Morgunblaðið - 01.07.2006, Blaðsíða 8
8 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Reyndu svo að lita ekki mikið út fyrir, Bjössi litli.
Ein stærsta ferða-helgi ársins ergengin í garð, en
fyrsta helgin í júlí hefur í
talsverðan tíma verið talin
næststærsta ferðahelgi
ársins á eftir verslunar-
mannahelginni sem er um
mánuði síðar. Framboð á
hátíðum og annarri skipu-
lagðri dagskrá er fjöl-
breytt og hefur framboðið
dreifst á fleiri helgar yfir
sumartímann en áður var,
þegar nánast allt framboð
á skipulagðri dagskrá var
um verslunarmannahelgina.
Mikið um hátíðahöld
Skipulagðar skemmtanir eru
víðast hvar á landinu um helgina.
Stærsta hátíðin er án nokkurs
vafa Landsmót hestamanna sem
haldið er á Vindheimamelum í
Skagafirði, en þar voru á milli
6.500–7.000 manns samankomnir í
gær og taldi Guðrún H. Valdi-
marsdóttir, framkvæmdastjóri
mótsins, að um helgina myndu á
bilinu 12–15 þúsund manns vera
þar samankomnir. Í samtalinu
sagði Guðrún að búið væri að reisa
myndarlega fellihýsa-, hjólhýsa-
og tjaldhýsaborg á svæðinu og góð
stemning. Öll gisting á svæðinu og
í kringum landsmótssvæðið væri
fyrir löngu upppöntuð en nægt
pláss væri fyrir þá sem hygðust
nýta sér fellihýsi, hjólhýsi eða
önnur tjaldhýsi. Guðrún sagði
ennfremur að reynt hefði verið að
skipta upp svæðinu þ.e. að fjöl-
skyldufólk sé á einu svæði og þeir
sem vilja vaka aðeins lengur séu á
öðru svæði.
Önnur hátíðahöld eru þó ekki
eins fjölmenn og landsmótið. Lár-
us Einarsson, upplýsingafulltrúi
Færeyskra daga, sagðist eiga von
á 5.500 manns, á Shellmótinu í
Eyjum eru um 1.500 manns sam-
ankomnir, stúdentar koma saman
í Hallgeirsey á Suðurlandi og er
búist við um 500 manns þar auk
þess sem Humarhátíðin á Horna-
firði er haldin og búist er við
nokkrum fjölda manns þar. Má því
leiða líkur að því að yfir 20 þúsund
manns muni bregða undir sig
betri fætinum og ferðast um land-
ið, eða um 7% þjóðarinnar.
Umferðin að jafnast út
Óli H. Þórðarson hjá Umferð-
arráði sagðist í samtali við Morg-
unblaðið hafa tekið eftir þessari
þróun, þ.e. að umferð hefur dreifst
yfir fleiri ferðahelgar á árinu: „Jú,
þeta hefur breyst gríðarlega mik-
ið. Meðal annars er aukin sumar-
húsaeign skýring á því. Menn eru
orðnir mun óháðari veðrinu eins
og áður var. Hér áður fyrr mið-
aðist þetta miklu meira við tjald-
útilegur, sem er að sjálfsögðu enn
þann dag í dag, en það er mun háð-
ara veðri. En ég vona þó að sum-
arið fari að láta sjá sig,“ sagði Óli í
léttum tón.
Óli sagðist einnig hafa tekið eft-
ir því að umferðin hefði dreifst yfir
á vetrarmánuðina: „Þetta byrjar
um páskana og meira að segja
dreifist þetta yfir veturinn með til-
komu sumarhúsanna. Skipulögð
dagskrá hefur líka mikið að segja,
þegar líður á sumarið er mun
meira um skipulagða dagskrá, t.d.
um helgina eru nokkrar skipu-
lagðar samkomur og við lítum á
fyrstu helgina í júlí sem helgi
númer 2 hvað umferðarmagn
varðar en verslunarmannahelgin
er enn sú drýgsta. En umferðin
hefur jafnast mjög mikið á und-
anförnum árum,“ bætti Óli við og
taldi líklegt að mörg ungmenni
flykktust í útilegu, enda margir
sumarstarfsmenn að fá sína fyrstu
útborgun um mánaðamótin.
Þrátt fyrir að umferðin hafi
dreifst svona mikið sagði Óli ekk-
ert hafa dregið úr henni: „Nei, hún
hefur örugglega aukist. En þetta
voru ofboðslegir toppar um versl-
unarmannahelgi og fyrstu helgina
í júlí, en hafa meira jafnast út. En
fyrst og fremst þurfa ökumenn að
slaka á og ég minni á slagorðið
Betra er að halda lífi en áætlun.“
Mun öruggari ökutæki í dag
Óli sagði að ökumenn væru mun
öruggari í umferðinni nú en áður.
„Hér áður fyrr á malarvegunum
gerðu menn ráð fyrir að það
spryngi að minnsta kosti einu
sinni í ferðinni, jafnvel oftar. Nú
eru margir sem vita ekki einu
sinni hvar tjakkurinn er. En þrátt
fyrir að við séum aldrei fullkom-
lega ánægð með ökumenn, þá fara
þeir batnandi með ári hverju og
svo eru þeir á miklu öruggari bíl-
um og eru á öruggari vegum.
Þetta hjálpast allt að en það er
mannlegi þátturinn sem við erum í
mestum vandræðum með.“
Allar helgar stórar
Guðbrandur Sigurðsson, aðal-
varðstjóri umferðardeildar lög-
reglunnar í Reykjavík, tók í sama
streng og Óli H. og sagði að um-
ferð hefði dreifst mikið: „Við lítum
svo á að allar helgar séu stórar
umferðarhelgar og má rekja það
til gífurlegrar aukningar á sumar-
húsaeign. T.d. má benda á að um-
ferð út úr borginni síðustu helgina
í mars sl. var lítið minni en versl-
unarmannahelgina á síðasta ári.
En við reynum eftir bestu getu að
greiða úr umferðinni og tryggja
öryggi vegfarenda.“
Fréttaskýring | Önnur stærsta ferðahelgi
ársins er að ganga í garð
Ferðamynstur
landans breytt
Allar helgar eru að verða stórar ferða-
helgar skv. Umferðarráði og lögreglu
Margir verða á ferðinni um helgina.
Tjöldin að hverfa, sumar-
bústaðaeign að aukast
Óli H. Þórðarson hjá Umferð-
arráði og Guðbrandur Sigurðs-
son hjá lögreglunni í Reykjavík,
töldu að aukin sumarhúsaeign
gerði það að verkum að umferð
um allar helgar ársins hefði stór-
aukist. Einnig hafi notkun á
hefðbundnum tjöldum snarm-
innkað og sagði Guðrún Valdi-
marsdóttir hjá Landsmóti hesta-
manna að þar væri fólk aðallega
í hjólhýsum og fellihýsum og
þ.a.l. settu slæm veðurskilyrði
ekki einst stórt strik í reikning-
inn.
Eftir Sigurð Pálma
Sigurbjörnsson
siggip@mbl.is