Morgunblaðið - 22.07.2006, Page 23

Morgunblaðið - 22.07.2006, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 23 MENNING Skálholtshátíð um helgina Laugardagur 22. júlí 9.00 Morgunsöngur 12.00 Hádegisbæn 14.00 Mozarttónleikar Flytjendur: Jaap Schröder - fiðla Rut Ingólfsdóttir - fiðla Sigurður Halldórsson - selló Hilmar Örn Agnarsson - orgel Björn Bjarnason ráðherra flytur ávarp í upphafi tónleikanna. 15.00 Kaffihlé. 16.30 Dagskrá um tónlistar- og trúararf í íslenskum handritum. Kynnt verður verkefni Helgisiðastofu. Ásmundur Jónsson kynnir útgáfur Smekkleysu sem tengjast verkefninu. Kári Bjarnason kynnir verkefnið og opnar nýjan vef. Matthías Jóhannessen kynnir nýja sýnisútgáfu úr verkum Ólafs frá Söndum og les valin ljóð. Kammerkór Suðurlands undir stjórn Hilmars Arnar Agnarssonar flytur efni úr handritum. Einsöngvari: Guðrún Edda Gunnarsdóttir. 18.00 Aftansöngur. 22.00 Náttsöngur. Sunnudagur 23. júlí 9.00 Morgunsöngur 12.00 Hádegistíð 13.00 Hópreið að staðnum með fánaborg. Pílagrímar koma í hlað. Fluttur Ísleifs þáttur biskups. Lesari Gunnar Eyjólfsson. 14.00 Hátíðamessa. Herra Sigurbjörn Einarsson predikar. Séra Sigurður Sigurðarson, séra Egill Hallgrímsson og séra Bernharður Guðmundsson þjóna fyrir altari. Biskup Íslands Karl Sigurbjörnsson lýsir blessun. Skálholtskórinn syngur. Organisti: Hörður Áskelsson. Söngstjóri: Hilmar Örn Agnarsson. Forsöngvari: Marta Halldórsdóttir. Trompetleikur: Jóhann Stefánsson, Guðmundur Hafsteinsson. Meðhjálpari: Guttormur Bjarnason. 15.00 Kirkjukaffi. 16.30 Samkoma í kirkju. Ávörp flytja herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, herra Karl Sigurbjörnsson biskup Íslands og Guðni Ágústsson landbúnaðar- ráðherra. Tónlistarflutningur í umsjá Harðar Áskelssonar söngmálastjóra, Hilmars Arnar Agnarssonar og Jaap Schröder fiðluleikara. 18.00 Aftansöngur. NÝ BÓK um ævi Ásu Guðmunds- dóttur Wright var kynnt á blaða- mannafundi sem haldinn var á Þjóð- minjasafni Íslands um hádegisbilið í gær. Bókin er eftir dr. Sturlu Frið- riksson og heitir einfaldlega Ása Guðmundsdóttir Wright – Ævihlaup og athafnir. Bókin er byggð á fjöl- sóttum fyrirlestri sem Sturla hélt um ævi Ásu fyrir um ári, en í nýja ritinu bætir hann við miklum fróðleik. Stofnaði minningarsjóð fyrir Þjóðminjasafnið „Ása var mikill velunnari Þjóð- minjasafnsins og merk kona sem lifði viðburðaríku lífi, svo ekki sé meira sagt,“ sagði Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður við tilefnið. „Þjóð- minjasafnið er þakklátt fyrir framlag Ásu til safnsins,“ bætti hún við. Ása tengist Þjóðminjasafninu á þann hátt að hún lét stofna minning- arsjóð í eigin nafni sem er notaður til að geta boðið erlendum fræðimönn- um hingað til lands til að halda fyr- irlestra um þætti í sögu norrænnar menningar. Stjórn þessa sjóðs skipa Margrét, Jónas Kristjánsson fyrr- verandi forstöðumaður Árnastofn- unar og Sturla Friðriksson, höfundur bókarinnar. Á efri árum seldi Ása búgarðinn Spring Hill sem hún og eiginmaður hennar höfðu komið sér upp í Trini- dad, en garðurinn heitir nú Asa Wright Nature Centre. Fyrir féð sem henni áskotnaðist stofnaði hún tvo sjóði: annars vegar minning- arsjóð í nafni hennar við Þjóðminja- safnið, sem notaður er til að flytja er- lenda fyrirlesara hingað til lands. Hins vegar verðlaunasjóð við Vís- indafélag Íslendinga. Síðarnefndi sjóðurinn hefur veitt verðlaunapen- inga til vísindamanns á ári hverju frá 1969, sem hannaðir voru af Kristjáni Eldjárn, fv. forseta og þjóðminja- verði. Sigurður Nordal var fyrstur til að hljóta verðlaunin og titlaði þá sem hljóta þessi verðlaun „ási“ í nafni Ásu. Gekk vel að skrifa bókina Dr. Sturla Friðriksson er þjóðinni vel kunnur fyrir rannsóknir sínar í Surtsey og rit um eyna. Hann var til- tölulega nýkominn úr leiðangri í eynni og hafði á orði við blaðamann- inn að þar væri svo gróið að grasið næði upp að hné og jafnvel mitt læri sums staðar. „Það má segja að akr- arnir verði bleikir í hólmanum í Surtsey á haustin.“ Að sögn Sturlu gekk vel að skrifa bókina. Hann hefur safnað þar sam- an miklum fróðleik um Ásu og for- eldra hennar bæði hér heima og er- lendis. „Ég ferðaðist til Englands og kynntist henni þar, og ferðaðist einn- ig til Trinidad þegar ég var við nám í Bandaríkjunum. Í Trinidad kunni fólk margar sögur af henni.“ Bókina prýða margar myndir í eigu Sturlu, þar á meðal athyglisverð skopmynd. „Þetta er mynd eftir Halldór Pétursson sem sá hana á gangi einn daginn. Honum fannst hún svo merkileg að hann teiknaði mynd af henni í einum grænum þótt hana þekkti hana ekki neitt.“ Síðar meir, þegar Halldór komst að því hver væri á myndinni, gaf hann Sturlu þessa teikningu. Menning | Rit um ævi Ásu Guðmundsdóttur Wright gefið út Ævintýrakona sem reyndist Þjóðminjasafninu vel Morgunblaðið/Eggert Ása G. Wright seldi búgarð sinn á Trinidad til að setja á stofn minningar- sjóð í eigin nafni. Á myndinni má sjá stjórn sjóðsins: Jónas Kristjánsson, Sturlu Friðriksson og Margréti Hallgrímsdóttur. Eftir Hjálmar S. Brynjólfsson hsb@mbl.is „ÁSA var mjög merkilegur persónuleiki og ævintýrakona,“ segir Sturla Friðriksson. Ása fæddist árið 1892 og lést 1971. Hún og Sturla voru náskyld en móðir hennar, Arndís Jóns- dóttir, var föðursystir Sturlu. „Hún fór til London að læra hjúkrun og ensku og kynntist enskum manni, Newcome Wright, á leiðinni heim. Sá var að skrifa doktorsritgerð um lýð- ræði og datt í hug að kom til Íslands og skoða hvernig var útlits á Þingvöllum. Þau felldu svo hugi saman og giftust.“ Ása tók upp ættarnafnið Wright og hún og Newcome komu sér fyrir í Cornwall í Suður- Englandi. Þar var Ása með býflugnabú og ýmis dýr. „Það lýsir því hvernig Ása var inn- rætt að hún tók strax völdin þar í bær og stofnaði kvenfélag í Cornwall. Hún Íslending- urinn var formaður þessa kvenfélags,“ segir Sturla. Í síðari heimsstyrjöld vann Ása sem ritskoðari í Englandi og ritskoð- aði bréf sem fóru frá Íslandi til Englands. Í stríðinu veiktist Newcome af gaseitrun og þau hjón fluttu í kjölfarið til Trinidad. Þar framleiddu hjónin kakó, kaffi og sedrusvið á búgarðinum Spring Hill. Þar eru til margar sögur af útsjónarsemi hennar og hjúkrunarstörfum að sögn Sturlu. „Ása var höfðingi og hjálparhella í senn, en mjög ákveðin líka. Hún til dæmis fór í miðbæinn í Trinidad og gekk út á götu og stoppaði bíla með hendinni ef hún þurfti að fara yfir götuna. Auk þess átti hún það til að leggja bílnum á stað þar sem ekki mátti og ávarpaði þá einfaldlega lög- regluþjóna og sagði: „Komdu hérna og passaðu bílinn fyrir mig á meðan ég fer inn í búðina.““ Ása Guðmundsdóttir Wright Ása Guðmundsdóttir Wright, en myndin prýðir forsíðu nýju bókarinnar. FRANSKI orgelleikarinn Sophie- Véronique Cauchefer-Choplin varð fyrst kvenna til að vinna önnur verðlaun í spunakeppninni í Chartres árið 1990. Nú er spuni kannski ekki það fyrsta sem fólki dettur í hug þegar kemur að org- elleik en að sögn Erlu Elínar Hansdóttur, tónleikastjóra Al- þjóðlegs orgelsumars í Hallgríms- kirkju, er hann til dæmis mjög áberandi í orgeltónlist í Frakk- landi. Cauchefer-Choplin stundaði orgelnám í Tónlistarháskólanum í París og fór síðar í framhaldsnám í spuna. Hún hefur haldið fjöldann allan af námskeiðum í spuna og komið fram á tónleikum víða um heiminn. Cauchefer-Choplin mun koma fram á tvennum tónleikum í Hall- grímskirkju um helgina. Þeir fyrri eru í dag og hefjast kl. 12. Þar mun hún leggja áherslu á franska orgeltónlist og leikur hún þrjú verk, Suite du premier ton eftir Denis Bédard, Prelúdíu eftir Gabr- iel Pierné og Tu es Petra, eitt frægasta orgelverk Henri Mulet. Tónleikunum mun svo ljúka með spuna. „Ég mun láta hana fá ein- hverja laglínu sem hún þekkir ekki, mjög líklega annaðhvort þekkt íslenskt þjóðlag eða eitt- hvert íslenskt sálmalag. Hún spilar hana svo yfir einu sinni þannig að áheyrendur heyra hvaða lag þetta er og laglínan mun svo segja henni eitthvað. Hún vinnur í framhaldi með það. Yfirleitt er valin einhver tóntegund, unnið er í henni og hún mun reyna að mála þau áhrif sem laglínan hefur á hana inn í tónlist- ina,“ segir Erla Elín og tekur fram að orgelspuni þekkist líka að ein- hverju leyti á Íslandi. „Það er ekki mikil spunakennsla í grunnnáminu hér heima en til dæmis eru for- spilin á sálmum sem kirkjuorg- anistar spila í guðsþjónustum allt- af einhvers konar spuni.“ Seinni tónleikar Sophie- Veronique fara fram á morgun kl. 20 og mun þeim einnig ljúka með spuna. Þar munu m.a. heyrast verk eftir Mendelssohn, Pierné, Mulet og Duruflé. Orgelspuni í Hallgrímskirkju Franski orgelleikarinn Sophie- Véronique Cauchefer-Choplin ætl- ar að spinna fyrir tónleikagesti í Hallgrímskirkju. Tónlist | Orgelleikari frá París gestur Alþjóðlegs orgelsumars www.hallgrimskirkja.is Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.