Morgunblaðið - 11.08.2006, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 41
MENNING
SKRÁNING Á NÝJA TÓNVINNSLU-
NÁMSKEIÐIÐ ER HAFIN
Til að annast tónsmíðar, útsetningar, hljóðritun og eftirvinnu
þarf þekkingu, einbeitingu og útsjónarsemi. Á aðalnámsbraut
Tónvinnsluskóla Þorvaldar Bjarna er leitast við að gera nemendur
fullfæra um að semja eigið lag og koma því frá sér fullunnu.
Nemendur fá ítarlega leiðsögn á Pro Tools og Reason samhliða
lagasmíðum og er farið í kjölinn á því sem þarf að vera á hreinu
varðandi öll helstu tækniatriði hljóðversins. Að námsbrautinni
lokinni ætti hver og einn að þekkja upptökuferlið frá grunni.
Hljóðupptökuhluti námskeiðsins fer fram í einu glæsilegasta
hljóðveri landsins; Sýrlandi.
Samhliða greinargóðu hljóðupptökunámi eru lagasmíði og
upptökustjórn gerð rækileg skil. Nemendur fá nákvæmar
leiðbeiningar um helstu atriði þessa krefjandi sviðs frá nokkrum
af fremstu hljóðversmönnum landsins.
FARÐU Á TONVINNSLUSKOLI.IS OG VELDU ÞÉR NÁMSKEIÐ
TÓNVINNSLUNÁM
Skráningarsími: 534 9090
NÝLEGA var opnuð sýning aust-
urríska myndlistarhópsins Gelitin
sem ber titilinn Hugris. Á opnuninni
var frumfluttur gjörningur sem vísar
beint í titil sýningarinnar þar sem
meðlimir hópsins, Tobias Urban,
Wolfgang Gantner, Florian Reither
og Ali Janka ásamt þremur gesta-
listamönnum, könnuðu mátt ímynd-
unaraflsins við mótun veruleikans.
Á opnuninni söfnuðust gestir sam-
an á sýningunni þar sem sjá mátti eft-
irmynd af suðrænu ávaxtatré sem í
héngu veitingar, bananar, ananas og
perur. Undir þessu blandaða
ávaxtatré (minnir á verk sem Birgir
Snæbjörn Birgisson gerði á skóla-
árum sínum) stóðu veigar þær sem
gestum var boðið að drekka en til
hliðar á annarri skúlptúreyju var
nokkurskonar muffins-hlaðborð sem
gestir sýndu ekki sama áhuga (það
sem leit út eins og kúkur í botninum
reyndist vera ljúffengt lundakjöt).
Sjömenningarnir sem frömdu
gjörninginn komu grímuklæddir ríð-
andi niður Laugaveginn ásamt fylgd-
arliði, staðnæmdust fyrir utan gall-
eríið meðan fjölmiðlar tóku af þeim
myndir og hurfu baksviðs í húsnæði
Kling og Bang til að gera sig klára
fyrir hinn langa gjörning sem síðar
fór í hönd.
Orðaleikir á borð við Phony Pony,
Italian Stallion, Bananas Ananas og
Puffin Muffin eru í anda sýning-
arinnar sem tekur sig ekki of hátíð-
lega.
Þegar gjörningurinn var byrjaður
fóru áhorfendur í litlum hópum að
sviðinu gegnum bakdyr gallerísins
um dimma ganga og brattar tröppur
þar sem ekki var pláss fyrir alla í
einu. Í upplýstri sviðsmyndinni mátti
sjá sjömenningana liggja mak-
indalega og gleiðfætta útaf í stólum
og athyglin beindist óhjákvæmilega
að því að klofbótin á buxum þeirra
hafði verið klippt burt svo kynfærin
voru nakin, úti og í aðalhlutverki.
Eins og marga grunaði og titill sýn-
ingarinnar gaf í skyn þá ætluðu lista-
mennirnir að láta reyna á ímyndunar-
afl sitt eitt saman til að framkalla
holdris, sem og mörgum tókst.
Þrátt fyrir sterkan kynferðislegan
undirtón og eðlilega forvitni gesta um
mismunandi sköpulag kynfæranna og
árangur ímyndunarafls þeirra þá er
fjarri því að gjörningurinn hafi verið
klámfenginn. Miklu frekar minnti
hann á ótímagreint leikhús eða upp-
stillingu í málverki þar sem andi lista-
sögunnar sveif yfir vötnum. Því þegar
upp er staðið þá hefur kynferðislegur
fetismi eða blæti hverskonar lagt
grunn að þeirri fagurfræði sem lista-
sagan byggist á. Þar fyrir utan er
ákaflega áhugavert að setja þennan
gjörning í samhengi við hugmyndir
manna síðastliðinnar aldar og allt til
dagsins í dag um að sköp manna
(karlmanna) séu grunnforsenda og
hliðstæða listrænnar sköpunar.
Penninn, pensillinn og meitillinn eru
tákngerðir sem fallus, ímyndunar-
aflið, myndhugsun og snertiminni
gera (lista)mönnum kleift að hold-
gera ímyndunaraflið.
Vísindi samtímans hafa komist að
því að ímyndunaraflið er ekki síður
raunverulegt og áþreifanleikinn þeg-
ar líkami mannsins á í hlut eins og
rannsóknir með lyfleysur hafa leitt í
ljós. Uppgötvanir listamannanna á
þessu sviði koma því fáum á óvart því
flestir hafa heyrt um (eða reynt)
holdris við ákveðnar óvæntar kring-
umstæður eða hugrenningar í svefni
eða vöku. Hins vegar er sýningin
miklu víðtækari en útskýring á mætti
ímyndunaraflsins, hún er sjónræn og
fagurfræðileg reynsla með ótal skír-
skotanir sem nær að tala til samtím-
ans jafnt sem sögunnar á margræðan
hátt.
Sýningin sjálf stendur til 13. ágúst,
svo og sviðsmynd gjörningsins sem
þrátt fyrir fjarveru listamannanna
býr enn yfir ákveðinni minningu eða
galdri í anda gjörningsins. Það sem
eftir lifir sýningar byggist nú meira á
ímyndunarafli áhorfandans.
Upprisa holdsins, hin eilífa list
MYNDLIST
Kling og Bang gallerí
Sýningin stendur til 13. ágúst
Opið fimmtudaga til sunnudaga
kl.14–18.
Gelitin hópurinn/Hugris
Þóra Þórisdóttir Meðlimir Gelitin reyndu að framkalla holdris fyrir tilstuðlan hugans.
TÉKKNESKI tónlistarhópurinn
Musica ad Gaudium heldur tónleika í
Reykjahlíðarkirkju í Mývatnssveit
laugardagskvöldið 12. ágúst kl. 21. og
í Akureyrarkirkju sunnudaginn 13.
ágúst kl. 17.
Musica ad Gaudium var stofnaður
árið 1989. Hópurinn sérhæfir sig í
tónlist frá endurreisnar- og barokk-
tímabilinu. Hann hefur gert upptökur
fyrir tékkneska útvarpið og haldið
marga tónleika í Tékklandi og ná-
grannalöndum. Hópurinn lék þrenna
tónleika hérlendis sumarið 2004 við
góðar undirtektir áheyrenda.
Hópinn skipa: Andrea Brožáková
sópran, Alena Tichá semballeikari,
Jaromír Tichý flautuleikari og Václav
Kapusta fagottleikari. Gestur hópsins
að þessu sinni er Eydís Franzdóttir
óbóleikari.
Aðgangur er ókeypis á tónleikana.
Musica ad
Gaudium í
Reykjahlíð