Morgunblaðið - 22.07.2006, Page 9

Morgunblaðið - 22.07.2006, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 9 FRÉTTIR Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 50% afsláttur af öllum sumarfatnaði iðunn tískuverslun Kringlunni, s. 588 1680 Laugavegi 40, s. 561 1690 Útsala 20-80% afsláttur Laugavegi 40 - Sími 561 1690 RALPH LAUREN Útsala Nú 50% afsláttur af dömu- og herrapeysum og gallabuxum Enn meiri verðlækkun á útsölu Bæjarlind 6 sími 554 7030 Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-15 opið alla daga RÍKISKAUP afhentu á fimmtudag Atlantsolíu umbeðin gögn varðandi rammasamninga um eldsneyti, olíur og aðrar rekstrarvörur fyrir ökutæki og vélar við Skeljung og Olíufélagið ESSO, frá apríl 2003 í samræmi við úrskurð úrskurðarnefndar um upp- lýsingamál í þessum mánuði. „Ríkiskaup vilja árétta að opinber innkaup eru háð ströngu regluverki, sem m.a. byggist á megin reglum til- skipana Evrópusambandsins um jafnræði og gegnsæi. Þar er einnig fjallað um trúnað við samningsaðilja varðandi viðkvæm viðskiptamál. Ríkiskaup leitast hverju sinni við að feta hinn mjóa veg trúnaðar við samningsaðila og kröfur utanaðkom- andi fyrirtækja um viðskiptaupplýs- ingar. Það er ekki ætíð sjálfgefið hvað eigi að afhenda af slíkum trúnaðarupplýs- ingum og hvað ekki. Í málum sem þessum er það því vinnuregla hjá Rík- iskaupum að láta reyna á slík álitamál hjá til þess settum úrskurðaraðila – Úrskurðarnefnd um upplýsingamál. Ríkiskaup fara að sjálfsögðu eftir úr- skurðum nefndarinnar hverju sinni. Ríkiskaup fagna komu nýrra við- skiptaaðilja á hvaða samkeppnis- markaði sem er sem varðar opinber innkaup. Fyrirtækið Atlantsolía er þar ekki undanskilið. Við bjóðum það velkomið til leiks í útboði um eldsneyti, en und- irbúningur þess hefst í haust,“ segir í yfirlýsingu frá Júlíusi S. Ólafssyni, forstjóra Ríkiskaupa. Ekki ætíð sjálfgefið að afhenda gögn „VIÐ teljum ákveðið ósamræmi vera í gögnunum sem gefa til kynna að það sé verið að taka annars veg- ar tiltölulega hagstæðu tilboði, og svo hins vegar óhagstæðara tilboði,“ segir Albert Þór Magnússon, fram- kvæmdastjóri Atlantsolíu, um rammasamning sem félaginu var nýlega afhentur af Ríkiskaupum í kjölfar ákvörðunar úrskurðarnefnd- ar um upplýsingamál. Rammasamningurinn sem snýr að eldneytiskaupum fyrir ríkið sem Ríkiskaup gerði við Skeljung og Ol- íufélagið árið 2003 og framlengdi á þessu ári, var afhentur Atlantsolíu eftir kröfu hennar. Félagið skoraði á Ríkiskaup að framlengja ekki samninginn við Skeljung og Olíufé- lagið á þeim forsendum að nýtt olíu- félag hefði bæst við. „Við höfum óskað eftir fundi með Júlíusi [Ólafssyni] hjá Ríkiskaupum til að skýra þennan mun, hvers vegna verið er að taka tilboði sem er óhagstæðara en annað sem lá fyrir. Það er alveg ljóst að við hefð- um getað boðið betur en þetta óhag- stæða tilboð,“ segir Albert er hann er spurður um næstu skref félags- ins í málinu. Albert tekur einnig fram ekki sé enn búið að fara nægilega yfir gögnin frá Ríkiskaupum og því vilji hann ekki fullyrða að um ósann- gjörn vinnubrögð hafi verið að ræða. „Það kunna að vera góð og gild rök fyrir því af hverju tveimur tilboðum er tekið og annað er óhag- stæðara en hitt,“ segir Albert og nefnir sem dæmi að kannski sé hlutfallið milli félaganna ójafnt í samningnum.“ Að lokum nefnir Albert að það sé ýmislegt annað athyglisvert í gögn- unum. „Yfirlýsingar þessara ágætu félaga um samkeppni og samvinnu þeirra á milli skjóta skökku við þær upplýsingar sem við höfum hingað til haft í höndum.“ „Ákveðið ósamræmi í gögnunum“ Morgunblaðið/Kristinn Unnið er að því að breyta miðlægri stýringu á umferðarljósum á helstu gatnamótum Reykjavíkurborgar, í samstarfi við Vegagerðina. Vinna að skilvirkari stýringu umferðarljósa FRAMKVÆMDIR vegna miðlægr- ar stýringar umferðarljósa í Reykjavík standa yfir þessa dag- ana í samvinnu Reykjavíkurborgar og Vegagerðarinnar. Um er að ræða mjög umfangsmiklar fram- kvæmdir því skipta þarf út eða uppfæra stýribúnað umferðarljósa á rúmlega 30 gatnamótum. Vegna þessarar vinnu hefur eldri sam- hæfing umferðarljósa ekki verið virk á nokkrum stöðum í borginni og hefur það eðlilega valdið rösk- un á umferð. Sérstaklega hefur þetta verið áberandi á Suðurlands- braut. Við framkvæmdirnar er haft náið samráð við lögreglu og sér hún um umferðarstjórn ef þess gerist þörf. Ávinningur af nýja kerfinu verð- ur mikill því það býður upp á sveigjanlegri stillingu umferð- arljósa eftir tíma dags og umferð- arþunga. Þannig fæst betri stýring á samhæfingu umferðarljósa á til- teknum umferðarleiðum, svo- nefndum „grænum bylgjum“. Í nýja stjórnkerfinu sem tengt verður seint í haust verða allar breytingar á stillingu umferð- arljósa gerðar miðlægt. Skynjarar sem settir verða í götur mæla um- ferð og miðla til stjórntölvu og verður þannig hægt að stýra ljós- um eftir því hvernig umferð- arflæði breytist. Auk þess mun kerfið vakta og tilkynna um allar bilanir til réttra aðila. Stýritölva fyrir umferðarljósin verður sett upp hjá Framkvæmdasviði Reykja- víkurborgar. Frekari upplýsingar er að finna á www.rvk.is/fs. Skerpt á reglum um löggæslu á útihátíðum DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hef- ur sent erindisbréf til lögreglustjóra vegna útgáfu skemmtanaleyfa til útihátíða, með sérstöku tilliti til verslunarmannahelgar. Í bréfinu eru reglur um hátíðarhöldin skerpt- ar og þá sér í lagi reglur er gilda um endurgreiðslu löggæslukostnaðar á útihátíðum um verslunarmanna- helgi. Samkvæmt hinu nýja erindisbréfi skal sá er fyrir skemmtun stendur endurgreiða lögreglustjóra þann kostnað sem leiðir af aukinni lög- gæslu vegna skemmtunar umfram það sem eðlilegt má telja. Við mat á því hvað eðlilegt megi teljast ber lög- reglustjóra að líta til reynslu fyrri ára af sambærilegum skemmtunum, þeim fjölda sem búist er við að sæki skemmtun, viðbúnaði leyfishafa vegna skemmtunar, hvort áfengi verði leyft á skemmtun og hvort skemmtunin fari fram í dreifbýli eða þéttbýli. Tveir lögreglumenn að jafnaði Í bréfinu kemur fram að tveir lög- reglumenn verði að jafnaði við al- menn löggæslustörf í nágrenni skemmtunar og greiðist kostnaður af störfum þeirra af ríkissjóði. Ef þörf er á fleiri lögreglumönnum en tveimur, eða gestum er heimill að- gangur að skemmtun eftir klukkan 23:30 skulu handhafar skemmtana- leyfis endurgreiða allan löggæslu- kostnað er hlýst af skemmtuninni. Síðastliðin þrjú ár hefur Björn Bjarnason dómsmálaráðherra sent lögreglustjórum viðmiðunarreglur um útgáfu skemmtanaleyfa útihátíða en vegna aukinnar umræðu um drykkjulæti á útihátíðum telur dómsmálaráðuneytið ástæðu til að ætla að almennar reglur sem skipu- leggjendum hátíðanna ber að fylgja séu ekki virtar nægilega. Því hafi verið brugðið á það ráð skerpa rétt- arstöðuna og gefa út nýtt erindisbréf til lögreglustjóra þar að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.