Morgunblaðið - 22.07.2006, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 22.07.2006, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 29 MESSUR Á MORGUN ÁSKIRKJA: Vegna sumarleyfa starfsfólks er ekki messað í Áskirkju. Fyrsta messa eftir sumarleyfi verður 30. júlí. BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Guðmundur Sigurðsson. Kór Bústaðakirkju syngur. Molasopi eftir messu. Sr. Pálmi Matthíasson. DÓMKIRKJAN: Messa kl. 11. Sr. Hjálm- ar Jónsson prédikar. Sönghópur úr Dóm- kórnum syngur, organisti Marteinn H. Friðriksson. GRENSÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Kirkjukór Grensáskirkju syngur. Organisti Ástríður Haraldsdóttir. Samskot til Sam- bands íslenskra kristniboðsfélaga. Mola- sopi að lokinni guðsþjónustu. Sr. Hans Markús Hafsteinsson. GRUND, dvalar- og hjúkrunarheimili: Guðsþjónusta kl. 14. Organisti Kjartan Ólafsson. Sr. Hjálmar Jónsson. HALLGRÍMSKIRKJA: Laugardagur: Há- degistónleikar kl. 12 á vegum Alþjóðlega orgelsumarsins. Sophie-Véronique Chauchefer-Choplin, organisti í París, leikur á orgel. Sunnudagur: Messa kl. 11. Sr. Birgir Ásgeirsson prédikar og þjónar fyrir altari ásamt messuþjónum. Hópur úr Mótettukór syngur. Organisti Lára Bryndís Eggertsdóttir. Kaffisopi eftir messu. Orgeltónleikar sunnudagskvöld kl. 20. Sophie-Véronique Chauchefer- Choplin leikur. HÁTEIGSKIRKJA: Messa kl. 11. Org- anisti Douglas A. Brotchie. Sr. Helga Soffía Konráðsdóttir. LANDSPÍTALI – HÁSKÓLASJÚKRAHÚS: Guðsþjónusta kl. 10.30 á Landspítala Fossvogi. Sr. Guðrún Eggertsdóttir, org- anisti Birgir Ás Guðmundsson. LANGHOLTSKIRKJA: Kirkja Guðbrands biskups. Vegna sumarleyfa sóknarprests og starfsfólks er ekki messað í Lang- holtskirkju í júlímánuði. Bent er á messu í Bústaðakirkju kl. 11. Sr Pálmi Matthías- son sóknarprestur í Bústaðakirkju þjónar Langholtsprestakalli í júlímánuði og sím- inn í Bústaðakirkju er 553 8500. LAUGARNESKIRKJA: Nú stendur yfir sumarleyfi hjá söfnuði Laugarneskirkju og er safnaðarfólk hvatt til að heim- sækja nágrannakirkjurnar á helgum dög- um. Sóknarprestur er þó að störfum fram til 15. júlí. Fyrsta messa eftir sum- arleyfi verður sunnudaginn 20. ágúst kl. 20. NESKIRKJA: Messa kl. 11. Sr. Örn Bárð- ur Jónsson prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar úr Kór Neskirkju leiða safnaðar- söng. Organisti Steingrímur Þórhallsson. Að lokinni messu er boðið upp á kaffi á Torginu. SELTJARNARNESKIRKJA: Helgistund kl. 11. Ritningarlestur og bæn. Verið hjartanlega velkomin. Kaffisopi eftir stundina. Sr. Arna Grétarsdóttir. FRÍKIRKJAN í Reykjavík: Almennt guðs- þjónustuhald fellur niður til 13. ágúst, vegna sumarleyfa starfsfólks. Sunnudag- inn 13. ágúst verður guðsþjónusta kl. 14 sem varðar upphaf fermingarstarfs Frí- kirkjunnar. Hægt er að ná í safnaðar- prest í sumar. Prestarnir. ÁRBÆJARKIRKJA: Guðsþjónusta kl.11. Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari. Krist- ina Kalló Sklenár organisti. Kirkjukórinn leiðir safnaðarsöng. DIGRANESKIRKJA: Sameiginleg guðs- þjónusta Digranes-, Linda- og Hjalla- sókna í Hjallakirkju kl. 11. (www.digra- neskirkja.is). GRAFARVOGSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Séra Anna Sigríður Pálsdóttir prédik- ar og þjónar fyrir altari. Kór Grafarvogs- kirkju syngur. Organisti: Gróa Hreins- dóttir. HJALLAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Íris Kristjánsdóttir þjónar. Félagar úr kór kirkjunnar syngja. Organisti Jón Ólafur Sigurðsson. Við minnum á bæna- og kyrrðarstund á þriðjudag kl. 18 (sjá einn- ig á www.hjallakirkja.is). KÓPAVOGSKIRKJA: Helgistund kl. 11 í umsjá sóknarprests. Að henni lokinni um kl. 11.30 verður farið í safnaðarferð vestur á Snæfellsnes. Fararstjóri í ferð- inni verður Guðmundur Guðbrandsson. LINDASÓKN í Kópavogi: Sameiginleg guðsþjónusta Linda-, Hjalla- og Digranes- sókna í Hjallakirkju kl. 11. SELJAKIRKJA: Guðsþjónusta með alt- arisgöngu kl. 20. Sr. Bolli Pétur Bollason prédikar. Kór Seljakirkju leiðir söng. Jón Bjarnason er organisti. Sjá nánar um kirkjustarf á www.seljakirkja.is. ÍSLENSKA KRISTSKIRKJAN: Samkoma með mikilli lofgjörð. Ágúst Valgarð Ólafs- son prédikar. Þáttur kirkjunnar „Um trúna og tilveruna“ er sýndur á Omega kl. 14. BOÐUNARKIRKJAN, Hlíðasmári 9, Kóp: Samkomur alla laugardaga kl. 11. Bæna- stund alla miðvikudaga kl. 20. Biblíu- fræðsla allan sólarhringinn á Útvarpi Boðun, FM 105,5. Allir alltaf velkomnir. HJÁLPRÆÐISHERINN í Reykjavík: Samkomasunnudaginn kl. 20. Umsjón: Anne Marieog Harold Reinholdtsen. Opið húsdaglega kl. 16-22 (nema mánudag- inn). Söngstund kl. 10.30 og dagskrá kl. 20.00. Bæn og fyrirbæn þriðjudaginn og lofgjörðarsamkoma fimmtudaginn. Allir velkomnir. FRÍKIRKJAN KEFAS, Fagraþingi 2a: Samkoma sunnudag kl. 20. Helga R. Ár- mannsdóttir talar. Lofgjörð og fyrirbænir. Kaffi og samfélag eftir samkomu. Allir velkomnir. FÍLADELFÍA: English speaking service at 12.30 pm. The entrance is from the car park in the rear of the building. Everyone is welcome. Almenn samkoma kl. 16.30. Ræðumaður Mike Fitzgerald. Gospelkór Fíladelfíu leiðir lofgjörð. Fyrir- bænir í lok samkomu. Allir velkomnir. Ath. barnakirkjan er farin í sumarfrí, hefst aftur 27. ágúst. Hægt er að hlusta á beina útsendingu á Lindinni, FM 102,9, eða horfa á www.gospel.is. Á Omega er sýnd samkoma frá Fíladelfíu kl. 20. KROSSINN: Almenn samkoma í Hlíða- smára 5 kl. 16.30. BETANÍA, Lynghálsi 3: Samkoma kl. 11 sunnudaga. Einnig samkomur kl. 19.30 á föstudögum. KIRKJA JESÚ KRISTS Hinna síðari daga heilögu, Mormónar, Ásabraut 2, Garða- bæ: Guðsþjónusta sunnudag kl. 9 árdeg- is á ensku og kl. 12 á hádegi á íslensku. KAÞÓLSKA KIRKJAN: Reykjavík, Kristskirkja í Landakoti, dómkirkja og basilíka: Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Messa á ensku kl. 18. Alla virka daga: Messa kl. 18. Tilbeiðslu- stund er haldin í Kristskirkju á hverju fimmtudagskvöldi að messu lokinni, þ.e. frá kl. 18.30 til 19.15. Reykjavík, Maríukirkja við Raufarsel: Sunnudaga: Messa kl. 11. Laugardaga: Messa á ensku kl. 18.30. Virka daga: Messa kl. 18.30. Tilbeiðslustund á mánudögum frá kl. 19 til 20. Riftún í Ölfusi: Sunnu- daga: Messa kl. 16. Miðvikudaga kl. 20. Hafnarfjörður, Jósefskirkja: Sunnudaga: Messa kl. 10.30. Alla virka daga: Messa kl. 18.30. Tilbeiðslustund á hverjum degi kl. 17.15. Karmelklaustur: Sunnu- daga: Messa kl. 8.30. Virka daga: Messa kl. 8. Keflavík, Barbörukapella: Skólavegi 38: Sunnudaga: Messa kl. 14. Stykkishólmur, Austurgötu 7: Alla virka daga: Messa kl. 18.30. Sunnudaga: Messa kl. 10. Ísafjörður: Sunnudaga: Messa kl. 11. Flateyri: Laugardaga: Messa kl. 18. Bolungarvík: Sunnudaga kl. 16. Suðureyri: Sunnudaga: Messa kl. 19. Akureyri, Kaþólska kirkjan: Péturs- kirkja, Hrafnagilsstræti 2: Laugardaga: Messa kl. 18. Sunnudaga: Messa kl. 11. Tilbeiðslustund á hverjum föstudegi kl. 17 og messa kl. 18. KIRKJA SJÖUNDA DAGS AÐVENTISTA: Aðventkirkjan Ingólfsstræti 19, Reykja- vík. Biblíufræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður: Eric Guðmundsson. Loftsalurinn Hólshrauni 3, Hafnarfirði: Guðþjónusta/Biblíufræðsla kl. 11. Ræðumaður: Björgvin Snorrason. Safn- aðarheimili aðventista, Gagnheiði 40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10. Guðþjón- usta kl. 11. Ræðumaður Osi Carvalho. Safnaðarheimili aðventista, Blikabraut 2, Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðþjónusta kl. 11. Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vestmannaeyjum: Biblíu- fræðsla kl. 10. Guðsþjónusta kl. 11. LANDAKIRKJA í Vestmannaeyjum: Guðsþjónusta kl. 11. Kór Landakirkju syngur undir stjórn Guðmundar H. Guð- jónssonar. Guðspjall dagsins eru orð Jesú í Mattheusarguðspjalli sem kölluð eru „skínarskipunin“. Prestur sr. Þorvald- ur Víðisson. Kl. 16 guðsþjónustunni frá því í morgun er útvarpað á FM 104 hér í Eyjum. HAFNARFJARÐARKIRKJA: Morgun- söngur kl. 10.30. Ath. tímann. Prestur sr. Gunnþór Þ. Ingason. Organisti Kjartan Ólafsson. Félagar úr Kór Hafnarfjarðar- kirkju leiða song. VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði: Helgi- stund á sumarkvöldi sunnudag kl. 20. Prestur sr. Bragi J. Ingibergsson. Kór Víð- istaðasóknar syngur. Organisti Gróa Hreinsdóttir. Allir velkomnir. GARÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 20. Fé- lagar úr Kór Vídalínskirkju leiða sönginn. Organisti Jóhann Baldvinsson. Sr. Friðrik J. Hjartar þjónar. Þökkum góða daga. Rúta fer frá Vídalínskirkju kl. 19.30 og frá Hleinum litlu síðar. Allir velkomnir. Sjá upplýsingar á vef Garðasóknar: www.gadasokn.is KEFLAVÍKURKIRKJA: Púttmessa. guðs- þjónusta kl. 13 á púttvellinum við Mána- götu í Keflavík. Ath. breyttan messutíma. Prestur er sr. Sigfús Baldvin Ingvason, Guðmundur Sigurðsson leiðir söng. Að guðsþjónustu lokinni hefst hið árlega kirkjumót. Kaffiveitingar og verðlauna- afhending að móti loknu í Kirkjulundi. Allir aldurshópar velkomnir. HÓLADÓMKIRKJA: Dagur Eyjafjarðar- prófastsdæmis: Sunnudagur 23. júlí: Kl. 11 guðsþjónusta, prestur sr. Hannes Blandon. Karlakór Eyjafjarðar syngur. Kl. 14 tónleikar Karlakórs Eyjafjarðar. Ókeypis aðgangur. AKUREYRARKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Jóna Lísa Þorsteinsdóttir. Fermd verður Heiðrún Anna Hallgrímsdóttir. Guðný Einarsdóttir leikur á orgel. Félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja undir stjórn Eyþórs Inga Jónssonar organista. Guðs- þjónusta á Seli kl. 15. Sr. Svavar A. Jónsson. GLERÁRKIRKJA: Kvöldguðsþjónusta sunnudag kl. 20.30. Sr. Arnaldur Bárð- arson þjónar. Forsöngvari er Örn Viðar Birgisson tenór. Organisti Arnór Vilbergs- son. Kaffisopi í safnaðarsal. Allir vel- komnir. HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri: Al- menn samkoma sunnudaga kl. 20. Allir velkomnir. KIRKJUSELIÐ í Fellabæ: Kvöldmessa sunnudag kl. 20. Sóknarpresturinn, sr. Lára G. Oddsdóttir, þjónar fyrir altari en Ólafur Jóhann Borgþórsson, guðfræð- ingur, prédikar. Organisti er Drífa Sigurð- ardóttir. Kaffi eftir messu. Allir velkomn- ir. Sóknarprestur. SELFOSSKIRKJA: Messa kl. 11. Léttur hádegisverður og kaffisopi í safnaðar- heimilinu á eftir. Sóknarprestur. ÞINGVALLAKIRKJA: Laugardagur 22. júlí kl. 10. Ferðabæn og fararblessun í upp- hafi pílagrímagöngu frá Þingvallakirkju til Skálholtskirkju. Sunnudagur: Messa kl. 11. Ath. breyttan tíma. Sóknarprestur prédikar og þjónar fyrir altari. Organisti Ingunn Hildur Hauksdóttir. Guðspjall dagsins: Réttlæti faríseanna. (Matt. 5). Morgunblaðið/Sigurður ÆgissonSauðárkrókskirkja MINNINGAR Takk fyrir, Binni afi. Við systkinin sitj- um og tölum um þig. Okkur finnst auðvitað erfitt að hafa misst þig en allar minningar okkar um þig eru jákvæðar og fá okkur til að brosa. Minningarnar eru óteljandi. Þessi minningabrot eru hluti af því sem lifir í huga okkar. Þrátt fyrir að þú sért nú kominn á annan stað, þá erum það við sem erum svo heppin að hafa átt þig og allt það sem þú hefur gefið okkur. Við munum vel eftir: – þegar amma blikkaði ljósunum til að láta þig vita að við værum komin í heimsókn – að þú vannst okkur aldrei í skák – að þú gleymdir aldrei fugl- unum – að þú varst alltaf með barn á örmunum – grænu stjúpubökkunum – þér að lesa í Almanaki Háskól- ans – að þú hafðir óþrjótandi áhuga og óbilandi trú á okkur – að þú lærðir á tölvupóst þegar við fluttum til útlanda – þegar þú gafst okkur lykla svo við yrðum aldrei læst úti – öllum skiptunum sem þú gafst okkur hraun og gúmmí – að þú kunnir að gera allt sjálf- ur og gerðir alla hluti vel – að þú leyfðir okkur alltaf að fara upp á háaloft og tjalda í garð- inum – að bílskúrinn var öllum opinn – þér að smíða hásæti og kolla, að hefla, hamra og saga – að þú mundir alltaf eftir af- mælisdögum, vinum, flugferðum, útskriftum og við vissum alltaf að þú fylgdist með okkur – að í öllum framkvæmdum varst þú til staðar með þína krafta og reynslu – Stundinni okkar, Húsinu á sléttunni og Tomma og Jenna – R 4600 – kassabílnum – stuðningi þínum þegar mamma dó – hvernig tekið var á móti barna- BRYNJÓLFUR EYJÓLFSSON ✝ Brynjólfur Eyj-ólfsson fæddist í Reykjavík 8. febr- úar 1919. Hann lést á heimili sínu í Grundargerði 6 í Reykjavík 8. júlí síð- astliðinn og var jarðsunginn frá Bú- staðakirkju 19. júlí. barni inn á heimilið eftir móðurmissinn og opnaður var faðm- urinn fyrir nýju barni sem bættist í hópinn – því að þú vildir alltaf vera hjá Stellu ömmu Takk fyrir að þú hélst í hendurnar á okkur þegar við lærð- um að ganga, kenndir okkur mannganginn, hvað stjörnurnar heita, hvernig maður heldur á hefli, tjaldar tjaldi, slær gras og sinnir sínum nánustu. Takk fyrir að þú varst alltaf til staðar. Elsku Binni afi, þú varst okkar leikfélagi, kennari og viskubrunn- ur. Þú ert og munt alltaf verða okkar fyrirmynd. Takk fyrir, Binni afi. Brynhildur, Helga, Brynjólfur, Kjartan, Eyjólfur Karl, Þórir og fjölskyldur. Elsku Binni afi. Ég kynntist þér fyrst árið 1988 þegar ég kom inn í fjölskylduna ykkar Stellu. Mér var tekið afskaplega vel og mér fannst ég strax eiga þar heima. Þið hélduð svo vel utan um ykkar fólk og mikil samstaða meðal afkomenda. Jóla- boð og afmælisboð voru fastir liðir og þekki ég ykkar stórfjölskyldu betur en mína eigin. Synir okkar Binna hafa alist upp í mikilli fjarlægð frá öðrum ætt- ingjum þar sem við bjuggum í Nor- egi. Ekki var samt erfitt fyrir strákana að vita hver Binni afi og Stella amma væru, þau sendu strákunum Tomma og Jenna spól- ur, harðfisk og íslenskt nammi, einnig voru þau dugleg að hringja í okkur. Grundargerði 6 var alltaf fyrsta stopp eftir lendingu á Ís- landi. Þú sagðir mér fyrir um tveimur árum þegar heilsu þinni fór að hraka, að þú skyldir lifa þann dag er við Binni flyttum heim til Ís- lands á ný. Þetta endurtókst þú oft og þetta stóðst þú við. Við erum mjög þakklát fyrir þann tíma sem við fengum með þér. Takk fyrir að hugsa svona vel um okkur, Binni afi. Við Binni munum halda minningunni um þig lifandi og rifja upp liðnar stundir með strákunum okkar um hann Binna afa þeirra sem þótti svo vænt um okkur. Pálína Þorsteinsdóttir. Hún Bergþóra var alveg sérstök kona. Hafði mikil áhrif á samtíð sína. Þeir sem nutu vináttu hennar fundu það best og traust þeirra varð þeim til mikillar blessunar. Söngur hennar og undirleikur á gítarinn varð þeim sem á hlýddu sem helgi- stund, og heimilið var alltaf svo vinalegt og gleðin sem þar mynd- aðist lifði lengi á eftir. Þannig kom hún mér fyrir sjónir og þegar við hjónin nutum hennar og mannsins hennar hans Benja- míns fannst mér alltaf eins og að koma í helgidóm. Þær voru marg- ar samkomurnar sem við áttum BERGÞÓRA KRISTINSDÓTTIR ✝ Bergþóra Krist-insdóttir fædd- ist á Akureyri 17. júní 1931. Hún lést á St. Franciskusspít- alanum í Stykkis- hólmi 30. júní síðast- liðinn og var útför hennar gerð frá Stykkishólmskirkju 8. júlí. hjá þeim og eins þau hjá okkur og allt hjálpaði það til að gera lífið bjartara. Fyrir allt þetta og allt annað vil ég nú þakka að enduðum ferli hennar hér í heimi. Þetta voru dýr- mætar stundir, fjöl- skyldum okkar beggja, sem nú fylla hugann hlýju og þakklæti. Ég minnist hennar því fyrst og fremst með þakklæti og virðingu. Hún var alltaf jafn- sönn og elskuleg. Mín fjölskylda naut ástríkis þeirra hjóna allt frá fyrstu kynn- um. Um leið og ég sendi þessar fá- tæklegu þakkarkveðjur, bið ég eft- irlifandi ástvinum hennar blessunar drottins sem reyndist henni skjól og skjöldur lífsins. Góður vinur gleymist aldrei. Ljósin lifa í góðri minningu. Árni Helgason, Stykkishólmi.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.