Morgunblaðið - 01.07.2006, Blaðsíða 50

Morgunblaðið - 01.07.2006, Blaðsíða 50
50 LAUGARDAGUR 1. JÚLÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ Á 6. degi 6. mánaðar árið 2006 mun dagur hans koma. Þorir þú í bíó? eee S.V. MBL. Mögnuð endurgerð af hinn klassísku The Omen !LEITIÐ SANNLEIKANS - HVERJU TRÚIR ÞÚ? eee VJV - TOPP5.is eee S.V. MBL. YFIR 48.000 GESTIR! eee D.Ö.J KVIKMYNDIR.COM SIGURVEGARINN RÆÐUR ÖRLÖGUM MANNKYNS. MEÐ HVERJUM HELDUR ÞÚ? www.xy.is 200 kr afsláttur fyrir XY félaga eee B.J. BLAÐIÐ eee S.V. MBL. eee V.J.V.Topp5.is Adam Sandler, Kate Beckinsale og Christopher Walken í fyndnustu gamanmynd ársins! VINSÆLASTA MYNDIN Í BANDARÍKJUNUM Í DAG! Ef þú ættir fjarstýringu sem gæti stýrt lífi þínu? Hvað myndir þú gera ...? ...Myndir þú breyta heiminum með henni ...eða gera eitthvað allt annað? Sími - 564 0000Sími - 462 3500 FAST AND THE FURIOUS 3 kl. 4, 6, 8 OG 10.10 B.I. 12.ÁRA. Click kl. 2 (400 kr), 4, 8, 10.10 B.i. 10 ára Just My Luck kl. 2 (400 kr) RV kl. 6 Click kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 10 ára Click LÚXUS kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 10 ára Just My Luck kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20 RV kl. 1.30, 3.40, 5.50 og 8 X-Men 3 kl. 10.10 B.i. 12 ára Da Vinci Code kl. 6 og 9 B.i. 14 ára Rauðhetta/Hoodwinked m. íslensku tali kl. 1.30 og 4 Ísöld 2 m. íslensku tali kl. 1.30 Frábær unglinga gamanmynd með Lindsey Lohan í fantaformi! HÚN VAR HEPPNASTA STELPAN Í BÆNUM ÞANGAÐ TIL DRAUMAPRINSINN EYÐILAGÐI ALLT! ROBIN WILLIAMS 1 fjölskylda - 8 hjól ENGAR BREMSUR eee Topp5.is - VJV Komdu í fyndnasta ferðalag sumarsins. Fimmtudagskvöldið var gottkvöld hér á Hróarskeldu.Skýjað var yfir daginn enþegar leið á kvöldið létti svo um munaði og í gær byrjaði sól- in að skína. Íslendingarnir hér eru flestir bleikir eins og rækjur, þar sem við höfum ekki notið mikillar sólar í sumar. Hitinn er nánast óbærilegur á morgnana og eru rað- irnar í sturturnar farnar að lengj- ast. Oft þarf fólk að bíða í hálftíma bara til þess að komast á klósett eða fá mat á tjaldstæðunum. Í morgun hélt ég að ég myndi hrein- lega pissa í buxurnar þar sem ég stóð og beið í röð. Starfsfólk hátíð- arinnar hefur ekki undan að tína upp rusl, en flöskum, plasti og dós- um geta gestir skilað í bjórsölurnar og fengið peninga í staðinn. Vegna þessa er lítið um drasl og glerbrot, eins og ég hef oft séð á útihátíðum heima. Fólkið hér er mjög samrýnt og má segja að vinahugur ríki með- al langflestra sem hér eru og er andrúmsloftið hér einstaklega gott. Man fífil sinn fegurri Guns‘n Roses er án efa mest um- talaða hljómsveit hátíðarinnar. Margir efuðust um að forsprakki sveitarinnar, W. Axl Rose, myndi láta sjá sig og þegar æstir áhorf- endur voru búnir að bíða í tæplega klukkutíma umfram auglýstan tíma, lét maðurinn loksins sjá sig. Honum var fagnað einstaklega vel og mér þótti frábært að fá loksins að sjá manninn sem heiðraði ungmeyj- ardrauma mína sem mest á árum áður. Hljómsveitin byrjaði á að spila ,,Welcome to the Jungle“ og eftir það rak hver smellurinn ann- an. Þó var ekki laust við að Slash og fyrri meðlima sveitarinnar væri saknað, Axl er farinn að eldast og má muna fífil sinn fegurri. Hann var með hræðilega hallærislegar gervifléttur í hárinu og mér þótti hann ekki gefa mikið af sér. Samt var gaman að sjá hann, rödd hans á sér enga líka og lögin standa alltaf fyrir sínu. Guns’n Roses spiluðu í rúmlega tvo klukkutíma, ný lög og gömul ásamt því að taka lög ann- arra sveita eins og til dæmis For- eigner. Afar áhugavert. Rígmontnir Íslendingar Þegar leið á kvöldið rölti ég yfir á Arena-sviðið sem Sigur Rós spiluðu á og ég verð að segja að það er al- veg með ólíkindum hvers konar áhrif hljómsveitin hefur á tónleika- gesti. Fyrir þá sem hafa aldrei séð Sigur Rós spila áður er það mikil upplifun að sjá hegðun aðdáenda sveitarinnar. Fólk baðaði út öllum öngum, sumir lögðust í jörðina hálf- grátandi á meðan aðrir föðmuðust eða fóru í eitthvert óskiljanlegt ástand. Við félagarnir stóðum í hnapp rígmontin yfir því að vera Ís- lendingar og brostum allan hring- inn. Þar sem Sigur Rós var síðasta hljómsveit kvöldsins fórum við nokkur í heimsókn til þeirra bak- sviðs, nutum gestrisni þeirra og skemmtum okkur saman fram á rauða nótt. Strákarnir voru afar ánægðir með tónleikana og lofuðu tónleikagesti mikið, en á tónleika Sigur Rósar mættu um tuttugu þús- und áhorfendur. Það var mikið um gleðskap á tjaldsvæðunum um nótt- ina, partítjöld hafa verið reist víða og sumir hafa tekið með sér hingað risavaxna magnara og spila úr þeim danstónlist fram undir morgun. Þögult diskótek Af tónleikum föstudagsins var það líklega koma Bob Dylans sem mér þótti mest um. Reyndar spiluðu Happy Mondays á sama tíma svo að mikið var um hlaup, sem betur fer eru sviðin ekki langt frá hvort öðru, því auðvelt er að eyðileggja fyrir sér dvölina hér með lúnum beinum. Hin færeyska Eivör Pálsdóttir spilaði í Roskilde Lo- unge, sem er lítið svið með sandi í stað gólfs undir tjaldinu. Þar spilaði hún ein og mátti sjá marga Íslend- inga og Færeyinga á hljómleikum hennar. Henni var fagnað vel og var hún afar sæl með tónleikana. Í kvöld fáum við m.a. að sjá Ka- nye West og uppáhaldið mitt, George Clinton. Það verður því mikið um hiphop og funk á þessum fallega laugardegi. Einnig koma fram sveitirnar Primal Scream og Tool sem njóta talsverðrar hylli. Á daginn þegar færri sveitir spila má finna sér ýmislegt skemmtilegt að gera. Hér er svo mikið af búðum og mörkuðum að ég gæti eytt allri hátíðinni þar án þess að leiðast. Hér er ótrúlega fyndið diskótek þar sem tónlistin kemur eingöngu úr heyrn- artólum sem maður fær við inngang þess en þá virðist sem allir séu að dansa í þögn. Hér er hár og mikill klifurveggur fyrir þá sem vilja klifra og margt fleira skemmtilegt. Með því kveð ég og held áfram að njóta þessarar skemmtilegu hátíð- ar. Tónlist | Hróarskelda: Annar dagur af fjórum 20.000 manns fylgdust með Sigur Rós AP Hljómsveitin Guns’n Roses með Axl Rose í broddi fylkingar lék á Gula sviðinu á fimmtudagskvöldið. Eftir Helgu Þóreyju Jónsdóttur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.