 30. júlí. Safnbúð og kaffistofa. Listasafn Reykjanesbæjar | „Tíminn tvinnaður“. Alþjóðlegi listhópurinn Distill sýnir verk sem spanna sviðið frá tvívíðum hlutum til skúlptúra og innsetningar. Í hópnum eru listamennirnir Amy Barillaro, Ann Chuchvara, Hrafnhildur Sigurð- ardóttir, Jaeha Yoo, Julie Poitras Santos, Patricia Tinajero Baker og Tsehai John- son. Til 31. júlí. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Sýning á úrvali verka úr safneign Ás- mundarsafns, sem sýnir með hvaða hætti listamaðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir, gifs, stein, brons og aðra málma – og hvernig sömu viðfangsefni birtast í ólíkum efnum. Til 31. des. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Sýn- ing á listaverkum sem voru valin vegna úthlutunar listaverkaverðlaunanna Carne- gie Art Award árið 2006. Sýningin end- urspeglar brot af því helsta í norrænni samtímalist en meðal sýnenda eru fjórir íslenskir listamenn, meðal annars listmál- arinn Eggert Pétursson sem hlaut önnur verðlaun þetta árið. Til 20. ágúst. Erró – Grafík. Myndirnar eru frá ýmsum tímabilum í list Errós, þær nýjustu frá síð- astliðnu ári. Við vinnslu málverka sinna gerir Erró samklipp, þar sem hann klippir og límir saman myndir sem hann hefur sankað að sér úr prentmiðlum samtím- ans. Til 31. des. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Sýning á verkum úr eigu safnsins þar sem fagurfærði er höfð að leiðarljósi við val verkanna og hefðbundin listasöguleg viðmið látin víkja fyrir samhljómi þeirra. Margir af helstu málurum þjóðarinar eiga verk á sýningunni sem spannar tímabilið frá aldamótunum 1900 til upphafs 21. ald- arinnar. Til 17. sept. Norræna húsið | Sumarsýning í anddyri Norræna hússins til 27. ágúst. Ljósmyndir frá Austur-Grænlandi eftir danska ljós- myndarann Ole G. Jensen. Opið virka daga kl. 9–17. Laugardaga og sunnudaga kl. 12–17. Pakkhúsið í Ólafsvík | Hugrenningar – Málverkasýning Sesselju Tómasdóttur myndlistarmanns til 17. júlí. Saltfisksetur Íslands | Í Saltfisksetrinu stendur yfir sýning í máli og myndum um fiskveiðar Portúgala á norðurslóðum. Sýningin kemur frá Ílhavo, vinabæ Grinda- víkur, og segir frá fiskveiðum Portúgala frá árinu 1500 til dagsins í dag. Til 10. júlí. Skaftfell | Nú stendur yfir sýning bræðr- anna Sigurðar Guðmundssonar og Krist- jáns Guðmundsonar í Skaftfelli, menning- armiðstöð myndlistar á Austurlandi. Sýningin er opin daglega frá kl. 14–21 í sumar. Sýning Ragnars Jónassonar og Sólveigar Einarsdóttur í Gallerí Vesturvegg í Skaft- felli. Á sýningunni má sjá bráðnandi ís úr plastefni og málverk einungis unnin úr 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 tilvonandi eig- inmaður, 8 súld, 9 borg- uðu, 10 hreinn, 11 aflaga, 13 skynfærin, 15 mann- vera, 18 moðs, 21 bók, 22 borgi, 23 mjólkurafurð, 24 máls manna. Lóðrétt | 2 ímugustur, 3 synja um, 4 ráfa, 5 nærri, 6 hæðir, 7 þekkt, 12 að- stoð, 14 dveljast, 15 lofs, 16 sómann, 17 eldstæði, 18 vind, 19 smá, 20 hina. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 bugar, 4 hugga, 7 kengs, 8 felur, 9 amt, 11 reit, 13 ósar, 14 ólmar, 15 hjal, 17 allt, 20 man, 22 lydda, 23 angan, 24 annar, 25 tuska. Lóðrétt: 1 búkur, 2 gengi, 3 rósa, 4 haft, 5 gulls, 6 akrar, 10 mamma, 12 tól, 13 óra, 15 helja, 16 aldan, 18 logns, 19 tunna, 20 maur, 21 naut.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.