Morgunblaðið - 22.07.2006, Page 16

Morgunblaðið - 22.07.2006, Page 16
Seyðisfjörður | Einstök veðurblíða hefur verið á Austurlandi undanfarna daga, sumarið í heild hefur raunar verið afar gott og ekki yfir neinu að kvarta þegar blessuð sólin skín, eins og skáldið orðaði það. Hlýtt og gott hefur verið yfir daginn en næturnar hafa líka verið hlýjar, iðulega hefur verið á milli 14 og 18 stiga hiti að næturlagi og þá fá þeir sem ekki sofa að líta listaverk í háloftunum. Einnig er til- komumikil sjón að líta út fjörðinn líkt og þessi mynd sýnir, en hún var tekin eina kyrra sumarnótt í vik- unni á Seyðisfirði. Sjónarspilið er ógleymanlegt þeim sem vaka og njóta. Há fjöll beggja vegna fjarð- ar skýla mjög fyrir vindi og veðrum þannig að veðr- ið verður oft hvergi betra en einmitt þar í skjólinu. Morgunblaðið/Einar Bragi Seyðfirskt sjónarspil að næturlagi Sumarnótt Árborg | Akureyri | Landið Minnstaður Höfuðborgarsvæðið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is sími 569-1100. Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri sími 569-1100, Skapti Hallgrímsson, skapti@mbl.is, 669-1114. Vesturland Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290. Mínstund frett@mbl.is Síðustu daga hefur verið bjart yfir Breiða- firði. Í vikubyrjun birti upp og sólin tók að skína, sólin sem við höfum lítið orðið var við fyrr á þessu sumri. Fólk hefur verið að rifja upp hvort svona rigningatíð hafi verið áður á þessum tíma og ef svo væri hvenær það hafi verið. Vorið var kalt og þurrt, og í byrjun júní byrjaði að rigna og það hefur vart stytt upp síðan fyrr en í vikubyrjun. Til marks um tíðarfarið er haft eftir Haf- steini í Flatey að hann telji þetta versta sumarið upp á vætu og vind að gera, þau 40 ár sem hann hefur búið þar. Síðustu dagar gefa vonir um að sumarið sé loksins komið.    Dúntekja var víðast hvar minni í eyjunum við sunnanverðan Breiðafjörð, en und- anfarin ár. Þar hefur tíðarfarið afgerandi áhrifavaldur. Þeir æðarbændur sem náðu að hirða dúninn áður en lagðist í rigningar sluppu nokkuð vel, en hjá hinum skemmd- ist dúnninn af bleytu og gæðin eru rýrari. Fyrirtækið Íslenskur æðardúnn ehf sem hefur starfrækt dúnhreinsun að Læk í Dýrafirði í mörg ár er að flytja starfsemi sína til Stykkishólms. Vélar og tæki komu hingað í vikunni og er farið að setja þau upp á nýjum stað. Það er Erla Friðriks- dóttir, bæjarstjóri og Friðrik, faðir henn- ar sem eru þar í forsvari. Erla hefur séð um sölumálin frá upphafi og hefur verið í góðu sambandi við Japani sem eru aðal kaupendurnir. Þau fegðin segja að starf- semin hefjist af fullum krafti eftir nokkra daga og eru þau ánægð með að geta skap- að ný atvinnutækifæri í bæjarfélaginu.    Ný Breiðafjarðarferja hefur komið að góð- um notum í sumar og notið vinsælda. Gamli Baldur náði engan veginn að þjóna umferðinni yfir Fjörðinn yfir sumartím- ann. Það hefur komið forsvarsmönnum Baldurs skemmtilega á óvart hve margir taka sér far með ferjunni á leið í sum- arfríið. Þeir segjast vera kljást við sama vandann og undanfarin ár að koma sem flestum bílum á þilfarið, en núna komast meira en helmingi fleiri bílar um borð í nýja Baldur. Í gær, föstudag, fóru með Baldri yfir 100 farartæki, Úr bæjarlífinu STYKKISHÓLMUR EFTIR GUNNLAUG ÁRNASON Nú í sumar líkt ogvar síðastliðiðsumar býður Sögusetrið á Hvolsvelli upp á dagskrá sem nefnist Njála með sunnudags- kaffinu. Um er að ræða fyrirlestraröð þar sem fengnir verða virtir fyr- irlesarar til að flytja pistla í Víkingasal setursins og á eftir geta gestir rabbað saman um efnið. Fyrsti fyrirlesturinn á þessu sumri verður á sunnudag, 23. júlí en þá mun Einar Karl Haraldsson ráðgjafi flytja fyrirlestur sem hann nefnir; Nýjustu fréttir af mér og Njálu. Sverrir Jak- obsson sagnfræðingur verður svo næstur í röð- inni með fyrirlesturinn; Tengslanet Flosa Þórð- arsonar. Hann verður fluttur 30. júlí. Pétur Gunnarsson rit- höfundur mætir svo í Sögusetrið 6. ágúst með erindi sem hann nefnir Um kristni og kynlíf í Brennu-Njálssögu. Krist- rún Heimisdóttir lögfræð- ingur flytur fjórða Njálu- fyrirlestur sumarsins, … ólög eyða – um lög og réttlæti í Njálu, sunnudag- inn 13. ágúst. Loks mun Gísli Sigurðsson íslensku- fræðingur flytja fyr- irlestur sem nefnist Sjó- leiðahandbókin Njála, sunnudaginn 20. ágúst. Sigrún Ragnheiður Ragnarsdóttir, for- stöðumaður Söguseturs- ins, segir fyrirlestrana hafa verið vel sótta á liðnu sumri. Morgunblaðið/Steinunn Ósk Njála með sunnudags- kaffinu á Sögusetri Njálusöngleikur Atriði úr söngleiknum, fremstur er Jón Smári Lárusson sem leikur Gunnar á Hlíðarenda. Rúnar Kristjánsson,hagyrðingurinngóðkunni á Skagaströnd, yrkir um ástandið í þjóðfélaginu, sem hann er ekki alls kostar sáttur við: Valdið hefur sút og sekt, síst til hjálpar beysið, fyrr og síðar fjandalegt, fyrirhyggjuleysið. Ennfremur: Það er ljóst að þjóðmenning þroskar gengið eina, gefur brjóst sem góðmenning gegnum strengi hreina. Loks yrkir Rúnar Kristjánsson: Margt á þingi þarf sitt svar þegar bjóðast föngin. Oft er sem menn ætli þar inn í Strákagöngin! Einhvern tíma átti hag- yrðingur leið yfir Hesta- kleif og gerði vísu: Hestakleif er hábölvuð, hnúkar og slæmur vegur. Hafi’ hana skapað góður guð, það gert mun hafa tregur. Af fyrir- hyggjuleysi pebl@mbl.is HÚSVÍKINGAR og gestir þeirra munu gera sér glaða daga í næstu viku. Þeir spyrða saman tvær hátíðir, Sænska daga og Mærudaga, og bjóða upp á fjölbreytta dagskrá alla vikuna. Sænsku dagarnir er liður í uppbyggingu Garðarshólma, en hann á upphaf í sögnum um Svíann Garðar Svavarsson og þræl hans, Náttfara, sem námu land á Skjálf- andasvæðinu kringum árið 870. Hugmyndir eru um að með framþróun Garðarshólma skapist miðpunktur menn- ingar, þekkingar og upplifunar sem taki mið af því landi sem birtist ferðalöngunum. Þessu sjónarhorni er ætlað að spegla Ís- land í dag og hugmyndir um þróun og sam- spil náttúru og manns eftir landnám, segir í frétt um hátíðina. Forseti opnar sýningu á sænsku glerlistagjöfinni Valgerður Sverrisdóttir utanríkisráð- herra opnar Húsavíkurhátíðina formlega á mánudag, 24. júní, og verður sænskur kon- súll útnefndur í tengslum við þann atburð. Meðal dagskrárliða má nefna sýningu á sænsku glerlistagjöfinni, sem afhent var á Íslandi árið 2004 af hans hátign Carl Gust- af XVI konungi, en forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, opnar sýninguna. Þá verða í boði fyrirlestrar, verkstæði með leiðsögn Svía, sirkusskóli, siglingar, leiksýningar, skútusigling í Náttfaravík og sænskur matur á veitingastöðum í bænum. Húsavíkur- hátíð alla næstu viku ÓBYGGÐANEFND hefur nú til meðferð- ar landsvæði á Norðurlandi sem tekur til Grýtubakkahrepps, Svalbarðsstrandar- hrepps, Þingeyjarsveitar, Skútustaða- hrepps, Aðaldælahrepps, Tjörneshrepps og þess hluta hins nýja sveitarfélags Norð- urþings sem áður tilheyrði sveitarfélögun- um Húsavíkurkaupstað og Keldunes- hreppi. Auk þess fellur svokölluð Krepputunga innan afmörkunar svæðisins, en hún var á sínum tíma skilin frá svæði 5 hjá óbyggðanefnd. Fjármálaráðherra fyrir hönd íslenska ríkisins hefur verið veittur frestur til 15. september nk. til að lýsa kröfum um þjóð- lendur á umræddu svæði, sé um slíkar kröfur að ræða. Frestur til að lýsa kröfum nyrðra ♦♦♦ Drangsnes | Mireya Samper mynd- listarmaður hefur dvalið á Drangs- nesi á Ströndum undanfarna daga, unnið þar að list sinni og opnar sýn- ingu þar á morgun, laugardag, á svonefndri Bryggjuhátíð. Verkin vinnur hún beint í fjöru- grjótið og verða þau svo sett upp við heitu pottana niðri í fjöruborð- inu. Gestum ætti að gefast ágætt tóm til að virða verkin fyrir sér úr pottunum, en þeir eru opnir al- menningi allan sólarhringinn árið um kring. Við opnun hátíðarinnar mun svo Mireya færa heimamönnum að gjöf listaverk eftir sig, en hefð er fyrir því að Drangnesingar bjóði lista- manni að taka þátt í Bryggjuhátíð- inni. Margt fleira verður á döfinni á hátíðinni, hægt er að fara í góða gönguferð með leiðsögn, stunda dorgveiði, skoða grásleppusýningu, fara á hestbak, taka þátt í söngva- keppni eða kaupa á markaðstorgi sem sett verður upp af þessu tilefni. Þá hafa börn úr grunnskólanum tekið ljósmyndir og sýna afrakstur vinnu sinnar á hátíðinni. Grillveisla verður um kvöldið og slegið upp balli. Morgunblaðið/Jenný Jensdóttir Listsköpun í fjörunni. Mireyja Samper hefur unnið að gerð listaverka í fjörunni við Drangsnes undanfarna daga og opnar sýningu á morgun. Listaverkin unnin beint í fjörugrjótið

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.