Morgunblaðið - 01.07.2006, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 01.07.2006, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Dans á Rósum frá Vestmannaeyjum í kvöld Stór og fjölbreyttur sérréttaseðill öll kvöld vikunnar www.kringlukrain.is sími 568 0878 Alþjóðlegt orgelsumar í Hallgrímskirkju 1. júlí kl. 12.00: Per Ahlman, orgel. 2. júlí kl. 20.00: Per Ahlman, organisti frá Svíþjóð, leikur verk m.a. eftir Bach, Mozart, Whitlock og Olsson. Á ÞAKINU Í dag Uppselt 6. júlí kl. 20.00 örfá sæti 7. júlí kl. 20.00 örfá sæti 8. júlí kl. 20.00 laus sæti 13. júlí kl. 20.00 laus sæti 14. júlí kl. 20.00 laus sæti 15. júlí kl. 20.00 laus sæti Miðasalan er í síma 568 8000 www.borgarleikhus.is www.minnsirkus.is/footloose SJÁLFSTÆÐU LEIKHÚSIN Tjarnarbíó Sími 561 0250 Mán. 3/7 Kl. 20:30 Otomoto – Danmörk History of My Stupidity – Króatía Miðaverð 2.500 Sun. 16/7 Kl. 20:30 This Side Up – Singapore Miðaverð 2.000 www.leikhopar.is                                           ! " !  # $!   % & !!     ! '((   )        *  +  , *       ,! ,# -!  (  !!        *  +  , *       ,! ,# -!  (  !!  ).    . /  !"     $  0    / #    *# +  , *  1   * 2        !  # ! "# !!               3  "   4! 5       # $%     &! Í LISTASAFNI ASÍ verður í dag opnuð sýning á vatnslitamyndum fimm listamanna. Yfirskrift sýning- arinnar er „AKVARELL ASÍ REYKJAVÍK“ og er Kristín Þor- kelsdóttir meðal sýnenda: „Á sýn- ingunni gefur að líta þrjár kynslóðir íslenskra listamanna, þann elsta fæddan 1909 og þann yngsta 1954,“ segir Kristín. „Allir hafa þessir mál- arar ástríðu fyrir vatnslitun, en það er árátta sem óhætt er að segja að maður losnar ekki svo glatt við þeg- ar hún nær á manni tökum.“ Elstu verkin á sýningunni eru eftir Svavar Guðnason og úr eigu listasafnsins. Svavar var frumherji abstraktlistar á Íslandi en verkin á sýningunni eru gjöf ekkju lista- mannsins, Ástu Eiríksdóttur, til safnsins. „Eiríkur Smith er fæddur 1935. Verk hans eru óhlutbundin en hafa sterka skírskotun til náttúrunnar. Hafsteinn Austmann er fæddur 1934, og gerir í verkum sínum til- raunir með byggingu, hreyfingu og liti,“ útskýrir Kristín sem sjálf er fædd 1936 og sýnir í listasafninu landslagsmyndir sem hún lýsir sem ljóðrænum abstraksjónum af náttúrunni en verk hennar á sýn- ingunni bera yfirskriftina „Seint verða fjöllin fullmáluð.“ Yngstur er Daði Guðbjörnsson, fæddur 1954: „Það má greina tölu- verðan mun á verkum hans og eldri listamannanna á sýningunni. Mynd- ir hans eru ærslafengnar og bjartar, og stundum sagt um Daða að hann sé að stofna til ærslafenginnar há- tíðar í þeirri von að ofurlítil geggjun komi vitinu fyrir fólk,“ segir Krist- ín. Myndlist | Fimm íslenskir vatnslitamálarar í Listasafni ASÍ Þrjár kynslóðir listamanna Morgunblaðið/Eggert Daði Guðbjörnsson, Hafsteinn Austmann, Eiríkur Smith og Kristín Þorkelsdóttir eiga öll verk á sýningunni. Sýningin AKVARELL ASÍ REYKJA- VÍK stendur til 13. ágúst. Listasafn ASÍ er opið alla daga nema mánudaga frá 13 til 17 og er aðgangur að safninu ókeypis. BANDARÍSKA myndlistarkonan Joan Backes opnar í dag sýningu í Safni við Laugaveg 37 í Reykjavík. Hún verður sjálf viðstödd opnunina. Yfirskrift sýningarinnar er Beneath the Surface og samanstendur af ný- legum málverkum eftir listakonuna. Joan Backes kom fyrst til Íslands árið 1989 og hefur dvalist hér á landi reglulega eftir það. Hún notast við ýmsa miðla í verkum sínum en þungamiðja þeirra er fínleg vinna með tré úr skógum ýmissa landa. Til dæmis hefur Backes stækkað upp hluta af trjáberki í verkum sínum og þannig dregið fram smáatriði þeirra að því marki að verkin verða óhlut- bundin. Vekur spurningar um náttúruvernd í verkum sínum Viðfangsefnið og hinn sjónræni þáttur afbyggingarinnar vekja upp spurningar um náttúruvernd og vísa til samsömunar milli skóga og menn- ingarlegs sjálfsskilnings, kemur fram í fréttatilkynningu. Verkin eru máluð með akrýlmálningu á viðar- plötur. Þau hafa verið sýnd víða í Bandaríkjunum og einnig í Kanada, Þýskalandi og Tyrklandi. Auk verka Backes verða sýnd verk úr safneign Safnsins. Opnun sýninganna er kl. 16 í dag og þær munu standa til 6. ágúst. Myndlist | Opnun í Safni í dag Backes kafar undir yfirborðið Joan Backes stækkar upp hluta af trjáberki í verkum sínum. SÝNINGIN Alþjóðleg sýn – Inter- national View 2006 verður opnuð í dag kl. 15 í Listasal Mosfellinga í Kjarnanum. Í tengslum við sýning- una verður svo opnuð Alþjóðleg vinnusmiðja – International Workshop 2006 föstudaginn 7. júlí kl. 20. Fyrir sýningunni og vinnusmiðj- unni standa 13 listamenn frá 5 Evr- ópulöndum. Þau eru Aase Hojer, Bertine Knudsen og Bodil Rosen- berg frá Danmörku; Cormac Healy frá Írlandi; Wiebe Bloemena, Nico Lootsma og Ellen Timmerman frá Hollandi; Giovanna Martinelli frá Ítalíu; Laufey Pálsdóttir, Hildur Margrétardóttir, Ólöf Oddgeirs- dóttir, Kristín Geirsdóttir og Hlíf Ásgrímsdóttir frá Íslandi. Kjarni þessa fjölþjóðlega hóps varð til árið 1997 þegar hann tók þátt í International Artist Plenary í Litháen. Síðan þá hefur hópurinn komið saman í ýmsum löndum við ólíkar aðstæður, vaxið og endurnýj- ast. Þetta er áttunda verkefni hans í sex löndum. Listamennirnir koma með verk sérstaklega unnin fyrir sýninguna, en uppsetning og skipulag er á höndum Hildar Margrétardóttur. Á meðan á dvöl erlendu listamann- anna stendur vinna þeir svo með ís- lensku listamönnunum í vinnu- smiðju í Listsalnum í Þrúðvangi í Álafosskvosinni. Unnið verður und- ir vinnuheitinu „View“ eða „Sýn“ þar sem sjónum verður beint að landi og þjóð með ýmiss konar skissuvinnu, teikningum og óvænt- um uppákomum. Gera má ráð fyrir að listamennirnir sjálfir verði fyrir áhrifum af íslenskri náttúru sem gæti speglast með einhverjum hætti í verkum þeirra. Sýningin og vinnusmiðjan standa yfir til 10. júlí. Frá vinnusmiðju/sýningu á síðasta ári sem var í borginni Nay undir Píreneafjöllunum. Myndina tók Wiebe Bloemena, einn þátttakendanna. Sýningin Alþjóðleg sýn og vinnusmiðja í Mosfellsbæ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.