Morgunblaðið - 22.07.2006, Side 1
STOFNAÐ 1913 197. TBL. 94. ÁRG. LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
21Km
42Km
Km10
Km3
MARAÞON
REYKJAVÍKUR
GL
19.
Margræður
hversdagsleiki
Hulunni svipt af innsetningu
Hreins Friðfinnssonar | Menning
Lesbók | Sterkar stelpur og listin að lifa af Rúnir á Ís-
landi Börn | Líf og fjör á leikjanámskeiði Íþróttir | Garðar
til Norrköping Átta liða úrslit bikarkeppninnar
Eftir Bryndísi Sveinsdóttur
bryndis@mbl.is
ÍSRAELAR fluttu mikinn herafla að
landamærunum við Líbanon í gær-
kvöldi og sögðu embættismenn í
hernum að verið væri að undirbúa
hugsanlega innrás landhers inn í suð-
urhluta landsins til að brjóta Hizboll-
ah á bak aftur.
Herinn hafði fyrr um daginn kallað
til starfa þrjú þúsund menn úr vara-
liði hersins sem ekki gegna reglulegri
herþjónustu en mæta á vettvang ef
þörf krefur. Þá dreifði ísraelski her-
inn bæklingum til íbúa í suðurhluta
Líbanons þar sem þeir voru hvattir til
að yfirgefa svæðið tafarlaust. Þús-
undir Líbana í suðurhluta landsins
flúðu heimili sín í gær eftir viðvörun
Ísraela. Við landamærin mátti sjá
langar raðir ísraelskra skriðdreka og
brynvarinna ökutækja sem fluttu
hermenn á staðinn.
Elias Murr, varnarmálaráðherra
Líbanons, sagði að her landsins
myndi verjast ef Ísraelar gerðu inn-
rás en líbanski herinn hefur hingað til
ekki blandað sér í átökin.
Rice til Mið-Austurlanda
Condoleezza Rice, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sagðist í gær
myndu halda til Mið-Austurlanda á
sunnudag til að reyna að miðla mál-
um. Hún vildi ekki taka undir kröfur
annarra þjóðarleiðtoga um vopnahlé
án tafar ef það þýddi einungis að allt
færi í sama farið og áður en átökin
brutust út. Sagði hún aðra leiðtoga
hunsa það sem bandarísk stjórnvöld
teldu rót átakanna, stuðning Írana og
Sýrlendinga við Hizbollah. Ákveðið
hefur verið að halda ráðstefnu í Róm
á miðvikudag þar sem fulltrúar
Arabaþjóða, Evrópuþjóða, Banda-
ríkjanna og Sameinuðu þjóðanna
ræða ástandið fyrir botni Miðjarðar-
hafs.
Mikill herafli fluttur
að landamærunum
Reuters
Ísraelskir hermenn skjóta yfir landamærin að Líbanon í gærkvöldi.
Ísraelar | 14
Lundúnir. AFP. | Þrír af hverjum fjór-
um breskum stangveiðimönnum
vilja frekar fara í veiðitúr en sofa
hjá mökum sínum, samkvæmt nýrri
könnun. Þá vildi meira en helm-
ingur aðspurðra í könnuninni frek-
ar krækja í stóran lax eða silung en
eiga ástarfund með ofurfyrirsætu.
Einnig kom í ljós að stang-
veiðimennirnir eyddu að meðaltali
átta sinnum meira af peningum í
stangveiðibúnað en gjafir handa
mökum sínum. Þá viðurkenndu 46%
veiðimannanna að þeir segðu ósatt
um raunverulega stærð fiskanna
sem þeir veiddu til að ganga í aug-
un á félögunum.
Eitt þúsund manns tóku þátt í
könnuninni en bókaútgefandinn
Totesport stóð fyrir henni. „Lík-
lega eru stangveiðiekkjur víða um
landið sem kannast við þetta,“
sagði talsmaður Totesport.
Taka veiðina
fram yfir
ástarleiki
Morgunblaðið/Einar Falur
Stangveiðimenn vilja frekar
krækja í stóran fisk en eiga ástar-
fund með ofurfyrirsætu.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Mikill viðbúnaður var á slysstað af hálfu slökkviliðs og lögreglu.
Á innfelldu myndinni er bifreiðin sem valt. Í henni voru þrír far-
þegar, þar af eitt ungbarn sem slapp með skrámur.
Sjö fluttir á
slysadeild
SJÖ voru fluttir á slysadeild Landspítalans eftir
harðan árekstur tveggja fólksbifreiða á Suður-
landsvegi við Hólmsá á sjöunda tímanum í gær.
Tveir voru útskrifaðir með minniháttar meiðsl í
gærkvöldi, fjórir lagðir inn til framhaldsmeð-
ferðar og einn sendur í aðgerð vegna beinbrota.
Vakthafandi læknir á slysadeild sagði engan í
lífshættu og að líðan hinna slösuðu væri bærileg.
Að sögn lögreglu er rannsókn á tildrögum
slyssins á frumstigi. Talið er að bifreiðinni, sem
var á leið til Reykjavíkur, hafi verið ekið yfir á
rangan vegarhelming og hafnað á bifreið, sem
ekið var í gagnstæða átt, með þeim afleiðingum
að síðarnefnda bifreiðin kastaðist út í vegkant
og valt. Sjö sjúkrabílar voru sendir á vettvang
og fluttu þeir alls átta slasaða, fjóra með minni-
háttar meiðsl og fjóra meira slasaða. Auk þess
voru tveir tækjabílar slökkviliðsins sendir á
slysstað þar sem ökumaður annarrar bifreiðar-
innar og farþegi hinnar sátu fastir í bifreiðunum
eftir áreksturinn.
Allt tiltækt lið lögreglu í Reykjavík var kvatt
á vettvang, bæði til að aðstoða við flutning hinna
slösuðu og til að loka Suðurlandsveginum. Lög-
reglan lokaði hluta vegarins um klukkan hálfsjö
og opnaði hann tveimur tímum síðar. Í millitíð-
inni myndaðist mikil umferðarteppa og var um-
ferð til austurs beint um Heiðmörk en til vesturs
um Hafravatn. Að mati lögreglu gekk umferðin
þó mun betur en við mátti búast og vill hún
koma á framfæri þakklæti til ökumanna fyrir
mikla þolinmæði og tillitssemi.
Af vettvangi árekstursins
Harður árekstur á Suð-
urlandsvegi við Hólmsá
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is
Lesbók, Börn og Íþróttir