Morgunblaðið - 11.08.2006, Blaðsíða 36

Morgunblaðið - 11.08.2006, Blaðsíða 36
Grettir Smáfólk Kalvin & Hobbes Hrólfur hræðilegi Gæsamamma og Grímur Úthverfið Kóngulóarmaðurinn SIGGA, ÉG HELD AÐ SKRÍMSLIÐ LEYNIST BAK VIÐ ÞESSA HURÐ HÉRNA! ER ÞAÐ GUNNI? SIGGA, ERTU TIL Í AÐ OPNA HURÐINA HANN ER MESTI HEIÐURS- MAÐUR ÞESSI GUNNI KONAN MÍN VERÐUR AÐ KUNNA AÐ ELDA ÉG ER GÓÐUR KOKKUR HA, HA, HA. ÉG HEF MJÖG GOTT SKOPSKYN SVO VERÐUR HÚN AÐ VERA TILBÚIN TIL AÐ VAKA FRAM EFTIR ÖLLU HLUSTANDI Á LÚTULEIK HÚN VERÐUR AÐ HAFA GOTT SKOPSKYN MARKÚS FRÆNDI, MIG LANGAR AÐ SÝNA ÞÉR SMÁ TÖFRABRAGÐ EN FYRST ÞARF ÉG AÐ FÁ 1000 KR. SEÐIL HVAÐ MEÐ TÍKALL? NEI, BRAGÐIÐ VIRKAR BARA EF ÉG FÆ SEÐIL HELDURÐU AÐ MARKÚS FRÆNDI SÉ HEIMSKUR? VAR PABBI BÚINN AÐ KJAFTA Í ÞIG? ÞAÐ ER KOMINN TÍMI TIL AÐ BORGA ÖNDUNARSKATT BORGA HVAÐ? HVERNIG DETTUR YKKUR Í HUG AÐ SKATTLEGGJA ÖNDUN? VEGNA ÞESS AÐ ALLIR ÞURFA AÐ ANDA! HVERNIG LIÐI ÞÉR, EF ÉG SEGÐI ÞÉR AÐ LASSIE HEFÐI ORÐIÐ FYRIR BÍL? ÞAÐ ER NÚ EKKI SVO MIKIÐ MÁL AÐ NONNI VILJI EKKI SPILA HAFNABOLTA Í ÁR VÍST HANN HEFUR GOTT AF HREYFINGUNNI OG AÐ LÆRA AÐ SPILA MEÐ ÖÐRUM EN EF VIÐ NEYÐUM HANN TIL AÐ SPILA, ÞÁ Á HANN KANNSKI EFTIR AÐ HATA HAFNABOLTA ÞAÐ SEM EFTIR ER EITTHVAÐ VERÐA SÁLFRÆÐINGAR FRAMTÍÐARINNAR AÐ HAFA AÐ GERA ERTU AÐ GRÍNAST? ...OG HÉRNA ERU SAMNINGARNIR YKKAR ERTU EKKI AÐ GRÍNAST! EFTIR ÞESSA HEIMSKULEGU BRELLU! RÉTTU MÉR PENNANN Dagbók Í dag er föstudagur 11. ágúst, 223. dagur ársins 2006 Víkverji átti leið umsinn gamla heimabæ, Akureyri, fyrr í sumar. Þangað er alltaf gott að koma, mikil uppbygging hef- ur átt sér stað nyrðra á umliðnum árum og heilu hverfin risið síð- an Víkverji fluttist á brott fyrir hálfum öðr- um áratug. Góð stemning virðist vera í bænum og svo er veðrið alltaf gott – eins og alþjóð er kunnugt. Það er bara eitt sem fer í taugarnar á Víkverja á Ak- ureyri. Það er Ráðhústorgið. Það er alltaf jafn arfaljótt. Ætli það sé ekki meira en áratugur síðan hönd dauð- ans lagðist yfir það og Víkverji full- yrðir að Ráðhústorgið er ljótasta torg sem hann hefur séð – og er hann þó bærilega sigldur náungi. Hvernig í ósköpunum stendur á því að torgið er ekki lagað og gert mannvænt? Það er aldrei nokkra hræðu að sjá þarna enda eirir fólk illa í eyðimörk. Meðan Víkverji staldraði við í miðbænum gekk einn maður yfir torgið, Friðrik Þór Frið- riksson kvikmyndagerðarmaður. Ætli hann sé ekki að leggja drög að eyðimerkurmynd og hafi verið þarna við vettvangsrannsóknir? Önnur skýring getur ekki verið á göngu hans yfir torgið. x x x Svo er það þettaferlí0ki andspænis Nýja bíói. Hvaðan kemur það? Það er eins og húsameistari almættisins hafi óvart misst það niður og gleymt að sækja það aftur. Þvílíkur hryll- ingur og eyðilegging á öllu umhverfi. Þá biður Víkverji nú frekar um gömlu Nætursöluna, þar sem hann beið ófáar mínúturnar eft- ir strætó í gamla daga. Talandi um strætó. Víkverji gat ekki betur séð um daginn en einn af gömlu grænhvítu vögnunum þjónaði bæjarbúum ennþá. Hvað er langt síðan þeir komu? Aldarfjórðungur? Það er ekki slæm nýting á stræt- isvagni. Gömlu vagnarnir eru að vísu fleiri, því einn eða tveir þjóna í dag sem skólabílar í Mosfellsbæ sem er eitt og sér ástæða til að sækja þann ágæta bæ heim. Þær eru víðar en á Þjóðminjasafninu, fornminjarnar. Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is         Reykjavík | Júlíus Samúelsson myndlistarmaður stendur fyrir sýningu á Broadway á laugardaginn sem einungis stendur í einn dag. Hér er hann staddur á vinnustofu sinni á Hólmaslóð í Reykjavík. Morgunblaðið/Eyþór Myndlistarsýning á Broadway MORGUNBLAÐIÐ, Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569 1181, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.800 kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr. Orð dagsins: En hjálparinn, andinn heilagi, sem faðirinn mun senda í mínu nafni, mun kenna yður allt og minna yður á allt það, sem ég hef sagt yður. (Jóh. 14, 25.)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.