Morgunblaðið - 11.08.2006, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 11.08.2006, Blaðsíða 20
Þetta er hugsjón hjá mér. Mér finnstað það eigi ekki aðeins að vera áfæri þeirra efnameiri að kaupahljóðfæri handa börnum sínum eða sjálfum sér. Með því að flytja inn einstaka hluti hljóðfæra og setja þau saman sjálfur, þá get ég náð verðinu niður,“ segir Rúnar Sig- urðsson hljóðfærasmíðameistari sem nýlega opnaði hljóðfæraverslun á netinu, þar sem hann selur hljóðfæri undir íslenska vörumerk- inu R.Sigurðsson. „Ég hef fengið ótrúleg við- brögð. Ég opnaði vefinn fyrir viku síðan og nú þegar eru komnar 2.000 heimsóknir inn á hann og ég er búinn að fá þó nokkrar pant- anir. Ég býð fólki upp á að koma og skoða hljóðfærin á verkstæðinu hjá mér, því það skiptir máli að fá að handleika hljóðfæri sem til stendur að kaupa. Ég lána líka tónlist- arskólum hljóðfæri til að prófa í vikutíma.“ Ég get alls ekki sleppt þessu Hljóðfærasmíðin er hliðarstarf hjá Rúnari en hann er í fullu starfi sem vefstjóri Kópa- vogsbæjar. „Ég var í fullu starfi við að gera við hljóðfæri og rak Gítarsmiðjuna í fjögur ár, þar sem ég bæði smíðaði hljóðfæri og gerði við þau. En það hefur gefið betur af sér að hafa þetta með fram öðru. En ég get alls ekki sleppt þessu, því það skiptir mig miklu máli að starfa við eitthvað sem er skapandi og lifandi. Og það er alveg sérstök tilfinning sem fyglir því að búa til hljóðfæri. Hljóðfæri er á ein- hvern hátt lifandi. Þegar ég hef lokið við að smíða það, þá lifnar það við þegar leikið er á það. Mér finnst ég skilja eitthvað eftir mig, þegar ég smíða hljóðfæri. Alls ólíkt því sem gerist þegar ég smíða húsgagn. Mér finnst stóll eða borð sem ég hef smíðað vera stein- dautt,“ segir Rúnar sem lærði fyrst hús- gagnasmíði, til að búa sig undir hljóðfæra- smíðanámið. Spilar með bílskúrsbandi „Ég lauk námi í hljóðfærasmíði frá Leeds Collage Of Music fyrir átta árum en erendi mitt var sjö ár hjá Menntamálaráðuneytinu um að fá mig metinn sem hljóðfærasmið og þess vegna hlaut ég ekki meistaragráðu fyrr en í vor. Þegar ég var í hljóðfæraviðgerðunum þá var ég fyrst með aðstöðu í skúr hjá pabba mínum í Blómatorgi á horni Hringbrautar og Birkimels. Ég er eiginlega alinn upp í þeirri blómabúð, vann þar í 17 ár, en afi minn byrj- aði með hana 1949.“ Rúnar er fyrst og fremst með strengjahljóðfæri í hljóðfæraverslun sinni, enda er hann gítarleikari og til að kom- ast í hljóðfærasmíði þarf að læra á klassískan gítar og fiðlu, en Rúnar var á sínum tíma í Tónlistarskóla Sigursveins og fór auk þess í Tónlistarháskóla í Bretlandi. „Ég spila með ónafngreindu bílskúrsbandi í Grafarvoginum, eingöngu mér til ánægju og ynd- isauka, en ég spilaði mikið þegar ég var yngri,“ segir Rúnar sem legg- ur mikið upp úr því að þjónusta sína viðskiptavini vel með við- gerðir. „Það er miklu meira ná- kvæmnisverk að gera við hljóð- færi heldur en smíða það.“  NETIÐ | Hljóðfærasmiður hefur opnað íslenska hljóðfæraverslun á netinu Hljóðfæri eru lifandi Reuters Morgunblaðið/ÞÖK Rúnar hugar að fiðlu en á borðinu liggur rafmagnsgítar sem hann hefur nýlokið við að smíða. Eftir Kristínu Heiðu Kristinsdóttur khk@mbl.is Slóð hljóðfæraverslunarinnar er: www.hljodfaeri.is Daglegtlíf ágúst VINNAN er mikilvægasti þátturinn í því að skapa lífshamingju, ef marka má könn- un meðal launþega í sex Evrópulöndum. Könnunin leiddi í ljós að flestir laun- þeganna telja að mikilvægast sé að hafa ánægju af vinnunni og það skipti meira máli en þættir eins og fjölskyldan, heils- an, fjárhagurinn eða félagslífið. Tóm- stundirnar og umhverfið voru enn neðar á listanum, að því er fram kom á norska vefnum forskning.no. Niðurstaðan er að leiðinleg vinna sé lík- leg til að kæfa lífshamingjuna. „Þar sem vinnan er mjög stór hluti af lífi okkar flestra er það sem við fáum út úr vinnunni mikilvægur þáttur í því hversu ánægð við erum sem einstaklingar,“ hafði vefurinn eftir Ioannis Theodossiou, sem stjórnaði rannsókninni, en hann er prófessor við Aberdeen-háskóla. Rannsóknin náði til launþega í Bret- landi, Danmörku, Frakklandi, Grikk- landi, Hollandi og á Spáni. Hún bendir einnig til þess að fólk með mikla menntun hneigist til þess að vera óánægðara með vinnuna en fólk með litla menntun. Flestir launþeganna töldu mikilvægast að hafa ánægju af vinnunni og það skipti meira máli en þættir eins og fjölskyldan, heilsan, fjárhagurinn eða félagslífið. Leiðinleg vinna kæfir lífsgleðina  KÖNNUN NÚ þegar erfðamengi mannsins hefur verið raðgreint hafa vísindamenn í Bret- landi einsett sér að leysa eitt af snúnustu vandamálum heimsins: hvernig sjóða á fullkomin egg. Lions Quality Eggs, bresk stofnun sem tryggja á gæði eggja, ákvað að fela hópi sérfræðinga að leysa þetta vandamál vegna fjölmargra beiðna frá mæddum neytendum. Lausnin felst í hitanæmu bleki sem er ósýnilegt þar til eggið í pottinum er orð- ið nákvæmlega eins og neytandinn vill: lin-, miðlungs- eða harðsoðið. „Við fengum fjölmargar fyrirspurnir frá fólki og það vakti áhuga eggja- framleiðenda. Við sögðum: Gott og vel, þetta er stórmál – fólk getur ekki einu sinni soðið egg,“ hafði fréttavefur CNN eftir talsmanni Lions Quality Eggs. Þegar þessi tækni hefur verið full- komnuð verða eggin seld í bökkum sem verða merktir eftir því hvernig fólk vill hafa eggjarauðuna. Morgunblaðið/Árni Sæberg Fullkomin eggjasuða gulltryggð  NÝJUNG RÚNAR hefur starfsheitið luthier, sem strangt til tekið merkir lútusmiður en í dag nær það yfir þá sem smíða strengjahljóðfæri. Márar spiluðu á lútu en þegar þeir töpuðu völdum voru allir lútusmiðir kallaðir saman og ákveðið að gera nýtt þjóðarhljóðfæri fyrir Spán og þá var gítarinn hannaður. En lútusmiðir hættu ekki að bera starfsheitið luthier þó svo að þeir tækju til við að smíða gítara. Lútan er móðir gítarsins Mér finnst ég skilja eitthvað eft- ir mig, þegar ég smíða hljóðfæri

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.