Morgunblaðið - 11.08.2006, Side 17

Morgunblaðið - 11.08.2006, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. ÁGÚST 2006 17 MINNSTAÐUR Fyrir magann og meltinguna. PÓSTSENDUM www.simnet.is/heilsuhorn Glerártorgi, Akureyri, sími 462 1889, fæst m.a. í Lífsins Lind í Hagkaupum, Maður Lifandi Borgartúni 24, Árnesapóteki Selfossi, Yggdrasil Skólavörðustíg 16, Fjarðarkaupum, Lyfjaval Hæðasmára og Þönglabakka, Lífslind Mosfellsbæ, Stúdíó Dan Ísafirði Sýrubindandi. ...eftir þínu höfði Lyngháls 4 – s: 517 7727 – www.nora.is Frumlegur vínkælir HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ AKUREYRI Golfmót | Opið mót öldunga, Bón- usmótið, verður haldið á Jaðarsvelli laugardaginn 12. ágúst. Um er að ræða höggleik, með og án forgjafar, og er keppt bæði í karla- og kvenna- flokkum. Verðlaun verða veitt fyrir þrjú fyrstu sætin í báðum flokkum, auk nándarverðlauna á 4., 11. og 18. holu.    Tónleikar | Hljómsveitin Fræ held- ur tónleika í Ketilhúsinu á laugar- dag, 12. ágúst. Þetta er í fyrsta sinn sem hljóm- sveitin heldur tónleika í höfuðstað Norðurlands og mikil eftirvænting meðal meðlima hennar, en helm- ingur sveitarinnar er úr bænum. Húsið verður opnað klukkan 21.30 og aðgangseyrir er 1.000 kr. Tón- leikarnir eru opnir öllum aldurs- hópum. Brota/Brot | Stella Sigurgeirs- dóttir opnar sýninguna Brota/Brot í Galleríi BOXi á morgun, föstu- daginn 11. ágúst kl. 17. Stella út- skrifaðist árið 2000 úr Listahá- skólanum í Reykjavík. Hún hefur sýnt víða á Íslandi og einnig er- lendis. Stendur sýningin „Where Do We GoNow But Nowhere!“ yf- ir á tuttugu stöðum víðsvegar um Reykjavíkurborg. Stella mun sýna textaverk inn í BOXinu og skilti í Listagilinu. „Brot sem koma héðan og þaðan standa ein sér eða með öðrum. Brot af upplifun, af endurkasti, af hugmyndum. Brot sem mynda á endanum heild,“ segir í frétt um sýninguna. Galleríið er opið á fimmtudögum og laugardögum frá kl. 14 til 17.    SÝNINGIN Handverk 2006 var formlega sett í Hrafnagili í Eyja- fjarðarsveit síðdegis í gær. Fjöldi sýnenda er þar og kynnir handverk sitt, af ýmsu tagi og geta gestir gleymt sér við skoða allt það sem sýnt er og kynnt. Auk þess sem handverksfólk kynnir varning sinn í íþróttahúsi og tjöldum utandyra geta gestir og gangandi fylgst með handverksfólki að störfum, séð listaverkin verða til. Þannig er ver- ið að smíða hljóðfæri á staðnum, líka risann Bergþór í Bláfelli, ríf- lega tveggja metra háan, en hann verður fluttur suður á land, að Geysi í Haukadal, þegar verkinu lýkur. Í tengslum við sýninguna á Hrafnagili verður margt um að vera á svæðinu, en handverkssýn- ingin dregur jafnan að sér fjölda gesta. Nú í ár munu gestir á sýning- unni hafa tækifæri til að velja feg- urstu landnámshænsn landsins, nýj- ung sem bryddað er upp á að þessu sinni. Sýningin verður opin fram á sunnudagskvöld. Góð kaup Margir gestanna á handverkssýningunni gera góð kaup, en sumir sýnenda eru með tilboð á hand- verki sínu í tilefni af sýningunni. Morgunblaðið/Margrét Þóra Handverk Hin árlega handverkssýning í Hrafnagili í Eyjafirði hófst í gær, þar er að venju hægt að skoða fjölbreytt handverk frá hagleiksfólki víða að af landinu. Þessar konur veltu málverkum fyrir sér. Blómarósir Það kennir margra grasa á handverkssýn- ingunni í ár líkt og vanalega. Þessar tvær voru að búa til rauðar rósir en fjöldi sýnenda kynnir handverk sitt. Hand- verkssýn- ing hafin AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Kópavogur | Nýr kirkjugarður var vígður í gær í Leirdal í Kópavogi, við Uppsali neðan Salahverfis. Garður- inn er einkum ætlaður Kópavogsbú- um en eins og í flestöllum kirkjugörð- um á Íslandi er garðurinn opinn þeim sem þar vilja láta greftra sig. Vöku- maður garðsins var jarðsettur í garð- inum í gærmorgun. Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs, hélt stutta ræðu við vígsluathöfnina og sagði m.a. að vígslan markaði spor í sögu bæjar- félagsins en þar hefur aldrei verið kirkjugarður fyrr en nú. Sumarið 2001 úthlutaði bærinn Kirkjugörðum Reykjavíkurprófastsdæma um 12 hektara svæði og verða þar um 13 þúsund kistugrafir og um 5 þúsund duftgrafir. Karl Sigurbjörnsson biskup vígði kirkjugarðinn og lýsti því yfir að grafreiturinn væri helgaður kristinn legstaður. Hann bað guð einnig að blessa minningu Guðmundar Helga- sonar en duftker hans var jarðsett að vígslunni lokinni. Að gömlum sið er sá sem fyrstur er lagður til hinstu hvílu í kirkjugarði kallaður vökumað- ur hans og er þá talið að hann vaki yf- ir garðinum og taki á móti þeim sem í hann komi. Breyttir útfararsiðir Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts- dæma, segir að þó nokkur þörf hafi verið komin á að Kópavogur fengi sinn eigin kirkjugarð, enda vilji margir vera lagðir til grafar í eigin sveitarfélagi. Garðurinn er í minna lagi miðað við kirkjugarðana í Reykjavík en Fossvogskirkjugarður er 28 hektarar og kirkjugarðurinn í Gufunesi um 30 hektarar. Nægt pláss er enn í þessum görðum en Þórsteinn gerir ráð fyrir að grafið verði á nýjum svæðum í Gufuneskirkjugarði allt til ársins 2020. Búast megi þó við að grafið verði á fráteknum svæðum í báðum görðunum í Reykjavík um mörg ókomin ár. „Það eru fráteknar grafir í þessum görðum langt fram í tímann. Það er t.d. enn verið að grafa í Hólavalla- kirkjugarði en hann var vígður 1838,“ sagði Þórsteinn við Morgunblaðið í gær. Kirkjugarðar hafa breyst töluvert síðastliðna áratugi og segir Þórsteinn að í stað þess að grafir liggi þétt sam- an og mikið sé um mannvirki sé nú reynt að hafa garðana opna svo þeir nýtist betur sem útivistarsvæði að- standenda og annarra en einnig svo auðveldara sé að hirða þá. „Nú laða kirkjugarðarnir frekar að sér fólk fremur en fæla það frá eins og áður var.“ Breyttir útfararsiðir þjóðarinnar hafa einnig áhrif en nú eru um fjórðungur þeirra sem deyja brenndur. Í Kópavogskirkjugarði verður duftgarðurinn því töluvert stærri en áður hefur þekkst hér á landi. Kópavogskirkjugarður vígður við Uppsali í Leirdal Eftir Gunnar Pál Baldvinsson gunnarpall@mbl.is Morgunblaðið/Eyþór Karl Sigurbjörnsson vígir nýjan kirkjugarð í Kópavogi en Gunnar I. Birgisson flutti ræðu við vígsluna.   I  G!E! N A  N 5=; ;  '  0         0    ; 0 ;! <    ; 7   !  > : ; - F * ? . -  * > < * 6 H >  1 2 & # 3 , "             ! "!#$ % % $&   BORGARRÁÐ samþykkti með fjór- um atkvæðum gegn einu á fundi sín- um í gær að fallast á tillögu stjórn- kerfisnefndar borgarinnar um að stofna leikskólaráð og leikskólasvið. Árni Þór Sigurðsson, borgar- fulltrúi Vinstri grænna, greiddi at- kvæði gegn tillögunni og taldi skorta á að fagleg rök væru fyrir stofnun ráðsins. Ólafur F. Magnússon, borg- arfulltrúi Frjálslynda flokksins, lýsti einnig andstöðu við tillöguna í bókun en hann er áheyrnarfulltrúi í ráðinu. Fulltrúar Framsóknar- og Sjálfstæð- isflokks bókuðu hins vegar að fagleg rök byggju að baki ákvörðuninni. Sjö fulltrúar sitja í borgarráði en vegna sumarleyfa sóttu einungis fimm fulltrúar auk Ólafs fundinn í gær. Forsaga málsins er að nýr meiri- hluti ákvað í vor að búa til nýtt ráð um málefni leikskóla og taka málaflokk- inn út úr menntaráði, þar sem hann hafði verið. Minnihlutinn í borgar- stjórn hefur hins vegar talið skorta á að fagleg rök standi að baki ákvörð- uninni og á fundi borgarráðs í gær lagði Árni Þór Sigurðsson fram beiðni um að lögð yrðu fram ítarlegri gögn um málið, meðal annars skriflegar umsagnir leikskólakennara, leik- skólastjóra, grunnskólakennara og grunnskólastjóra. Fagleg umræða farið fram Fulltrúar meirihlutans í borgarráði bentu hins vegar á að þessi breyting hafi staðið til frá því í júní og að síðan þá hefði mikil og góð fagleg umræða farið fram um málið. „Fulltrúar meirihlutans hafa hitt fjölda hags- munaaðila á fundum, fengið góðar ábendingar og skipst á skoðunum,“ segir í bókun þeirra. Þá er bent á að með stofnun leikskólaráðs fái málefni leikskólans meiri athygli en áður. Tillaga um leikskólaráð samþykkt Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.