Morgunblaðið - 22.07.2006, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 22.07.2006, Qupperneq 39
urspeglar brot af því helsta í norrænni samtímalist en meðal sýnenda eru fjórir ís- lenskir listamenn, meðal annars listmál- arinn Eggert Pétursson sem hlaut önnur verðlaun þetta árið. Til 20. ágúst. Erró – Grafík. Myndirnar eru frá ýmsum tímabilum í list Errós þær nýjustu frá síð- astliðnu ári. Við vinnslu málverka sinna gerir Erró samklipp, þar sem hann klippir og límir saman myndir sem hann hefur sankað að sér úr prentmiðlum samtímans. Til 31. des. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Sýning á verkum úr eigu safnsins þar sem fagurfræði er höfð að leiðarljósi við val verkanna og hefðbundin listasöguleg við- mið látin víkja fyrir samhljómi þeirra. Margir af helstu málurum þjóðarinnar eiga verk á sýningunni sem spannar tímabilið frá aldamótunum 1900 til upphafs 21. ald- arinnar. Til 17. sept. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á völdum skúlptúrum og portrettum Sig- urjóns Ólafssonar. Opið daglega nema mánudaga kl. 14–17. Kaffistofan er opin á sama tíma. Tónleikar á þriðjudagskvöldum. Sjá nánar á www.lso.is Norræna húsið | Sumarsýning í anddyri Norræna hússins til 27. ágúst. Ljósmyndir frá Austur-Grænlandi eftir danska ljós- myndarann Ole G. Jensen. Opið virka daga kl. 9–17. Laugardaga og sunnudaga kl. 12– 17. Out of Office – Innsetning. Listakonurnar Ilmur Stefánsdóttir og Steinunn Knúts- dóttir í sýningarsal Norræna hússins fram til 30. september. Opið alla dag kl. 12–15, nema mánudaga. Gjörningar alla laug- ardaga og sunnudaga kl. 15–17. Nýlistasafnið | Björk Guðnadóttir, Daníel Magnússon og Hildur Bjarnadóttir eru meðal áhugaverðustu listamönnum sinnar kynslóðar. Tilvist mannsins er drifkraft- urinn að list Bjarkar. Daníel veltir fyrir sér sambandi texta og ímyndunar og Hildur vinnur á nýjan hátt úr textíl og ögrar hefð- bundinni nálgun konseptlistar. Óðinshús | Dagrún Matthíasdóttir og Guð- rún Vaka með sýningu til 30. júlí. Dagrún og Guðrún Vaka útskrifuðust í vor frá Myndlistaskólanum á Akureyri og sýna hluta útskriftaverka sinna. Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina til 28. ágúst. Safn | Tvær af fremstu myndlistarkonum í Evrópu; Karin Sander & Ceal Floyer, sýna nýleg verk sín í bland við eldri, sem eru í eigu Safns. Sýningin er opin mið.–fös. kl. 14–18 og lau.–sun. kl. 14–17. Safn er stað- sett á Laugavegi 37. Aðgangur er ókeypis. Leiðsögn á laugardögum. www.safn.is Bandaríska myndlistarkonan Joan Backes sýnir ný málverk og skúlptúra í Safni; sam- tímalistasafni við Laugaveg 37. Einnig eru til sýnis verk úr safneigninni. Þungamiðja verka Joan Backes er fínleg vinna með tré úr skógum ýmissa landa. Opið er mið.–fös. kl. 14–18 og lau.–sun. kl. 14–17. Ókeypis er inn. Salfisksetur Íslands | Ari Svavarsson með sýningu í Listsýningasal til 6. ágúst. Atli nefnir sýninguna Tákn og leikur sér þar með línur og form. Skaftfell | Nú stendur yfir sýning bræðr- anna Sigurðar Guðmundssonar og Krist- jáns Guðmundssonar í Skaftfelli, menning- armiðstöð myndlistar á Austurlandi. Sýningin er opin daglega frá kl. 14–21 í sumar. Skriðuklaustur | Bandaríska listakonan Kamilla Talbot sýnir vatnslitamyndir af ís- lensku landslagi en hún hefur síðustu vikur fetað í fótspor langafa síns, danska list- málarans Johannesar Larssen, sem gerði teikningar fyrir danska Íslendingasagnaút- gáfu um 1930. Listakonan Ingrid Larssen frá Vesterålen í Norður-Noregi sýnir hálsskart sem hún vinnur úr silki, ull, perlum og fiskroði. Sýn- ingin er liður í menningarsamstarfi Austur- lands og Vesterålen. Skúli í túni | Þóra Gunnarsdóttir með sýn- inguna; Upptekin! – hef annað og betra að gera – í Skúla í túni, Skúlatúni 4, þriðju hæð. www.skulituni.com /www.thorag- unn.is Thorvaldsen Bar | Jónína Magnúsdóttir, Ninný, með myndlistarsýninguna Í góðu formi. Sýningin stendur til 11. ágúst. Þetta er 11. einkasýning listakonunnar auk þess hefur hún tekið þátt í nokkrum samsýn- ingum á Íslandi og erlendis. Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Huldu- konur í íslenskri myndlist fjallar um ævi og verk tíu kvenna sem voru nær allar fæddar á síðari hluta 19. aldar. Þær nutu þeirra for- réttinda að nema myndlist erlendis á síð- ustu áratugum 19. aldar og upp úr alda- mótum. Í Myndasal eru til sýnis ljósmyndir Marks Watson og Alfreds Ehrhardt af Íslandi sumarið 1938. Af myndum ferðalanganna má sjá hve ljósmyndin getur verið per- sónulegt og margrætt tjáningarform. Söfn Árbæjarsafn | Á Árbæjarsafni hefur verið opnuð sýningin Húsagerð höfuðstaðar, saga byggingatækninnar í Reykjavík frá 1840–1940. Nú eru hafin hin sívinsælu örnámskeið á Árbæjarsafni. Námskeiðin eru ætluð börn- um í fylgd með fullorðnum. Þar má meðal annars læra tálgun, glímu, þæfingu ullar og flugdrekagerð. Athugið að sætaframboð í hverju námskeiði er takmarkað. Frekari upplýsingar og skráning í síma 411 6320. Gamli bærinn í Laufási | Kirkjan í Laufási var byggð 1865. Búsetu í Laufási má rekja allt aftur til heiðni. Bærinn er nú búinn húsmunum og áhöldum eins og tíðkaðist í kringum aldamótin 1900. Þjóðlegar veit- ingar í Gamla Prestshúsinu. Opið daglega frá 9–18, fimmtud. 9–22. 500 kr. inn. Frítt fyrir börn. Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Gljúfra- steinn er opinn alla daga í sumar kl. 9–17. Hljóðleiðsögn á íslensku, ensku, þýsku og sænsku. Margmiðlunarsýning og göngu- leiðir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á www.gljufrasteinn.is og í 586 8066. Iðnaðarsafnið | Iðnaðarsafnið var stofnað til að minnast síðastliðinnar aldar í iðnaði á Akureyri, enda bærinn þá oft nefndur Iðn- aðarbærinn. Á safninu gefur að líta vélar og verkfæri af öllum stærðum og gerðum, framleiðsluvöru o.fl. Opið daglega frá 13–17 til 15. sept. 400 kr. inn, frítt fyrir börn. Kotbýli kuklarans | Sýning á Klúku í Bjarn- arfirði sem er bústaður galdramanns og litið er inn í hugarheim almúgamanns á 17. öld og fylgst með hvernig er hægt að gera morgundaginn lítið eitt bærilegri en gær- daginn. Opið alla daga kl. 12–18 til 31. ágúst. Landsbókasafn Íslands, Háskólabókasafn | Sýning í Þjóðarbókhlöðu. Myrkraverk og misindismenn. Reykjavík í íslenskum glæpasögum. Reykjavík hefur löngum ver- ið vinsælasta sögusvið íslenskra glæpa- sagnahöfunda. Langflestir íslenskir glæpa- sagnahöfundar hafa skapað sína eigin Reykjavík þar sem myrkraverk og misynd- ismenn leynast, allt frá Granda upp í Graf- arholt. Ritað í Voðir. Sýning Gerðar Guðmunds- dóttur. Sumir safna servíettum, aðrir safna hlutabréfum. Gerður safnar bókstöfum úr íslenskum handritum svo og laufblöðum haustsins, þrykkir á síður og býr til handrit og bækur. Safnið er opið virka daga kl. 9– 17, laugardaga kl. 10–14. Sýning á teikningum Halldórs Bald- urssonar byggðar á Vetrarborginni e. Arn- ald Indriðason. Upphaflega var Halldór beðinn að gera málverk en honum fannst eðlilegra að halda sig við söguformið og því varð myndasagan fyrir valinu. Teikn- ingar Halldórs eru til sölu. Opið mán.– föstud. kl. 9–17, laugard. kl. 10–14. Listasafn Árnesinga | List, listiðnaður og hönnun frá Færeyjum. Verk eftir 32 ein- staklinga. Ríkey Kristjánsdóttir textílhönn- uður í hönnunarstofu. Aðgangur ókeypis. Opið alla daga kl. 11–17 til 31. júlí. Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Andrés Kol- beinsson (f. 1919) er menntaður tónlist- armaður og sjálfmenntaður sem ljósmynd- ari. Með hárfínu næmi fyrir formi og myndbyggingu sýnir hann í myndum sínum frá árunum 1952–1965 unga og vaxandi Reykjavíkurborg, byggingar hennar, lista- menn, iðnað og mannlíf. Til 24. sept. Vigfús er af yngstu kynslóð ljósmyndara og lauk námi í ljósmyndun árið 1993 frá Lette Verein, Berlín. Í Skotinu sýnir Vigfús myndir af vatnsyfirborði sjávar sem er varpað úr skjávarpa á 150 x 190 cm stóran vegg og mynda dáleiðandi flæði. Minjasafnið á Akureyri | Sumarsýning. Ef þú giftist – Brúðkaupssiðir fyrr og nú. Ef þú giftist fjallar um brúðkaup og brúð- kaupssiði í gegnum tíðina. Sýningin er unn- in í samstarfi við Þjóðminjasafn Íslands og er opin alla daga milli 10 og 17. Til 15. sept. Perlan | Sögusafnið í Perlunni er opið alla daga kl. 10–18. Hljóðleiðsögn leiðir gesti í gegnum fjölda leikmynda sem segja sög- una frá landnámi til 1550. ww.sagamu- seum.is Veiðisafnið – Stokkseyri | Skotveiðisafn – uppstoppuð veiðidýr og veiðitengdir munir, skotvopn o.fl. Opið 11–18. Sjá nánar á www.hunting.is Víkin – Sjóminjasafnið | „Togarar í 100 ár.“ Sýningunni er ætlað að veita innsýn í viðburðaríka sögu togaraútgerðar og draga fram fjölþætt áhrif hennar á sam- félagið. „Úr ranni forfeðranna“ er sýning á minjasafni Hinriks Bjarnasonar og Kolfinnu Bjarnadóttur. Molakaffi í boði og frábært útsýni yfir höfnina. Þjóðmenningarhúsið | Tvær glæsilegar nýjar sýningar: Íslensk tískuhönnun sem sýnir fjölbreytnina og sköpunarkraftinn í tískugeiranum og Í spegli Íslands, um skrif erlendra manna um Ísland og Íslendinga fyrr á öldum. Auk þess helstu handrit þjóð- arinnar í vandaðri umgjörð á handritasýn- ingunni og Fyrirheitna landið. Þjóðminjasafn Íslands | Fornleifaupp- greftir fara nú fram víðs vegar um land og í Rannsóknarýminu á 2. hæð má sjá úrval gripa sem fundist hafa á undanförnum ár- um. Mikil gróska hefur verið í fornleifa- rannsóknum vegna styrkja úr Kristnihátíð- arsjóð en úthlutana hans nýtur í síðasta sinn í sumar. Sýningin stendur til 31. júlí. Vaxmyndasafnið hefur löngum verið sveip- að ævintýraljóma og í sumar gefst tæki- færi til sjá hluta þess á 3. hæð safnsins. Óskar Halldórsson útgerðarmaður styrkti íslenska ríkið árið 1971 til að koma safninu upp í minningu sonar síns Óskars Theo- dórs Óskarssonar. Í Þjóðminjasafni Íslands er boðið upp á fjöl- breyttar sýningar, fræðslu og þjónustu. Þar er safnbúð og kaffihús. Safnið hlaut sérstaka viðurkenningu í samkeppni um safn Evrópu árið 2006. Skemmtanir Ari í Ögri | Dj. Andrés og dj. Shaft spila laugardagskvöld. Kringlukráin | Hljómsveitin Upplyfting spilar í kvöld kl. 23. Vélsmiðjan Akureyri | Hljómsveitin Dans á rósum frá Vestmanneyjum leikur fyrir dansi í kvöld. Húsið opnað kl. 22, frítt inn til miðnættis. Uppákomur Gásir | Miðaldamarkaður verður á Gásum í Eyjafirði dagana 22.–23. júlí. Frá kl. 10–16 verður markaður, bardagar, söngur, forn- leifafræðingar að störfum, leiðsögn um svæðið og margt fleira. Friðrik V og Norð- lenska bjóða svo í kjötsúpu að miðaldasið. 500 kr. inn, frítt fyrir 15 ára og yngri. Norræna húsið | Out of Office. Sýning Steinunnar Knútsdóttur og Ilmar Stef- ánsdóttur í sýningarsal Norræna hússins. Gjörningur alla laugardaga og sunnudaga fram til 30. september kl. 15–17. Mannfagnaður Gamla Borg | Bingó til styrktar end- urbyggingu Gömlu Borgar í Grímsnesi. Bingóið verður haldið á Gömlu Borg á laugardag og hefst það kl. 21. Gaman væri að sjá sem flesta. Gamla Borg er gamalt þinghús Grímsnesinga, byggt 1929 af ung- mennafélaginu Hvöt. Seinna tók hrepp- urinn við rekstri hússins og rak þar barna- skóla. Fyrirlestrar og fundir Sögusetrið á Hvolsvelli | Sunnudaginn 23. júlí kl. 15.30 flytur Einar Karl Haraldsson ráðgjafi erindi sem hann nefnir „Nýjustu fréttir af mér og Njálu“ í Víkingasal Sögu- setursins á Hvolsvelli. Að loknum fyr- irlestri er boðið uppá umræður gesta og fyrirlesara. Fréttir og tilkynningar Ferðaklúbbur eldri borgara | 15. ágúst Fjallabaksleið syðri: Hvanngil – Emstrur – Fljótshlíð 17. til 21. ágúst: Sprengisandur – Hljóðaklettar – Raufarhöfn – Langanes – Dettifoss – Kjölur: Allir eldri borgarar vel- komnir. 16 ára reynsla. Upplýsingar hjá Hannesi í síma 892 3011. Félag eldri borgara í Hafnarfirði | Frá Ferðanefnd: Orlofsferð 14.–19. ágúst að Laugum í Sælingsdal. Nokkur herbergi laus. Upplýsingar hjá Áslaugu í símum 555 1050 og 864 4223, eða hjá Rögnu í símum 555 1020 og 899 1023. Fjölskylduhjálp Íslands | Tekið á móti matvælum, fatnaði og leikföngum á mið- vikudögum kl. 13–17. Úthlutun matvæla sama dag kl. 15–17 í Eskihlíð 2–4 v/ Miklatorg. Þeir sem vilja styðja starfið fjár- hagslega, geta lagt inn á reikning 101–26– 66090 kt. 660903–2590. GA-fundir (Gamblers Anonymous) | Er spilafíkn að hrjá þig eða þína aðstand- endur? Fáðu hjálp! Hringdu í síma 698 3888. JCI-heimilið | Ljósmyndasamkeppni JCI Íslands stendur nú yfir. Keppnin er opin öll- um áhugaljósmyndurum og verða úrslitin kynnt á Menningarnótt Reykjavíkur 19. ágúst. Keppnin er árleg, en þemað í ár er Höfuðborgin í ýmsum myndum. Veitt verða fern verðlaun frá Ormsson og ljos- myndari.is. Sjá nánar www.jci.is. Kaffi Kjós | Laugardaginn 22. júlí kl. 14–16: Kjósin, fyrr og nú. Ekið um Kjósina, leið- sögumaður sr. Gunnar Kristjánsson, Reyni- völlum. Lagt af stað frá Kaffi Kjós kl. 14. Panta verður í ferðina í síma 566 8099. Fargjald 2.000 kr. Frístundir og námskeið Kríunes | Námskeiðin eru þrjú og kenn- ararnir þekktar textíl- og bútasaums- listakonur, Monika Schiwy, Elsbeth Nusser- Lampe og Pascal Goldenberg. Allar nánari uppl. er að finna á www.diza.is eða í Dizu, Laugavegi 44, sími 561–4000. Þeim til að- stoðar verða Gerður Guðmundsdóttir text- íllistakona og Ásdís Loftsd. hönnuður. Börn Garðabær | Golfleikjaskólinn heldur 5 daga golfnámskeið, mánudag–föstudags fyrir foreldra og börn, flestar vikur í sumar. Hægt er að velja milli tímanna 17.30–19 eða 19.10–20.40. Upplýsingar og skráning eru á golf@golfleikjaskolinn.is og í síma 691–5508. Heimasíða skólans: www.golf- leikjaskolinn.is Reykjavíkurborg | Í sumar verða opnir leikvellir á vegum ÍTR fyrir 2–5 ára börn í hverfum borgarinnar. Þar er boðið upp á útivist og leik í öruggu umhverfi. Komu- gjald er 100 kr. Nánari upplýsingar á www.itr.is og í síma 411 5000. MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 22. JÚLÍ 2006 39 DAGBÓK Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Dalbraut 18 - 20 | Brids mánudag kl. 14. Félagsvist þriðjudag kl. 14. Bónus miðvikudag kl. 14. Heitt á könnunni, blöðin liggja frammi. Hádegisverður og síðdegiskaffi. Uppl. um sum- arferðir í síma 588 9533. Allir vel- komnir. Félag eldri borgara Kópavogi, ferða- nefnd | Örfá sæti laus í 4 daga ferð á Kárahnjúkasvæðið, Austfirði og Suð- urland 24.–27. ágúst. Símaskráning og nánari upplýsingar hjá ferðanefnd FEBK: Bogi s: 560 4255 / Þráinn s: 554 0999. Ath. Staðfesta þarf með innborgun fyrir 24. júlí. Upplýsingar um upphæð greiðslu og greiðslustað hjá ferðanefnd. Félagsheimilið Gjábakki | Krumma- kaffi kl. 9 og Hana-nú ganga kl. 10. Félagsstarf Gerðubergs | Vegna sumarleyfa starfsfólks fellur starf- semi og þjónusta niður til þriðjud. 15. ágúst. Sund og leikfimiæfingar í Breiðholtslaug, sími 557 5547, eru á mánud. kl. 10.30 og miðvikud. kl. 9.30. Strætisvagnar S4, 12 og 17. wwwgerduberg.is. Hafnarfjörður | Í sumar verður pútt- að á Vallavelli á Ásvöllum á laug- ardögum frá 10–11.30 og á fimmtu- dögum frá kl. 14–16. Mætum vel og njótum hverrar stundar. Hæðargarður 31 | Listasmiðjan opin. Félagsvist mánud. kl. 13.30. Frjáls spil miðvikudag kl. 13.30. Guðnýjarganga kl. 10 þriðjudag og fimmtudag. Gönu- hlaup föstudag kl. 9.30. Út í bláinn laugardag kl. 10. Púttvöllur opinn. Sumarbingó miðvikudaginn 26. júlí kl. 13.30. Sumarferð 15. ágúst. Nánari upplýsingar 568 3132. SÁÁ félagsstarf | Opna SÁÁ golf- mótið verður haldið á Kirkjubólsvelli við Sandgerði sunnudaginn 23. júlí. Skráning á www.gummiei@simnet.is. Keppt verður í höggleik með og án forgjafar. Upplýsingar gefur Guðjón í síma 822 2870. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteins FARIÐ verður í hina árlegu safn- aðarferð Kópavogskirkju á morgun, sunnudaginn 23. júlí. Að þessu sinni verður farið vestur á Snæfellsnes undir leiðsögn Guð- mundar Guðbrandssonar fararstjóra. Ekið verður sem leið liggur í Borg- arnes þar sem áð verður, síðan liggur leiðin út Snæfellsnes og kirkjan á Fá- skrúðabakka skoðuð en hún er prýdd steindum gluggum eftir Kópavogsbú- ann Benedikt Gunnarsson. Þaðan verður ekið um Vatnaleið til Stykk- ishólms þar sem dvalið verður góða stund og bærinn og áhugaverðir stað- ir skoðaðir. Á heimleiðinni verður síð- an farið um Heydal. Lagt verður af stað frá Kópa- vogskirkju um klukkan 11.30 að lok- inni helgistund sem hefst kl. 11. Áætluð heimkoma er á milli kl. 18 og 19. Þátttakendur eru hvattir til að taka með sér nesti. Allir eru velkomn- ir. Kópavogskirkja – safnaðarferð Morgunblaðið/Arnaldur Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is Íbúðir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.