Morgunblaðið - 22.07.2006, Blaðsíða 11
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
MEIRIHLUTINN í bæjarráði
Álftaness samþykkti á fundi sl.
fimmtudag að fela bæjarstjóra að
ganga frá samkomulagi um slit á
samningum við Hjúkrunarheimilið
Eir um fyrirhugaða uppbyggingu á
miðsvæði sveitarfélagsins. Var m.a.
fyrirhuguð uppbygging þjónustu-
íbúða og miðstöðvar fyrir eldri borg-
ara. Einnig var samþykkt að hefja
undirbúning að samningum við Arki-
tektafélagið um arkitektasamkeppni
um deiliskipulag svæðisins.
Guðmundur G. Gunnarsson, Sjálf-
stæðisflokki og fulltrúi minnihlut-
ans, gagnrýndi samningsslitin á
fundinum og lagði fram bókun þar
sem hann sagðist hafa skömm á
þessari niðurstöðu fulltrúa Á-listans.
Hliðstæð uppbygging
Sigurður Magnússon bæjarstjóri
segir að ætlunin sé að ráðast í hlið-
stæða uppbyggingu sem taki mið af
aðstæðum á svæðinu og m.a. verði
reistar 40 þjónustuíbúðir fyrir aldr-
aða á miðsvæðinu. „Þetta hefur legið
í loftinu nokkuð lengi,“ segir Sigurð-
ur. „Það var gerður rammasamning-
ur við Eir vorið 2004. Þeir ætluðu að
hefja þarna uppbyggingu 2005 sem
varð ekki af og urðu miklar deilur
um þetta skipulag í sveitarfélaginu.
Fráfarandi meirihluti frestaði fram-
kvæmdum á liðnum vetri. Við höfð-
um áhuga á að fara betur ofan í þessa
hluti og óskuðum eftir því við Eir en
þar er komin, kannski skiljanlega,
upp þreyta og ýmis önnur verkefni
eru aðkallandi hjá þeim. Ég get ekki
annað en borið þeim vel söguna. Þeir
hafa tekið þessu ósköp vel en vilja
vera lausir en hafa haft orð á því að
ef við viljum kalla þá til aftur þegar
við höfum lokið okkar skipulags-
vinnu, þá sé hægt að skoða það.“
Sigurður segir að fyrrverandi
meirihluti hafi með samningunum
ætlað að ráðast í meiri uppbyggingu
en núverandi meirihluti telji að sé
fjárhagslega skynsamlegt. Þ.á m.
voru áform um byggingu stjórn-
sýsluhúss. Að áliti núverandi meiri-
hluta sé brýnna að ráðast fyrst í
skóla og íþróttamannvirki og for-
gangsraða verkefnunum. „Næstu
skref eru ákveðin. Við ætlum að fara
í arkitektasamkeppni um svæðið í
haust með Arkitektafélagi Íslands
og gefum okkur eitt ár til að skipu-
leggja þetta svæði að nýju. Í þeirri
skipulagningu verður gert ráð fyrir
uppbyggingu fyrir eldri borgara, allt
að 40 þjónustuíbúðir á miðsvæðinu í
stað 100 sem gert var ráð fyrir í
pakkanum með Eir, og einnig þjón-
ustumiðstöð. Farið verður í upp-
bygginguna fyrir eldri borgara
haustið 2007 og má því segja að því
verkefni sé frestað um eitt ár.“
Sigurður segir að slit samningsins
við Eir feli ekki í sér kostnaðarsöm
útgjöld fyrir sveitarfélagið. „Okkur
tókst að ná samningum við Eir um að
það verður ekki um neinar skaða-
bætur að ræða og verktakar hafa
ekki sett fram neinar slíkar kröfur.
Hvað Eir varðar þá keyptu þeir af
okkur lóð sem þarf að leysa út aftur
og svo verður um fjármagnskostnað
að ræða. Einnig þarf að greiða þeim
fyrir hönnun sem þeir voru farnir að
vinna fyrir okkur. Hugsanlega nýtist
hún okkur þó líka í framhaldinu.“
Óskapleg vonbrigði
Guðmundur segir þessa niður-
stöðu óskapleg vonbrigði. Hann seg-
ist telja að sú samtvinning verkefna
og samnýting í rekstri sem áætlan-
irnar með Eir gerðu ráð fyrir séu
einsdæmi á landinu. „Nú tekur við
óvissutími þar sem þeirra áætlanir
ganga líka út á að fleygja nýja deili-
skipulaginu út í hafsauga og láta fara
fram samkeppni um nýtt deiliskipu-
lag. Ég tel að það muni taka tals-
verðan tíma. Fjárhagsleg staða bæj-
arsjóðs er því líka í uppnámi fyrir
vikið. Þetta er mjög alvarlegt mál en
við þessu er ekkert að gera. Svona er
bara pólitíkin.“
Bæjarráð Álftaness slítur samningum
við Eir um uppbyggingu á miðsvæðinu
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 11
FRÉTTIR
DEILUR meirihluta og minnihluta um samningsslitin við
Eir koma fram í bókunum á fundi bæjarráðs Álftaness.
„Þar sem bæjarstjóra hefur nú, á fáum dögum í starfi,
tekist að hrekja Hjúkrunarheimilið Eir úr samstarfi við
Álftanes, lýsi ég fullri ábyrgð á hendur fulltrúum Á-lista.
Þessi stórkostlegi og hagstæði samningur frá árinu 2005
um framkvæmdir fyrir Álftnesinga og einkum eldri
íbúa, var mikið framfaraspor í uppbyggingu á Álfta-
nesi,“ segir í bókun Guðmundar G. Gunnarssonar, full-
trúa D-listans. „Þrátt fyrir þessi slit eru mikil tækifæri
til að standa myndarlega að uppbyggingu á þjónustu við
eldri borgara á miðsvæðinu og verður þegar hafist
handa við uppbyggingu sem verður hluti af arkitektasamkeppni,“ segir í
bókun Margrétar Jónsdóttur, formanns bæjarráðs.
Tekist er á um uppbyggingu og
skipulag á miðsvæði Álftaness
Deilt er um mið-
svæði Álftaness.
KARLI og konu sem handtekin
voru á Keflavíkurflugvelli fyrir
þremur vikum með eitt kíló af kók-
aíni í fórum sínum hefur verið
sleppt úr gæsluvarðhaldi. Hörður
Jóhannesson, yfirlögregluþjónn í
Reykjavík, segir að málið teljist
upplýst.
Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli
stöðvaði parið við komuna til lands
frá Frankfurt við hefðbundið eft-
irlit og kom í ljós að þau höfðu falið
fíkniefnið í skóm sínum. Þau höfðu
holað þykka skósóla og komið efn-
inu þar fyrir.
Þá hefur gæsluvarðhald verið
framlengt yfir ungum manni sem
rændi verslun Krónunnar í Mos-
fellsbæ um síðustu helgi, fram til 1.
september. Hann er síbrotamaður
og segir Hörður hann eiga annað
mál í kerfinu. Maðurinn hafi kært
gæsluvarðhaldsúrskurðinn.
Laus úr gæslu-
varðhaldinu
LÖGREGLAN í Reykjavík segir að
sóðaskapur í umferðinni sé eitt
þeirra vandamála sem lögreglan
taki á. Nokkuð beri á því að öku-
menn hendi rusli á götur borg-
arinnar en slíkt er með öllu óheim-
ilt. Í sumar hafa allnokkrir
ökumenn verið sektaðir fyrir að
henda sígarettustubbum á götur
borgarinnar en slíkur sóðaskapur
er brot á lögreglusamþykkt.
Lögreglan segir að umdeilanlegt
sé hvort notkun vetrardekkja um
hásumar flokkist sem sóðaskapur
en það sé a.m.k. trassaskapur. Í vik-
unni hefur lögreglan stöðvað för
þriggja ökumanna, sem allir voru á
bílum búnum vetrardekkjum.
Sektaðir fyrir
sóðaskap
LÖGREGLAN á Akranesi hefur
sent flestum atvinnurekendum á fé-
lagssvæði Verkalýðsfélags Akra-
ness bréf þar sem er áréttað að um-
talsverðar skyldur hvíla enn á þeim
atvinnurekendum sem ráða til sín
erlenda starfsmenn frá hinum nýju
aðildarríkjum EES, þó svo að kvöð
um atvinnuleyfi sé ekki lengur fyrir
hendi.
Formaður Verkalýðsfélags Akra-
ness fagnar þessu framtaki lögregl-
unnar á heimasíðu félagsins. Hann
segir mjög gott eftirlit á Akranesi
með að lögum um atvinnuréttindi
útlendinga sé framfylgt.
Áréttar skyldur
atvinnurekenda
EITT af því sem tilheyrir utan-
landsferðum okkar Íslendinga er
að láta smámynt af hendi til tón-
listarmanna sem hafa tekið sér
stöðu á fjölfarinni götu og leika
tónlist af miklum móð. Und-
anfarna daga hafa margir sem
hafa lagt leið sína í matvöruversl-
anir á höfuðborgarsvæðinu orðið
varir við slíkan farandspilara sem
leikur á harmonikku af innlifun.
Er þar um að ræða hinn brosmilda
Gheorghe sem hefur lagt á sig
ferð alla leið frá Rúmeníu til að
gleðja eyru Reykvíkinga.
Gheorghe hefur komið víða við
með harmónikugarminn og leikið
á hljóðfæri sitt í flestum stór-
borgum álfunnar. Hann ber Ís-
landi söguna sérstaklega vel, enda
situr hann einn um hituna hér og
fær óskipta athygli, öfugt við það
sem tíðkast annars staðar í Evr-
ópu. Gheorghe hyggst snúa aftur
heim til fjölskyldu sinnar á mánu-
daginn og fer því hver að verða
síðastur að berja þessa skemmti-
legu viðbót við menningarflóru
Reykjavíkur augum.
Leikur á nikkuna
fyrir gesti og gangandi
Morgunblaðið/Jim Smart
FLUGUMFERÐARSTJÓRAR
furða sig á yfirlýsingum Flugmála-
stjórnar um að þeir hafi hafnað til-
boði um nýtt fyrirkomulag vakta í
flugstjórnarmiðstöðinni í Reykjavík.
Í tilkynningu frá Félagi íslenskra
flugumferðarstjóra segir að þeim
hafi aldrei verið boðið upp á samn-
inga um breytt vaktafyrirkomulag –
þvert á móti hafi Flugmálastjórn
lýst því yfir að slíkt væri ekki samn-
ingsatriði heldur gæti hún einhliða
ákveðið vaktafyrirkomulagið. Félag-
ið hafi hins vegar ítrekað boðist til að
semja um málið og það tilboð standi
enn.
„Í mars sl. ákvað Flugmálastjórn
einhliða nýtt vaktafyrirkomulag
gegn hörðum mótmælum félagsins.
Félagið taldi að slíkar breytingar
hlytu að vera samningsatriði og ekki
viðunandi fyrir starfsfólk að una
geðþóttaákvörðunum yfirmanna
sinna í þeim efnum. Félagið skoraði
á Sturlu Böðvarsson samgönguráð-
herra að gefa fyrirmæli til Flug-
málastjórnar um að hafa fullt sam-
ráð við starfsmenn um nýtt
fyrirkomulag vakta,“ segir m.a. í til-
kynningunni.
Samráð við starfsfólk
Félagið segir grundvallarsjónar-
mið flugumferðarstjóra í málinu
vera á þá leið að stjórnendur verði og
eigi að hafa samráð við starfsfólk sitt
um tilhögun vakta utan hefðbundins
dagvinnutíma. Þá geti félagið alls
ekki sætt sig við nýtt vaktakerfi sem
kveði á um aðeins fjögur helgarfrí á
ári enda sé slíkt engan veginn í sam-
ræmi við þá fjölskyldustefnu sem
Flugmálastjórn hafi samþykkt.
„Félag íslenskra flugumferðar-
stjóra vill að lokum árétta að það er
fyrir sitt leyti tilbúið að setjast niður
strax í dag til að semja um nýtt og þá
vonandi betra vaktafyrirkomulag en
það vaktakerfi sem var við lýði fyrir
16. mars 2006,“ segir í tilkynningu
flugumferðarstjóra.
Flugumferðarstjórar segj-
ast ekki hafa fengið tilboð
Morgunblaðið/Arnaldur
Flugumferðarstjóri að störfum.
MAGNÚS Stefánsson félagsmála-
ráðherra hefur skipað starfshóp til
að fjalla um réttarstöðu eigenda og
íbúa frístundahúsa samkvæmt gild-
andi lögum og reglugerðum og gera
tillögur um nauðsynlegar breytingar
ef þörf krefur.
Starfshópnum
er falið að kanna
hvort þörf sé á að
semja heildstæða
löggjöf um frí-
stundahús eða
réttarstöðu eig-
enda og íbúa
slíkra húsa. Með-
al atriða sem til
álita kemur að
slík löggjöf taki
til eru samskipti sveitarfélaga og
sumarhúsaeigenda, réttur sumar-
húsaeigenda gagnvart landeigend-
um, skipulag þjónustu á vegum op-
inberra aðila og öryggi þeirra sem
dvelja í frístundahúsum.
Í hópnum eru: Haraldur Bene-
diktsson, formaður Bændasamtak-
anna; Ingibjörg Halldórsdóttir, lög-
fræðingur í umhverfisráðuneytinu;
Jana Friðfinnsdóttir, lögfræðingur
hjá Sambandi íslenskra sveitarfé-
laga; Skúli Guðmundsson, skrif-
stofustjóri í dóms- og kirkjumála-
ráðuneytinu; Sveinn Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Landssambands
sumarhúsaeigenda, og Gylfi Krist-
insson, skrifstofustjóri í félagsmála-
ráðuneytinu, sem er formaður.
Gert er ráð fyrir að starfshópur-
inn skili tillögum fyrir 1. mars 2007.
Nefnd
um sum-
arhús
Magnús Stefánsson
LANDSPÍTALINN hefur ekki
ákveðið hvort hann áfrýjar niður-
stöðu héraðsdóms í máli Stefáns
Matthíassonar fyrrverandi yfirlækn-
is á LSH. Jóhannes M. Gunnarsson
lækningaforstjóri segir að málið sé í
höndum lögfræðinga. Hann útilokar
ekki að samið verði um þann ágrein-
ing sem verið hefur milli Stefáns og
spítalans, en tekur fram að ef það
verði gert verði ekki um samskonar
samning og í máli Tómasar Zoëga yf-
irlæknis.
Enn ósamið í
máli Stefáns
♦♦♦