Morgunblaðið - 01.07.2006, Blaðsíða 23
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Verð kr.29.990
Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11
ára, í íbúð í viku. Flug, gisting, skattar og
íslensk fararstjórn. Aukavika kr. 10.000.
Verð kr.39.990
Netverð á mann, m.v. 2 í herbergi / stúdíó /
íbúð í viku. Flug, gisting, skattar og íslensk
fararstjórn. Aukavika kr. 10.000.
Síðustu sætin
Stökktu til
Benidorm
6. eða 13. júlí
frá kr. 29.990
Nú bjóðum við frábært tilboð til
Benidorm. Njóttu lífsins á þessum
vinsæla áfangastað. Þú bókar og tryggir
þér síðustu sætin og 4 dögum fyrir
brottför færðu að vita hvar þú gistir.
MIKIÐ líf hefur verið í Seyðis-
fjarðarhöfn undanfarið og í fyrra-
dag mátti sjá skip af mörgum
stærðum og gerðum í höfninni.
Norræna, sem kom með tæp-
lega 1.000 farþega og 350 far-
artæki, var rétt farin af stað þeg-
ar að skemmtiferðaskipið
Clipper Adventurer kom inn.
Auk þess var Keilir í höfninni
og tvær erlendar skútur. Veðrið
lék við gesti og gangandi og var
hitinn um 20 stig.
Á myndinni er Clipper Ad-
venturer við bryggju.
Ljósmynd/Einar Bragi Bragason
Sumar á Seyðisfirði
Fjör við höfnina
Akureyri | Árborg | Suðurnes
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 569-1100, Skapti Hallgrímsson,
skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og
Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir,
frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Á Fljótshlíðarafréttihafa bændurstundað upp-
græðslu frá 1971, nú í
samstarfi við Landgræðsl-
una og Rangárþing
eystra.
Borið er á á hverju ári.
„Frá því þetta hófst höfum
við borið á um 10–30 tonn
af áburði á hverju ári en
síðustu árin um 12–14
tonn,“ segir Kristinn Jóns-
son, bóndi á Staðarbakka.
„Öll þessi uppgræðsla
hefur heilmikla þýðingu,
hefur hlíft staðargróðr-
inum og gert ásýndina á
afréttinum fallegri. Bænd-
urnir skaffa traktora,
dreifara og vinnuna. Þetta
er ekki svo mikil vinna og
félagsskapurinn góður,“
segir Kristinn.
Sameiginlegt átak í uppgræðslu
Samtaka Fljótshlíðarafréttur er á móts við Húsadal.
Hjálmar Frey-steinsson heyrðirætt um frestun
framkvæmda:
Hlotist getur vandi af vinnuþjörkum
er velmegunin ógnar þjóðarhag.
Ég ætla að leggja mitt að mörkum
og mun því ekki gera neitt í dag.
Hallmundur Krist-
insson orti þá:
Bestu karlar hleypa í sig hörkum.
Hjálmar til að bæta þjóðarhag
leggja vill sem allra mest af
mörkum;
mun því ekki lækna neinn í dag.
Hjálmar orti aftur:
Framkvæmdirnar heyrt ég hef
háska skapa þjóðinni,
fordæmi því fagurt gef
og fresta slætti á lóðinni.
Af velmegun
pebl@mbl.is
♦♦♦
Reykjavík | Á fundi borgarráðs í fyrradag
lögðu fulltrúar Samfylkingarinnar fram til-
lögu um endurnýjun og endurskipulagn-
ingu Lækjartorgs í tilefni af uppkaupum
Landsbankans á húsinu að Hafnarstræti
20.
Samfylkingarmenn segja þess skemmst
að minnast að báðir hóparnir sem gerðu til-
lögur að nýju svæði tónlistar- og ráðstefnu-
húss í nýafstaðinni samkeppni lögðu til að
húsið viki fyrir spennandi uppbyggingu
sem myndi tengjast hinu nýja svæði. Sömu
sögu hafi verið að segja um þátttakendur í
hugmyndasamkeppni Landsbankans sem
haldin var fyrir fáeinum misserum. Upp-
kaup Landsbankans á stærstum hluta þess
geri að verkum að þessi möguleiki sé nú
innan seilingar þar sem það sem upp á
vanti sé í eigu Reykjavíkurborgar. Nú ríði
á að Reykjavíkurborg bregðist við þannig
að uppbygging nýs Lækjartorgs haldist í
hendur við uppbygginguna norðan Hafn-
arstrætis sem áætlað er að ljúki 2009.
Tillagan til borgarráðs var svohljóðandi:
„Leitað verði samstarfs við Landsbank-
ann/Landsafl um endurskipulagningu og
endurnýjun Lækjartorgs í kjölfar upp-
kaupa Landsbankans/Landsafls á Hafnar-
stræti 20. Þannig má nýta þau einstöku
tækifæri sem skapast við niðurrif hússins
til að tengja saman gamla miðbæ Reykja-
víkur og hið nýja austurhafnarsvæði þar
sem nýjar höfuðstöðvar Landsbankans og
hið glæsilega tónlistar- og ráðstefnuhús
munu rísa á næstu árum.“
Afgreiðslu hennar var frestað að beiðni
borgarstjóra.
Samfylking-
in vill nýtt
Lækjartorg
Ólafsfjörður | Árleg blúshátíð verður hald-
in á Ólafsfirði í sjöunda sinn um næstu
helgi, 6.–8. júlí. Þar koma fram allir helstu
blústónlistarmenn landsins, ásamt heima-
fólki af Tröllaskaga. Sérstakur gestur há-
tíðarinnar verður blúsdívan frá Chicago,
Zora Young, sem vakti mikla athygli á
Blúshátíð í Reykjavík.
Hátíðin hefst á fimmtudag kl. 21 með
skemmtikvöldi í Tjarnarborg. Sparisjóður
Ólafsfirðinga verður vettvangur blústón-
leika á föstudag kl. 15 og kl. 21 hefst blús-
kvöld í Tjarnarborg, þar sem landsliðið,
The Legends Blues Band, kemur fram í
fyrsta sinn. Niðurstöður í keppninni um
blúsflytjanda ársins 2006 verða kynntar.
Sálmatónleikar blúshátíðarinnar í Ólafs-
fjarðarkirkju í fyrra verða á laugardag kl.
16.30. Stóra stundin verður svo í Tjarn-
arborg kl. 21 á laugardagskvöld þegar
Zora Young syngur með The Blue Ice
Band.
Blúshátíðin í Ólafsfirði er fjölskylduhá-
tíð og mikið upp úr því lagt að allir geti
skemmt sér vel. Á laugardag lofa hátíð-
arhaldarar að bærinn logi af fjöri.
Blúshátíð um
næstu helgi
Framkvæmdasumar er fram undan í
Grundarfirði. Parhús, einbýlishús og rað-
hús munu rísa enda orðið alkunna að hús-
næðisskortur er tilfinnanlegur í Grund-
arfirði.
Fyrirtækið Smellinn á Akranesi er að
reisa 4 íbúða raðhús og hafa forsteyptar
einingarnar risið hver af annarri að und-
anförnu, útveggir jafnt sem milliveggir.
Einstaklingar eru í byggingarhugleið-
ingum og framkvæmdir hjá þeim á öllum
stigum allt frá nýsamþykktum teikn-
ingum og frátekinni lóð upp í hálfkláruð
einbýlishús. Við nýfrágenginn botnlanga í
Hjaltalínsholti munu rísa parhús þegar
líður á sumarið og þannig mætti áfram
telja.
Bæjarfélagið lætur ekki sitt eftir liggja í
framkvæmdagleðinni, á þess vegum eru
mörg járn í eldinum.
Á hafnarsvæðinu er langt komið með
að auka við landrými norðan við „Stóru-
bryggju“ þar sem hafnsækin starfsemi
mun koma sér upp margvíslegri aðstöðu.
Ný 100 metra „Litla bryggja“ er í far-
vatninu og byrjað er á veglagningu í
fjöruborðinu frá henni inn að smábáta-
höfn.
Búið er að byggja við leikskólann og
unnið að endurbótum á þeim gamla sem
verður sem nýr þegar börnin snúa aftur
úr sumarfríi í ágúst. Á iðnaðarsvæðinu
sunnan við bæinn er senn lokið uppbygg-
ingu gámastöðvar fyrir sorpmóttöku og
þar verður einnig gengið frá svokallaðri
Geymslulóð með snyrtilegum hætti. Í
sumar verður bundið slitlag lagt á nýj-
ustu göturnar í bænum og flestar þær
gömlu lagfærðar í leiðinni.
Bæjarbúar hafa einnig ýmislegt fyrir
stafni. Sólhýsi og útipallar rísa í hverjum
garðinum á eftir öðrum víðs vegar um
bæinn. Gróðursælla verður eftir því sem
sumarið nær meira yfirhöndinni og þó
nokkrir eru ákafir í gróðursetning-
argírnum einkum eftir að bæjarfélagið
hefur gengið á undan með góðu fordæmi
og gróðursett 200 tveggja metra háar
aspir meðfram innkeyrslunni í bæinn
beggja vegna og víðar.
Á tveimur lóðum er nú búið að gróð-
ursetja allt upp í 5 metra há aspartré
fengin hjá sumarbústaðareiganda í Borg-
arfirði sem var að grisja hjá sér.
Þótt sagt hafi verið um árið að í Grund-
arfirði búi Lognið með stórum staf, þá
þarf kröftuga stögun til að hin nýgróð-
ursettu tré standi fast á sinni rót en síðan
leiðir tíminn í ljós hversu vel þau lifa.
Úr
bæjarlífinu
GRUNDARFJÖRÐUR
EFTIR GUNNAR KRISTJÁNSSON
FRÉTTARITARA