Morgunblaðið - 11.08.2006, Side 10
10 FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
900 ár frá stofnun
biskupsstóls á Hólum
á morgun
LANDSLIÐ Íslands í opnum flokki í brids heldur í dag
til höfuðborgar Póllands, Varsjár, þar sem Evrópu-
mótið í brids fer fram í 48. skipti. Mótið er það stærsta
sinnar tegundar í Evrópu auk þess sem fimm efstu
sveitirnar úr mótinu komast í úrslit heimsmeist-
aramótsins, sem fram fer í Kína að ári. Fyrirliði liðsins
er Björn Eysteinsson og með honum í liði eru meðal
annarra þeir Jón Baldursson og Þorlákur Jónsson, en
þremenningarnir voru í liði Íslands sem vann heims-
meistaratitilinn í Japan árið 1991, eins og mörgum er í
fersku minni.
Skriður kominn á keppnisliðið
Af tilefni Póllandsreisunnar efndi Bridgesamband
Íslands til blaðamannafundar þar sem liðið og markmið
þess voru kynnt. Þegar fyrirliðinn, Björn Eysteinsson,
var inntur eftir því hverjar líkurnar á því að íslenska
landsliðið hafnaði í einu fimm efstu sætanna og tryggði
sér þar með þátttökurétt á heimsmeistaramótinu stóð
ekki á svarinu: „Ég hugsa að við eigum 50% möguleika
á því að komast áfram, eða segjum 51%.“ Björn sagði
þó langa leið á heimsmeistaramótið, en stemmningin
væri góð innan hópsins og ágætis skriður kominn á
keppnisliðið.
Ekki var annað að sjá en að létt væri yfir liðs-
mönnum sem mestar áhyggjur höfðu af því að fyrirlið-
inn eða „meistarinn“ eins og hann var kallaður innan
hópsins fengi matareitrun af pólsku soðmeti og yrði frá
keppni.
Liðið í ár skipa ásamt Birni, Jóni og Þorláki þeir
Matthías Þorvaldsson, Magnús E. Magnússon, Sig-
urbjörn Haraldsson og Bjarni H. Einarsson.
„51% líkur á að við förum áfram“
Morgunblaðið/Jim Smart
Bridslandslið Íslands árið 2006 ásamt formanni Bridgesambandsins, Guðmundi Baldurssyni, en hann er annar til
vinstri í fremri röð. Evrópumótið í brids fer nú fram í Varsjá í Póllandi í 48. skipti og landsliðið tekur þar þátt.
EFTIRFARANDI athugasemd
hefur borist Morgunblaðinu frá
Gesti Jónssyni, lögmanni Jóns
Ásgeirs Jóhannessonar:
„Hinn 30. júní sl. vísaði Arn-
grímur Ísberg héraðsdómari frá
dómi ákæru sérstaks ríkissak-
sóknara á hendur skjólstæðingi
mínum Jóni Ásgeiri Jóhannessyni
um fjársvik og til vara umboðs-
svik í tengslum við kaup Baugs á
10/11 verslunarkeðjunni á árun-
um 1998 og 1999. Í forsendum
dómsins er sagt að í ákærunni sé
ekki lýst auðgunarbroti heldur
viðskiptum. Frávísunarúrskurður
Arngríms var staðfestur af
Hæstarétti 21. júlí sl. Staðfest-
ingin var byggð á sömu forsend-
um og niðurstöður héraðsdómar-
ans.
Þetta var í annað skipti sem
Hæstiréttur staðfesti frávísun
héraðsdóms á ákæru á hendur
Jóni Ásgeiri vegna kaupa Baugs á
10/11 verslununum. Það sama
gerðist 10. október 2005 eins og
mörgum er í fersku minni.
Við málflutning fyrir Héraðs-
dómi Reykjavíkur 15. júní sl.
lagði Sigurður Tómas Magnús-
son, sérstakur ríkissaksóknari,
mikla áherslu á að þessum lið
ákærunnar yrði ekki vísað frá
dómi. Gat þess sérstaklega að
hann sæi ekki að ákært yrði í
þriðja sinn vegna kaupa Baugs á
10/11 verslununum yrði ákæru-
liðnum aftur vísað frá dómi.
Þessu lýsti hann yfir við flutning
málsins, fyrir framan dómara
málsins, að viðstöddum verjend-
um og fjölda annarra áheyrenda.
Nú má skjólstæðingur minn
lesa það í Morgunblaðinu að sér-
stakur ríkissaksóknari sé að gera
það upp við sig hvort hann eigi að
ákæra í þriðja sinn vegna atvika
sem dómarar á tveimur dómstig-
um hafa sagt að séu viðskipti en
ekki auðgunarbrot.
Það er mikilvægt að ákæru-
valdið fari varlega í beitingu þess
mikla valds sem því hefur verið
trúað fyrir. Það eru örugglega til
mikilvægari verkefni í réttar-
vörslunni á Íslandi en að ákæra
Jón Ásgeir Jóhannesson í þriðja
sinn fyrir að hafa átt stærstan
hlut í kaupum Baugs á 10/11
verslunarkeðjunni fyrir átta ár-
um. Kaup sem hafa reynst Baugi
góð og arðsöm fjárfesting.
Er ekki mál að linni?“
Hvenær er
nóg komið?
HARALDUR Briem sóttvarnalækn-
ir segir mjög brýnt að bæta rann-
sóknaraðstöðu hér á landi vegna
hugsanlegs fuglaflensufaraldurs en
fyrirhugaðri
rannsóknarstofu í
tilraunastöðinni á
Keldum var, eins
og öðrum fram-
kvæmdum á veg-
um ríkisins, frest-
að á dögunum.
Haraldur segir
að þó lítið hafi ver-
ið fjallað um
fuglaflensuna í fjölmiðlum að undan-
förnu sé hættan á því að heimsfar-
aldur komi upp síður en svo liðin hjá.
„Á Taílandi, sem hefur verið laust
við flensuna í ár, hafa komið upp tilvik
á nýjan leik og fólk hefur látist en
þetta virðist ekki vekja mikla at-
hygli,“ segir Haraldur og bætir við að
flensan hafi einnig komið upp í
Indónesíu nýverið.
„Fuglaflensan, eins og önnur
flensa, er sveiflukennd eftir árstíðum.
Á vorin dettur þetta niður en kemur
svo aftur upp seint á sumrin og á
haustin. Þetta mynstur er enn í gangi
þannig að þetta er alls ekki búið. Það
er ekkert um að vera í nágrannalönd-
unum núna en við getum ekki búist
við því að vera laus við þetta,“ segir
hann.
Bóluefni leysir ekki allan vanda
Í vetur bárust fréttir af því að tek-
ist hafi að búa til bóluefni vegna fugla-
flensu fyrir menn. Haraldur segir
þetta rétt og að búist sé við því að
þessi efni verði tilbúin til markaðs-
setningar upp úr áramótum.
„Þetta getur verið mjög gagnlegt
en við vitum ekki hvort þetta sé bólu-
efnið sem við þurfum að nota í hugs-
anlegum heimsfaraldri, af því við vit-
um ekki hvort þessi veira valdi honum
eða annað afbrigði af henni. Þetta
leysir ekki það mál en getur hjálpað
okkur við að verja fólk sem þarf að
sinna sýktum fuglum og dýrum.“
Aðspurður hvernig undirbún-
ingsvinnu hér á landi miði, segir
Haraldur að stýrihópur á vegum rík-
islögreglustjóra og sóttvarnalæknis
vinni að samhæfðum viðbrögðum í
samfélaginu ef heimsfaraldur kæmi
upp.
Stór æfing á næsta ári
Hann segist þar eiga við heimsfar-
aldur í mönnum, en gera verði grein-
armun á faraldri í fuglum annars veg-
ar og mönnum hins vegar. Starf
stýrihópsins nær til nánast allra op-
inberra stofnana og atvinnulífsins og
segir Haraldur að unnið sé að gerð
viðbragðsáætlunar. Þegar sú áætlun
verði fullunnin standi til að halda
stóra æfingu í byrjun næsta árs en
Haraldur segir að einnig sé unnið
með Evrópusambandinu að samræm-
ingu aðgerða. Þá hafi nefnd á vegum
forsætisráðuneytisins verið að skoða
hverjar efnahagslegar afleiðingar
yrðu ef slíkur faraldur kæmi upp.
„Nefndin skilar væntanlega áliti í
þessum mánuði,“ segir hann og bætir
við að mikil vinna hjá embætti sótt-
varnalæknis fari í þessi mál.
„Við reynum að undirbúa okkur
eins vel og hægt er með því að hafa
lyfja- og vökvabirgðir í landinu og
eins hvernig við getum nálgast bólu-
efni ef og til þess kemur að farald-
urinn brýst út,“ segir Haraldur.
Haraldur Briem segir brýnt að bæta úr rannsóknaraðstöðu
Hætta á fuglaflensu
síður en svo liðin hjá
Eftir Árna Helgason
arnihelgason@mbl.is
Haraldur Briem
VIÐ álagningu ríkisskattstjóra á ein-
staklinga, sem kynnt var um mánaða-
mótin kom fram að barnabætur árið
2005 hækkuðu um 19% frá fyrra ári. Í
ár verður því tæpum sex milljörðum
króna úthlutað til 55.000 framtelj-
anda. Barnabætur í ár nema rúmlega
8% af tekjusköttum til ríkisins, að
fjármagnstekjuskatti undanskildum.
Ástæðu aukinna greiðslna má rekja
til breytinga á bótakerfinu sem
ákveðnar voru 2004 en annar áfangi
þeirra breytinga hefur nú komið til
framkvæmda. Með honum hækkuðu
barnabætur til allra barna undir 7 ára
aldri um 25% frá fyrra ári og nema nú
46.747 kr. á ári. Til viðbótar ótekju-
tengdum bótum er tekjutengdum
barnabótum úthlutað og sæta þær
skerðingu eftir tekjum foreldra.
Tekjumörkin þar sem kemur til
skerðingar hækkuðu um 25% í ár og
bæturnar sjálfar um 10%. Með fyrsta
barni nema bæturnar nú 140 þúsund
kr. hjá samsköttuðum foreldrum en
tæpum 233 þúsund kr. hjá einstæðum
foreldrum. Fyrir hvert barn umfram
eitt nema bætur 166 þúsund kr. hjá
samsköttuðum foreldrum og 239 þús-
und kr. hjá einstæðum foreldrum.
Á næsta ári koma til framkvæmda
frekari breytingar á barnabótakerf-
inu. Ótekjutengdar bætur munu þá
hækka um 20% og verða því greiddar
56 þúsund krónur ár hvert í bætur
fyrir börn undir 7 ára aldri. Tekju-
tengdu bæturnar munu ekki hækka í
þeim áfanga, en tekjumörkin þar sem
þær byrja að skerðast koma til með
að hækka um 20% til viðbótar þeim
25% sem hækkunin í ár nam auk þess
sem dregið verður úr tengingu bót-
anna við tekjur foreldra.
Samkomulag aðila vinnumarkaðar-
ins við ríkisstjórnina í júní sl. felur
einnig í sér auknar greiðslur ríkis-
sjóðs á barnabótum, en ákveðið var að
taka upp bætur til foreldra allt að 18
ára gamalla barna í stað 16 ára eins
og verið hefur. Frumvarp um fram-
kvæmdina verður lagt fram fyrir
haustþing og er áætlað að fram-
kvæmdin muni auka greiðslur barna-
bóta um 500 milljónir króna til við-
bótar.
Barnabætur hækka
um 19% á milli ára
Eftir Friðrik Ársælsson
fridrik@mbl.is Íslandsfána
stolið í Kanada
ÞJÓÐFÁNUM Kanada og Íslands
var stolið úr húsi, sem Kletta-
fjallaskáldið Stephan G. Stephans-
son bjó í, rétt sunnan við landa-
mæri Bandaríkjanna að Kanada í
Norður-Dakóta-fylki á laugardag.
Fánunum var stolið skömmu
eftir skoðunarferð um sögustað-
inn og bóndabýlið, en hún var
liður í Íslandshátíð bæjarins
Mountain sem haldin var á laug-
ardaginn. Sáust tveir menn taka
fánana niður og hlaupa á brott
með þá.