Morgunblaðið - 11.08.2006, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 11.08.2006, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ DAGBÓK Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Hrúturinn er orðinn vanur því að gagn- rýna sjálfan sig fyrir minnstu mistök. Ekki er alltaf auðvelt að losa sig við slæmar venjur en ef þú losar þig við þessa líður þér mun betur en ef þú heldur áfram að níðast á sjálfum þér. Naut (20. apríl - 20. maí)  Nautið er ekki að vinna fyrir peningum, það vinnur til þess að ná árangri fyrir fyrirtækið, verkefnið, sjálft sig. Með það í huga áttu ábyggilega eftir að ná árangri. Steingeitur og meyjur styðja þig. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Tvíburinn lætur sig hlakka til þess að tengjast ótilgreindri manneskju og er viss um að væntingar sínar til sam- bandsins verði uppfylltar. Þess vegna verður kvöldið í kvöld vel heppnað. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Umbreyting krefst orku. Hversu mik- illar? Nógu mikillar til að breytingarnar geti orðið. Finndu þér nýja orku- uppsprettu ef þú þarft, en ekki gefast upp. Þú ert meira en hálfnaður, haltu áfram þar til þú sérð árangur. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Himintunglin eru hliðholl hinu stórtæka ljóni. Að hugsa risastórt hefur augljósa kosti. Ef viðhorfið og áætlanirnar eru nógu stórbrotnar virðast hin yfirdrifnu markmið kannski ekkert svo út í hött. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Ástin er sérfræðigrein meyjunnar um þessar mundir. Beittu þér á þeim vett- vangi og náðu árangri. Hvað fjárhaginn snertir eru gljáandi hlutir á hverju strái og samt er ekkert nógu gott. Haltu aft- ur af þér þar til þú finnur hinn full- komna hlut á réttu verði. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Himintunglin gefa í skyn að í vændum sé dagur öfganna – eða að minnsta kosti ýktra tilfinninga. Ef þú ert ekki í dramatíkinni miðri finnst þér þú vera á útjaðri hins byggilega, en það er að minnsta kosti rólegt þar. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Varðandi óbreytt ástand. Tölfræði og meðaltal getur gefið til kynna að þú sért í góðum málum. En þú ert betri en það og veist af því. Hugrekkið felst í því að biðja um það sem þú vilt. Spáðu í meiriháttar innkaup, eins og til dæmis nýjan bíl eða hús. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú veist betur en að bíða eftir því að hlutirnir gerist. Hlutirnir gerist fyrir þig og vegna þín. Það hitnar í kolunum í sambandi ef þú býrð til svolitla róm- antík. Víkkaðu sjóndeildarhringinn, lærðu, ferðastu eða fjárfestu. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Það er sama hvernig þú hefur farið að til þessa, í dag er nýr dagur og þú gæt- ir hæglega orðið að glænýrri persónu, með nýjum siðum og þar með nýjum ár- angri. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Opið viðhorf þitt til heilsunnar leiðir til heilunar. Læknisfræði er engir galdrar og öfugt, en geta hugsanlega af sér kraftaverk ef þeim er fléttað saman. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Enginn hefur nokkru sinni staðið þar sem þú stendur núna, eða séð það sem þú sérð. Þess vegna nota ólíkir sérfræð- ingar sömu upplýsingar til þess að draga afar ólíkar ályktanir. Þín leið er góð og gild. Trúðu á hana. Stjörnuspá Holiday Mathis Ytri pláneturnar, sem svo eru kallaðar, eru ennþá í bakkgír á braut sinni og tunglið er á leið úr hinum vísu fiskum í hinn hvatvísa hrút. Það er engu líkara en að forsjá alheimsins sé ekki lengur til staðar og að okkar sé gætt af barnapíu á unglingsaldri. Þörfin fyrir að fíflast, gera at, borða of mikinn sykur og spila tónlist hátt gæti reynst einhverjum um megn. Sudoku Miðstig Lausnir síðustu Sudoku Lausn, ábendingar og tölvuforrit á www.sudoku.com Frumstig Miðstig Efstastig Frumstig © Puzzles by Pappocom Þrautin felst í því að fylla út í reitina þannig að í hverjum 3x3-reit birtist tölurnar 1-9. Það verður að gerast þannig að hver níu reita lína bæði lárétt og lóðrétt birti einnig tölurnar 1-9 og aldrei má tvítaka neina tölu í röðinni. Efstastig 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Krossgáta Lárétt | 1 ræna, 4 sligar, 7 baráttuhugur, 8 rauð- leitt, 9 sorg, 11 umhugað, 13 spik, 14 minnugur á misgerðir, 15 þvætt- ingur, 17 ker, 20 sterk löngun, 22 hrósar, 23 ráðum bót á, 24 let- urtákn, 25 bik. Lóðrétt | 1 staga, 2 litlu mennirnir, 3 forar, 4 klæðlaust, 5 hanski, 6 handlanga, 10 greftrun, 12 álít, 13 leyfi, 15 blöðr- ur, 16 meðulin, 18 ráða frá, 19 lengdareining, 20 tölustafur, 21 ábætir. Lausn síðustu krossgátu Lárétt: 1 moðreykur, 8 öndin, 9 gætin, 10 níu, 11 gerpi, 13 remma, 15 svelg, 18 skart, 21 ráp, 22 nagli, 23 alveg, 24 þrekvirki. Lóðrétt: 2 oddur, 3 renni, 4 ylgur, 5 ultum, 6 högg, 7 snúa, 12 púl, 14 eik, 15 sund, 16 elgur, 17 grikk, 18 spaki, 19 atvik, 20 tign.  Tónlist Reykholtskirkja | Tónleikar í org- eltónleikaröð Reykholtskirkju og FÍO verða haldnir 13. ágúst kl. 17. Jón Ólafur Sigurðs- son leikur á orgelið og Kristín R. Sigurð- ardóttir sópran syngur. Nánari uppl. á www.reykholt.is. Tékkneski tónlistarhópurinn Musica ad Gaudium sem hefur sérhæft sig í flutningi tónlistar frá endurreisnar- og barokk- tímabilinu heldur tónleika í Reykholtskirkju 15. ágúst kl. 20. Eydís Fransdóttir óbóleikari hefur starfað með hópnum frá 1992. Myndlist 101 gallery | Serge Comte – sjö systur – se- ven sisters. Til 2. september. Opið fim.–lau. kl. 14–17. Anima gallerí | Múni – Árni Þór Árnason og Maríó Múskat (Halldór Örn Ragnarsson). Á sýningunni, sem er þeirra fyrsta einkasýn- ing, eru málverk sem þeir hafa unnið saman að síðan sumarið 2005. Sýningin stendur til 12. ágúst. Opið fim. fös. og lau. kl. 13–17. Art-Iceland, Mublan | Fyrsta samsýning gallerísins Art-Iceland.com, Skólavörðustíg 1A. Listamennirnir sem sýna eru Árni Rúnar Sverrisson, Helga Sigurðardóttir og Álfheið- ur Ólafsdóttir. Sýningin er í Versluninni Mublunni, Nýbýlavegi 18, Kópavogi. Byggðasafn Garðskaga | Samsýning: Reyn- ir Þorgrímsson, Reynomatic-myndir. Björn Björnsson tréskúlptúr. Opið kl. 13–17 alla daga. Nýtt kaffihús er á staðnum. Café Karólína | Karin Leening sýnir en hún málar, teiknar, býr til teiknimyndir og kennir börnum myndlist. Stendur til 1. september. DaLí gallerí | Joris Rademaker sýnir rým- isverk til 26. ágúst. Opið virka daga og laug- ardaga kl. 14–18 í sumar. Eden, Hveragerði | Árni Björn með mál- verkasýningu. Opið frá kl. 9–22 daglega til 14. ágúst. Energia | Sölusýning á landslagsmyndum eftir myndlistarmanninn Mýrmann. Stendur út ágústmánuð. Nánari upplýsingar á http:// www.myrmann.tk. Hafnarborg | Yfirskrift sýningarinnar „hin blíðu hraun“ er frá Jóhannesi Kjarval og með henni beinir Hafnarborg sjónum að hrauninu í Hafnarfirði. Tólf listamenn sýna. Til 28. ágúst. Hallgrímskirkja | Sumarsýning Listvina- félags Hallgrímskirkju á verkum Ásgerðar Búadóttur veflistakonu stendur til 26. ágúst. Sýningin er í samvinnu við Listasafn Háskóla Íslands. Handverk og hönnun | Til sýnis íslenskur listiðnaður og nútímahönnun úr fjölbreyttu hráefni eftir 37 aðila. Á sýningunni eru hlutir úr leir, gleri, pappír, tré, roði, ull og silfri. Stendur til 27. ágúst. Opið alla daga kl. 13 –17, aðgangur er ókeypis. Kaffi Sólon | Kolbrún Róberts sýnir afstrakt málverk. Sýningin ber titilinn Himinn & jörð. Stendur til 1. september. Ketilhúsið Listagili | Hrefna Harðardóttir sýnir veggskúlptúra úr leir. Til 13. ágúst. Kirkjuhvoll Akranesi | Listsýning á verkum eftir 12 nýútskrifaða nema frá Listaháskóla Íslands. Opið alla daga nema mánudaga kl. 15–18. Til 13. ágúst. Listasafn ASÍ | Daði Guðbjörnsson, Eiríkur Smith, Hafstein Austmann og Kristín Þor- kelsdóttir sýna nýjar vatnslitamyndir. Einnig eru sýndar vatnslitamyndir eftir Svavar Guðnason í eigu Listasafns ASÍ. Opið kl. 13– 17. Aðgangur ókeypis. Til 13. ágúst. Listasafn Einars Jónssonar | Opið daglega nema mánudaga kl. 14–17. Höggmyndagarð- urinn við Freyjugötu er alltaf opinn. Listasafnið á Akureyri | Yfirlitssýning á verkum Louisu Matthíasdóttur. Sýningin spannar allan listamannsferil Louisu í sex áratugi. Til 20. ágúst. Listasafn Íslands | Landslagið og þjóðsag- an, sýning á íslenskri landslagslist frá upp- hafi 20. aldar og túlkun þjóðsagna. Verk úr safneign og Safni Ásgríms Jónssonar. Opið í Safnbúð og í Kaffitári í kaffistofu. Ókeypis aðgangur. Opið daglega kl. 11–17, lokað mánudaga. Til 19. ágúst. Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn | Sýning á úrvali verka úr safneign Ásmund- arsafns, sem sýnir með hvaða hætti lista- maðurinn notaði mismunandi efni – tré, leir, gifs, stein, brons og aðra málma. Til 31. des. Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Sýning á listaverkum sem voru valin vegna úthlut- unar listaverkaverðlaunanna Carnegie Art Award árið 2006. Sýningin endurspeglar brot af því helsta í norrænni samtímalist en meðal sýnenda eru fjórir íslenskir lista- menn, meðal annars listmálarinn Eggert Pétursson sem hlaut önnur verðlaun þetta árið. Til 20. ágúst. Erró – Grafík. Myndirnar eru frá ýmsum tímabilum í list Errós, þær nýjustu frá síð- astliðnu ári. Til 31. des. Listasafn Reykjavíkur, Kjarvalsstaðir | Sýning á verkum úr eigu safnsins. Fag- urfræði var höfð að leiðarljósi við val verk- anna. Margir af helstu málurum þjóðarinar eiga verk á sýningunni sem spannar tímabil- ið frá aldamótunum 1900 til upphafs 21. ald- arinnar. Til 17. september. Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Sýning á völdum skúlptúrum og portrettum Sig- urjóns Ólafssonar. Opið daglega nema mánudaga kl. 14–17. Kaffistofan er opin á sama tíma. Tónleikar á þriðjudagskvöldum. Sjá nánar á www.lso.is. Norræna húsið | Sumarsýning í anddyri til 27. ágúst. Ljósmyndir frá Austur-Grænlandi eftir danska ljósmyndarann Ole G. Jensen. Opið virka daga kl. 9–17, laugardaga og sunnudaga kl. 12–17. Out of Office – Innsetning. Listakonurnar Ilmur Stefánsdóttir og Steinunn Knútsdóttir í sýningarsal til 30. september. Opið alla dag kl. 12–15, nema mánudaga. Gjörningar alla laugardaga og sunnudaga kl. 15–17. Reykjavíkurborg | Stella Sigurgeirsdóttir sýnir skilti á 20 stöðum víða um borgina til 28. ágúst. Suðsuðvestur | Hreinn Friðfinnsson sýnir innsetninguna Sögubrot og myndir í Suðs- uðvestur í Reykjanesbæ. Sýningin stendur til 20. ágúst. Opið fimmtudaga og föstudaga kl. 16–18, um helgar kl. 14–17. www.sudsud- vestur.is. Thorvaldsen Bar | Jónína Magnúsdóttir, Ninný, með myndlistarsýninguna Í góðu formi. Sýningin stendur til 11. ágúst. Söfn Borgarskjalasafn Reykjavíkur | Sýning í til- efni af 70 ára afmæli Laugarnesskóla stendur yfir á Reykjavíkurtorgi, Tryggva- götu 15, 1. hæð. Opin virka daga kl. 11–19 og um helgar kl. 13–17. Ókeypis aðgangur. Gamli bærinn í Laufási | Bærinn er nú búinn húsmunum og áhöldum eins og tíðkaðist í kringum aldamótin 1900. Þjóðlegar veit- ingar í gamla presthúsinu. Opið daglega kl. 9–18, fimmtudaga kl. 9–22. 500 kr. inn. Frítt fyrir börn. Gljúfrasteinn – Hús skáldsins | Opið alla daga í sumar kl. 9–17. Hljóðleiðsögn á ís- lensku, ensku, þýsku og sænsku. Margmiðl- unarsýning og gönguleiðir í nágrenninu. Frekari upplýsingar á www.gljufrasteinn.is og í s. 586 8066. Iðnaðarsafnið | Á safninu getur að líta vélar og verkfæri af öllum stærðum og gerðum, framleiðsluvöru o.fl. Opið daglega kl. 13–17, til 15. september. 400 kr. inn, frítt fyrir börn. Kotbýli kuklarans | Sýning á Klúku í Bjarn- arfirði, sem er bústaður galdramanns. Litið er inn í hugarheim almúgamanns á 17. öld og fylgst með því hvernig er hægt að gera morgundaginn lítið eitt bærilegri en gær- daginn. Opið alla daga kl. 12–18 til 31. ágúst. Landnámssýningin Reykjavík 871±2 | Sýning á rúst af landnámsskála frá 10. öld sem fannst við fornleifauppgröft í Reykjavík 2001. Fróðleik um landnámstímabilið er miðlað með margmiðlunartækni. Opið alla daga kl. 10–17. Landsbókasafn Íslands, háskólabókasafn | Skráning viðburðar í Staður og stund er á heimasíðu Morgunblaðsins, www.mbl.is/sos Skráning viðburða

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.