Morgunblaðið - 11.08.2006, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 11.08.2006, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR STÖÐVUÐU HRYÐJUVERK Breska lögreglan kom upp um samsæri hryðjuverkamanna sem ætl- uðu að sprengja allt að 10 bandarísk- ar farþegaþotur á leið frá landinu vestur um haf á næstu dögum. Hafa 24 meintir hryðjuverkamenn þegar verið handsamaðir en nokkrir eru sagðir leika lausum hala enn þá. Fólkið er flest sagt vera með breskt ríkisfang en af pakistönskum upp- runa. Öryggisgæsla var hert mjög á flugvöllum í Bretlandi og í Bandaríkj- unum vegna þessara tíðinda og var hundruðum flugferða aflýst. Siv í formannsslaginn Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, lýsti því yfir í gær að hún sæktist eftir embætti formanns Framsóknarflokksins á flokksþingi sem haldið verður eftir miðjan ágúst. Hún segir mikilvægt fyrir flokkinn að sækja fram, enda sé stutt í alþingiskosningar, þær verða á næsta ári. Hjálpargögn til Týrus Yfirmaður alþjóðaráðs Rauða krossins, Jakob Kellenberger, sagð- ist í gær hafa fengið loforð frá Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, um að allt yrði gert til að greiða fyrir flutningum á hjálpargögnum til nauð- staddra borgara í Líbanon. Mun skip á vegum Rauða krossins vera á leið til Týrus með hjálpargögn. Vilja breyta skattakerfi Formenn stjórnarandstöðuflokk- anna segja allir að gera þurfi breyt- ingu á skattkerfinu til að auka jafn- ræði í samfélaginu. Formenn Samfylkingar og Vinstri grænna benda á að lausnin geti mögulega fal- ist í frítekjumarki á fjármagnstekjur, en hærri skattprósentu á allt umfram frítekjumarkið. Y f i r l i t Í dag Fréttaskýring 8 Bréf 23 Úr verinu 11 Forystugrein 24 Viðskipti 12 Minningar 26/32 Erlent 14/15 Hestar 34 Minn staður 16 Myndasögur 36 Höfuðborgin 17 Dagbók 36/39 Akureyri 17 Víkverji 36 Suðurnes 18 Staður og stund 38 Austurland 18 Bíó 42/45 Menning 19, 40/45 Ljósvakamiðlar 46 Daglegt líf 20/21 Veður 47 Umræðan 22/23 Staksteinar 47 * * * Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jó- hann Björnsson, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Auður Jóns- dóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is                                  ! " # $ %          &         '() * +,,,                Eftir Brján Jónasson brjann@mbl.is TVEIR af fjórum flugumferðar- stjórum sem manna áttu næturvakt Flugmálastjórnar síðastliðna nótt tilkynntu veikindi í gær. Fullyrt er að reynt hafi verið að þvinga flug- umferðarstjóra í vaktafríi til að mæta til vinnu þótt þeir treystu sér ekki til að gegna starfinu sökum svefnleysis. „Þeim er skipað að koma, vænt- anlega á grundvelli laga um réttindi og skyldur [opinberra starfsmanna], þar sem ríkisstarfsmenn þurfa að vinna ákveðinn hluta af vinnu í yf- irvinnu,“ sagði Loftur Jóhannsson, formaður Félags íslenskra flugum- ferðarstjóra, skömmu áður en vakt- in hófst í gærkvöldi. „Það getur vel verið að menn komi, láti sig hafa það, en það er gert með þessum hætti, það er verið að pína menn til þess með einhverjum óljósum hót- unum.“ Hjördís Guðmundsdóttir, upplýs- ingafulltrúi Flugmálastjórnar, þver- tók í gærkvöldi fyrir að reynt hefði verið að þvinga flugumferðarstjóra til starfa. Hringt hefði verið í fólk og það beðið um að vinna, en starfs- mönnum hefði verið í sjálfsvald sett hvort þeir tækju það að sér eða slepptu því. Hjördís staðfesti þó að veikindi hefðu valdið vandræðum við að manna vakt. Hún sagði að tekist hefði að leysa vandamálið að hluta og vonir stóðu til þess í gærkvöldi að takast mætti að fullmanna vaktina. Mikil óánægja hefur verið meðal flugumferðarstjóra í sumar vegna nýs vaktakerfis og í lok júlí urðu taf- ir á flugi þegar ekki gekk að manna vaktir þegar starfsmenn tilkynntu veikindi. Ekki var ljóst þegar Morg- unblaðið fór í prentun hvort tafir hafi orðið vegna þess að flugumferð- arstjórar hafi verið fáliðaðir í nótt. Átti að mæta ósofinn til starfa Næturvaktirnar standa frá kl. 20 til 7 um morgun og segir Loftur að hafa verði ákveðinn fyrirvara á því að taka að sér kvöldvakt til að mæta ekki ósofinn til starfa. Þrátt fyrir þetta hafi verið reynt að skipa flug- umferðarstjóra á frívakt að mæta á næturvaktina þótt hann hafi lýst því yfir að hann treysti sér ekki til þess af þeim orsökum. Loftur segir að félagið muni ekki beita sér sérstaklega vegna málsins, það sé einstaklinganna að meta sitt ástand og hvort þeir séu hæfir til vinnu. Hann segist ekki vita betur en að flugumferðarstjórinn, sem treysti sér ekki til að mæta, hafi ekki mætt til starfa. Hinn 1. ágúst sl. fundaði svo sam- gönguráðherra með deiluaðilum og boðaði í kjölfarið að gerð yrði úttekt á starfsaðstöðu flugumferðarstjóra. Úttektin hefur enn ekki hafist, en Hjördís segir vinnu við að fá aðila til að taka verkið að sér í gangi. Loftur segist hafa talið eftir fundinn með ráðherra að flugumferðarstjórum hafi verið heitið að þeir fengju að eiga fulltrúa í úttektarhópnum, en nú sé talað um að þeir fái einungis að leggja gögn fyrir þá sem vinni út- tektina. Veikindi valda vandræðum með að manna vaktir flugumferðarstjóra Segja að reynt sé að þvinga menn til starfa ÞAÐ VAR nokkuð dimmt yfir höf- uðborginni í gær enda rigning og hiti varla nema rétt um 10°. Á morgun á hins vegar að létta til suðvestanlands samkvæmt spánni þótt áfram verði úrkoma fram eftir degi á norðaustanverðu landinu. Ferðamenn sem voru á göngu um Reykjavík í gær og litu til veðurs undan regnhlífunum geta því skoðað sig um án regnfatn- aðar í dag en spáð er allt að 18° hita, hlýjast verður suðaust- anlands. Morgunblaðið/Eggert Horft til veðurs AUKNUM viðbúnaði var komið á á Keflavík- urflugvelli í gærmorgun vegna flugs til Banda- ríkjanna í kjölfar þess að upp komst um áform hryðjuverkamanna í Bretlandi sem hugðust sprengja farþegaþotur í loft upp yfir Atlantshafi á leiðinni frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Björn Ingi Knútsson flugvallarstjóri segir að þegar upp kemur yfirvofandi hryðjuverkaógn sé viðbúnaðarstigið hækkað. „Í því felst hertari að- gangsstjórnun, meiri sýnileiki lögreglumanna og öryggisvarða og eins er öryggisleit á farþeg- um hert þegar þeir koma inn á haftasvæði flug- verndar.“ Aukna viðbúnaðinum var fylgt eftir í síðdeg- isflugi til Bandaríkjanna en í gærdag lá ekki fyrir hversu lengi viðbúnaðarstigið gildir. „Við höfum móttekið sértækar öryggiskröfur frá bandarískum flugmálayfirvöldum sem beinast gegn flugi til Bandaríkjanna. Það eru sérstakar kröfur sem okkur er bæði ljúft og skylt að upp- fylla til þess að flugið teljist öruggt frá okkur hér á Keflavíkurflugvelli,“ segir Björn Ingi. Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Kefla- víkurflugvelli, sagði í gærkvöldi að viðbúnaður embættisins miðaðist við að viðbúnaðarstigið verði áfram hátt næstu daga. Því verði í það minnsta ekki breytt hér á landi þar til fréttir taki að berast af að viðbúnaðarstigið hafi verið lækkað annars staðar. Óleyfilegt að fara með vökva í handfarangri Í gær var það þannig að óskað var eftir að handfarangur væri eins takmarkaður og mögu- legt var. „Í handfarangri má ekki vera vökvi, t.a.m. gosdrykkir, vatn, áfengi og ilmvötn. Mjólk fyrir ungbörn er undanþegin sem og lyf stíluð á viðkomandi flugfarþega.“ Að auki mátti ekki fara með í handfarangri hársápu, tannkrem og hársnyrtivörur svo fátt sé nefnt. Allar öryggiskröfur voru uppfylltar á því svæði flugstöðvarinnar þar sem flug til landa sem eru utan Schengen fer um. Því fylgdu því ekki teljandi erfiðleikar en ekki var óskað eftir því af breskum flugmálayfirvöldum að viðbún- aðarstigið yrði aukið vegna flugs þangað. Regl- ur Evrópusambandsins um flug til Bretlands gilda því og Keflavíkurflugvöllur framfylgir þeim. Aukinn viðbúnaður á Keflavíkurvelli Ljósmynd/Víkurfréttir Margir farþegar þurftu að finna sér eitthvað að gera til að drepa tímann í Flugstöð Leifs Eiríks- sonar þegar tafir urðu á flugi á leið til London. LÖGREGLAN í Reykjavík stöðvaði ökumann á þrítugsaldri í fyrradag fyrir hraðakstur og kom þá í ljós að það var í sjötta sinn á árinu sem hann var tekinn fyrir hraðakstur, þar af eru fjögur hraðabrot hans framin undanfarnar tvær vikur. Að sögn lögreglu nema sektargreiðslur fyrir þessi sex brot um 170 þúsund krónum en þessi ökumaður virtist kæra sig kollóttan. Hann hefur feng- ið á sig 11 punkta en sá sem fær tólf punkta er sviptur ökuleyfi í 3 mán- uði og því viðbúið að ökumannsins bíði senn slík refsing, segir lögregla. Tekinn í sjötta skipti á árinu fyrir hraðakstur TVEIR menn slösuðust er fólks- bifreið sem þeir voru í fór út af hringveginum í Eldhrauni vestan við Kirkjubæjarklaustur á tíunda tímanum í gærkvöldi. Sjúkrabíll flutti báða mennina á heilsugæslu- stöðina á Kirkjubæjarklaustri en hvorugur þeirra var í lífshættu. Bifreiðin er ónýt og að sögn lög- reglu var mikil mildi að ekki fór verr þar sem hún var fullhlaðin kútum. Kútarnir dreifðust að sögn um næsta nágrenni, þar á meðal kútur sem hafði að geyma 200 kg af köfnunarefni. Tveir slösuðust í útafakstri

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.