Morgunblaðið - 11.08.2006, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 11.08.2006, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 215. TBL. 94. ÁRG. FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is Linkind þrífst ekki á fjöllum Engin lognmolla í hestaferð í Rangárþingi | Hestar B́ílar og Íþróttir í dag Bílar | Ítalskur og munúðarfullur  Lífræn dísilolía  Ríku- legri Santa Fe Íþróttir | Blikar góðir í Austurríki  19 mörk í Landsbankadeildinni  Björn úr leik á EM í frjálsum íþróttum BRESKA lögreglan telur sig hafa klófest helstu leiðtoga samsærisins um að granda allt að 10 bandarískum farþegaþotum á leið til Bandaríkj- anna frá Bretlandi en hún álítur að þræðirnir liggi víða um heim. Miklar tafir og truflanir urðu á flugvöllum vegna herts eftirlits í gær, einkum í Bretlandi og Bandaríkjunum og hundruðum flugferða var aflýst. Embættismenn í Bretlandi segja að svo geti farið að hertar öryggisregl- ur um handfarangur verði látnar gilda áfram og er ljóst að það myndi merkja miklar breytingar í flugsam- göngum. Olíuverð lækkaði talsvert á mörkuðum í gær, að nokkru leyti vegna þess að margir töldu líklegt að umsvif flugfélaga myndu minnka á næstunni. Bandarísk stjórnvöld báðu í gær Evrópuþjóðir um að herða eftirlit með farþegum sem ætluðu flugleiðis vestur um haf. George W. Bush Bandaríkjaforseti sagði að ljóst væri að þjóðin ætti í stríði við „íslamska fasista“. Tony Blair, forsætisráð- herra Bretlands, sem er í leyfi á Kar- íbahafi, hrósaði bresku lögreglunni og leyniþjónustunni fyrir vel unnin störf. Talið er líklegt að hryðjuverka- mennirnir hafi ætlað að láta til skar- ar skríða á næstu dögum og sagði að- stoðarlögreglustjórinn í London, Paul Stephenson, að um væri að ræða „tilraun til að fremja fjölda- morð af ótrúlegri stærðargráðu“. 24 meintir samsærismenn hafa þegar verið yfirheyrðir en fullyrt var í bandarískum fjölmiðlum að enn gengju a.m.k. fimm lausir og væri þeirra ákaft leitað. Væru tveir þeirra búnir að útbúa myndbönd sem senda átti fjölmiðlum eftir sjálfsmorðstil- ræðin gegn farþegaþotunum, að sögn bandarísku sjónvarpsstöðvar- innar ABC. Einnig kom fram að 22 af 24 manns í haldi væru af pakist- önskum ættum en breskir þegnar, einn frá Bangladesh og einn frá Íran. Fylgst hefur verið með samsæris- mönnunum um nokkurt skeið, að sögn heimildarmanna. „Þeir voru búnir að koma sér upp búnaðinum og getunni sem þurfti til og voru að leggja lokahönd á undirbúninginn,“ sagði Michael Chertoff, ráðherra heimavarnamála í Bandaríkjunum. Komið hefði í ljós fyrir tveim vikum að skotmörkin yrðu bandarískar þot- ur. Embættismenn í Pakistan sögðu að Bretar, Bandaríkjamenn og Pak- istanar hefðu átt samstarf um að hindra árásirnar. Handtaka þriggja al-Qaeda-manna nýlega í Pakistan hefði skipt miklu og auðveldað bresku lögreglunni að koma upp um samsærið. Blaðamaður Morgunblaðsins var einn af mörgum sem varð stranda- glópur í London í gær þegar hryðju- verkaógnin setti allt úr skorðum á Heathrow-flugvelli og stöðvaði flug. Hann ræddi m.a. við stöðvarstjóra Flugleiða, Angie Condos, þegar farið var að innrita farþega til Íslands í gærkvöldi. Hún sagði þetta hafa ver- ið mjög annasaman dag. „En það var gott að okkur var greint snemma frá stöðunni, eða fimm í morgun, því að þá komumst við hjá því að senda vél frá Íslandi til Heathrow.“ „Vil fá að ferðast óáreittur“ Hjónin Valdís Ívarsdóttir og Vig- fús Bjarni Albertsson biðu eftir inn- ritun ásamt börnum sínum tveimur. „Þetta breytir ekki miklu fyrir okk- ur, en okkur brá í morgun. Þegar tengdapabbi vakti mig með þessum tíðindum í morgun hélt ég að hann væri að plata,“ sagði Valdís. Á Reagan-flugvelli í Washington mynduðust biðraðir snemma í gær- morgun, en margir sem þangað voru komnir höfðu ekki haft vitneskju um handtökurnar og breyttar öryggis- reglur. Á alþjóðaflugvellinum í Fort Lauderdale mátti sjá tilkynningar um breyttar reglur og starfsfólk bað farþega um að gæta vel að því, að þeir væru ekki með neinn vökva í handfarangri sínum, ekki einu sinni tannkremstúpur. Blaðamaður Morg- unblaðsins var staddur þar um miðj- an dag í gær, á leið til Reagan-flug- vallar í Washington, en ekki var að sjá að viðbúnaðurinn kæmi fólki úr jafnvægi. Einn farþegi, sem tekinn var tali, reyndist þó býsna reiður yfir ástand- inu. „Ég vil fá að geta ferðast óáreittur,“ sagði Howard Braver- man, en hann var að bíða eftir flugi til Dallas. Breska lögreglan handtók yfir tvo tugi manna sem ætluðu að sprengja allt að 10 bandarískar þotur Reuters Farþegar á Gatwick-flugvelli við London í Bretlandi urðu fyrir miklum töfum vegna ástandsins í gær eins og flugfarþegar víðar í landinu og í Bandaríkj- unum. Samsærismenn ráðgerðu að sprengja tíu bandarískar farþegaþotur á leið til Bandaríkjanna og ljóst að þúsundir manna hefðu þá týnt lífi. Tilræðismenn hefðu getað banað þúsundum manna  Nokkrir samsærismanna sagðir leika enn lausum hala  Hugsanlegt að hertar reglur um handfar- angur muni gilda áfram  Bush Bandaríkjaforseti segir þjóðina eiga í stríði við „íslamska fasista“ TALIÐ er líklegt að samsæris- mennirnir í Bretlandi hafi ætlað að nota sprengiefni í vökvaformi til að granda farþegaþotunum eða smygla inn sakleysislegum efnum sem síðan er hægt að setja saman í næði á salerninu og búa til sprengju. Hægt er að blanda saman t.d. ammoníum-nítrati í duftformi og brennisteinssýru og valda þann- ig sprengingu. Leitartæki á flug- völlum greina að jafnaði ekki um- rædd efni, þau greina fyrst og fremst málm. Um er að ræða algeng efni sem oft er að finna á heimilum en með réttri samsetningu geta orðið vopn í höndum sjálfsmorðssprengju- manna. Umbúðir sem taka minnst 30 millilítra af vökva má nota til að smygla hættulegum efnum, nefna má hylki, flöskur og túpur undir tannkrem, hárgel, munnskol, lyf og talkúm fyrir smábörn. Fyrir 11 ár- um tókst á síðustu stundu að koma í veg fyrir tilræði al-Qaeda gegn 12 bandarískum þotum sem áttu að fljúga frá Filippseyjum. Fela átti nitro-glycerin í kristallaformi í hylkjum fyrir augnlinsuvökva. Sé notaður kveikibúnaður á sprengjuna þarf rafhlöðu og því gæti svo farið að flugfélög banni með öllu að farþegar fari með arm- bandsúr um borð, sama er að segja um fartölvur og farsíma. Sprengjan sett saman um borð Eftir Kristján Jónsson, Pétur Blöndal í London og Davíð Loga Sigurðsson í Fort Lauderdale  Hugðust sprengja | 14  Af hverju vill fólk | 4

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.