Morgunblaðið - 01.07.2006, Blaðsíða 56
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
Við erum 120 ára í dag!
Afmælisdagskrá bls. 6-7
ÞAU mistök áttu sér stað við afgreiðslu
launa þeirra 2.700 nemenda sem starfa við
Vinnuskóla Reykjavíkur að greitt var eftir
launataxta síðasta árs.
„Við erum alveg miður okkar yfir þessum
mistökum, ekki síst í ljósi þess að þetta er
annað sumarið í röð sem þetta gerist,“ segir
Guðrún Þórsdóttir, skólastjóri Vinnuskólans.
Aðspurð hvað valdið hafi mistökunum segir
hún ljóst að boðleiðir innan kerfisins hafi
ekki virkað sem skyldi og segist hún harma
það mjög.
Að sögn Guðrúnar samþykkti borgarráð í
apríl sl. 12% launahækkun hjá nemendum
Vinnuskólans milli ára, en þessar samþykktu
launahækkanir hefðu hins vegar ekki verið
komnar inn í launakerfi borgarinnar þegar
launakeyrslan fór fram. Segir hún allt reynt
til að leiðrétta mismuninn eins fljótt og hægt
sé, en það verði í síðasta lagi við næstu launa-
afgreiðslu þann 1. ágúst. nk. Aðspurð segir
hún óskiljanlegt hvernig svona atburður geti
endurtekið sig milli ára og tekur fram að hún
muni leita allra leiða til þess að tryggja að
slíkt geti ekki gerst aftur.
Að sögn Guðrúnar voru leiðbeinendur
Vinnuskólans upplýstir um mistökin um leið
og þau uppgötvuðust í gær.
12% launa-
hækkun skilaði
sér ekki
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
EINUM ákærulið af nítján í endurákæru í
Baugsmálinu var í gær vísað frá Héraðsdómi
Reykjavíkur þar sem verknaðarlýsing þótti ekki
lýsa saknæmu athæfi. Dómurinn hafnaði hins
vegar þeirri kröfu verjenda sakborninga að
ákærunni yrði vísað frá í heild.
Sigurður Tómas Magnússon, settur ríkissak-
sóknari í málinu, hefur nú þrjá sólarhringa til að
taka ákvörðun um hvort hann kærir málið til
Hæstaréttar, og sagði hann í gær að miklar líkur
væru á að það yrði gert. Verjendur eiga lögum
samkvæmt ekki kost á því að kæra þann úrskurð
héraðsdóms að hafna frávísunarkröfu.
Sá ákæruliður sem vísað var frá var fyrsti liður
ákærunnar, en í honum er Jón Ásgeir Jóhann-
esson, forstjóri Baugs Group, ákærður fyrir fjár-
drátt í atburðarás sem endaði með því að Baugur
eignaðist Vöruveltuna, sem rak 10-11 búðirnar,
en Jón Ásgeir var sagður hafa hagnast um 200
milljónir á því að blekkja stjórn Baugs.
Í rökstuðningi héraðsdóms segir að verknað-
arlýsingin í þessum ákærulið sé ekki lýsing á
fjársvikum, heldur verði ekki betur séð en Jón
Ásgeir sé ákærður fyrir að stunda viðskipti, sem
kunni að hafa verið óhagstæð fyrir Baug, en
mögulega hagstæð fyrir Jón Ásgeir og aðra.
Ekki komi skýrt fram hvernig þessi verknaður
eigi að falla undir skilgreiningu á fjárdrætti, og
því óhjákvæmilegt að vísa þessum ákærulið frá,
með vísan í lög um meðferð opinberra mála.
„Þetta kemur ekki á óvart, þetta er niðurstaða
sem ég átti von á varðandi fyrsta ákæruliðinn,“
sagði Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs, eft-
ir að úrskurður féll í gær. Hann bendir á að þetta
sé sá liður ákærunnar sem sé lang-alvarlegastur
gagnvart Jóni Ásgeiri. Í þessum ákærulið sé
hann sakaður um fjársvik og auðgunarbrot.
Héraðsdómur vísar ákærulið í Baugsmálinu frá en hafnar allsherjarfrávísun
Ákæru vegna kaupa á
10–11 vísað frá dómi
Ekki fjárdráttur | 10
ÞAÐ rigndi hressilega á borgarbúa síðdegis í
gær og kom þá regnhlífin að góðum notum.
Næstmesta ferðahelgi ársins er gengin í
garð og spáð er skúrum víðast hvar um land í
dag og vestan- og norðvestanátt um land allt,
að Austur- og Suðausturlandi undanskildu en
þar er spáð suðaustanátt.
Á morgun er spáð skúrum á Suðurlandi en
að smám saman létti til norðan- og aust-
anlands. Veðurstofan telur að ágætisveður
muni haldast norðanlands fram eftir næstu
viku.
Mikil umferð verður um helgina og hvetur
Morgunblaðið ökumenn til að aka varlega og
sýna nærgætni í umferðinni. | 8
Morgunblaðið/ÞÖK
Skin og skúrir um næstmestu ferðahelgi ársins
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
SÚ mikla umræða sem fram hefur farið hér á
landi undanfarið um umhverfismál, að frum-
kvæði náttúruverndarsinna, hefur haft áhrif á
bæði almenningsálitið og íslensk stjórnmál, og er
þetta gott dæmi um hvernig umræðustjórnmál
virka, segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, for-
maður Samfylkingarinnar.
„Sumir skreyta sig með hugtökum eins og „at-
hafnastjórnmálamenn“ og senda frá sér þau
skilaboð að þeir ætli ekki að standa í einhverju
kjaftæði heldur bara framkvæma hlutina. Það
lofar ekki góðu. Það er ekkert hættulegra heldur
en athafnasamir menn sem hafa ekki tekið þátt í
umræðu um það sem þeir
ætla að gera. Þeir geta gert
mikinn usla og skaða með at-
höfnum sínum sem ekki verð-
ur aftur tekinn. Það skiptir
gríðarlegu máli að gefa rök-
ræðunni rými og hlusta eftir
andstæðum sjónarmiðum.
Mér finnst átakanlegur
skortur á því í íslenskum
stjórnmálum,“ segir Ingibjörg Sólrún.
„Við erum illa haldin af átakahefð, langt um-
fram það sem gerist í löndunum í kringum okkur.
Það endurspeglast meðal annars í fjölmiðlaum-
ræðunni og umræðum og störfum Alþingis. Í
þessu felst engin ásökun af minni hálfu því það er
enginn saklaus eða undanþeginn í þessu efni. Það
verður að vera sameiginlegt verkefni okkar allra
að brjótast út úr þessari skaðræðismenningu.“
Teknir verði upp mengunarkvótar
Ingibjörg Sólrún leggur á það áherslu að tekn-
ir verði upp mengunarkvótar hér á landi, til að
tryggja að Ísland standi við skuldbindingar sínar
um losun gróðurhúsalofttegunda.
„Mér finnst eðlilegt að mengandi starfsemi sé
leyfisskyld en ég er í sjálfu sér ekki að tala um að
fyrirtækin borgi fyrir kvótann, heldur að þau
keppi á jafnræðisgrundvelli um hvert þeirra fær
hann,“ segir Ingibjörg Sólrún.
Sameiginlegt verkefni að
brjótast út úr átakahefð
Viðamikil verkefni | Miðopna
LANDSMÓT hestamanna stendur nú sem
hæst á Vindheimamelum og dagurinn í gær
gaf tilefni til sterkra lýsingarorða. Yfirlits-
sýning stóðhesta fór fram og bar þar hæst
heimsmet sem var sett í flokki 7 vetra og
eldri stóðhesta en Stáli frá Kjarri er nú
hæst dæmdi stóðhestur í heimi með ein-
kunnina 8,76.
Meistarar frá síðasta landsmóti í A- og B-
flokki gæðinga, Geisli frá Sælukoti og
Rökkvi frá Hárlaugsstöðum, eru mjög ná-
lægt því að verja titla sína eftir milliriðla
þar sem þeir standa nú efstir inn í úrslitin á
morgun. Mikil stemmning er í Skagafirð-
inum og má gera ráð fyrir örtröð inn á
landsmótið í dag. | 43
Stáli frá Kjarri
setti heimsmet
Morgunblaðið/Eyþór
♦♦♦
♦♦♦
KALLA þurfti út þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar í gærkvöldi til að sinna sjúkraflugi
milli Vestmannaeyja og Reykjavíkur vegna
sjúklings sem flytja þurfti á gjörgæsludeild.
Að jafnaði á sjúkraflugvél að vera staðsett í
Eyjum en svo var ekki í gær. Að sögn hjúkr-
unarfræðings á Heilbrigðisstofnun Vest-
mannaeyja hafði legið fyrir um daginn að til
þess gæti komið að flytja þyrfti sjúklinginn
og því hafði verið beðið um að sjúkraflugvél
yrði til taks seinni hluta dags. Þegar ekki
varð lengur umflúið að flytja sjúklinginn í
gærkvöldi reyndist þyrla Landhelgisgæsl-
unnar vera nær því að koma sjúklingnum til
Reykjavíkur á sem skemmstum tíma og var
hún því kölluð til.
Þyrla kölluð út í
forföllum
sjúkraflugvélar