Morgunblaðið - 22.07.2006, Síða 48

Morgunblaðið - 22.07.2006, Síða 48
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122 LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK. MEIRIHLUTINN í bæjarráði Álftaness samþykkti sl. fimmtudag að fela bæjarstjóra að ganga frá samkomulagi um slit á samningum við Hjúkrunarheimilið Eir um fyr- irhugaða uppbyggingu á miðsvæði sveitarfélagsins. Var m.a. fyrirhug- uð uppbygging rúmlega 100 þjón- ustuíbúða og miðstöðvar fyrir eldri borgara. Samþykkti bæjarráð að hefja undirbúning að samningum skoða skipulagið og efna til nýrrar hugmyndasamkeppni. Eir telji sig ekki geta beðið eftir niðurstöðu hennar og því hafi orðið að sam- komulagi að slíta samstarfinu. „Þetta er allt gert í mikilli frið- semd,“ sagði Vilhjálmur. Hann sagði Eir hafa það verkefni nú að byggja öryggisíbúðir í Mosfellsbæ og einnig standi til að byggja þar hjúkrunarheimili fyrir 40 manns, en Mosfellsbær á aðild að Eir. einungis farið fram á greiðslu út- lagðs kostnaðar. Skömm á niðurstöðu Á-listans Guðmundur G. Gunnarsson, fyrrv. bæjarstjóri og fulltrúi minni- hlutans, gagnrýndi samningsslitin á fundi bæjarráðs og segist í bókun hafa skömm á þessari niðurstöðu fulltrúa Á-listans. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, borgarstjóri og stjórnarformaður Eirar, segir að bæjaryfirvöld á Álftanesi hafi ákveðið að endur- við Arkitektafélag Íslands um sam- keppni um nýtt deiliskipulag svæð- isins. Sigurður Magnússon bæjar- stjóri segir að ætlunin sé að ráðast í hliðstæða uppbyggingu sem taki mið af aðstæðum á svæðinu og m.a. verði reistar allt að 40 þjónustu- íbúðir fyrir aldraða á miðsvæðinu. Fram kom á fundinum að for- stöðumanni Eirar hefur verið falið af stjórn Eirar að ganga frá samn- ingsslitum og að Eir hafi ekki kraf- ist skaðabóta vegna slita heldur Samningum slitið við Eir um uppbyggingu á Álftanesi  Bæjarráð | 11 Eftir Ómar Friðriksson og Guðna Einarsson MIÐAÐ við hvernig mál hafa þróast kæmi ekki á óvart þótt Pólverjar yrðu fyrir valinu frekar en Íslendingar, segir Guðmundur Jóhannes- son, annar byggingarstjóra Íslenskra aðal- verktaka við Grand hótel, um hvað gerist þeg- klukkan hálfátta og unnið er til sjö á kvöldin – og til fjögur á laugardögum. „Það fengjust ekki Íslendingar til að vinna á þessum tímum,“ segir Gísli Guðmundsson, hinn byggingarstjór- inn við Grand hótel. | Miðopna ar samdráttarskeið tekur við af þeirri þenslu sem verið hefur í atvinnulífinu að undanförnu. Um 30 Pólverjar vinna hjá ÍAV við fram- kvæmdir á viðbyggingu hótelsins og eru að sögn harðduglegir. Vinnudagur þeirra hefst Morgunblaðið/Eggert Harðduglegir Pólverjar í byggingarvinnu MINNKANDI eftirspurn á fasteigna- markaði er farin að hafa nokkur áhrif á byggingariðnaðinn. Framkvæmdir eru enn miklar en úr þeim hefur þó eitthvað dregið. Yfirvinna er minni en áður og hætt hefur verið við einhver verkefni eða þeim frestað. Í samtölum við Morgunblaðið sögðu þeir Vilhjálmur Egilsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, og Halldór Jónasson, félagslegur starfsmað- ur Trésmiðafélags Reykjavíkur, að líklega yrði töluverður samdráttur í byggingar- iðnaði um næstu áramót. Halldór telur ein- sýnt að nokkuð atvinnuleysi muni fylgja. Hann gagnrýnir einnig viðbrögð stjórn- valda. | 8 Breytt um- hverfi í bygg- ingariðnaði „LANGSTÆRSTUR hluti málsins er frá með þessum dómi Hæstaréttar,“ sagði Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, forstjóra Baugs Group, eftir að Hæstiréttur hafði staðfest úrskurð héraðsdóms Reykjavíkur frá 30. júní sl. um að vísa skuli frá dómi fyrsta ákærulið af nítján í endurákæru Baugsmálsins. Í ákæruliðnum er Jón Ásgeir sak- aður um fjárdrátt, en til vara um- boðssvik, í atburðarás sem endaði með að Baugur eignaðist Vöruvelt- una, sem átti og rak 10–11-verslanirn- ar. Sigurður Tómas Magnússon, sett- ur saksóknari, kærði úrskurð héraðsdóms en Hæstiréttur staðfesti hann í gær með tilvísun til forsendna Arngríms Ísberg héraðsdómara. Komst hann að þeirri niðurstöðu að í 1. ákærulið hafi ekki verið lýst auðg- unarbroti heldur viðskiptum sem kunni að hafa verið óhagstæð fyrir Baug hf. en hagstæð Jóni Ásgeiri. Þar sem ekki hafi komið skýrt fram hvernig verknaðurinn sem lýst er í ákærunni falli undir skilgreiningu á fjárdrætti hafi því verið óhjákvæmi- legt að vísa liðnum frá. Verjendur Jóns Ásgeirs, Tryggva Jónssonar og Jóns Geralds Sullen- berger kærðu einnig ákvörðun hér- aðsdóms um að hafna kröfu um frá- vísun málsins í heild sinni en kærunni var vísað frá á þeirri forsendu að ákvörðunin væri ekki kæranleg til Hæstaréttar samkvæmt lögum um meðferð opinberra mála. Úrskurður héraðs- dóms staðfestur Viðamesta ákærulið í endurákæru Baugs- málsins vísað frá dómi  Viðamesta | 4 TINNA Pétursdóttir, grafískur umbúðahönnuður, hefur náð góðum árangri á Ítalíu þar sem hún hefur verið við nám í Mílanó undanfarin ár og m.a. fengið góða umfjöllun í ítölsku tímariti, auk þess sem flaska sem hún hannaði er nú komin í framleiðslu fyrir ítalska gæðavatnsfyrirtækið Norda, en flaskan hafði áður fengið önnur verðlaun í hönnunarkeppni. „Í sumarbyrjun fékk ég tölvupóst frá ítalska fyrirtæk- inu Norda sem framleiðir gæðavatn,“ segir Tinna. „Þar var mér boðið að vera viðstödd afhjúpun flösku í Mílanó sem ég hafði hannað í einni keppninni og valin hafði verið undir framleiðslu fyrirtækisins.“ Hún segir þetta hafa komið sér verulega á óvart enda hafi enginn látið hana vita að þetta væri á döfinni. „En svo sannarlega var þetta óvænt ánægja,“ segir Tinna sem komst því miður ekki í hófið til heiðurs flöskunni, sem hlotið hefur nafn hönnuðarins – Tinna. Ilmvatnsglas sem Tinna hannaði úr svörtu gleri fyrir hina ofurríku, þar sem glasið eitt getur kostað tugi þúsunda, hlaut 2. verðlaun í annarri keppni og voru Tinna og hönnunin í kjölfarið tekin til umræðu hjá ítalska fagtíma- ritinu Imagine. | Daglegt líf Tinna Pétursdóttir Hannar flöskur fyrir ítalskt vatn ÞORGERÐUR Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra mun gegna embætti forsætisráðherra dag- ana 24. júlí til 7. ágúst næstkomandi í fjar- veru Geirs H. Haarde forsætisráðherra sem þá verður erlendis í sumarleyfi. Eftir því sem næst verður komist mun þetta vera í fyrsta skipti sem kvenmaður mun gegna emb- ætti forsætisráðherra hér á landi. Þorgerður Katrín for- sætisráðherra Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir ÍSLANDSVINIR hafa slegið upp tjald- búðum á tjaldsvæðinu við Snæfellsskála annað árið í röð en í gærkvöldi voru þar saman komnir um hundrað manns vegna fyrirhugaðrar Íslandsvinagöngu um Kárahnjúkasvæðið í dag. Göngunni mun ljúka með þögulli mót- mælastöðu við Kárahnjúkastíflu en hún markar upphaf Fjölskyldudaga Íslands- vina sem standa til 31. júlí næstkomandi. Tilgangur daganna er að gefa fólki kost á að upplifa náttúru Kárahnjúkasvæðisins áður en áformað er að fylla Hálslónið í haust. Íslandsvinir komnir að Kárahnjúkum ♦♦♦ ♦♦♦

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.