Morgunblaðið - 11.08.2006, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Verðhrun
Útsölunni lýkur
á morgun, laugardag
25-50%
afsláttur
Nýjar vörur í Bæjarlind
Dúndur-útsala í Eddufelli
Eddufelli 2 Bæjarlind 6
sími 557 1730 sími 554 7030
Opið mán.-fös. kl. 10-18, lau. kl. 10-15
BARA FLOTT GLERAUGU
Laugavegi 32
s: 561 0075
www.sjadu.is
Laugavegi 63 • S: 551 4422
ÚTSÖLULOK
VERÐHRUN
Málverkasýning
Ármúla 42
sími 895 8966
Opið alla daga frá
kl. 10-18
Frábær opnunartilboð
eftir meistarann ZU
POSTULÍNSLJÓS TESETT POSTULÍNS-
BLÓMAPOTTAR
MATARSETT
15%
AFS
L.
30%
AFS
L.
2 FY
RIR
1
40%
AFS
L.
FASTEIGNASALAN
GIMLI GRENSÁSVEGI 13SÍMI 570 4800 - FAX 570 4810
Traust þjónusta í 20 ár
Árni Stefánsson, viðskiptafræðingur
og lögg. fasteignasali.
ÖLDUBYGGÐ - GRÍMSNESI
www.gimli.is - ww.mbl.is/gimli
Vorum að fá í sölu glæsi-
leg og vel byggð ca 90 fm
(grunnfl. 56,5 fm) sumar-
hús/heilsárshús á tveim
hæðum, steyptur grunnur
m. /hitalögn í gólfum. Stór
verönd, á verönd er harð-
viður og gagnvarið efni í
handriðum, gert er ráð fyrir
heitum potti á verönd.
Húsin verða afh. fullbúin og eru til afh. fljótlega. Þrjú til fjögur svefnherb.,
tvær snyrtingar, eldhús og stofa, geymsla og lagnaherb. Rennihurðir úr
stofu á verönd, fallegt útsýni af svölum efri hæðar. Húsin eru á eignarlóð-
um. Verið er að byggja golfvöll og sundlaug í næsta nágrenni. Húsin eru
kynnt m. rafmagni en möguleiki á heitu vatni fljótlega. Verð 25,9 millj.
Eigandi sýnir húsin, sími 663 4374, Ásdís.
Lokaútsala
70% afsláttur af öllum útsöluvörum
www.belladonna.is
SVÆÐIÐ sem Vegagerðin leggur
nú veg um á Arnarvatnsheiði er á
náttúruminjaskrá að sögn Helga
Jenssonar, forstöðumanns fram-
kvæmda- og eftirlitssviðs Umhverf-
isstofnunar. Hann segir að lögum
samkvæmt skuli Vegagerðin leita
umsagnar Umhverfisstofnunar áður
en farið er í vegaframkvæmdir á
slíkum svæðum og að það hafi verið
gert í þessu tilfelli. Félagar í
Ferðaklúbbnum 4x4 hafa lýst því
yfir að verið sé að leggja nýjan veg
og framkvæmdin sé umhverfis-
spjöll.
„Við byggðum okkar umsögn á
ákveðnum upplýsingum og gögnum
sem við fengum frá Vegagerðinni
og nú erum við að fara yfir hvort
farið hafi verið eftir umsögn okkar
við gerð vegarins. Það gerum við
með því að kanna aðstæður á vett-
vangi og bera saman við þær upp-
lýsingar sem við höfum,“ segir
Helgi.
Helgi tekur hinsvegar fram að
samkvæmt formlegu ferli séu fram-
kvæmdir innan svæða á náttúru-
minjaskrá einnig tilkynningaskyld-
ar til Skipulagsstofnunar. „Þetta á
Vegagerðin að vita og væntanlega
hefur það ákvæði verið brotið. Sá
formgalli breytir þó væntanlega
engu um framkvæmdina,“ segir
Helgi og tekur fram að Skipulags-
stofnun kanni álit Umhverfisstofn-
unar og að tilkynningin sé því form-
legs eðlis.
Endurbætur
eða nýr vegur?
Þóroddur F. Þóroddsson, sér-
fræðingur á umhverfissviði Skipu-
lagsstofnunar, segist ekki kannast
við að Vegagerðin hafi tilkynnt
stofnuninni um þessa framkvæmd,
en hann geti þó ekki fullyrt um
hvort hún sé tilkynningaskyld.
„Í 10. lið C, II. viðauka við lög
um mat á umhverfisáhrifum segir
að allir nýir vegir utan þéttbýlis á
verndarsvæðum og á svæðum sem
eru á náttúruminjaskrá séu tilkynn-
ingaskyldir. Ef um nýjan veg er að
ræða á Vegagerðin að tilkynna
stofnuninni um framkvæmdina,“
segir Þóroddur.
Ekki náðist í yfirmenn hjá Vega-
gerðinni vegna málsins en yfirverk-
stjóri á svæðisstöð Vegagerðarinn-
ar í Borgarnesi sagðist ekki vita
annað en að framkvæmdin væri
samkvæmt lögum og reglum, enda
væri vegurinn landsvegur í þjóð-
vegatölu.
Umhverfisstofnun
kannar vegagerð
á Arnarvatnsheiði
Eftir Berg Ebba Benediktsson
bergur@mbl.is
LEIKSKÓLASTJÓRAR hjá Reykja-
víkurborg standa fyrir opnum
fundi í næstu viku þar sem þeir
óska frekari skýringa frá fulltrúum
meiri- og minnihluta menntaráðs á
stofnun nýs leikskólaráðs. Fund-
urinn verður haldinn þriðjudaginn
15. ágúst, kl. 16.30, í húsnæði
Menntasviðs að Fríkirkjuvegi 1.
Í frétt frá leikskólastjórum segir:
„Undanfarin 2 ár hafa staðið yfir
breytingar á yfirstjórn leikskóla-
mála í Reykjavík, þar sem Fræðslu-
miðstöð Reykjavíkur og Leikskólar
Reykjavíkur voru sameinuð undir
eitt svið, Menntasvið. Nú er áætlað
af hálfu borgarfulltrúa Framsókn-
arflokks og Sjálfstæðisflokks að
stofna nýtt leikskólaráð með því að
kljúfa leikskólann frá Menntasviði
og stofna nýtt svið og munu málefni
leikskólans þá ekki lengur heyra
undir menntaráð sem nýlega tók til
starfa.“ Á þessu vilja leikskólastjór-
arnir fá skýringar.
Vilja skýringar
vegna stofnunar
leikskólaráðs
ÍSLANDSDEILD Amnesty Int-
ernational hefur sent Valgerði
Sverrisdóttur utanríkisráðherra
áskorun um að Ísland beiti sér á
vettvangi Sameinuðu þjóðanna fyr-
ir því að SÞ sendi friðargæslulið til
Darfur.
Utanríkisráðherra fékk sent afrit
af bréfi framkvæmdastjóra Amn-
esty International, Irene Khan, til
öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
þar sem farið er fram á að Samein-
uðu þjóðirnar sendi friðargæslulið
til Darfur til verndar almennum
borgurum. Í áskoruninni segir m.a.:
„Íslandsdeild Amnesty Int-
ernational hvetur ríkisstjórn Ís-
lands til að beita áhrifum sínum og
þrýsta á öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna að fara að tilmælum
Amnesty International.
Með von um að ríkisstjórn Íslands
beiti sér af fremsta megni til að
tryggja að alþjóðasamfélagið veiti
íbúum Darfur nauðsynlega vernd.“
Undir áskorunina ritar Jóhanna
K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri
Íslandsdeildar Amnesty Inter-
national.
Íslendingar beiti
sér á vettvangi SÞ